Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ1979 27 Farmannadeilan: isstjórnarinnar Norski óratóríukórinn Cæciliaforeningen syngur með Sinfóníuhljómsveit íslands á tónleikum hennar í kvöld kl. 20.30 í Háskólabíói. Verða á þeim flutt íslensk og norsk verk, en tónleikar þessir eru í tilefni þjóðhátíðardags Norðmanna sem er í dag, 17. maí. heilshugar til þessa leiks, og að samningum loknum munu þeir ganga heilshuga frá honum, en heldur ekki fyrr.“ „Fundur yfirmanna skorar á stjórnvöld, að fréttasendingar á morse til íslenskra skipa verði nú þegar hafnar á ný“. Á 22. verkfallsdegi eru 22 skip stöðvuð vegna verkfalls. Unnið er við losun 4 skipa á Stór-Reykja- víkursvæðinu. 10 skip hafa undan- þágu á ströndinni. 7 skip eru iögð af stað á leið til landsins. 4 skip eru enn erlendis. I leigusiglingum fyrir erlenda aðila eru nú 5 skip. 2 skip eru í viðgerðum. 2 skip hafa fengið undanþágu til að sigla utan. BÆÐI Vinnuveitendasamband íslands og Farmanna- og fiskimanna- samband íslands höfnuðu í gær tilmælum ríkisstjórnarinnar um afboðun eða frestun verkfalla og verkbanna í yfirstandandi kjaradeilu aðilanna, gegn 3% grunnkaupshækkun fram til áramóta. Hér fara á eftir fréttatilkynningar beggja aðila, yfirlýsing VSÍ og fréttatilkynning FFSÍ: 3% geta ekki leitt til kjarabóta Á fundi samningaráðs Vinnu- veitendasambands Islands og full- trúa skipafélaga innan VSÍ í morgun var rætt um þá beiðni ríkisstjórnarinnar að VSÍ féllist á skipun sáttanefndar í yfirstand- andi kjaradeilu við yfirmenn á farskipum, samþykkti 3% grunn- kaupshækkun til yfirmanna og frestun á verkbanni gagnvart undirmönnum. Fyrir hádegi í dag var forsætis- ráðherra kunngerð afstaða VSÍ, sem er þessi: VSÍ telur óhjákvæmilegt að samningar við yfir- og undirmenn á farskipum séu gerðir samtímis. Þar sem tilmæli ríkisstjórnarinn- ar voru bundin við hugsanlegt samkomulag við yfirmenn og samskonar óskum var ekki beint til undirmanna getur VSÍ ekki samþykkt tilmælin, nema að því er varðar skipun sáttanefndar. Jafnframt er það óbreytt af- staða VSÍ að við ríkjandi aðstæð- ur séu ekki fyrir hendi efnahags- legar forsendur til kauphækkana. VSÍ hefur að þessu leyti flutt stefnu ríkisstjórnarinnar, sem mótuð var með samkomulagi við verkalýðshreyfinguna, er m.a. fól í sér, að á þessu ári kæmi ekki til grunnkaupshækkana. Síðan þessi stefna var tekin hefur ekkert það breyst í efnahagslífi þjóðarinnar sem réttlæti fráhvarf frá henni. Sú 3% kauphækkun, sem nú er rætt um af hálfu stjórnvalda, getur því ekki leitt til kjarabóta, heldur einvörðungu aukinnar verðbólgu. Rétt er að benda á í þessu sambandi að laun hækka sjálf- krafa á þessu ári um 40% eða þar um bil vegna gildandi verðbóta- reglna á laun án þess að þjóðar- tekjur aukist. 16. maí 1979 Vinnuveitendasamband íslands Enginn skyldi treysta því að lausn fáist nema með frjálsum samningum. Oratóríukór Œáskólabíói Þingsályktunartillaga um iðnþróun: „Iðnaðurinn verði megin undir- staða framfara á komandi árum” Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þings- ályktunar um iðnaðarstefnu, sem er að mestu leyti byggð á áliti samstarfsnefndar um iðn- þróun, sem ráðherra skipaði á s.l. hausti. I greinargerð með frumvarp- inu segir m.a., að með tillögu þessari sé gerð tilraun til þess að móta samræmda stefnu í iðnaðarmálum af hálfu hins op- inbera og fá fram skýra afstöðu Alþingis til þess, hver eigi að vera þáttur iðnaðar í þeim um- breytingum í atvinnulífinu, sem sýnast nauðsynlegar á næstu árum. Með tillögunni sé reynt að skapa samstöðu um þær aðgerð- ir, sem nauðsynlegar séu taldar, ef iðnaðurinn á að geta gegnt því hlutverki að verða ein megin undirstaða framfara í atvinnu- og efnahagslífi á komandi árum. Þá segir, að þess sé vænst að með skýran vilja Alþingis í þessu máli að bakhjarli, geti stjórnvöld tekið með virkum hætti á þeim fjölmörgu vandamálum, sem standa í vegi fyrir eðlilegri þróun iðnaðar og búið honum hagstæð- ari skilyrði til vaxtar. í greinargerðinni segir enn- fremur um framkvæmd iðnaðar- stefnu: „Skortur á samhæfingu á störfum og stefnu hinna fjöl- mörgu aðila, sem í reynd hafa áhrif á gang mála, er sá þáttur, sem öðrum fremur hefur staðið í vegi fyrir æskilegri þróun iðnað- ar. I fámennu og tiltölulega fjárvana þjóðfélagi ber brýna nauðsyn til sameiginlegs átaks margra aðila til að koma umbót- um í framkvæmd. Á sviði iðnþró- unar hefur vöntun á stefnumörk- un haft í för með sér sundur- virkni í störfum opinberra stofn- ana, sem iðnaðinum þjóna, lána- sjóða iðnaðarins og samtaka hans, með þeim afleiðingum að ekki hefur tekist að koma ýms- um nauðsynjamálum fram. — Sú reynsla, sem fengist hefur af starfi „Samstarfsnefndar um iðnþróun" til þessa, bendir til að þar sé æskilegt samstarfsform til að tengja þá aðila, sem láta sig málefni iðnaðarins varða.“ í samstarfsnefnd um iðnþróun eiga sæti: Vilhjálmur Lúðvíks- son, framkvæmdastjóri Rann- sóknaráðs ríkisins, sem er for- maður, Bjarni Einarsson, Bragi Hannesson, Davíð Scheving Thorsteinsson, Guðmundur Þ. Jónsson, Hjörtur Eiríksson, Pétur Sæmundsen, Sigurður Magnússon, Þórleifur Jónsson og ritari nefndarinnar er Jafet S. Ólafsson. Formaður útvarpsráðs um Þjóf í paradís: Geri ráð fyrir að sagan haldi áfram — ÞAÐ hefur ekki verið rætt um það í útvarpsróði hvort haldið verður áfram að lesa sögu Indriða G. Þorsteinssonar, Þjóf í paradís, sem lögbann var sett á og sfðan hrundið, sagði ólafur R. Einarsson formaður útvarpsráðs. Ólafur kvaðst gera ráð fyrir að svo færi að sagan yrði á dagskrá að nýju, en á það bæri að líta að nýtt útvarpsráð hefði tekið til starfa eftir að þetta mál kom upp og yrði það því rætt að nýju. Þá kvað hann réttara að hefja lestur sögunnar að nýju frá byrjun, en ekki þar sem frá hefði verið horfið á sínum tíma eftir einn lestur. Báðir aðilar höfn- uðu tilmælum rík- í dag var haldinn fjölmennur fundur yfirmanna á Hótel Esju. Sóttu fundinn um 250 starfandi yfirmenn. Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum: „Fundur yfirmanna á kaup- skipum haldinn miðvikudaginn 16. maí 1979 samþykkir að skora á vinnuveitendur að ganga nú þegar til samninga í stað þess að bíða þess, að stjórnvöld leysi þá frá þeim vanda. Enginn skyldi treysta því að önnur lausn sé til að þessari kjaradeilu en frjálsir samningar. Bent skal á að yfirmenn gengu Kolmunnabát- um gengur misjafnlega ÍSLENZKU kolmunnabátunum, sem eru á veiðum við Færeyjar, hefur gcngið misjafnlega. Kolmunninn hefur verið dreifð- ur og erfitt að veiða hann, en flest skipin hafa þó fengið nokkurn afla. Norsk skip, sem veiða á sömu slóðum, hafa aflað betur enda útbúin stærri trollum. Á vegum Siglingamálastofnunar ríkisins stendur nú yfir námskeið fyrir hafnarstarfsmenn um olíumengun sjávar og aðgerðir til að forðast hana og verjast. Hafa hafnarstarfsmenn hlýtt á fyrirlestra og í gær héldu þeir út á ytri höfnina í Reykjavík þar sem þeim var sýnt hvernig leggja skal flotgirðingu til að hafa hemil á útbreiðslu ólíu á sjó. Mbi. Kristján. Möðrudals- öræfi lokast vegna snjóa FÆRT er á öllum helstu þjóðveg- um landsins um þessar mundir að sögn Iljörleifs ólafssonar vcga- eftirlitsmanns, en þó hefur enn ekki tekizt að opna Möðrudalsör- æfi. Hafa þau verið mokuð tvisvar og iokast aftur vegna veðurs, en mikill snjór er á þeim slóðum og fljótt að lokast ef hvessir. Hjörleifur sagði að nú þegar örlítið hefði hlýnað sums-staðar á landinu væri enn farið að beita þungatakmörkunum og væri öxul- þungi víðast takmarkaður við 7 tonn en 5 á einstöku vegi. Kvað hann það koma sér illa fyrir menn þar sem vöruflutningar væru nú miklir með bílum þegar ekki væri hægt að nota skipin, en þó væri betra að takmarka þungann og geta haft opið, en leyfa hann ótak- markað því þá myndu vegirnir fljótt verða ófærir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.