Morgunblaðið - 17.05.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979
11
Firmakeppni
Fáks nýlokid
FIRMAKEPPNI hestamannafé-
lagsins Fáks fór fram á Vfðivöll-
um laugardaginn 5. maf 1979.
179 hestar kepptu fyrir hin ýmsu
fyrirtæki. Keppt var f flokki
unglinga og fullorðinna.
Sigurður
Thoroddsen
heiðursfélagi
Félags ráð-
gjafaverk-
fræðinga
Á AÐALFUNDI Félags
ráðgjaíaverkfræðinga í
síðasta mánuði tilkynnti
stjórn félagsins að hún
hefði einróma útnefnt Sig-
urð Thoroddsen verkfræð-
ing heiðursfélaga félags-
ins. Sigurður er fæddur að
Bessastöðum 4. júlí 1903,
sonur Skúla Thoroddsen
ritstjóra og Theodóru
Thoroddsen. Lauk hann
prófi í byggingarverk-
fræði í Kaupmannahöfn
f flokki unglinga sigruðu:
1. Ljóska, knapi: Magnús Arn-
grímsson 14 ára, keppti fyrir
Hermes hf.
2. Neisti, knapi: Guðmundur Vals-
son 12 ára, keppti fyrir Ofna-
smiðju Suðurnesja.
3. Blesi, knapi: Ester Harðardótt-
ir 13 ára, keppti fyrir Nýju
Ljósprentunarstofuna.
4. Svalur, knapi: Ásta Sigur-
björnsdóttir 15 ára, keppti fyrir
Verslun Guðsteins Eyjólfsson-
ar.
í flokki fullorðinna sigruðu:
1. Gullfeti, eigandi og knapi: Hall-
dór Sigurðsson, keppti fyrir
Blikk og Stál h.f.
2. Völsungur, eigandi: Halldór
Sigurðsson, knapi: Jón Stein-
björnsson, keppti fyrir Heimil-
istæki h.f.
3. Kolbakur, eigandi Egill Ágústs-
son, knapi: Erling Sigurðsson,
keppti fyrir Sigurð Hannesson
& Co.
Formaður Fáks, Guðmundur
Ólafsson, gaf verðlaunapening
fyrir best hirta hestinn í flokki
unglinga, í firmakeppninni. Þenn-
an pening hlaut Ester Harðar-
dóttir.
Fyrsta sameiginlega hópferð
sumarsins hjá Fák, var farinn að
Hlégarði í Mosfellssveit sunnu-
daginn 6. maí s.l. Um 300—400
manns tóku þátt í ferðinni á um
700 hrossum. Veður var hið besta
og tóku Mosfellingar á móti Fáks-
mönnum með lúðrablæstri og hin-
um bestu veitingum. Ferðin var í
alla staði vel heppnuð.
Sigurður Thoroddsen verkfræð-
ingur
1927 og setti árið 1932 á
laggirnar eigin
verkfræðistofu.
í frétt frá Félagi ráðgjafarverk-
fræðinga segir m.a.:
Starfar hún enn sem elsta og
jafnframt stærsta verkfræðistofa
landsins, nú sem hlutafélag undir
nafninu Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen hf. Sigurður átti
drýgstan þátt að stofnun Félags
ráðgjafarverkfræðinga árið 1961
og var formaður þess til ársins
1967. Þessir drættir úr æviferils-
skrá Sigurðar vógu þyngst, er
stjórn FRV tók ákvörðun um að
heiðra hann sérstaklega, en hann
hefur víðar markað spor í sögu
verkfræðingastéttarinnar og þjóð-
arinnar, enda nær fjölhæfni hans
allt frá ströngustu kröfum reikni-
meistarans til fínustu drátta lista-
mannsins eins og það mun hafa
verið orðað á aðalfundinum.
Sl. föstudag varð óvenjulegur árekstur hér í Grindavík. Tveir bflar voru að bakka
út úr heimkeyrslum húsa við Borgarhraun og skullu þeir saman. Engin slys urðu
og litlar skemmdir. - ouMinnur.
Margslungin vertldarlok
hjá Ólafsvíkurbátum
Ólafsvík, 14. maí.
Netavertíð lauk hér 30.
apríl sl. eins og annars
staðar syðra og vestra.
Heildarafli Ólafsvíkurbáta
frá áramótum varð 10256
lestir í 1389 sjóferðum, en
var 6563 lestir á sama tíma
í fyrra. Hinn 30. apríl voru
þessir aflahæstir: Fróði
með 766 lestir, í 75 sjóferð-
um. Skipstjóri á Fróða er
ungur maður frá Rifi, Bald-
ur Freyr Kristinsson. í 2.
sæti var Gunnar Bjarnason
með 727 lestir og í 3. sæti
Garðar 2. með 686 lestir.
Þessir þrír bátar voru allir
á línu og netum. Aflahæst-
ir þeirra sem reru með net
alla vertíðina var Ólafur
Bjarnason með 634 lestir.
Ekki viðurkenna allir ver-
tíðarlok „hin nýju“. Nokkr-
ir skiptu á línu og troll um
sl. mánaðarmót. I dag, 14.
maí, var Gunnar Bjarnason
SH búinn að fá 780 lestir
frá áramóturn og því orðinn
aflahæstur miðað við hefð-
bundin lok hér. Skipstjóri á
Gunnari Bjarnasyni er
Ríkharð Magnússon.
Togarinn Lárus
Sveinsson hefur aflað tæp-
lega 1100 lesta frá áramót-
um. Næg atvinna er hér um
þessar mundir þvi bátar
hafa fiskað allvel í troll.
- Helgi.
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAOERÐ
ADALSTRETI • SÍMAR: 171B2-173S5
Fegurðarsamkeppni lslands 1979
Að Hótel Sögu laugardagskvöldið 9. júní n.k.
Miss Universe 1978
(Ungfrú alheimur 78)
Margareth Gardiner frá
Suður Afríku verður gest-
ur kvöldsins og krýnir
ungfrú ísland 1979.
Franskur hátíðarmatur og
kvöldklæðnaður
A þessu veislukvöldi,
fegurðarsamkeppni ís-
lands, er ætlast til, að
fólk mæti í kvöldklæðn-
aði. Veislumaturinn er
Ijúffengur lambakjöts-
réttur, framreiddur á
franska vísu;
GIG0T D’AGNEAU
MORINE A’LA SAGA
Eftirréttur:
SALADE de FRUITS
FEMINA
Franskar sýningarstúlkur
koma með það nýjasta frá
Dier, Ted Lapidus og
Chastel Bacac.
Fyrir milligöngu aóalskrifstofu fegurð-
arsamkeppninnar í París koma nú til
íslands í fyrsta sinn franskar sýning-
arstúlkur og sýna íslendingum milli 20
og 30 tískubúninga frá þremur tísku-
höfundum, LAPIDUS, DI0R og
CHASTEL BACAC, en engir tísku-
frömuðir eru taldir hafa meiri áhrif á
kvenfatatískuna í heiminum í dag en
þessir þrír.
Hugsanlegt er, aó tískuhúsin leyfi sölu
á 4—5 búningum eftir sýninguna á
Hótel Sögu.
Forsala aðgangskorta að hátíðinni
hefst í dag kl. 13.00 á Ferðaskrifstofunni Sunnu,
Bankastræti 10, R.
Verð kr. 18.000. Innifalið: Veislumatur, aðgangs-
eyrir, rúllugjald og fatagjald.
Hátíöin hefst meö borðhaldi kl. 20.00, húsiö verður opnaö kl.
19.00. Dansaö veröur til kl. 2.00 um nóttina.
Borö fást ekki tekin frá á Hótel Sögu, nema fyrir þá, sem
framvísa þátttökuskilríkjum.
Ekki veröur veíttur aögangur öörum gestum en þeim, sem hafa
frátekiö borö í húsinu.
Tryggiö ykkur miða strax í dag á þessa stórglæsilegu hátíö.
FERÐASKRIFSTOFAN
SUNNAI
. ..#