Morgunblaðið - 17.05.1979, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAI 1979
Útvarpsst jóri afhenti Pétri Pét-
urssyni gagnrýni útvarpsráðs
ANDRÉS Björnsson útvarpsstjóri
kallaði Pétur Pétursson útvarps-
þul á sinn fund í gær og afhenti
honum þar afrit af fundargerð
útvarpsráðs frá fundi þess hinn
11. maí sl. Á fundinum var Pétur
Pétursson gagnrýndur fyrir að
hafa „misnotað aðstöðu sína og
verið með hnútukast í í?arð starfs-
manna sjónvarpsins,“ eins ok scgir
í fundargerð útvarpsráðs. Var
útvarpsstjóra og formanni út-
varpsráðs falið að ræða við Pétur
og skýra honum frá þessari «a>ín-
rýni.
Utvarpsstjóri og formaður út-
varpsráðs kvaðst ekki hafa neitt
um mál þetta að segja er Mbl.
ræddi við þá í gær, en Andrés
kvaðst hafa afhent Pétri útdrátt
úr fyrrgreindri fundargerð þar
sem greint var frá gagnrýni á
hann, en ólafur R. Einarsson
formaður útvarpsráðs var ekki
viðstaddur.
Morgunblaðið sneri sér til Pét-
urs Péturssonar útvarpsmanns og
innti hann eftir tfðindum af fundi
er hann var kvaddur á af formanni
útvarpsráðs og útvarpsstjóra, til
þess að veita viðtöku vftum, er
útvarpsráð iýsti á hendur honum
fyrir að hafa „misnotað aðstöðu“
sína í Morgunútvarpi hinn 9. maí
8.1.
Pétur sagði að hann hefði átt að
mæta í fyrradag kl. 4 en Ólafur
Einarsson hefði óskað eftir frestun.
I gær var hann svo kvaddur til
útvarpsstjóra. Ólafur kom eigi til
fundar. Útvarpsstjóri afhenti Pétri
afrit af fundargerð útvarpsráðs,
þar sem fjallað var um málið.
Útvarpsráð hélt annan fund í fyrra-
dag, en hann mun hafa verið fásótt-
ur“, sagði Pétur. Eitthvað gekk í
brösum, að koma saman fundar-
gerðinni. Mun Emil Björnsson hafa
óskað breytinga á bókuðum um-
mælum sínum. Að þeim breyting-
um loknum óskaði hann þess að
ekkert væri haft eftir sér í fundar-
gerðinni, Er ekki meira um það að
segja. Orð Emils veit ég eigi. Hann
getur upplýst um það.
Fundargerðin fer hér á eftir.
„Úrdráttur
2398. fundur Útvarpsráðs, íöstu-
daginn 11. maí 1979. — Hófst kl.
12:20.
Á fundi: Ólafur R. Einarsson,
Eiður Guðnason, Erna Ragnars-
dóttir, Friðrik Sophusson, Guðni
Guðmundsson, Tryggvi Þ. Aðal-
steinsson, Andrés Björnsson, Guð-
mundur Jónsson, Hjörtur Pálsson,
Klemenz Jónsson, Emil Björnsson,
Pétur Guðfinnsson.
2. Framkvæmd dagskrár:
Lagt var fram bréf frá Andófi '79,
dags. 10 maí 1979, en í því er sett
fram sú skoðun, að fréttastofa
Sjónvarpsins hafi brotið 7. grein
reglugerðar um fréttaflutning í
Ríkisútvarpinu að lokinni atkvæða-
greiðslu opinberra starfsmanna um
samning þeirra við ríkisstjórnina,
með því að einungis hafi verið rætt
við fjármálaráðherra og formann
BSRB um niðurstöðu atkvæða-
greiðslunnar, en tilmælum Andófs-
manna um að fá að láta álit sitt í
ljós hafi verið synjað.
Miklar umræður urðu um efni
bréfs þessa. Að umræðunum lokn-
um taldi Útvarpsráð, að framkomin
gagnrýni á fréttastofu Sjónvarps-
ins ætti ekki rétt á sér og að
fréttastofan hefði leitað til höfuð
aðila í málinu, í samræmi við reglur
um fréttaflutning.
Eiður Guðnason gagnrýndi
harðlega kynningu á laginu
Hallelúja, sem flutt var kl. 10.22
hinn 9. maí. Taldi hann að þulur,
Pétur Pétursson, hafi misnotað
aðstöðu sína og verið með hnútu-
kast í garð starfsmanna Sjónvarps-
ins. Raunar hafi viðkomandi þulur
oft notað útvarpið sem tæki til að
koma einkaskoðunum sínum á
framfæri. Ýmsir Útvarpsráðsmenn
tóku undir þetta, og var Útvarps-
stjóra og formanni Útvarpsráðs
falið að ræða málið við Pétur
Pétursson, og skýra honum frá
þessari gagnrýni.
Andrés Björnsson
ólafur R. Einarsson.
Þá sagði Pétúr Pétursson:
„Til þess að lesendur blaðsins geti
áttað sig á ummælum mínum og
dæmt sjálfir um í hverju „misnotk-
un“ mín á aðstöðu er fólgin, langar
mig til þess að biðja blaðið að birta
orð mín. Þau eru rituð eftir segul-
bandsupptöku er Útvarpið gerði,
þeirri hinni sömu og útvarpsráð
hlýddi á áður en það lýsti skoðun
sinni.
Ennfremur langar mig að biðja
blaðið að birta 7. grein reglugerðar
útvarpsstjóra um fréttaflutning
Ríkisútvarpsins."
Ummæli Péturs í morgunútvarpi
kl. 10,22 hinn 9, maí s.l.
Utvarp Reykjavík. Klukkan er
rúmlega tuttugu og tvær mínútur
gengin í ellefu. Og þá er komið að,
því eins og segir hér í dagskránni að
morgunþulur kynni ýmis lög að
eigin vali. 0|í auðvitað er nú tekið
tillit til fleiri sjónarmiða heldur en
persónulegra, einvörðungu. Við
ætlum að byrja á þvi að hlýða á
Hallejújasönginn úr söngvakeppni
sjónvarpsstöðva, Þetta var nú sýnt
á sínum tíma í íslenska sjónvarp-
inu, þeirri deild Ríkisútvarpsins
sem hefir skjáinn og birtir á honum
ekki aðeins með myndum heldur
einnig í orðum og tónum. fréttir af
helstu málefnum sem að ofarlega
eru á baugi og gætir náttúrulega
óhlutdrægni í hvívetna og kynnir
mál frá ekki bara báðum hliðum ef
hliðarnar eru tvær heldur frá öllum
aðilum og kynnir sjónarmið sem
jafnast.
Svo var gert í sjónvarpskeppn-
inni en eitt lag var það sem bar þó
sigur úr býtum umdeilanlega það
var Hallelúja þeirra ísraelsmanna
og hér kemur það.
Lagið leikið.
Þetta var Hunangs og mjókur-
flokkurinn sem söng þarna
Hallelúja, sigursönginn úr söngva-
keppni evrópustöðva, og því aðeins
heyrist hann nú oftar en hinir
söngvarnir að hann sigraði. Það er
ekki endilega verið að tefla fram
söngvum þeirra sem að ekki hlutu
undirtektir, heldur einkum þeim
sem að urðu í fyrsta, öðru og þriðja
sæti. Ekki þar með sagt að hinir
kunni ekki að vera jafngóðir fyrir
það til síns brúks.
Og við höldum áfram að syngja
og leika“
7. gr.
Við birtingu frétta af deilum,
svo sem vinnudeilum eða víðtæk-
um ágreiningsmálum, skal lcita
upplýsinga frá báðum eða öllum
aðilum og kynna sjónarmið þcirra
sem jafnast.
„Þetta virðist hafa verið hin
ánægjulegasta hallelúljasamkoma
hjá Utvarpsráði“, sagði Pétur. „Ég
tek þó fram yfir hallelújasamkom-
urnar á Óseyri við Axarfjörð. Þar
var Þórdís Sigurkarlsdóttir í for-
svari (Todda trunta). Mér finnst að
henni hafa tekist miklu betur.
Þetta minnir helst á heimilisbrag-
inn á Fæti undir Fótarfæti, þar sem
bræðurni Júst og Nasi sögðu fyrir
verkum og hröktu Ljósvíkinginn
milli fjalls og fjöru og fóstran
21
Kamarilla hótaði kárínum.
Nú vantar mig bara góða skáld-
konu, eins og þá er reyndist Ó.
Kárasyni Ljósvíkingi hvað best. Ég
býst varla við að Jón skerínef styrki
mig í siæmum ástæðum."
Annars minnir þetta mál mig á
þjóðsöguna um mann nokkurn er
sótti kirkju og hlýddi á sóknar-
prestinn er nefndi Guðs lamb.
Lamb hafði horfið og var getum
leitt að því hver valdur væri að
hvarfinu. Kirkjugesturinn hnippti í
sessunaut sinn og sagði: „Nefndi
lamb og leit á mig.“ Svo hefir farið
um Eið. Það verður tilhlökkunar-
efni þegar draumur Eiðs rætist um
vígahnöttinn Nordsat sem hann
heimtar að skotið verði á loft með
sér, sem eins konar norrænu svari,
til jafnvægis við rússnesku geimtík-
ina, er sveimaði hvað lengst um
lofthjúp jarðar hér um árið. Þá
situr hann á einhvprjum skýja-
bólstra eins og segir í sálminum:
Þegar þú dýrðardrottinn minn,
dómstól í skýjum setur þinn. Við
höfum fengið forsmekk af dóm-
greind hans með þessari ályktun
útvarpsráðs og samanburði við
reglur útvarpsstjóra. Þar var
slæmur „innanhúsarkitektúr". Ég
hefi starfað við útvarpið í nærri 40
ár og aldrei komið á hvalbeinið fyrr
en nú.
Mér þótti þetta ákvaflega
skemmtileg reynsla. Svo heyrði ég
einstaklega skemmtilega sögu á
heimleiðinni. Raunar fékk ég hana í
bréfi er ég sat að kaffidrykjju á
Hótel Borg.
Þjónninn færði mér línu frá
Þorsteini Gylfasyni er sat við borð,
skammt frá okkur Indriða G.,
Helga Sæm. og Björgvin Jónssyni.
Andstæðingur Somosa forseta gekk
á fund hans, að lokinni forsetakosn-
ingu og sagði: Auðvitað unnuð þér
kosninguna herra forseti. Enn ég
vann atkvæðatalninguna. Hvað seg-
ir Kristján Thorlacius?
Hver veit nema Hallelújalagið og
orð mín fyrir og eftir sönginn komi
út á plötu. Tileinkað útvarpsráði og
til ágóða fyrir Andóf ’79. Hvað
segja plötuútgefendur við því.
Svæðamót í skák að hefjast í Sviss:
Islendingar tefla við
nýbakaðan heimsmeist-
ara í maraþonskák
MILLISVÆÐAMÓT í skák, sem er fyrsti hluti heims-
meistarakeppninnar, hefst í Lucerne í Sviss n.k.
augardag. Keppendur eru 22 að tölu, allir frá Evrópu. í
)eim hópi er helmingur Norðurlandabúar, þar af þrír
slendingar, Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari og
alþjóðlegu meistararnir Margeir Pétursson og Helgi
Ólafsson.
Finnland:
Yrjo Rantanen (alþm.) og Harry
Hurme.
ísland:
Guðmundur Sigurjónsson
(stm.), Margeir Pétursson (alþm.)
og Helgi Ólafsson (alþm.).
ísrael:
Vladimir Liberzon (stm.),
Simon Kagan (alþm.) og Yehudi
Grunfeld (alþm.).
Noregur:
Knut Joran Helmers (alþm.) og
Ragnar Hoen.
Austurríki:
Andreas Dueckstein (alþm.).
Svíþjóð:
Tom Wadberg (alþm.) og Lars
Karlsson.
Sviss:
Werner Hug (alþm.), Heinz
Wirthensohn (alþm.) og Peter
Hemmer.
Færeyingar áttu rétt á að senda
einn fulltrúa á svæðamótið en
notfærðu sér ekki rétt sinn.
Vert er að benda á það, að
nýbakaður heimsmeistari í
maraþonskák, Werner Hug, er
þarna meðal þátttakenda, en hann
tefldi 560 skákir um síðustu helgi
og sló þar með met Horts, sem sett
var hér á landi, en hann tefldi 550
skákir.
Keppnisfyrirkomulagið er
þannig að keppendum er skipt í
tvo 11 manna riðla og keppa þá
allir við alla. Þegar riðlakeppninni
lýkur verður sérstök 8 manna
úrslitakeppni, þar sem fjórir efstu
skákmennirnir í hvorum riðli
keppa og gilda þar innbyrðis úrslit
í riðlunum.
I mótinu tefla 16 menn, sem náð
hafa meistaraárangri, 4 stór-
meistarar og 12 alþjóðlegir meist-
arar. Eftirtaldir skákmenn tefla í
mótinu:
Vestur-Þýzkaland:
Robert Húbner (stm.), Ludek
Pachman (stm.), Bela Soos (alþm.)
og Eric Lobron.
Danmörk:
Svend Hamann (alþm.) og
Carsten Hoi.
I síðasta hefti
Newsweek
The battle over SALT
Baráttan um SALTsamningana.
Europe’s doubts
Efasemdir í Evrópu
Thatcher takes
charge
Thatcher tekur viö stjórn.
í hverri viku birtir NEWSWEEK hlutlæga frásögn
af heimsfréttum og skoðanir ýmissa aðila í rökræðum án
þess að taka afstöðu til stjórnmála, félagsmála eða
byggðamála.
Þannig mótar Newsweek á einstakan og raunhæfan^
hátt stefnu þeirra, sem þurfa að vita hvaða áhrif fréttirnar
hafa á heimsmálin, en ekki eingöngu innanlandsmál.
Sérhvert hefti NEWSWEEK er kafli í(
veraldarsög unni.
Þar er skráð saga okkar heims.
Newsweek
ALÞJÓÐLEGT FRÉTTARIT.
Saga líöandi stundar