Morgunblaðið - 17.05.1979, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979
Faðir minn,
ARNBJÖRN SIGURGEIRSSON,
Selfoasi,
andaöisf í Sjúkrahúsi Selfoss, þriðjudaginn 15. maí
Sigrún Arnbjarnardóttír.
lést af slysförum 5. maí s.l. Útförin hefur farið fram. Þeim fjölmörgu
nágrönnum, sveitungum, mönnum úr hjálparsveitum og öllum
öörum, sem þátt tóku í leit að henni, þökkum vlö af alhug. Af
hjarta þökkum við alla þá samúö og samhygð sem okkur hefur
veriö sýnd af svo mörgum og minnst hafa Önnu litlu.
Guð blessi ykkur öll.
Anna Agnarsdóttir,
Konróð Sigurösson,
Laugarási.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur
ÞORGEIRS S. JÓHANNSSONAR
verslunarstjóra
Goöheimum 6,
fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 18. maí kl. 13:30.
Valgeröur Magnúsdóttir,
börn og tengdabörn.
+
Útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR V. EGGERTSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. maí n.k. kl. 15:00.
Óskar Bergsson,
Elsa Óskarsdóttir, Jón R. Björgvinsson,
Eggert Óskarsson, Ragna Hall,
og barnabörn.
+
Minningarathöfn um eiginmann minn, fööur, tengdafööur og afa
PÁLMA ÞÓRO HRAUNDAL
frá Ási Hvammstanga,
Álftahólum 6,
veröur gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. maí kl. 10.30.
Jarösett veröur frá Hvammstangarkirkju laugardaginn 19. maí kl.
p
Sigríöur Benný Guöjónsdóttir,
Hallgeir Pálsson, Helga Jakobsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir
MAGNEA KJARTANSDÓTTIR
Ljósalandi 16
veröur jarösungin frá Bústaöakirkju föstudaginn 18. maí kl. 2.
Eggert Benónýsson,
Erla Eggertsdóttir, Ingólfur Antonsson,
Svala Eggertsdóttir, Baldur Einarsson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö við andiát og útför systur
okkar,
DAGBJARTAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Borgartúni 33,
Halldóra Eyjólfsdóttir,
Óskar Eyjólfsson.
+
Þökkum innilega öllum sem auösýndu okkur samúö viö andlát og
jaröarför
GUÐMUNDARJÓNSSONAR
frá Mýrarlóni.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyfjadeildar Fjóröungs-
sjúkrahússins á Akureyri fyrir veitta umönnun.
Anna Jónsdóttír,
Víkingur Guómundsson,
Sveínn Guömundsson,
Svanhildur Laósdóttír,
Sverrir Sigurjónsson.
MINNING — ÓLAF-
UR JÓN ÓLAFSS0N
Haustið 1947 settist í þriðja
bekk kennaraskólans hálf fertug-
ur maður, Ólafur J. Ólafsson að
nafni. Maður fremur fullorðins-
legur eftir aldri, vinnulúinn nokk-
uð að sjá. Hafði stundað nám í
tveimur héraðsskólum og í
Samvinnuskólanum, hjá J.J. Svo
hittist á, að við ólafur urðum
sessunautar. Sá, sem setið hafði
við hlið mér áður, var rúmliggj-
andi í sjúkrahúsi. Ólafur var
góður námsmaður. Er mér í minni
frammistaða hans við að skýra og
taka saman fornvísur, ekki sízt úr
Egils sögu.
I kennaraskólanum hefur lengi
verið gefið út skólablað, er ber
heitir Órvar Oddur. Með mér var
Ólafur í ritnefnd, ásamt Ástu
Sigurðardóttur. Mér fannst Ólafur
ritfær í bezta lagi. Átti hann
frumkvæði að ýmsu, sem betur
horfði hvað blaðið snerti. Oft
vöktum við Ólafur og Ásta fram á
nætur við að undirbúa næsta
tölublað Örvar Odds. En því miður
varð styttra í skólaveru Ólafs en
við væntum, sem með honum
dvöldum. Hann stundaði einka-
kennslu, hafði smábarnaskóla
heima hjá sér þar sem hann bjó
vestur í bæ. Kom ég iðulega til
hans í stofuna í kjallaranum á
Ásvallagötunni. Þar var allt fullt
af bókum, því húsráðandinn var
sílesandi.
Ólafur lauk ekki kennaraprófi,
en mér verður hann þó ekki síður
minnisstæður en aðrir skólafélag-
ar mínir, konur og karlar. Hann
var skarpgáfaður maður, það fór
ekki á milli mála, en eitt er gæfa,
annað gjörvuleiki. Það er gamla
sagan.
Á þessu vori höldum við, sem
kennaraprófi lukum árið 1949, upp
á þrjátíu ára kennaraafmæli. Við
minnumst Ólafs J. Ólafssonar sem
eins úr hópnum, þótt hann gengi
ekki námsgötuna með okkur á
leiðarenda. Það er ekkert víst að
hann hefði orðið sælli við það.
Ólafur var einn af hinum kyrr-
látu í landinu. Um hann stóð
enginn styrr. Og nú kveð ég hann
með þökk fyrir gömul kynni,
trúlega sá eini er með honum var i
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Þegar eg var barn, neyddu foreldrar mínir mig til að fara
f kirkju. Eg fékk nóg af trúarbrögðum í bernsku og mér
finnst, að eg hafi engan áhuga á þeim núna. Er hugsanlegt,
að eg hafi fengið minn skammt af trúnni og þurfi ekki
meira?
Þér eruð enn að leita að einhverju, sem er
raunverulegt og hefur gildi. Það sýnir sú staðreynd, að
þér berið upp spurningu yðar. Eg hef heyrt marga
segja, að þeir hafi fengið „of stóran skammt" af
trúarbrögðum í bernsku, en eg er hræddur um, að það
hafi ekki verið „skammtur" af réttri fæðu og því hafi
þeir ýtt því frá sér.
Ef hægt er að tala um, að einhver hafi fengið „fullan
skammt" af trúarbrögðum, þá er eg sá maður.
Foreldrar mínir voru trúfastir kirkjugestir, og þau
tóku þá ákvörðun, að börnin þeirra skyldu ekki verða
eftirbátar þeirra. Það kom fyrir, að eg reis upp á
afturfæturna. En sá tími rann upp, er Kristur varð
mér raunverulegur, og þjónustan við hann tók öllu
öðru fram, sem til er í þessum heimi.
Sjáið þér til, við verðum aldrei leið á vatni, mat og
lofti. Mannlegt hjarta hungrar eftir Guði, og þegar
hann er boðaður á réttan hátt, verður hann alltaf
eftirsóknarverður. Jesús sagði: „Mun vatnið, sem eg
mun gefa honum, verða í honum að lind, er sprettur
upp til eilífs lífs.“
I veraldlegu þjóðfélagi hættir fólki til að aðhyllast
útþynntan kristindóm, skapaðan í mynd efnishyggj-
unnar. Margir þeirra, sem játa kristna trú, eru nú að
endurskoða trú sína og leita andlegrar endurnýjunar.
Þeir hafa prófað falsgoðin og leita nú hins sanna Guðs
og finna hann, eins og Ágústín kirkjufaðir. Hann
sagði: „Hjarta mitt var órótt, unz það fann hvíld í
þér“.
Lokað í dag
frá kl. 12—4 vegna jaröarfarar
HALLDORU SAMUELSDOTTUR,
Málarinn h.f.
Lokað frá kl. 1—3
vegna jarðarfarar
SKRAUTGRIPAVERSLUN
JÓNS DALMANNSSONAR
FRAKKASTiG 10 TELEF 13160
Kennaraskóla íslands fyrir rúm-
um þremur áratugum.
Ástvinum Ólafs heitins sendi ég
samúðarkveðjur.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Akranes;
Kaupmenn
mótmæla
hækkun að-
stöðugjalda
NÝLEGA var aðalfundur Kaup-
mannafélags Akraness haldinn í
félagsheimilinu Röst á Akranesi.
Fundurinn samþykkti sam-
hljóða að skora á bæjarráð Akra-
ness að hlutast til um að öll
verzlun í þágu Akranesskaupstað-
ar sé gerð við verzlanir á staðnum.
Þá mótmælti fundurinn harðlega
þeirri miklu hækkun aðstöðu-
gjalda, sem bæjarstjórn Akraness
hefur nýverið samþykkt og telur
hana alvarlega ögrun við tilveru
verzlunarfyrirtækja á staðnum,
sem mjög hafa átt í vök að verjast,
m.a. vegna þess að mikil verzlun
fer út úr bænum.
Fundurinn taldi brýnt að bæjar-
félagið stuðli að tilveru verzlunar,
sem atvinnugreinar á Akranesi.
Aðalsteinn Aðalsteinsson var
endurkjörinn formaður félagsins,
en með honum í stjórn eru Kristj-
án Sveinsson, Edda Elíasdóttir,
Jón Sigurðsson og Örlygur
Stefánsson.
Mótmæla
nýju sjóða-
kerfi
MBL. hefur borizt eftirfarandi
áskorun til birtingar:
Fundur haldinn í Grindavík 13.
maí 1979 í Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Vísi samþykkir
samhljóða að beina þeirri áskorun
til stjórnvalda að innleiða ekki
nýtt sjóðakerfi í formi olíugjalds.
Við krefjumst þess að olíuhækkun
verði mætt með hærra fiskverði
og að sjómönnum verði bætt sú
kjaraskerðing, sem þeir hafa orðið
fyrir miðað við aðrar launastéttir
í landinu.
NafnféÚ
niður
I frétt um íslenzka knattspyrnu-
menn með erlendum liðum í síð-
asta sunnudagsblaði féll niður
nafn Stefáns Halldórssonar. Hann
leikur með sænska 2. deildar
liðinu Kristianstad.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.