Morgunblaðið - 17.05.1979, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979
39
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Kópavogs
S.l. fimmtudag lauk 4 kvölda
barometerkeppni félagsins.
Besta árangri kvöldsins náðu:
stig
Erla Sigurjónsd. —
Kristmundur Þorsteinss. 70
Ármann J. Láruss. —
Sverrir Ármannss. 34
Jóhann Lútherss. —
Gunnlaugur Sigurgeirss. 25
Grímur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 21
Guðbrandur Sigurbergss. —
Jón Páll Sigurjónss. 21
Úrslit keppninnar urðu þau að
Jón Páll og Guðbrandur báru
sigur úr býtum og er það 3. árið í
röð sem þeir sigra í þessari
keppni.
Röð efstu para varð annars
þessi:
stig
Guðbrandur Sigurbergss. —
Jón Páll Sigurjónss. 110
Óli M. Andreasson —
Guðmundur Gunnlaugss. 102
Erla Sigurjónsd. —
Kristmundur Þorsteinss. 86
Grímur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 67
Gunnlaugur Sigurgeirss. —
Jóhann Lúthersson 61
Ármann J. Lárusson —
Haukur Hannesson 46
Meðalskor 0
í kvöld, fimmtudag, verður
spilaður eins kvölds tví-
menningur. Spilað er að Hamra-
borg 11, kl. 20.00. Skráning er á
staðnum og eru menn beðnir að
mæta stundvíslega.
Bridgefélag
Akureyrar
Síðasta keppni félagsins á
þessu starfsári var Halldórsmót-
ið. Mót þetta er minningarmót
um Halldó heitinn Helgason
útibússtjóra Landsbanka íslands
á Akureyri en hann var einn
traustasti félagi B.A. um margra
ára skeið.
Úrslit urðu þessi: stig
Sv. Ingimundar Árnas. 292
Sv. Páls Pálss. 275
Sv. Jóns Stefánss. 275
Sv. Alfreðs Pálss. 267
Sv. Angatýs Jóhannss. 254
Sv. Sveinbjörns Jónss. 254
Sv. Þórarins Jónss. 239
Sv. Stefáns Vilhjálmss. 233
Þátttökusveitir voru 16.
Keppnin fór fram með Board a
match sniði.
Keppnisstjóri var Albert
Sigurðsson.
Bridge
Margir áhorfendur fylgjast með úrslitakeppni íslandsmótsins í sveitakeppni sem fram fór á Hótel
Loftleiðum um síðustu mánaðamót.
Börn, styrjaldir
og fangabúðir
Daglega kveða við fréttir um
djöfulæði styrjalda hvarvetna á
þessari annars fögru og fjöl-
breyttu jörð.
Svo og margar þúsundir
myrtar á hverjum degi.
Orðið mærð eða að myrða er
raunar ekki notað, heldur að
fella, vega og útrýma.
Fínt skal það vera.
Og foringjar og valdhafar,
sem fréttunum ráða virðast
stoltir, hreyknir og hrósandi
sigri í stað þess að skammast
sín og reyna þó að minnsta kosti
að þegja yfir illvirkjum sínum,
hvort heldur í vörn eða sókn.
Og hvað er vörn og sókn, veit'
heldur enginn. Engir morðingj-
ar og mannréttindaþjófar eru ef
til vill verri en eigin stjórnendur
í sumum já, mörgum ríkjum
heims.
Samt koma jafnvel ungir og
gáfaðir þjóðréttarfræðingar
fram fyrir alþjóð á íslandi og
hrósa þeim. Og heil stórveldi
mæla þeim bót og taka í hönd
þeirra með brosi á vörum.
Samt eru tölur hinna vegnu,
föllnu og myrtu, sem lesnar eru
við litlu meiri áhrif á hlustend-
ur en hve margir steinbítar hafi
veiðzt fyrir vestan, ekki nema
brot af því böli, sem þarna er á
ferð.
Orsakir og afleiðingar að og
af morðum þessara ungmenna,
sem nefndir eru einu nafni
hermenn og gerðir að númerum
í stað nafna eru þjáningar,
angist, þrautir, ótti, skelfing,
kúgun, ófrelsi, pyntingar og
fangelsi, flótti, heimilisleysi,
flakk, hungur, þorsti og dauða-
stríð þúsunda annarra sak-
lausra manna, kvenna og barna.
Brautin sem sagt mörkuð og
ötuð tárum og blóði og um leið
hatri, hefndarþorsta og djöful-
æði, sem sáð er í sálir og
orsakar áframhaldandi og end-
urtekið böl, bölvun og piálar-
göngur, jafnvel ófæddra kyn-
slóða. Heimilum er tvístrað, hús
eru eyðilögð, sprengd sundur,
brennd og rifin, borgir lagðar í
auðn. Fjölskyldur leggja á flótta
með föggur sínar fábreyttar á
baki.
Börn villast, týnast, veslast
upp og deyja veik og vanburða,
hungruð þyrst, einmana, útgrát-
in og lík þeirra vekja vart meiri
viðbrögð en dauðar flugur í
gamalli sveitakirkju á íslandi á
sumrin.
Þannig er gengið um helgi-
dóma hinnar góðu, gjöfulu jarð-
arGuðs.
í öllum þessum hörmungum,
sem stjórnmálamenn og stríðs-
höfundar valda, hver eftir eigin
geðþótta, blekkingum og lygum
eru það örlög barna, sem ég vildi
benda á út um gluggann í dag.
Þótt ekki væri nema einn, sem
gæti vakizt til íhugunar,
abyrgðar og átaks væri vel.
Þótt ekki yrði nema eitt barn,
sem gæti notið góðs af vaknandi
hugsun, vermandi góðvild og
gjafmildri hönd væri tilgangi
náð. Hver einstaklingur, sem
bjargast gæti er dýrmæt gjöf á
brautum hins góða.
En eru þá nokkur börn, sem
böl styrjalda og fangelsa, haturs
og hefnda nær til? Þau eru þó án
saka!
Þannig er hugsað, eða öllu
heldur ekki hugsað af þeim, sem
hlusta á tölur um þúsundir
veginna og fallinna hermanna.
Líklegt er að engir líði meira
en börn á vegi bryndreka,
sprengna, fallbyssna og her-
tækja í höndum blindaðra her-
deilda.
Hví framleiða fremstu og
beztu þjóðir heims hertæki,
drápsvopn og eitursprengjur?
Og svo er á sama ári og itsömu
andrá talað um barnavernd og
heilt ár helgað börnum og vel-
ferð þeirra. Ætli ekki bezta
byrjun sé að slíðra vopnin.
Væri ekki hægt að byrja
heima. Loka morðvopnaverk-
smiðjum allra landa.
Næsta ár undir yfirskrift frá
Sameinuðu þjóðunum:
Burt með allar vopnaverk-
smiðjur.
Það yrði ósk allra barna, sem
ekki eru uppalin við blekkingar
og hefndarþorsta.
En eru þá nokkur börn, sem
búa við frelsísrán og fangelsi?
Um fjölda þeirra vantar vís-
indalegar skýrslur. En eitt er
víst, þau skipta milljónum, sem
á einhvern hátt eru tengd þess-
um hryllingi, hrakin, hrjáð og
gleymd.
Nýtt
símanúmer
á afgreiöslu
blaösins
83033
Urval
af húsgögnum
Opið 9—12 og 1—6
K.M.
Húsgögn,
Skeifunni 8, sími 37010.