Morgunblaðið - 19.06.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 1979
Fjölmiðlamerai tefla
við skáktölvur
Nokkrir nýstúdentanna frá M.A. á leið frá skólauppsögninni. Ljfem. Stcfán Eiríksson.
Fyrstu stúdentamir al
tónlistarkjörsviði út-
skrifaðir frá M.A.
TIL nýstárlegs taflmóts
var efnt að Hótel Loft-
leiðum sl. laugardag. Full-
trúar fjölmiðla tefldu þar
við skáktölvur af gerðinni
Fidelity Challenger „10“,
en Nesco, sem flytur inn
þessar tölvur, stóð fyrir
mótinu. Mótsstjóri var
Jóhann Þ. Jónsson, rit-
stjóri Skákar.
Tilefni mótsins var það,
að Nesco skuldbatt sig til
að gefa skáktölvu til
fjögurra sjúkrahúsa, ef
hlaðamennirnir hefðu
betur, eða til Borgarspítal-
ans, Landspítalans, Landa-
kotsspítalans og Klepp-
spítala. Verð tölvanna er
um 160 þús. kr.
Haukur Helgason, Dag-
blaðinu, varð fyrstur til að
vinna sína tölvu eða í
aðeins 13 leikjum. Aðrir
sem unnu voru Baldur
Hermannsson, sjón-
varpinu, Hermann
Gunnarsson, útvarpinu,
Björn Vignir Sigurpálsson,
Alþýðublaðinu, Eiríkur
Eiríksson, Tímanum og
Halldór Blöndal, Morgun-
blaðinu. Einar Karl
Haraldsson Þjóðviljanum
tapaði sinni skák, en
fulltrúi Vísis mætti ekki til
leiks.
MENNTASKÓLINN á
Akureyri brautskráði 116
stúdenta 17. júní og lauk
þar með 99. starfsári skól-
ans. 14 stúdentar útskrif-
uðust úr öldungadeild og 3
af tónlistarkjörsviði og er
þetta í fyrsta sinn sem
Menntaskólinn á Akureyri
útskrifar stúdenta af því
sviði. Hæstu einkunn á
stúdentsprófi hlaut Krist-
ján Kristjánsson frá Akur-
eyri, 9,56.
Konrektor, Tómas Ingi Olich,
sagði skólanum upp í forföllum
Tryggva Gíslasonar skólameist-
ara. í upphafi athafnarinnar
minntist hann Guðmundar Guð-
mundssonar er verið hafði nem-
andi við skólann en lést af slysför-
um 5. júní s.l. ásamt föður sínum.
514 nemendur voru innritaðir í
skólann í upphafi skólaárs en 361
lauk þaðan prófi. 80 nemendur
hófu nám í öldungadeild en 71
lauk þaðan prófi. 40 kennarar
störfuðu við skólann, þar af 28
fastráðnir.
I skólaslitaræðu sinni sagði
konrektor m.a. að á síðast liðnum
árum hefði þeim nemendum
þriðja bekkjar sem fengju aðal-
einkunina 5,0—6,0 fjölgað en þeim
sem fengju einkunn á bilinu 7,0—
8,0 hefði að sama skapi fækkað.
Sagði konrektor að á s.l. ári hefðu
45% nemenda 3. bekkjar fengið
einkunn frá 5,0—6,0 en 11,9%
fengið einkunn á bilinu 7,0—8,0.
Sagði hann að á árunum 1977—
1978 hefði þróunin breyst til hins
verra og þyrfti skólinn nú að verja
mun meiri tíma í að breyta hug
nemenda til skólans.
I ræðu konrektors kom það
einnig fram að í vor var nýr
útivistarskáli tekin í notkun á
vegum skólans í landi Svalbarðs.
Við skólauppsögnina lék einn af
tónlistarstúdentunum, Gyða Hall-
dórsdóttir, á orgel kirkjunnar en
viðstaddir athöfnina voru m.a.
fulltrúar afmælisárganganna og
fluttu þeir ávörp og færðu skólan-
um gjafir.
Gestur Ólafsson talaði fyrir
hönd 50 ára stúdenta, Jóhannes
Hannesson fyrir 40 ára stúdenta,
sr. Jón Bjarman fyrir 25 ára
stúdenta og Erlingur Sigurðarson
flutti ávarp af hálfu 10 ára
stúdenta.
félagsheimilið, sem reyndar var
reist fyrst, mikið notað fyrir
allt félagslíf í Stykkishólmi að
vetrarlagi. Á sumrin koma síð-
an oft hljómsveitir lengra að.
Guðrún Þorsteinsdóttir hefur
verið hótelstjóri síðan í maí í
fyrra og kvaðst hún kunna
starfinu ágætlega. Þetta væri
hennar fyrsta hótelstjórastarf,
en hún er þó hótelrekstri ekki
ókunnug þar sem hún starfaði á
Þingvöllum og Hornafirði áður.
Hún var spurð nánar út í
ferðamannatímann á sumrin,
hvað ferðamenn skoðuðu helzt
— Rætt við hótelstjórann í Stykkishólmi
í Stykkishólmi er rekið
hótel svo sem í flestum
öðrum kauptúnum á
landinu og annast það
móttöku ferðamanna,
sem einkanlega eru á
ferðinni yfir sumartím-
ann. Hótel Stykkishólm-
ur er í nýlegri byggingu
og ræður þar ríkjum
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Hún greindi frá helztu
atriðum í starfsemi
hótelsins í samtali við
Mbl.
— Hótelið hóf starfsemi sína
í nýrri byggingu í júlí 1977 og er
það í eigu hreppsins að mestum
hluta, en nokkurra einstaklinga
einnig og er þaö hlutafélagið
Þór, sem annast reksturinn.
Herbergi eru 25 og má segja að
þau séu öll vel notuð yfir sum-
arið, enda er það eini tíminn,
sem menn ferðast um á landinu,
bæði útlendingar og íslending-
ar. Þess vegna getur rekstur
svona hótels orðið erfiður á
veturna, en við höfum t.d. í
vetur iðulega verið með menn i
föstu fæði og eru það mest
vinnuflokkar, sem starfa hér
um stuttan tíma í einu. En á
vetrum er líka nokkur gróska í
dansleikjahaldi, hljómsveitirn-
ar hér spila til skiptis og er
Snæfellsnesið og má segja að
ferðamannatíminn hefjist á
vorin þegar fuglaskoðaðarar
fara um og líta á fuglalífið. Yfir
sumarið eru menn síðan á ferð-
inni víða um og stunda íþrótt
sina héðan frá Stykkishólmi, og
er meirihluti hótelgesta hérna
útlendingar.
Var ekki mikið átak að koma
upp þessari byggingu?
— Jú, það er alveg óhætt að
segja það, en byrjað var á
félagsheimilinu og unnu fjöl-
margir við það í sjálfboðavinnu
í verkfalli hér um árið og eru
Hólmarar mjög hreyknir af
þeirri byggingu og mega líka
alveg vera það, því húsið er
glæsilegt og vel til þess vandað.
Hótelbyggingin er líka vel útbú-
in, eldhúsið búið öllum beztu
tækjum og eins og ég sagði áðan
eru herbergin 25 og setustofa á
hverri hæð. Nú er að vísu til
húsa hér gagnfræðaskólinn og
höfum við tekið setustofur und-
ir kennslustofur, þannig að
húsið er þokkalega vel nýtt yfir
veturinn. Gert er ráð fyrir að
skólinn fái hér inni þar til nýtt
skólahús hefur verið reist, eftir
2—3 ár.
þarna í nágrenni Stykkishólms:
— Hér í kring er auðvitað
mjög margt að sjá um allt
Guðrún Þorsteinsdóttir, hótelstjóri, lengst til vinstri ásamt aðstoðarfólki sínu.
Myndir Rax.
Hótel Stykkishólmur
Margt að sjá hér
á Snæfellsnesinu