Morgunblaðið - 19.06.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JUNI1979
23
Spjótkast: metra
Óskar Jakobsson ísl. 72,36
Nico Hilper Lux. 66,00
Mario Silva Portúgal 62,40
Mogens Mosby Danm. 61,74
Derek Casey Irl. 53,36
Óskar Jakobsson færði íslandi
sigur í spjótkastinu þrátt fyrir
það að hann hefur ekki æft þá
grein um langt skeið, hvað þá
keppt í henni. Óskar gerði raunar
aðeins eitt kast tilgt, 72,36 metra
kast, sem nægði til sigurs.
Hástökk: metra
Vitor Mendez Portúgal 2,08
Mors Romerse Lux. 2,04
Niels Vegsen Danm. 2,04
David Murren írl. 2,04
Guðm. Guðmundss. ísl. 1,95
Guðmundur reyndist ekki vera
vel upplagður í hástökkinu og var
langt frá sínu besta. Hann stökk
1,95 í annarri tilraun, en var
nokkuð langt frá því að fara tvo
metra. Mikil keppni var um annað
sætið, en það hreppti Luxemborg-
arinn Romerse á fæstum tilraun-
100 metra hlaup: sek.
Roland Bembardella Lux. 10,71
Oddur Sigurðsson ísl. 10,86
Victor Mano Portúgal 10,96
Morten Hansen Danm. 11,10
írl. 11,11
Oddur Sigurðsson kom inn í 100
metra hlaupið í stað Vilmundar,
sem ekki treysti sér til að hlaupa.
Hljóp Oddur mjög vel og náði öðru
sæti í hlaupinu, þrátt fyrir að
hann næði áberandi versta við-
bragðinu. Oddur var í síðasta
sætinu þegar 50 metrar voru eftir,
en hljóp lokasprettinn af slíku
afli, að annað sætið féll í hans
hlut.
400 metra hlaup: sek.
Jens Hansen Danm. 47,78
Perry Delaney írl. 48,88
Antonio Virtele Port. 48,93
Vilmundur Vilhjálmss. ísl. 49,00
Tim Kepler Lux. 50,98
Vilmundur fór nokkuð vel af
stað og var í bærilegri stöðu eftir
fyrstu 200 metrana, en fór að
þyngjast upp úr því og á beinu
brautinni síðustu 100 metrana
virtist hann stífna upp. Hann var í
öðru sæti þegar um 80 metrar
voru eftir, en fór þá að gefa sig og
missti tvo menn fram úr sér á
síðustu 5 metrunum. Olli þetta
miklum vonbrigðum, því gert
hafði verið ráð fyrir fleiri íslensk-
um stigum í þessari grein.
Langstökk:
metra
Rodriges Portúgal 7,42
Priðrik Þór Óskarsson ísl. 7,33
Mark Kent Luxemborg 7,14
Karsten Gaadegaard Danm. 7,08
Barrett írlandi 6,99
Friðrik Þór var í miklum vand-
ræðum með atrennuna í lang-
stökkinu. Fyrsta stökk hans
mældist 7,14 metrar, síðan gerði
hann þrjú stökk í röð ógild. í
næstsíðasta stökki náði hann svo í
7,33 metra og dugði það til að
komast í annað sætið. Rodrigues
náði sigurstökki sínu ekki fyrr en í
síðasta stökki.
10 kílómetra hlaup:
mín.
Jose Sene Portúgal 29:17,6
Danny McGate Irl. 30:09,2
Tim Nielsen Danm. 31:13,6
Jen Haucher Lux 32:09,7
Brynjólfur Hilmarsson ísl. 34:04,8
Brynjólfur sleppti hlaupurunum
þegar frá sér og ætlaði að hlaupa
sitt eigið hlaup, en það mistókst
hjá honum.
4x100 metra boðhlaup:
sek.
Luxemborg 41,29
Portúgal 41,43
ísland 42,21
Danmörk 42,38
írland úr leik
íslensku boðhlaupsveitina skip-
uðu þeir Vilmundur Vilhjálmsson,
Sigurður Sigurðsson, Oddur
Sigurðsson og Aðalsteinn Bern-
harðsson. Hljóp sveitin mjög vel,
en hefði gert betur með betri
skiptingum, mislukkuðust þær all-
ar, enda atriðið lítið æft.
Síðari dagur
Síðari dag keppninnar fór að
halla undan fæti hjá íslenska
liðinu. Að vísu leit íslenskur sigur
þá dagsins ljós í tveimur greinum,
þrístökki og kringlukasti, en ís-
lendingar ráku lestina í lang-
hlaupunum, 5000 og 3000 metra
hindrunarhlaupi, í 200 metra
hlaupi og 110 metra grindar-
hlaupi, auk 800 metra hlaupsins.
Þriðja sætið náðist í stangar-
stökki, 4x400 metra boðhlaupi og
4. sætið í sleggjukasti.
110 metra grind:
sek.
Roger Markowic Lux 14,54
Karl Oskar Jörgensen Danm. 14,86
Alberto Nader Portúgal 15,12
Herman Kelly írl. 15,13
Elías Sveinsson ísl. 15,24
Elías varð að fara beint úr
stangarstökkinu, en náði góðum
tíma af tugþrautarmanni að vera
15,24, sem er einnig gott vegna
þess að rafmagnstímatafla var
notuð. Sigur Markowic kom mjög
á óvart, portúgalinn átti besta
tímann í greininni fyrir hlaupið.
800 metra hlaup:
mín.
Ray Fren írl. 1:49,6
Carlos Catro Port. 1:50,1
Ken Nielsen Danm. 1:53,7
Henry Piered Lux. 1:53,9
Gunnar P. Jóakimsson ísl. 1:55,0
Sleggjukast:
metrar
Ingram írl. 66,46
Erik Hösker Danm. 58,44
Jose Petroros Port. 57,94
Erlendur Valdimarsson ísl. 57,08
Jean Paul Cox Lux. 51,12
Kastsería Erlendar var sem hér
segir: 50,18 — 57,08 — ógilt —
52,98 - 55,24 - ógilt.
Stangastökk:
metrar
Reporso Portes Portúgal 4,80
Peter Jensen Danm. 4,60
Elías Sveinsson ísl. 3,80
Lúxarinn og írinnn voru að fella 2
metra.
íslendingar voru heppnir að
krækja þarna í 3 stig fyrir þriðja
sætið. Annað var varla fært, þar
sem það er í frásögur færandi, að
keppnismenn í stöng fari ekki yfir
2 metra, hæð sem margir fara í
hástökki stangarlausir.
3000 metra hindrunarhlaup:
mín.
Karsten Hass Danm. 8:44,0
Joao Quintes Portúgal 8:46,0
Eamon Graham írlandi 8:54,2
Nico Frisch Luxemb. 9:21,3
Ágúst Ásgeirsson ísl. 9:37,6
Ágúst var strax í upphafi mjög
þungur og virtist kraftlaus og rak
lestina snemma hlaups. Átti
Ágúst aldrei neina möguleika í
hlaupinu. Millitíminn á fyrstu
1000 metrana var 2:57,18 mínútur
og á 2000 metrum var millitíminn
5:49,93 mínútur.
200 metra hlaup:
sek.
Roland Bombardella Lux. 21,47
Antonio Qucola Portúgal 21,67
Frank Volberg Danm. 21,85
Joe Ryan írl. 21,91
Vilmundur Vilhjálmsson ísl. 22,0
Það var spurning hvort Oddur
Sigurðsson hefði ekki getað gert
betur en Vilmundur í þessari
grein, en Oddur hafði hlaupið 100
metrana mjög vel daginn áður og
á sama, tíma verkaði Vilmundur
mjög þungur í 400 metrunum. Það
kom líka á daginn, að Vilmundur
var stífur og náði sér aldrei á strik
í hlaupinu.
Kringlukast:
metrar
Óskar Jakobsson ísl. 58,54
Kjell Andersen Danm. 52,00
Joe Bryce írl. 45,62
Joel Monzta Portúgal 41,42
Rome Lustere Lux. 39,92
Kastsería Óskars var sem hér
Segir: ógilt — 51,58 — 56,02 —
58,54 — ógilt — 56,40 metrar.
Þrátt fyrir að Óskar væri hinn
öruggi sigurvegari í kringlukast-
inu, náði hann ekki sínu besta. Þó
kastaði hann að því er virtist
átakalaust og var mjög mjúkur í
hringnum.
5000 metra hlaup:
Fernando Madane Portúg.l3:54,5
m. Gerry Baker írl. 14:12,3 m.
Bloken Luxemborg 14:27,9 m
Dick Verlin Danm. 14:42,5 m.
Sig. Sigmundss. ísl. 16:43,8 m.
Sigurður sprakk eftir mjög
greiða byrjun og náði sér aldrei á
strik eftir það. Hljóp hann á mjög
slökum tíma.
• Óskar Jakobsson sigraði í tveimur greinum, spjótkasti og
kringlukasti.
Þrístökk:
Friðrik. Þ. Óskarss. í. 15,29 m.
Powers Sen Irl. 14,97 m
Herb. Kristiens. Danm. 14,80 m
Adrino Rodrigues Port. 14,78 m
German Wurm Lux. 13,62 m
Friðriki Þór tókst vel upp í
þrístökkinu og var stökksería
hans sem hér segir: 14,95 — 15,29
— ógilt — 15,17 — ógilt — ógilt.
4x400 metra boðhlaup:
Danmörk 3:12,5 m.
Portúgal 3:14,9 m
ísland 3:15,2 m.
Luxemborg 3:15,4 m
írland 3:17,7 m.
Islensku sveitina skipuðu Oddur
Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson,
Vilmundur Vilhjálmsson og Aðal-
steinn Bernharðsson. Oddur hljóp
fyrsta sprettinn mjög vel, skilaði
fimm metra forskoti til Sigurðar
sem tókst nokkurn veginn að
halda því. Vilmundur hljóp þriðja
sprett, en þá fór að halla undan
fæti. Aðalsteini tókst þó að knýja
fram þriðja sætið með kröftugu
hlaupi. Var þetta mjög gott hlaup
hjá íslensku sveitinni, enda nýtt
íslandsmet.
• Guðmundi Guðmundssyni tókst ekki sem bezt upp í hástökkinu, stökk 1.95 metra og hefur hann margoft gert betur.