Morgunblaðið - 30.10.1979, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979
17
skerða okkar hafsbotnsréttindi, ef
þeir tækju fulla efnahagslögsögu á
svæðinu utan okkar 200 mílna.
Engin veit að vísu hversu mikil-
væg þessi réttindi kunni að reyn-
ast, en líkur benda þó til, að á
hafsbotni norður og norð-austur
af íslandi geti verið olía og
jarðgas og e.t.v. málmar, og hljót-
um við íslendingar að halda rétti
okkar til streitu, þótt ekki væri af
öðru en því, að við viljum hafa
íhiutunarrétt um það, að ekki
verði gert jarðrask, sem ógnað
gæti íslenskum fiskimiðum.
Þess má einnig geta, að á
Hafréttarráðstefnunni eru rædd-
ar heimildir strandríkja til ein-
hliða aðgerða til verndar fiski-
stofnum utan 200 mílna efna-
hagslögsögu. Slíkar heimildir
gætu Islendingar notað til að
vernda loðnustofninn á Jan
Mayen-svæðinu, ef það væri al-
þjóðlegt svæði, en norsk efna-
hagslögsaga mundi firra okkur
þessum rétti. Hér er því einnig um
að ræða gæzlu réttinda, sem
Islendingum geta verið mikilvæg.
I 2. mgr. 63. gr. núverandi
uppkasts að hafréttarsáttmála er
um þetta fjallað. Þar er sú skylda
lögð á ríki að leita samkomulags
um fiskvernd utan 200 mílna,
þegar fisktegund veiðist bæði utan
og innan efnahagslögsögu. Þetta
ákvæði er enn að vísu veikt, en
verulegur áhugi er á að styrkja
það.
Þannig flutti t.d. Argentína
viðaukatillögu við þetta ákvæði á
síðasta fundi ráðstefnunnar, þar
sem gert er ráð fyrir, að reglur
þær, sem strandríkið kann að
setja einhliða, með hliðsjón af
þeim fyrirmælum, sem gilda inn-
an 200 mílna efnahagslögsögu,
skuli bindandi fyrir aðvífandi
fiskiskip, ef samkomulag hefur
ekki náðst innan hæfilegs tíma.
Óljóst er auðvitað, hver niður-
staðan kann að verða í þessu efni,
en ekki er ólíklegt, að einhver
millivegur verði fundinn. Þá skoð-
un styðja ákvæði 6. og 7. gr.
Genfarsamningsins frá 1958, þar
sem strandríkjum voru veitt ein-
hliða réttindi til fiskverndarað-
gerða utan landhelgi, en þess er þó
að gæta, að fiskveiðitakmörk voru
þá ekki miðuð við 200 mílur.
Síðan fundurinn var haldinn í
Ráðherrabústaðnum hefur
íslenzka utanríkisráðuneytið aflað
ýmiskonar upplýsinga um réttind-
in á Jan Mayen svæðinu, sem að
verulegu leyti hefur verið birt, og
raunar þegar verið fjallað um hér
í kvöld, og skal ég því ekki lengja
mál mitt með endurtekningum, en
mig langar þó að vitna hér í eitt
skjal, sem tekið er saman af Páli
Imsland, jarðfræðingi, nú í lok
september, 'en hann er manna
fróðastur um Jan Mayen svæðið. í
niðurstöðu hans segir, að það sem
einkenni ísland og hafsvæðið
norðan þess sé:
„Það er myndað við ákveðið
þekkt jarðfræðilegt ferli. Það
myndar eina órofna heild, sem er
innbyrðis lík, en ólík nágrenni
sínu. Það er náttúruleg heild með
náttúruleg takmörk í tíma og að
mestu leyti einnig í rúmi. Að því
er bezt er vitað er það einstakt í
sinni röð á jörðinni. Ekkert haf-
svæði annað á að baki sér
sambærilega þróunarsögu."
Niðurstaðan af öllu því, sem að
framan er rakið, hlýtur að vera sú,
að íslendingar haldi fast á rétti
sínum, bæði til fiskverndar og
fiskveiða á Jan Mayen svæðinu, og
þá ekki síður til hafsbotnsréttind-
anna. Ekki skulum við þó gera
okkur vonir um að ná fram öllum
kröfum okkar. Slíkt gerist yfirleitt
ekki í mannlegum samskiptum og
sízt þegar fjölmargir eru til um-
fjöllunar.
Mín skoðun er hins vegar sú, að
Islendingar og Norðmenn eigi að
reyna að ná samkomulagi fyrir
næsta fund hafréttarráðstefnu og
loka þar með þessu víðáttumikla
hafsvæði. Það hljóta að vera
sameiginlegir hagsmunir
ríkjanna. Þegar línur skýrast í
íslenzkum stjórnmálum, hljóta
viðræður við Norðmenn því að
verða upp teknar að nýju.
Prófkjör — Skoðanakönnun — Framboð
Framsókn í Reykjavík:
Ólafur og Guðmundur efstir
ÓLAFUR Jóhannesson mun skipa fyrsta sætið á
framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík og
Guðmundur G. Þórarinsson annað sætið, en þeir hlutu
bindandi kosningu í atkvæðagreiðslu fulltrúaráðs
framsóknarmanna í Reykjavík um helgina. Ólafur fékk
239 atkvæði af 254, þar af 183 í fyrsta sæti og
Guðmundur fékk 60 atkvæði í fyrsta sæti og 73 í annað,
samtals 133 atkvæði í tvö fyrstu sætin, en Haraldur
Ólafsson, sem varð þriðji, fékk 4 atkvæði í fyrsta sæti og
108 í annað, samtals 112 atkvæði. Gengið verður
fraramboðslistanum í kvöld.
Auk 183 atkvæða í fyrsta Kristján Friðriksson fékk 4
sæti fékk Ólafur Jóhannesson atkvæði í annað sæti, 24 í 3ja,
41 atkvæði í annað sæti, 11 í
þriðja, 1 í fjórða og 3 í fimmta.
Guðmundur fékk samtals 187
atkvæði, sem fyrr segir 133 í 1.
og 2. sæti, 42 í 3ja sæti, 7 í
4rða sæti og 5 í fimmta sæti.
Haraldur fékk samtals 186
atkvæði, sem fyrr segir 112 í
fyrsta og annað, 43 í þriðja, 21
í fjórða og 10 í fimmta.
Sigrún Magnúsdóttir fékk
eitt atkvæði í fyrsta sæti, 16 í
annað, 65 í þriðja, 79 í fjórða
og 23 í fimmta, samtals 184
atkvæði.
52 í fjórða og 59 í fimmta,
samtals 139 atkvæði.
Kristinn Ágúst Friðfinns-
son hlaut eitt atkvæði í annað
sæti, 25 í 3ja, 49 í fjórða og 56
í fimmta, samtals 131 atkvæði.
Jón Aðalsteinn Jónasson
hlaut 2 atkvæði í annað sæti,
17 í 3ja sæti, 11 í fjórða sæti
og 26 í fimmta sæti, samtals
56 atkvæði.
Geir Viðar Vilhjálmsson
fékk 2 atkvæði í annað sætið,
12 í þriðja, 13 í fjórða og 21 í
fimmta, samtals 48 atkvæði.
Framsókn á Vestfjöröum:
Gunnlaugur tap-
aði í þrið ju lotu
„ÉG GERÐI það svona upp á
sett að fara i níunda sætið,“
sagði Gunnlaugur Finnsson,
Hvilft, Flateyrarhreppi, í sam-
tali við Mbl.í gær, en á kjördæm-
isþingi framsóknarmanna í
Vestfjarðakjördæmi um helgina
tapaði Gunnlaugur öðru sætinu
til ólafs Þ. Þórðarsonar, en
fyrir síðustu kosningar bauð
ólafur sig fram i annað sæti á
móti Gunnlaugi, en tapaði þá.
Engin áhöld voru um það, að
Steingrímur Hermannsson
skyldi áfram skipa fyrsta sæti
listans, en þegar kom að öðru
sæti, voru greidd atkvæði. Rétt
um 50 manns sóttu kjördæmis-
þingið og skyldi sá hljóta annað
sætið sem fengi meirihluta at-
kvæða. í fyrstu atrennu mun
Gunnlaugur hafa fengið 18 at-
kvæði, Olafur 15 og Sigurgeir
Bóasson, Bolungarvík, 12 at-
kvæði. í annarri atkvæðagreiðslu
urðu Gunnlaugur og Ólafur jafn-
ir, hlutu 21 atkvæði hvor, en
Sigurgeir 7. Þá dró Sigurgeir sig
til baka og var kosið á milli
Gunnlaugs og Ólafs. Gunnlaugur
fékk áfram 21 atkvæði, en Ólafi
bættust við 7 atkvæði og fékk 28
og þar með annað sæti listans.
Ólaíur var við síðustu kosningar
skólastjóri á Suðureyri en er nú
skólastjóri í Reykholti í Borgar-
firði.
Sigurgeir Bóasson skipar svo
þriðja sæti listans, Finnbogi
Gunnlaugur Finnsson
Hermannsson, Núpi, er í 4. sæti,
sem Jónas R. Jónsson, Melum,
skipaði síðast. í fimmta sæti er
áfram Össur Guðbjartsson,
Láganúpi, í sjötta sæti er Magda-
lena Sigurðardóttir, ísafirði, sem
skipaði sjöunda sætið síðast, í
sjöunda sæti er Jósep Rósin-
kransson, Fjarðarhorni, í átt-
unda Sigurjón Hallgrímsson,
ísafirði, í níunda Gunnlaugur
Finnsson og í tíunda sætinu er
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
Kirkjubóli. Þeir Jósep, Sigurjón
og Guðmundur Ingi áttu ekki
sæti á listanum við síðustu kosn-
ingar.
Sigrún Sturludóttir hlaut
eitt atkvæði í fyrsta sæti, tvö í
annað, 7 \ þriðja, 10 í fjórða og
28 í fimmta, samtals 48 at-
kvæði.
Jónas Guðmundsson fékk 1
atkvæði í annað sæti, þrjú í
3ja, 6 í 4rða og 18 í fimmta,
samtals 28 atkvæði.
Ólafur tekur nú sæti Einars
Ágústssonar, sem ekki gaf
kost á sér, þar sem hann tekur
við sendiherrastöðu í Kaup-
mannahöfn um áramót. Guð-
mundur G. Þórarinsson var í
öðru sæti síðast og vann það
þá í prófkjöri af Þórarni
Þórarinssyni, sem skipaði
þriðja sætið, en gaf ekki kost á
sér til framboðs að þessu
sinni. í síðustu kosningum
skipaði Sverrir Bergmann
fjórða sætið á lista Framsókn-
arflokksins í Reykjavík,
Kristján Friðriksson var r 5,
sæti, Sigrún Magnúsdóttir í 6.,
Jón Aðalsteinn Jónasson var í
7., Geir Viðar Vilhjálmsson
var í 8. sæti, í 9. sæti var
Brynjólfur Steingrímsson og
Sigrún Sturludóttir var í 10.
sætinu.
Framsókn, Norðurlandi vestra:
Siglfirdingar
sættust á Ingólf
FRAMSÓKNARMENN í
Siglufirði sættu sig, þegar á
kjördæmaþingið var komið,
við það að nýr maður settist í
þriðja sæti listans í Norður-
landskjördæmi vestra í stað
Guðrúnar Benediktsdóttur,
Hvammstanga, en Siglfirð-
ingar vildu prófkjör eða þá, að
þeir færðust upp sem áfram
gæfu kost á sér. Páll Péturs-
son skipar nú fyrsta sæti
listans, Stefán Guðmundsson,
Sauðárkróki, annað sæti og
Ingólfur Guðnason, Hvamms-
tanga, þriðja sætið. ólafur
Jóhannesson kom á kjördæm-
isþingið og kvaddi samherja
sina i kjördæminu.
Bogi Sigurbjörnsson, Siglu-
firði, skipar 4. sætið, Jón Ingi
Ingvarsson, Skagaströnd, er í
5. sæti, Brynjólfur Svein-
bergsson, Hvammstanga, í 6.,
Helga Kristjánsdóttir, Silfra-
stöðum, í 7., Sverrir Sveins-
son, Siglufirði, í 8. og Gunnar
Oddsson, Flatatungu, sem
skipaði 10. sætið síðast, er nú i
9. sæti. í tíunda sætinu er svo
Ólafur Magnússon, Sveins-
stöðum.
Framsókn á Suðurlandi:
Nýir menn í 3.,
4. og 5. sæti
ÞÓRARINN Sigurjónsson og
Jón Helgason skipa áfram tvö
efstu sætin á framboðslista
Framsóknarflokksins i Suður-
landskjördæmi. í þriðja sæti er
Böðvar Bragason, Hvolsvelli, í
fjórða sæti Rikharð Jónsson,
Þorlákshöfn, og i fimmta sæti
Jóhann Björnsson, Vestmanna-
eyjum, en enginn þessara manna
var á listanum við síðustu kosn-
ingar.
I sjötta sæti er Guðni Ágústs-
son, Selfossi, í 7. sæti Sólrún
Ólafsdóttir, Kirkj ubæj arklaustri,
í 8. Einar Steingrímsson, Vest-
mannaeyjum, í 9. Garðar Hann-
esson, Hveragerði, í 10. Steinþór
Runólfsson, Hellu, í 11. Jón R.
Hjálmarsson, Selfossi, og í 12.
sæti er Sváfnir Sveinbjarnarson,
Breiðabólstað.
Framsókn á Austurlandi:
Guðmundur Gísla-
son í 3ja sæti
FRAMBOÐSLISTI framsókn-
armanna i Austurlandskjör-
dæmi hefur verið ákveðinn. Vil-
hjálmur Hjálmarsson fyrrum
ráðherra gaf ekki kost á sér
Framsókn á Reykjanesi:
Nýir menn íöllum sætum
JÓHANN Einvarðsson,
Keflavík, skipar efsta sætið á
lista Framsóknarflokksins i
Reykjaneskjördæmi, Markús
Á. Einarsson, Hafnarfirði, ann-
að og Helgi H. Jónsson, Kópa-
vogi, þriðja.
Á kjördæmisþingi um helgina
hlaut Jóhann 216 atkvæði í
fyrsta sæti en Markús 52. í
kosningu um annað sætið fékk
Markús 136 atkvæði og Helgi
126 og í kosningu um þriðja sæti
fékk Helgi 187 atkvæði, Leó
Löve 54 og Þrúður Helgadóttir
28, en Leó gaf ekki kost á sér í
neðra sæti en það þriðja.
Þrúður Helgadóttir, Mos-
fellssveit, skipar fjórða sæti
listans, Ólafur Vilhjálmsson,
Garðabæ, er í fimmta sæti,
Bragi Árnason, Kópavogi, er í 6.
sæti, Sigurður Jónsson, Sel-
tjarnarnesi, er í 7. sæti, Unnur
Stefánsdóttir, Kópavogi, er í 8.
sæti, Kristín Björnsdóttir,
Grindavík, er í 9. sæti og í 10.
sæti er Margeir Jónsson,
Keflavík.
Enginn þessara átti sæti á
lista Framsóknarflokksins í
Reykjaneskjördæmi við síðustu
Alþingiskosningar.
áfram og skipar Tómas Árnason
nú fyrsta sætið og Halldór
Ásgrímsson annað sætið, en þeir
voru í öðru og þriðja sæti siðast.
í þriðja sæti nú er Guðmundur
Gíslason stöðvarstjóri og í fjórða
sæti Jón Kristjánsson, Egils-
stöðum, sem skipaði fjórða sætið
síðast. í fimmta sætið kemur
Alrún Kristmannsdóttir, Eski-
firði, í stað Þorleifs Kristmunds-
sonar á Kolfreyjustað. í sjötta
sæti er Kristján Magnússon,
Vopnafirði, eins og síðast og í 7.
sæti Beta Einarsdóttir, Kálfa-
fellsstað, í 8. sæti. Sveinn Guð-
mundsson, Sellandi, í níunda sæti
Friðjón Skúlason, Neskaupstað,
og í tíunda sæti Þórdís Bergs-
dóttir, Seyðisfirði. Þau fjögur
síðasttöldu eru ný á lista fram-
sóknarflokksins í Austurlands-
kjördæmi.