Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979 J ísland tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum með sigri yfir Þjóðverjum! ÞAÐ TOKST. Glæsilegur árang- ur hjá islenska unglingalandslið- inu i handknattleik var i sviðs- ljósinu um helgina. Liðinu tókst að sigra Vestur-Þjóðverja nokkuð óvænt með tveggja marka mun og tryggja sig þannig i átta liða úrsiitin í HM-keppninni i Dan- mörku. Piltarnir sem lögðu á sig mikið erfiði i allt sumar við æfingar hafa uppskorið ríkulega. Fyrir leikinn var ákveðið að allt skyldi lagt i sölurnar til þess að sigur mætti vinnast i leiknum. Og með sameiginlegu átaki tókst það. Það var fyrst og fremst sterk liðsheild sem tryggði sigurinn, sagði Olafur Aðalsteinn Jónsson, er Mbl. ræddi við hann að leikn- um loknum. Mikil barátta, yfir- vegun og skynsamlegur leikur. Byrjunin hjá íslenska liðinu var ekki sem best, eftir sjö mínútna leik var staðan 2—0 fyrir Þjóð- verja. Þá fá íslendingar vítakast sem Sigurður Gunnarsson skorar úr og skömmu síðar annað en þá brást Sigurði bogalistin. Leikur- inn var strax nokkuð harður en vel leikinn af hálfu beggja liða. Á 17. mínútu leiksins nær Sigurður Sveinsson að jafna leikinn 3—3 með hörku skoti eins og honum einum er lagið. Þjóðverjum tekst þó að ná yfirhöndinni aftur og breyta stöðunni í 6—3. Á 24. mínútu skorar svo Guðmundur Magnússon 6—4, og með mikilli baráttu og hörku tekstu íslensku leikmönnunum að jafna metin og staðan í hálfleik var 7—7. Jóhann Ingi talaði vel til sinna manna í hálfleik, sagði Ólafur, þeir komu tvíefldir til leiks og góð byrjun í síðari hálfleiknum færði þeim þriggja marka forskot, 10— 7. Stefán Halldórsson skoraði tvívegis og Atli einu sinni. Á þessum tíma hafði ísland skorað sex mörk án þess að Þjóðverjum hefði tekist að svara fyrir sig. En þeir voru ekki dauðir úr öllum æðum því að þeim tókst að jafna metin 10—10. Á þeim tíma misstu Islendingar tvo menn út af og léku því fjórir í um það bil eina mínútu. Eftir 47 mínútna leik var staðan 12—12. Stefán skoraði þá 13. mark íslands — Þjóðverjar jafna. Þá kom góður kafli hjá íslenska liðinu og reyndar kaflinn sem gerði út um leikinn. Guðmundur Magnússon skoraði af línu og Stefán Halldórsson fallega úr horninu. Staðan var 15—13 og tvær mínútur til leiksloka. Þjóð- verjum tókst að minnka muninn niður í eitt mark, 15—14, og léku • Brynjar Kvaran hefur staðið sig með mikilli prýði í íslenska markinu það sem af er keppninni. maður á mann í lok leiksins en allt kom fyrir ekki. Sigurður Sveins- son innsiglaði sigur íslands á lokasekúndunum er hann vippaði yfir markvörð Þjóðverja eftir að hafa verið í góðu færi á línunni. Sætur sigur var í höfn. Brynjar Kvaran varði fimm hörkuskot í síðari hálfleiknum. Alls 12 skot í leiknum. Leikfléttur liðsins, sem vakið hafa mikla athygli, gengu upp og við það opnaðist vörn þýska liðsins," sagði Ólafur að lokum. Mörk íslands skoruðu Stefán (8/6), Guðmundur Magnússon 2, Atli Hilmarsson 2, Sigurður Sveinsson 2, Alferð 1 og Sigurður Gunnarsson 1/1. Friðrik Þor- björnsson fiskaði þrjú víki í leikn- um, Andrés Kristjánsson og Guð- mundur Magnússon tvö hvor, Birgir Jóhannsson og Atli eitt hvor. -þr. ísland — Saudi Arabia 35-13(15-5) Á SUNNUDAG lék Ísland síðasta leik sinn í riðlinum, og mætti þá S-Arabíu. Lið þeirra er áberandi mjög slakt og sigur íslands varð stór, 22 mörk skildu liðin í lokin. íslenska liðið lék þennan leik á fullri ferð þrátt fyrir að mót- spyrnan væri harla lítil. Um miðbik fyrri hálfleiksins var staðan orðin 8—4 og í hálfleik 15—5. Yfirburðir íslands voru miklir á öllum sviðum. Tölur eins og 21—8, og 30—9 sáust á ljósatöflunni. Siðustu 10 minútur leiksins var slakað nokkuð á og lokatölurnar urðu 35—15. Nokkuð bar á ótímabærum skotum hjá íslenska liðinu og vörnin stundum ekki nægilega vel á verði en það vill oft koma fyrir þegar mótherjarnir eru svona léttir. Mörk Islands í leiknum skoruðu Sigurður Gunnarsson 7, Stefán Halldórsson 7, 3 v., Krist- ján Arason 6, Birgir Jóhannesson 4, Sigurður Sveinsson 4, Andrés Kristjánsson 3, Alfreð Gíslason 3 og Guðmundur Magnússon 1. —þr. Stefán Halldórsson hefur verið iðinn að skora í Danmörku Urslit leikja áHMí Dan- mörku HÉR fara á eftir úrslit þeirra leikja á HM unglinga sem Mbl. hef- ur náð til. Danm. — Luxemb. 30:11 Ungverjal. - Frakkl. 26:20 Rússland — Portúgal 40:17 Finnland — Japan 29:19 Holl. - Saudi Arab. 17:16 Júgosi. — A — Þýskal. 21:15 Noregur — Taiwan 45:18 Póliand - Ítalía 24:20 Sviþjóð - Belgía 22:12 Tékkóslóvakia — Sviss 29:10 Úrslit leikja og staðan í riðlinum sem islenska iiðið lékí: 1. UMFERÐ: ísland — Portúgal 25:19 Rússland — Holland 29:13 V-Þýskal. — S-Arabía 25:8 2. UMFERÐ: V-Þýskaland — Holland20:9 Rússland — ísland 25:20 Portúgal — S-Arabía 16:15 3. UMFERÐ: ísland - Holland 25:17 Rússland — S-Arabía 32:7 V-Þýskal. — Portúgal 24:15 4. UMFERÐ: ísland — V-Þýskaland 16:14 Rússland — S-Arabía 34:7 5. UMFERÐ: Rússland — V-Þýskal. 28:18 ísland — S-Arabía 35:13 Staðan í riðlinum varð þessi. Rússland 5 5 0 0 148:65 10 ísland 5 401 121:88 V-Þýskal. 5 30 2101:76 Hoiland 5 20 3 74:104 4 Portúgal 5 104 81:122 72 S-Arabía 5 005 50:142 0 Verðlaunahafar í vetrardagsmótinu í badminton. • íslendingar voru sigursæl: Vann íslenska landsliðið þá Meðfylgjandi mynd er af J< skorar körfu gegn írum með Kirb Prót MBL. HEFUR fregnað frá góðum heimildum, að 1. deildar lið Þróttar í knattspyrnu hafi verið að gera hosur sínar grænar fyrir engum öðrum en George Kirby að undanförnu og í þvi skyni hafi Jón markvörður Þorbjörnsson dvalið um tima hjá Kirby i Halifax og átt við hann óformleg- ar viðræður. J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.