Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979 47 Símamynd AP. Sexmenningarnir sem eru í haldi í tengslum við morðið á Park Chung Mee. Þeir eru allir starfsmenn leyniþjónustunnar (KCIA). í efri röð eru (f.v.) Kim Jae Kuy yfirmaður KCIA, Park Meung Soo, Park Sun Ho. í neðri röðinni eru (f.v.) Yoo Song Ok. Lee Ki Choo og Kim Tae Won. haflega að tilræðið hefði verið slys, en endurskoðaða útgáfan var birt eftir langa yfirheyrslu yfir Kim sem var handtekinn ásamt fimm mönnum sínum. Chon hershöfðingi sagði að margir aðrir yrðu líka yfir- heyrðir vegna gruns um að þeir hefðu verið viðriðnir málið. Þó neitar stjórnin því að bylting hafi verið ráðgerð og erlendir sérfræðingar benda á að ekki séu sjáanleg venjuleg merki um valdaránstilraun þar sem fjöldahandtökur hafi ekki átt sér stað og fleira. Engin truflun eða ókyrrð hef- ur fylgt í kjölfar dauða Parks þótt slíku hafi verið spáð árum saman. Wickham og aðrir bandarískir embættismenn sögðu að herinn styddi starfandi forseta af alefli. Wickham, sem er bæði yfirmaður bandaríska herliðsins og sameiginlegrar herstjórnar Bandaríkjamanna og Kóreumanna, ræddi við land- varnaráðherra Suður-Kóreu, Ro Jae-Hyun og Ki Chong-Hwan hershöfðingja, forseta herráðs- ins. Wickham sendi einnig Choi bréf þar sem hann hét því að verja lýðveldið ef á það yrði ráðizt. Kim Young-Sam, leiðtogi stjórnarandstöðuflokks og harð- ur andstæðingur ríkisstjórnar Parks, birti í dag yfirlýsingu þar sem hann varar Norður-Kóreu- menn við því að reyan að notfæra sér ástandið. Andófs- leiðtoginn Kim Dae-Jung varaði einnig við slíku í annarri yfir- lýsingu. Samkvæmt góðum heimildum er Choi settur forseti traustur í sessi. Nýjan forseta verður að kjósa innan þriggja mánaða samkvæmt stjórnarskránni. Forseta kýs kjörmannasam- kunda skipuð 2.583 fulltrúum. Park hlaut 2.577 atkvæði síðast þegar hann var kosinn forseti í júní 1978. Enginn arftaki Enginn einn maður kemur augljóslega til greina sem nýr forseti. Choi starfandi forseti, sem er atvinnudiplómat, nýtur ekki mikils stuðnings í stjorn- inni og var meðal annars valinn forsætisráðherra þar sem Park taldi sér ekki stafa hætta frá honum. Valdamestu menn landsins nú eru taldir tveir fyrrverandi hermenn og forsæt- isráðherrar og núverandi þing- menn: Kim Jon-Pil og Chung Il-Kwon. Kim skipulagði byltinguna, sem kom Park til valda 1961, er hann var ofursti. Hann er kvæntur frænku Parks og var valdamikill ráðunautur hans. Kom skipulagði KCIA, var fyrsti forstöðumaður leyniþjón- ustunnar, skipulagði líka stjórn- arflokkinn og var formaður hans. Hann var forsætisráð- herra 1971 til 1975. Chung var einnig náinn ráð- gjafi Parks, gegndi áberandi hlutverki í stjórn Syngmans Rhees og hefur gegnt nær öllum helztu stöðum í hernum. Hann var tvívegis utanríkisráðherra og forsætisráðherra 1964. Yfirmaður herlaga, Chung Seung-Hwa hershöfðingi, kemur ekki beinlínis til greina en mun líklega hafa mikil áhrif á val nýs forseta. Hann er talinn voldugasti leiðtogi hersins og hver sá sem verður fyrir valinu þarf að hafa stuðning hersins. Léttir í Washington er mönnum það mikill léttir að Norður-Kórea hefur ekki notað sér ástandið, en það hefur verið aðaláhyggju- efnið eftir morðið á Park bæði í Washington og Seoul. Þess vegna flýttu Bandaríkjamenn sér að birta yfirlýsingu sem var beint til Norður-Kóreumanna þess efnis að Bandaríkin mundu ekki láta ytri ógnanir viðgang- ast. Viðbúnaður bandaríska herliðsinsti Suður-Kóreu var aukinn. Talið er útilokað í Washing- ton að Norður-Kóreumenn hafi verið viðriðnir dauða Parks for- seta eða að byltingartilraun kunni að hafa leitt til dauða hans, en viðurkennt er að margt sé á huldu um það sem gerðist. Fyrstu viðbrögð Norður- Kóreumanna kom fram í grein sem fréttastofa landsins dreifði og þar sagði að morðið bæri vott um vaxandi stjórnmálaumrót og þjóðfélagslegt öngþveiti í suð- ur-Kóreu. Efasemdir Alþýðudagblaðið í Peking gaf í skyn í dag að suður-kóreski herinn kynni að halda vernd- arhendi yfir yfirmanni leyni- þjónustunnar er var handtekinn fyrir morðið. Blaðinu þykir hann hafa fengið væga meðferð og það segir að sumir sérfræð- ingar í Seoul haldi að á ferðinni hafi verið „hallarbylting" er tengzt hafi stjórnmálaókyrrð í landinu. í Moskvu gaf stjórnarmál- gagnið Izvestia í skyn í dag að bandaríska leyniþjónustan CIA bæri að hluta til ábyrgð á morðinu og sagði að kringum- stæður dauða Parks bentu til þess að hann hefði verið fjar- lægður þar sem hefði ekki leng- ur getað tryggt hagsmuni „suður-kóreska afturhaldsins og hins erlenda verndara þess.“ Páfi fordæmir dómana í Prag Vatikaninu, 28. október. AP. Reuter. JÓHANNES Páll II páíi fordæmdi í dag réttarhöldin og dómana yfir andófsmönnunum i Prag í ræðu á Péturstorgi. „Við getum ekki látið sem réttarhöldin í Prag skipti okkur engu,“ sagði páfi og tók jafnframt fram að Tékkóslóvakía stæði nærri hjarta hans. Þá bað páfi fyrir fólki, sem hefur horfið sporlaust í Argentínu og Chile, jafnframt því sem hann bað fyrir fórnarlömbum hungursneyðarinnar í Kambódiu. „Hinn eini sanni vegur til friðar i heiminum er virðing fyrir mannréttindum,“ sagði páfi á Péturstorgi. í Lundúnum tilkynntu Amn- esty-samtökin að andófsmennirn- ir sem hlutu dóma í Prag í síðustu viku yrðu settir á lista yfir samvizkufanga og að samtökin myndu berjast fyrir skilyrðis- lausri sakaruppgjöf þeirra. í til- kynningu Amnesty sagði, að full- trúi samtakanna í Prag hefði sagt, að réttarhöldin í Prag hefðu ekki verið réttlát samkvæmt alþjóða mælikvarða. „Með því að með- höndla fangana sem glæpamenn, sem þó höfðu einungis haft í frammi friðsamlegar aðgerðir, hafa þeir sem ákærðu sjálfir brotið gegn mannréttindaákvæð- um tékknesku stjórnarskrárinn- ar,“ sagði meðal annars í tilkynn- ingu samtakanna. Slys í sovézkum k j arnorkukafbát? Moskvu, 29. október .AP. SOVÉZKA sjónvarpið sagði fréttum um sprengingu um undan strönd Suður-Afríku um“. Sjónvarpið vitnaði í Washington Post og sagði að kunnugir teldu að frétt- in um kafbátinn væri til- raun af hálfu Suður-Afríku til að „leiða frá sér athygl- ina“. Þetta eru einu viðbrögð Rússa við fréttinni. um helgina, að vestrænum borð í „óþekktum“ kafbát væri tekið með „efasemd- Suður-Afríski sjóherinn tilkynnti um helgina, að hann væri að rannsaka þann „raunverulega mögu- leika“ að kjarnorkuslys hefði átt sér stað í sovézk- um kjarnorkukafbát af gerðinni Echo II í grennd við Höfðaborg. TT Veður víða um heim Akureyri 0 skýjaó Amiterdsm 8 rigning Aþena 18 skýjaó Bsrcelona 16 skýjaó Berlín 7 skýjaó Brussel 8 skýjaó Chicago 18 léttskýjað Feneyjar 17 alskýjaó Frankfurt 10 rigning Genf 10 skýjaó Helsinki -2 snjókoma Jerúsalem 27 iéttskýjaó Jóhannesarborg 23 skýjað Kaupmannahöfr i 5 skýjaó Lissabon 17 léttskýjað London 14 léttskýjaó Los Angeles 23 léttskýjaó Madríd 16 léttskýjaó Maiaga 21 léttskýjaó Mallorca 16 léttskýjaó Miami 26 skýjaó Moskva -5 skýjað NewYork 10 léttskýjaó Ósló 0 skýjað Parfs 19 léttakýjaó Reykjavík -1 léttskýjað Rio De Janeiro 34 skýjaó Rómaborg 18 léttskýjaö Stokkhólmur 5 skýjaó Tel Aviv 28 léttskýjað Tókýó 21 skýjaö Vancouver 11 skýjaó Vinarborg 8 rigning Charan Singh biðlar nú til kommúnista Nýju-Delhi, 28. október. Reuter CIIARAN Singh, forsætisráðherra Indlands, hvatti i dag til bandalags stjórnar hans og kommúnista i þingkosningunum á Indlandi í janúar á næsta ári. í yfirlýsingu forsætisráðherrans sagði að samstarfs- grundvöllur væri fyrir hendi. Lok Dal (Þjóðarflokkurinn) og hinn opinberi Kongressflokkur, sem starfar með Lok Dal i rikisstjórninni, ættu að koma sér saman um áætlun til að berjast gegn fátækt i landinu, sagði i yfirlýsingu Charan Singh, en hann er formaður Lok Dal. Kommúnistar — bæði Moskvu- sinnar og Pekingsinnar, hvöttu til samstöðu þessara afla í yfirlýs- ingu og þykir það benda til þess að kommúnistar séu reiðubúnir til samstarfs með Charan Singh. Báðir kommúnistaflokkarnir hvöttu til samstöðu lýðræðisafla, eins og það var kallað, gegn Indiru Ghandi og Janatabandalaginu. Kommúnistar hafa nú 42 þing- menn á þinginu í Nýju Dehli en alls eru meðlimir neðri-deildar þingsins 544. Charan Singh leysti þingið frá störfum í ágúst þegar ljóst var að stjórn hans yrði felld á þingi. Hann boðaði til kosninga í janúar og situr í embætti forsæt- isráðherra þar til ný stjórn hefur verið mynduð. Danmörk: Jafnaðarmenn misstu þing- mann í endurtalningu Kaupmannahöfn, 29. október. AP. Jafnaðarmannaflokkur Ankers Jörgensens missti eitt þingsæti þegar endurtalning atkvæða frá þingkosningunum í síðustu viku fór fram. Þar með hefur minni- hlutastjórn Ankers Jörgensens 68 þingmenn af 179. Sósíalíski þjóð- arflokkurinn fékk þingmanninn og hefur nú ellefu. Mistalningin hafði átt sér stað í Árósum. Jafnaðarmönnum hafði verið of- talin 926 atkvæði og sósíalíska þjóðarflokknum vantalin 126 atkvæði — þetta nægði til að breyta þingmannatölu flokkanna. Skipting þingmanna er nú: Jafn- aðarmenn 68, íhaldsmenn 22, Vinstriflokkurinn 22, Framfara- flokkurinn 20, sósíalíski þjóðar- flokkurinn 11, Róttækir 10, Vinstri sósíalistar 6, Mið-demó- kratar 6, Réttarsambandið 5 og Kristilegi þjóðarflokkurinn 5. Auk þessara fulltrúa eiga Færeyjar og Grænland fjóra þingmenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.