Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Rítstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiösla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aöalstræti 6, sími 22480. Sími83033 Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. Menntamannaklíkan í Alþýðubandalaginu Vinstri flokkarnir sviku loforðin um „samningana í gildi". Þau svik verða ofarlega á baugi í þeirri kosningabar- áttu, sem senn mun hefjast. Það er umhugsunarefni, hvers vegna flokkur á borð við Alþýðubandalagið, sem jafnan hefur talið sig sérstakan málsvara launþega og þá sérstaklega láglaunafólks og vann umtalsverðan kosninga- sigur út á þetta loforð, hefur uppi svo litla tilburði til þess að standa við gefin fyrirheit. Stuðningur við verkalýðshreyfinguna var grundvallar- atriði í starfi og stefnu forvera þess, Sósíalistaflokksins. Alþýðubandalagið sjálft var stofnað 1956 fyrst og fremst á grundvelli samstarfs milli forystumanna í verkalýðshreyf- ingunni, sem áður störfuðu í Alþýðuflokki og Sósíalista- flokki. En Alþýðubandalagið hefur verið að breytast. Það hefur smátt og smátt horfið frá uppruna sínum. Ahrif verkalýðsarms flokksins hafa jafnt og þétt dvínað. Að sama skapi hefur menntamannaarmur flokksins aukið áhrif sín. Aður var þessu öfugt farið. Þá réð verkalýðsarmurinn ferðinni en menntamannahópurinn fylgdi með. Nú má segja, að vinstri sinnuð menntamannaklíka hafi tekið völdin í Alþýðubandalaginu og hafi í raun skilið verkalýðsarminn eftir. Afleiðingin er sú, að sjónarmið verkalýðshreyfingarinnar eru ekki jafn sterk og áður. Hagsmunamál launþega eru látin víkja fyrir öðrum hagsmunum, sem menntamannahóp- urinn telur meira virði en lífskjör láglaunafólks. Þetta er meginástæðan fyrir því, að Alþýðubandalagið sat í ríkis- stjórn í 13 mánuði og sveik kosningaloforðið um samningana í gildi á þriggja mánaða fresti. Rödd launafólksins heyrist ekki lengur og jafnvel þótt hún heyrist er ekki tekið tillit til hennar. Þeir hagsmunir, sem menntamannahópurinn í Alþýðu- bandalaginu tekur fram yfir hagsmuni launafólks, er frami þeirra sjálfra. Þessi hópur leggur megináherzlu á valda- aðstöðu Alþýðubandalagsins í ríkiskerfinu til þess að þeir geti sjálfir hreiðrað um sig í því valdakerfi, skarað eld að sinni eigin köku og unnið að því að koma í framkvæmd hugmyndum þeirra um þjóðfélagsbygginguna, sem yfirleitt er víðs fjarri þeim hugmyndum, sem launafólk gerir sér um þróun samfélagsins. Deilur milli verkalýðsarmsins og menntamannahópsins hafa blossað upp á síðum Þjóðviljans á undanförnum mánuðum og lýsingar Guðmundar J. Guðmundssonar á menntamannahópnum og hugmyndum hans hafa vakið verðskuldaða athygli. Þeir launamenn, sem hingað til hafa haldið, að hagsmun- um þeirra væri bezt borgið með því að kjósa Alþýðubanda- lagið hljóta að endurskoða afstöðu sína eftir að kosningasvik Alþýðubandalagsins liggja svo ljós fyrir sem nú. Þessir iaunamenn hljóta að íhuga hvort líklegt sé, að Alþýðubanda- lagið standi betur vörð um hagsmuni þeirra eftir næstu kosningar en á síðustu 13 mánuðum þegar ótvírætt loforð um samningana í gildi hefur verið svikið svo herfilega. Þessir launamenn hljóta að velta því fyrir sér, hvort nokkur ástæða sé til að marka meira orð Alþýðubandalagsforsprakkanna nú en eftir síðustu kosningar. Eftir þessa síðustu 13 mánuði stendur Alþýðubandalagið afhjúpað, ekki sem verkalýðsflokkur, heldur sem flokkur er notar launafólk í landinu til þess að koma fámennum hópi menntamanna í valdastöður. Launafólk hefur áreiðanlega ekki áhuga á að láta þennan fámenna menntamannahóp halda áfram þeirri iðju eftir næstu kosningar. VARNAÐAR- 1 Kjarval lagði áherzlu á, að við ættum að rækta með okkur of- næmið, það er listin, sagði hann og minnti á, að þá fyrst yrði hart í ári á Islandi „þegar ónæmið verð- ur ofan á“. Nú er að þessu leyti hart í ári. Ofnæmi fyrir umhverfinu getur verið nauðsynlegt, ekki sízt á tímum einhverrar „opnunar", sem sífellt er tönnlazt á og óskil- greinds frelsis, sem fleiri misnota gegn öðrum en hagnýta sjálfum sér og þjóð sinni til þroska og fyllingar. Af þeim sökum m.a. hefur frelsið leitt til upplausnar í ýmsum löndum og ekki er laust við, að sturlungaandrúm ríki í íslenzkum fjölmiðlum og víðar á vettvangi pólitískra átaka. Sturl- ungaöld var í senn siðlaus og óvægin, öld upplausnar og yfir- gangs í orðum og athöfnum; minn- ir óþyrmilega á samtíð okkar. En hún var einnig öld mikillar listar og ýmsu má fagna í fari þeirrar vargaldar, sem við lifum, m.a. framförum í tækni og vísindum — og þá ekki sízt í læknisfræði. En hvað stoðar það okkur, þótt við eignumst allan heiminn, ef við Jjj fyrirgjörum sál okkar. í sögu eftir nóbelsskáldið I.B. Singer segir á einum stað: „Hvernig var Pólland eyðilagt? Sérhver aðalsmaður vildi verða kóngur. Þegar einn sagði það væri sunnudagur, æpti annar að það væri mánudagur." Við erum þó enn sammála um vikudagana — eða hvað? Á löngum ritstjóraferli hef ég verið kallaður öllum illum nöfn- um, ekki sízt í Þjóðviljanum, t.a.m. McCartyisti, sem mun merkja sama og nazisti, og þó líklega eitthvað verra, því að eitt sinn voru Hitler og Stalín vinir og nazistar vel látnir með kommún- istum. Af öðrum hef ég verið sakaður um kommúnistadekur, þó ég hafi skrifað sem svarar nokkr- um doðröntum um alræði komm- 1 únismans og hættuna af honum. Ritstjóri Morgunblaðsins verður víst að sætta sig við niðrandi nafngiftir, sem spanna allt póli- tíska stafrófið frá kommúnisma til nazisma. Hann hættir því smám saman að kippa sér upp við slíkt, ekki sízt þegar hann er rithöfundur að auki og afgreiddur sem slíkur með pólitískum upp- |JJ hrópunum af kommúnistum og ýmsum öðrum vinstri mönnum. g| Ég ætti því í raun og veru að láta mér í léttu rúmi liggja, hvaða nafngiftir menn hljóta í pólitíska bröltinu og jafnvægisleysinu hér á j§ landi. Auk þess hef ég þurft að bera ábyrgð á ýmsu sem ritstjóri Morgunblaðsins, sem mér hefur verið öndvert og ekki að skapi. Og að sjálfsögðu hef ég verið ósam- mála margvíslegu aðsendu efni, sem blaðið hefur birt, þó að jj ritstjórnargreinar þess túlki að sjálfsögðu ávallt skoðanir okkar ritstjóranna. af gefnu iUefrú 2 Ýmsu eirðarlausu fólki mun vafalaust þykja þetta allundar- legur formáli og þó einkum of langur fyrir þeirri litlu athuga- semd, eða öllu heldur ábendingu, sem mig langar að koma á fram- færi undir fullu nafni mínu. En auðvitað tel ég hana snerta kjarna máls, sem hefur ónáðað samvizku mína sem lýðræðissinna og frjáls- hyggjumanns í gamalli grískri heimspekimerkingu. Ég hef orðið var við það oftar en einu sinni, að ýmsum lýðræðis- sinnum þótti það einhver goðgá, að Árni Bergmann, ritstjóri Þjóð- viljans, skyldi sýna sig á stór- merkum og eftirminnilegum fundi Búkovskís á Hótel Sögu. Ég hef einatt þurft að elda grátt silfur við Árna og samflokksmenn hans og mátt þola af þeim illt umtal af ýmsu tagi. En mér er ómögulegt að sjá, hvers vegna ritstjóri Þjóð- viljans ætti að vera jafn óvelkominn á fund Búkovskís og sumir svokallaðir hægri menn vilja vera láta. Ég gagnrýndi Árna harðlega, þegar hann ungur náms- maður skrifaði vitleysur frá Moskvu og hef haldið áfram eftir að hann kom heim að furða mig á ýmsu, sem úr penna hans hefur hrotið. En ég teldi mig síður en svo mann að meiri, ef ég hefði eitthvað við það að athuga, að hann sæti fundi Búkovskís eða annarra sovézkra andófsmanna. Ég talaði við Búkovskí fram á nótt þennan sama fundardag og varð ekki var við, að honum fyndist neitt athugavert við að ritstjóri Þjóðviljans hefði sótt fundinn, nema síður væri. Hann sagði líka á fundinum sjálfum, að við ættum að umgangast íslenzka kommún- ista á sama hátt og annað fólk(!) Ef við ekki gerum það, verðum við orðnir nazistar, áður en við vitum af. í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þótti þátttakanda, ágætum manni, að því er ég bezt veit og áhuga- sömum um andleg efni, sigur- stranglegast að nefna Þjóðvilja- ritstjórann kvisling og allt að því helgispjöll, að hann skyldi hafa sótt fyrrnefndan fund Búkovskís. Þegar ég sé þvílíkt og annað eins í því blaði, sem ég ritstýri, get ég ekki orða bundizt og mótmæli slíkri aðdróttun. Árni Bergmann hefur að vísu látið það viðgangast, að við Styrmir Gunnarsson og Indriði G. Þorsteinsson værum kallaðir CIA-njósnarar í blaði hans, en kveinkaði sér, þegar hann sjálfur var orðaður við njósnastarfsemi KGB í Vísi. En orðin kvislingur og landráðamenn (eins og við íslenzk- ir landvarnamenn höfum einatt verið úthrópaðir í Þjóðviljanum) eru þeirrar merkingar, að menn skyldu ekki hafa þau í flimtingum, heldur reyna að umgangast orð af meiri kurteisi en almennt gerist í pólitískum heittrúarsöfnuðum á Islandi — og á ég þá við svonefnda hægrimenn, en þó ekki síður við söfnuð þann, sem Árni stjórnar nú um stundir eins og Bukharín, þegar hann var ritstjóri Izvestia, en hann var öðrum kommúnista- leiðtogum Sovétríkjanna geðfelld- ari, hafði ást á skáldskap og varði höfuðskáld og andstæðinga Kerf- isins eins og Pasternak og Mand- elstam. Gæti Árni margt af hon- um lært, en hefur þó sumt vel gert. En ef lýðræði ríkir áfram á Islandi, verða örlög Árna Berg- manns með öðrum hætti en þessa sovézka starfsbróður okkar, sem féll fyrir böðuls hendi. Ef komm- únisminn klófestir ísland aftur á móti og ryðst til valda í V-Evrópu, þori ég engu að spá í stjörnur okkar tveggja, né annarra. Hægrimenn eru því miður farn- ir að tala um andstæðinga sína með engu minni heift og fyrirlitn- ingu en kommúnistar um okkur. Ég vara eindregið við slíkri grimmd. Minni jafnframt á, að einungis eitt orð er í mínum huga svartara og sóðalegra í sögulegri merkingu en orðið nazisti, en það er kvislingur. Slíkt orð getur lýðræðissinni — og góður sjálf- stæðismaður — ekki notað órök- stutt um pólitískan andstæðing sinn, hvort sem hann er kommún- isti eða eitthvað annað. Og sem ritstjóri Morgunblaðsins frábið ég mér slíkar trakteringar í því blaði, sem mér hefur verið trúað fyrir af sönnum frjálshyggjumönnum og lýðræðissinnum, sem hafa fremur hvatt okkur ritstjóra blaðsins en latt til að stunda svokallaða frjálsa blaðamennsku. Ég get bætt því við, að meðritstjóri minn, Styrmir Gunnarsson, er sammála mér um þau atriði, sem ég nú hefi nefnt. Hitt er svo annað mál, að Árni Bergmann og félagar hans eiga að öðru leyti ekki annað skilið en það aðhald, sem þeim er nauðsynlegt, er vilja leiða marxisma til öndveg- is í íslenzku þjóðfélagi. Og þeir hafa kallað yfir sig þá stóryrtu gagnrýni, sem hefur nýlega birzt hér í blaðinu undir nöfnum rithöf- undanna Jóhannesar Helga og Jóns Björnssonar og Péturs Sig- urðssonar fyrrum alþingismanns. En það er annað mál — og kemur ekki við þeim varnaðarorð- um sem ég hef talið mér skylt og nauðsynlegt að setja hér fram af marggefnu tilefni. Það fylgir því mikil ábyrgð að tala í nafni frelsis og lýðræðis og þá ekki sízt frjálshyggju, sem er lífsskoðun, en hvorki trú né trúar- brögð. Við gerum því einfaldlega skóna, að frelsi og mannréttindi fari saman, svo sjálfsagt sem það er. En við þurfum að gæta þess að gleyma ekki mannúðinni, það er allt og sumt. Sá sem talar í nafni lýðræðis verður að standast marg- víslegar freistingar, ekki sízt þá að láta yfir sig ganga skoðanir annarra, hversu vitlausar sem þær eru eða ógeðfelldar. Og hvort sem honum líkar betur eða verr er honum lögð sú skylda á herðar að vernda mannréttindi og skoðana- frelsi, jafnt kommúnista sem ann- arra. Lýðræðissinnar á Vestur- löndum hljóta að standa vörð um full lýðréttindi marxista, þó að kommúnistar hneppi aftur á móti andstæðinga sína í fangelsi og meini þeim að koma á framfæri skoðunum sínum, sendi þá jafnvel á geðveikrahæli, ef ekki vill betur til. Slík varðstaða, sem nefnd hefur verið, er ein af þeim kröfum, sem lýðræðissinni hlýtur að gera til sjálfs sín. En umfram allt á hann að umgangast orð eins og kvislingur og landráð af sömu varfærni og Höskuldur hvítanes- goði þau vopn, sem hann beitti ekki, en vildi hálfu heldur, segir sagan, þola dauða af Njálssonum en gera þeim nokkurt mein. En sjálfir mættu Árni Berg- mann og félagar hans hafa þá athugasemd Maos formanns efst í huga, að enginn ætti að vega annan mann með orðum. Mao gagnrýndi Liang-Shu-Ming fyrir að fremja morð með penna sínum. Slík morð eru listilegast dulbúin, segir hann, og skilja ekki eftir sig blóðpoll. Ég kem þessum día- lektíska sannleika formannsins á framfæri við maoista og aðra marxista hér með. Matthías Johannessen. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979 29 BRAUTSKRÁÐIR haía verið írá Háskóla íslands 62 kandidatar við upphaf haustmisseris og voru þeim afhent prófskirteini sl. laugardag við athöfn í hátiðasal Háskólans. Rektor, Guðmundur K. Magnússon, ávarpaði stúdent- ana er lokið hafa námi og af- hentu deildarforsetar skirteinin. Eru þetta fyrstu nemendur sem brautskráðir eru eftir að Guð- mundur tók við starfi rektors. Við athöfnina söng Háskólakór- inn undir stjórn Rutar Magnús- son og i lokin flutti Oskar Halldórsson ljóð eftir Hannes Pétursson. Guðmundur Magnússon sagði í ' ávarpi sínu, að í vetur stunduðu fleiri stúdentar nám við Háskól- ann en nokkru sinni eða nokkuð á þriðja þúsund og væri það um fjögur hundruð fleiri nemendur en á sama tíma í fyrra. Sagði hann í samtali við Mbl. að nú hefði orðið enn frekar vart við þau miklu þrengsli er skólinn byggi við og nú í vetur hefði t.d. hátíðasalurinn í fyrsta sinn verið notaður til Sextíu og tveir stúdentar luku prófum frá Háskólanum við upphaf haustmisseris. Ljósm. Rax. Háskóli Islands braut- skráir 62 kandídata kennslu í læknadeild og viðskipta- deild. Hér fara á eftir nöfn þeirra er lokið hafa prófum frá Háskóla íslands við upphaf haustmisseris: Aðstoðarlyfjafræðingspróf: (1) Sigríður Eyjólfsdóttir Embættispróf í lögfræði: (1) Júlíus Vífill Ingvarsson Kandidatspróf í viðskiptafr: (12) Björn S. Haraldsson Gunnar Ingi Hjartarson Haukur Gunnarsson Jón Tryggvi Kristjánsson Jón Sigurðsson Kristín Ingvarsdóttir Kristjana Milla Thorsteinsson Ómar S. Jónsson Pétur Orri Jónsson Runólfur Magnús Ásgeirsson Sigríður Jónsdóttir Steingrímur Ari Arason Kandidatspróf i islenzku: (1) Kristján Eiríksson Kandidatspróf i sagnfræði: (2) Gísli Ágúst Gunnlaugsson Stefán Gunnar Hjálmarsson Guðmundur Magnússon rektor brautskráði fyrsta sinn kandidata sl. laugardag. Kandidatspróf i ensku: (2) Anna Arnbjarnardóttir Ásdís Kristjánsdóttir Próf í islenzku fyrir erlenda stúdenta: (1) Bernard Scudder B.A.-próf i heimspekideild: (17) Anton O’Brian Holt Árni Hermannsson Ástráður Eysteinsson Auður Sigurðardóttir Guðný Gunnarsdóttir Ingi Bogi Bogason Ingólfur Á. Jóhannesson Jóhanna Guðmundsdóttir Jón Már Héðinsson Laura Bergs Páll Magnús Skúlason Sólveig Thorarensen Sumarrós Sigurðardóttir Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir Þórdís Þórarinsdóttir Þórunn Magnúsdóttir Þórunn Valdimarsdóttir Verkfræði- og raunvísindad. (13) Lokapróf í rafmagnsverkfr. (3) Gylfi Ólafsson Viðar Viðarsson Þórarinn Stefánsson B.S.-próf í matvælafræði. (1) Snorri Sigmundsson B.S.-próf í líffræði. (5) Barbara Stanzeit Björn Gunnlaugsson Margrét Þ. Stefánsdóttir Sigrún Asa Sturludóttir Þórunn Reykdal B.S.-próf í jarðfræði. (2) Matthías Loftsson Ólafur Ingólfsson B.S.-próf í landafræði. (2) Brynjólfur Sveinsson Gunnhildur Skaftadóttir B.A.-próf í félagsvísindad. (12) Einar Ingi Magnússon Guðrún Einarsdóttir Hörður Þorgilsson Ingibjörg Broddadóttir Jónína Hallfríður Hjaltadóttir Jóhanna Júlíusdóttir Leonardus J.W. Ingason Már Viðar Másson Margrét Ólafsdóttir Ragnar Ólafsson Róbert Trausti Árnason Rúnar Kristinn Þór Karlsson Alþýðuflokkurinn í Reykjaneskjördæmi: Gert út um 3. sætið á fundi í dag Takmarkanir á loðnuveiðum trúlega ákveðnar á morgun FUNDUR íslenzkra og norskra fiskifræðinga um sameiginlegar rannsóknir á st'ærð íslenzka loðnustofnsins hófst í gærmorg- un og er reiknað með að fundin- um ljúki i dag. í framhaldi af þessum fundi hefur sjávarútvegs- ráðherra boðað hagsmunaaðila i loðnuveiðum og vinnslu á sinn fund á morgun. Að þeim fundi loknum má vænta ákvörðunar ráðherra um aflahámark á þeirri vertíð sem nú stendur yfir og vetrarvertiðinni og sömuleiðis til- högun takmarkananna. Það var í marzmánuði síðast- liðnum, að fiskifræðingar lögðu til, að loðnuaflinn frá því í júlí í sumar fram til næsta vors færi ekki yfir 600 þúsund tonn. Þessi tillaga fól í sér um helmings samdrátt í loðnuveiðunum, en á sama tímabili árið á undan, þ.e. frá því í júlí 1978 þangað til í apríl í vor voru veidd tæplega 1.200 þúsund tonn úr íslenzka loðnu- stofninum. Fiskifræðingar hafa sagt, að á grundvelli sameiginlegra stofn- ÁKVEÐIÐ var í gærkveldi að endurtalning skyldi ekki fara fram i prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi, en þar skildu aðeins 2 atkvæði þá Olaf Björnsson og Gunnlaug Stefáns- son i 3. sæti listans. í dag er ráðgerður fundur í kjördæmis- ráði Alþýðuflokksins í Festi og verður þar skorið úr um hvor þeirra tveggja hljóti 3. sæti list- ans, en kosning í það er ekki bundin. AIls greiddu 3.257 atkvæði í prófkjörinu, ógildir seðlar voru 443 eða 13%. Kjartan Jóhannsson hlaut 2.301 atkvæði í 1. sæti listans. Karl Steinar Guðnason hlaut 1.999 atkvæði í 2. sætið og í 3. sætið hlaut ólafur Björnsson 1.287 atkvæði en Gunnlaugur Stef- ánsson 1.285 atkvæði. Guðrún Helga Jónsdóttir hlaut 1.667 at- kvæði í 3., 4. og 5. sæti listans, Ásthildur Ólafsdóttir hlaut 2.156 atkvæði í 4. og 5. sæti og Örn Eiðsson hlaut 1.843 atkvæði í 2. til 5. sæti. Vegna þess, hve mjótt var á munum milli Ólafs og Gunnlaugs, krafðist Gunnlaugur endurtaln- ingar. Skildu þá 3 atkvæði þá félaga, en við endurmat vafaat- kvæða varð munurinn aðeins 2 atkvæði. Var sætzt á að sleppa endurtalningu, en ákveðið að gera út um 3. sætið á fundi í dag eins og áður er getið. stærðarmælinga íslendinga og Norðmanna í sumar, sé ekki að vænta verulegra breytinga á fyrri tillögum. Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson kom á sunnu- daginn úr leiðangri fyrir Norður- landi, en leiðangursstjóri var Hjáimar Vilhjálmsson. Auk hans taka þátt í fundinum, sem nú stendur yfir, Jakob Jakobsson og Norðmaðurinn Ingolf Röttingen, sem var leiðangursstjóri á Mich- ael Sars í síðari leiðangri íslend- inga og Norðmanna. Fiskifræðingarnir Hjálmar Vilhjálmsson, Jakob Jakobsson og Ingolf Röttingen bera saman bækur sinar um niðurstöður sameiginlegra loðnuleiðangra íslendinga og Norðmanna. (Ljósm. Mbl. Emilia).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.