Morgunblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 40
áritstjómogskrifstofu;
10100
ÞRIÐJUDAGUR 30.OKTÓBER 1979
I Sími á afgreiðslu:
03033
]H«T0tmblnbib
Mikið annriki var á hjólbarðavinnustofum um helgina og i gær, er siðbúnir ökumenn settu
neglda hjólbarða undir bifreiðar sinar. Ljósm. mm. rax.
Þorlákshöfn:
samstarfi — segir Björgvin Guðmundsson
BORGARFULLTRÚAR Al-
þýðuflokksins hafa komizt að
samkomulagi um ákveðin vinnu-
brögð sín i milli. Þetta var
tilkynnt í gærkveldi á aðalfundi
Fuiltrúaráðs Alþýðuflokksfélag-
anna i Reykjavik og fagnaði
fundurinn þessu samkomulagi,
sem ekki var gefið upp hvers
eðlis væri. Björgvin Guðmunds-
son, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins sagði í gærkveldi, að
hann og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
hefðu orðið ásátt um að skýra
ekki frá samkomulaginu, en
hann teldi það fullnægjandi
þannig, að Alþýðuflokkurinn
gæti áfram haldið vinstra sam-
starfi í borgarstjórn ásamt Al-
þýðubandalagi og Framsóknar-
flokki.
Á fundinum var skýrt frá því,
að Björgvin og Sjöfn hefðu náð
ákveðnu samkomulagi um vinnu-
brögð, er ættu að treysta sam-
stöðu fulltrúa Alþýðuflokksins í
borgarstjórn. í kjölfar þess gerði
fundurinn samþykkt, sem hljóðar
svo: „Fulltrúaráð Alþýðuflokksfé-
laganna í Reykjavík fagnar því, að
borgarfulltrúar Alþýðuflokksins
hafa náð samkomulagi og væntir
þess, að það samkomulag muni
tryggja betur samstöðu fulltrúa
Alþýðuflokksins í borgarstjórn
Reykjavíkur í meiriháttar mál-
um.“
Björgvin kvað þetta samkomu-
lag tryggja það, að hann og Sjöfn
gætu tekið þátt í meirihlutasam-
starfinu af fullum heilindum. Um
væri að ræða starfsreglur, er
vörðuðu meðferð mála og undir-
búning þeirra fyrir borgarstjórn-
arfundi. Eiga þessar starfsreglur
að koma í veg fyrir, að slíkt
endurtaki sig, sem gerðist, er
Landsvirkjunarsamningurinn féil
í borgarstjórn. Á fundinum lýstu
báðir borgarfulltrúarnir því yfir,
að þeir myndu halda meirihluta-
samstarfinu áfram og þeir fund-
armenn, sem til máls tóku lögðu
áherzlu á mikilvægi áframhald-
andi samstarfs.
Sigurður E. Guðmundsson,
formaður Fulltrúaráðsins var
endurkjörinn formaður þess.
Hlaut hann 51 atkvæði, en Skafti
Skúlason hlaut 32 atkvæði.
Víðtæk leit
að ungu fólki
VÍÐTÆK eftirgrennslan og leit fór fram gær að tveimur
Þoriákshafnarbúum, 26 ára gamalli konu og 21 árs gömlum manni,
sem ekkert hefur spurst til siðan um tíuleytið s.l. föstudagskvöld, er
þau sáust saman i bifreið í Þorlákshöfn. Leitað hefur verið i
Þoriákshöfn og nágrenni og auglýst eftir fólkinu og bilnum i útvarpi
en án nokkurs árangurs. Hefur engin vísbending komið fram um það
hvar fólkið er nú niðurkomið og er mönnum hulin ráðgáta hvað gerst
hefur.
Fullnægjandi fyrir áframhaldandi meirihluta-
Hin týndu heita Katrín Sigrún
Óiafsdóttir, Reykjabraut 3, og
Ómar Berg Ásbergsson, Eyja-
hvammi 18. Katrín var klædd í
bláar gallabuxur og bláa ullarúlpu
en ómar var klæddur í svartar
flaueisbuxur og græna mittisúipu.
Ómar kom til Þorlákshafnar
með rútu skömmu fyrir klukkan
22 s.l. föstudagskvöld, en hann
stundar háskólanám í Reykjavík.
Katrín sótti hann á endastöð
rútunnar og ók hún gulri Lada
1500 bifreið með skrásetningar-
númerinu X-4905. Sáust þau aka
um þorpið í bifreiðinni en síðan
hefur ekkert til þeirra spurzt.
Þegar farið var að óttast um
Katrínu og Ómar var farið að
spyrjast fyrir um þau en það bar
engan árangur. Var þá haft sam-
band við lögregluna á Selfossi og
leit skipulögð. Að sögn Jóns Guð-
mundssonar yfirlögregluþjóns á
Selfossi var í gær leitað í nágrenni
Þorlákshafnar og m.a. notuð þyrla
Landhelgisgæzlunnar og SVFI. Þá
leituðu kafarar í höfninni fram
undir miðnætti í gærkvöldi og
bátur með dýptarmæli sigldi um
Mikill fjöldi sjálfboðaliða vann við prófkjör sjálfstæðismanna i
Reykjavik um helgina, en þessi mynd var tekin i Valhöll i gærkvöldi
er unnið var að talningu, sem stóð langt fram á nótt. Ljónm. Emiiu
urðsson 3.999, 9. Guðmundur H.
Garðarsson 3.076, 10. Elín Pálma-
dóttir 1.510,11. Björg Einarsdóttir
1.365 og 12. Jónas Bjarnason 1.339
atkvæði
Til þess að gefa fólki hugmynd
um þær sveiflur, sem urðu í röðun
frá fyrstu tölum, skulu þær einnig
birtar hér: 1. Geir Hallgrímsson
1.221, 2. Albert Guðmundsson
1.374, 3. Birgir ísleifur Gunnars-
son 1.453, 4. Gunnar Thoroddsen
1.242, 5. Ragnhildur Helgadóttir
1.373, 6. Ellert B. Schram 1.619, 7.
Pétur Sigurðsson 1.895, 8. Friðrik
Sophusson 2.025,9. Guðmundur H.
Garðarsson 1.586, 10. Elín Pálma-
dóttir 770, 11. Björg Einarsdóttir
704 og 12. Jónas Bjamason 690
atkvæði. Þegar þessar tölur voru
birtar höfðu verið talin 3.200
atkvæði.
alla höfn en enginn árangur varð
af þeirri leit. Auglýsingar í út-
varpi báru heldur engan árangur.
í dag hefur verið skipulögð víðtæk
leit af hálfu lögreglunnar og
Slysavarnafélagsins.
Það eru tilmæli lögreglunnar á
Selfossi, að þeir sem telja sig geta
veitt einhverjar upplýsingar um
það hvar Katrín og Ómar eru
niðurkomin hafi tafarlaust sam-
band við lögregluna.
Veturirai kom öku-
mönnum á óvart
FYRSTI vetrardagur var á laugardaginn, og þá um nóttina byrjaði
að snjóa í Reykjavik og víðar sunnanlands, og er menn litu út á
sunnudagsmorgun var jörð alhvít. Talsverð hálka var á götum og
þjóðvegum, og þrátt fyrir að komið sé langt fram í október og alira
veðra von virtist snjórinn koma ökumönnum og eigendum
ökutækja i opna skjöldu eins og svo oft áður.
Að sögn aðalvarðstjóra lögregl- Aðstoðaði lögreglan marga af
unnar i Reykjavík var fjöldi
árekstra eða annarra umferðar-
óhappa þó ekki mikið meiri en
venjulega, en tiltölulega fáar
bifreiðar voru á götum á höfuð-
borgarsvæðinu á sunnudag. Þá
brá einnig svo við eftir að snjóa
tók aðfararnótt sunnudagsins að
nær allar leigubifreiðar hurfu af
götunum, svo fólk sem verið hafði
að skemmta sér komst ekki heim.
þessum sökum, og þurftu sumir
að biða þar til klukkan sex á
sunnudagsmorgun í húsi lögregl-
unnar eftir fari heim.
Þá var þegar á sunnudag mikið
að gera á hjólbarðaverkstæðum
og hjóbarðasöium, er síðbúnir
ökumenn létu taka sumarhjól-
barðana undan og setja nagla-
dekkin i staðinn.
Islending-
ur handtekinn
með hass í Osló
ÍSLENSKUR karlmaður var
handtekinn i Ósló á sunnu-
daginn vegna gruns um
fikniefnamisferli. Fundust á
manninum 400 grömm af
hassi. Maðurinn, sem er á
þrítugsaldri, er nú i haldi
hjá lögreglunni i Ósló.
Rúmlega helmingur talinna atkvæða:
Geir, Albert, Birg-
ir í efstu sætunum
Miklar sveiflur í rödun listans
í talningunni í nótt
SAMTALS höfðu verið talin 6.200 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins klukkan 01,45 i nótt, en það var rétt rúmlega helmingur
atkvæðanna, sem urðu samtals 12.264. Talsverðar sveiflur urðu i
talningunni, frá fyrstu tölum, sem birtar voru um miðnætti og þar til
næstu tölur birtust á áðurnefndum tíma. Heildaratkvæðamagn Geirs
Hallgrimssonar var þá 4.480 atkvæði, þar af 2.367 i 1. sæti, en Alberts
Guðmundssonar 4.211 atkvæði, þar af 1.844 i 1. sæti og 2.689 i 1. og 2.
sæti.
Þessi rúmlega helmingur
greiddra atkvæða skiptist þannig
á milli frambjóðenda, en þess ber
að gæta, að hver tala er samtala
þess atkvæðafjölda, sem menn fá í
það sæti, sem þeir eru eru í og
næstu sæta fyrir framan: 1. Geir
Hallgrímsson 2.367 atkvæði, 2.
Albert Guðmundsson 2.689, 3.
Birgir ísleifur Gunnarsson 2.825,
4. Gunnar Thoroddsen 2.402, 5.
Friðrik Sophusson 2.750, 6. Ellert
B. Schram 3.241, 7. Ragnhildur
Helgadóttir 3.691, 8. Pétur Sig-
Sjöfn og Björgvin gerðu leyni-
samkomulag um starfsreglur