Morgunblaðið - 01.05.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR1. MAÍ1980
Skatta-
hækkanir
ríkis-
stjórnarinnar
Söluskattur
RÍKISSTJÓRNIN heíur
hækkaö soluskatt um 1,5%
vegna orkujöfnunargjalds, en
sú hækkun er verðlögð á um 6
milljarða króna á þessu ári.
Rikisstjórnin hefur tekið
upp á arma sina söluskatts- og
vörugjaldshækkanir vinstri
stjórnarinnar í september sl„
en þá hækkaði vinstri stjórnin
söluskatt með bráðabirgðalög-
um úr 10 i 22% og vörugjald
um G stig úr 18%—30% í
24%—30%. Þessar hækkanir
cru taldar gefa af sér um 15
milljarða króna á þessu ári.
Tekjuskattur
TEKJUSKATTINN átti að af-
greiða á Alþingi í gærkvöldi.
Sá tekjuskattsstigi, sem
rikisstjórnin og stuðnings-
menn hcnnar komu sér endan-
lega niður á gefur rikissjóði
43,8 milljarða króna miðað
við 45% tekjuaukningu milli
áranna 1978 og 1979. Nýjustu
upplýsingar benda hins vegar
til að tekjuaukningin milli
áranna hafi verið mun meiri,
eða 47 til 48%, en hvert
prósentustig þýðir einn millj-
arð í skatttekjur fyrir ríkis-
sjóð. Samkvæmt því gefur
skattstiginn ríkissjóði tæpa
46 eða 47 milljarða króna.
Stjórnarsinnar haida því
fram, að skattstiginn þýði
óbreytta skattbyrði, en stjórn-
arandstæðingar segja hann
þýða 2,5 milljarða króna
skattahækkun.
10% út-
svarshækkun
STUÐNINGSMENN ríkis-
stjórnarinnar á Alþingi sam-
þykktu 10% heimildarhækkun
útsvars, úr 11 í 12,1%. Hækk-
unin er talin 4 til 5 milljarðar
króna.
Vegagjald
aí bensíni
VIÐ hækkun bensinverðs
hækkaði ríkisstjórnin vega-
gjaldið um 20,43 krónur i
91,36 krónur af hverjum lítra.
Áætlað er að bensinhækkunin
gefi rikissjóði um 5 miiljarða i
auknar tekjur á árinu og að af
51.6 miiljarði króna (miðað
við 120 milljón litra bensin-
sölu á árinu) fái rikissjóður
29.7 milljarða i sinn hlut.
Flugvallagjald
HÆKKUN flugvallagjalds
kemur til framkvæmda i dag,
1. mai, en frumvarp þar um
átti að samþykkjast á Alþingi
i gærkvöldi. Jafnframt fól
frumvarpið i sér, að fjármála-
ráðherra er nú heimilt „að
hækka flugvallagjaldið til
samræmis við vcrðlagsbreyt-
ingar“ og að gjaldið verði
hundið byggingavísitölu.
Hækkunin nú er úr 5.500
krónum í 8.800 krónur fyrir
farþeg i millilandaflugi og úr
400 krónum í 650 krónur fyrir
farþega í innanlandsflugi.
Tekjuauki rikissjóðs af hækk-
uninni nú er áætlaður 350
milljónir króna á þessu ári.
í vetur hefur fjöldi manns komið við sögu í félagsstarfinu hjá Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Stjórn
félagsins efndi til móttöku í gær síðdegis fyrir alla er hlut áttu að máli og sáu stjórnarkonurnar sjálfar um veitingar, en
Sigríður Ilannesdóttir skemmti með gamanvísnasöng. Mikil starfsgleði hefur verið ríkjandi í félaginu síðastliðið
misseri og fagna félagsmenn því nú að taka sér starfshlé í sumar.
För íslendinga á Ólympíuleikana í Moskvu:
Stórfyrirtæki og einstakl-
ingar borga kostnaðinn
— þar sem styrkur ríkisins og Reykjavíkurborgar hrekkur hvergi
EKKI liggja fyrir neinar
endanlegar tölur um
kostnað vegna farar
íslenzku keppendanna á
Ólympíuleikana í Moskvu
í sumar, enda hefur ekki
verið ákveðið hversu
margir þeir verða. Hitt er
þó ljóst að um tugmilljóna
króna kostnað er að ræða
með öllu.
Það er íslenzka Ólympíunefnd-
in sem hefur veg og vanda af
ferðinni og fjármagnar hana.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér fær
Ólympíunefndin um 5,5 milljónir
króna í styrk frá ríkinu og um 1,5
milljónir króna frá Reykjavíkur-
borg, svo það dugir skammt til að
mæta þeim mikla kostnaði sem
þátttökunni er samfara.
Ólympíunefndin hefur því haft
þann háttinn á að leita ásjár hjá
stórfyrirtækjum og einstakling-
um um fjárstuðning. Nú blæs
hins vegar ekki byrlega í þessum
málum, þar sem tvö stórfyrir-
tæki hafa þegar hætt fjárstuðn-
ingi, en það er verksmiðjan
Vífilfell, sem framleiðir Coca
Cola og Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga. Coca Cola hefur
hætt stuðningi til að leggja
áherslu á andstöðu við þátttöku
íslands í leikunum vegna fram-
ferðis Sovétmanna í Afganistan,
en að sögn Erlends Einarssonar
var ákvörðun SÍS að hætta
stuðningi í auglýsingaformi tek-
in áður en til innrásar Sovét-
manna í Afganistan kom og hefði
fyrirtækið ákveðið að hætta að
veita ýmsum íþróttasamböndum
smástyrki en aðstoða þess í stað
eitt samband á ári til þess að
styrkurinn nýttist sem bezt og að
þessu sinni er það Körfuknatt-
leikssamband íslands sem nýtur
góðs af.
Vandræði kex- og sælgætisiönaðarins:
„Tugir Iðjufélaga
hafa misst vinnuna"
— segir Bjarni Jakobsson form. Iðju
„ÞVÍ er ekki að neita að
útlitið er mjög dökkt hvað
varðar sælgætis- og kex-
iðnaðinn, það hefur þegar
verið sagt upp f jölmörgum
starfsmönnum og fyrir-
sjáanlegur samdráttur
með uppsögnum,“ sagði
Bjarni Jakobsson, formað-
ur Iðju, félags verksmiðju-
fólks, er Mbl. innti hann
álits á samdrætti í þessum
iðngreinum.
„Gróft áætlað eru um 100 af
okkar félagsmönnum starfandi í
þessum iðngreinum og þegar hef-
ur fækkað um 30—40 í greinunum,
bæði vegna uppsagna svo og þar
sem ekki hefur verið ráðið í störf
þeirra sem hætta. Sem dæmi um
ástandið má geta þess, að um
helmingsfækkun hefur orðið hjá
Kexverksmiðjunum Frón og Holti
eða um 30 manns,“ sagði Bjarni
ennfremur.
Bjarni sagði að málið væri nú í
athugun hjá Iðju, og yrði ein-
hverra viðbragða að vænta innan
tíðar.
Manndrápsmál:
Hæstiréttur þyngir
refsingu um hálft ár
HÆSTIRÉTTUR hefur kveðið upp dóm í máli ákæru-
valdsins á hendur Jennýju Grettisdóttur, sem varð
manni sínum, Arelíusi Viggóssyni, að bana í húsinu við
Skólavörðustíg í Reykjavík aðfararnótt 19. febrúar
1978 með því að stinga hann hnífi. Var hún dæmd í
fangelsi í 5 ár og 6 mánuði, en áður hafði hún verið
dæmd í 5 ára fangelsi í undirrétti, þ.e. sakadómi
Reykjavíkur.
Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að heimfæra bæri
brotið undir 211. grein almennu
hegningarlaganna, sem fjallar um
manndráp af ásetningi, en lág-
marksrefsing við slíku broti er 5
ára fangelsi. Þá staðfesti Hæsti-
réttur niðurstöðu héraðsdóms um
málsbætur og vísaði til 75. greinar
hegningarlaganna og 8. og 9.
töluliðar 1. málsgreinar 74. grein-
ar sömu laga, en þar eru tilgreind
atriði til refsilækkunar.
Dóminn dváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Björn Sveinbjörnsson,
Ármann Snævarr, Logi Einarsson,
Sigurgeir Jónsson og Magnús Þ.
Torfason, sem skilaði sératkvæði.
Hann féllst á atkvæði meiri hluta
dómenda að öðru leyti en því að
hann taldi að ákveða bæri refs-
ingu ákærðu 6 ára fangelsi.
1. maí-hátíðarhöldin
með hefðbundnu sniði
víðast hvar um landið
1. mai-hátiðahöldin í dag, á alþjóðlegum baráttudegi verka-
fólks, fara fram með hefðbundnu sniði víða um land. í Reykjavík
verður safnast saman á Hlemmtorgi klukkan 13.30 og gengið
þaðan klukkan 14.00 undir kröfum dagsins niður á Lækjartorg
þar sem útifundurinn verður haldinn.
Að göngu og útifundi 1. maí
standa Fulltrúaráð verkalýðsfé-
laganna í Reykjavík, B.S.R.B. og
Iðnnemasamband íslands. Fullt
samkomulag náðist um 1. maí
ávarpið. Farmanna- og fiski-
mannasambandið hafnaði hins-
vegar þátttöku í hátíðahöldunum.
Avörp flytja: Ásmundur Stef-
ánsson framkvæmdastjóri A.S.I.,
Guðmundur Árni Sigurðsson
v.form. I.N.S.Í., Kristín Tryggva-
dóttir fræðslufulltrúi B.S.R.B.,
Kristján Ottósson blikksmiður og
Þorlákur Kristinsson frá bar-
áttuhópi farandverkafólks. Fund-
arstjóri er Thorvald Imsland.
Lúðrasveit verkalýðsins og
Lúðrasveitin Svanur leika í
kröfugöngunni og á útifundinum.
Milli stuttra ávarpa flytur Bubbi
Mortens baráttulög og söngsveit
syngur.
1. maí nefnd Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík
hefur að venju undirbúið há-
tíðahöldin, nefndin er þannig
skipuð:
Formaður: Kári Kristjánsson,
húsgagnasmiður, Ragna Berg-
mann verkamaður, Guðmundur
Bjarnleifsson járrtsmiður, Ragn-
ar G. Ingólfsson, starfsm. Dags-
brúnar, Ester Jónsdóttir starfsm.
Sóknar, Skiöldur Þorgrímsson
sjómaður, Olafur Þorbjörnsson
iðnverkamaður og Kristján
Ottósson blikksmður.
Með nefndinni hafa starfað:
Örlygur Geirsson og Jónas Jón-
asson frá B.S.R.B. og Björn
Kristjánsson iðnnemi.
í 1. maí ávarpi Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og Iðnnemasambands ís-
lands kemur fram að þolinmæði
verkafólks er á þrotum, knýja
verður atvinnurekendur til samn-
inga um hógværar kröfur sam-
takanna um aukinn kaupmátt og
aukin félagsleg réttindi.
Þá vill 1. maí nefnd benda á að
Listaskáli alþýðu opnar yfirlits-
sýningu á verkum Gísla Jónsson-
ar 1. maí.