Morgunblaðið - 01.05.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.05.1980, Blaðsíða 30
I 30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980 Efling iðnaðar á Suðurlandi: Atvinnuþörf og atvinnu- tækifæri næstu 10 árin Ilér fer á eftir jómfrúrræða Sigurðar Óskarssonar (S) á Alþingi um iðnþróunaráætlun fyrir Suðurland og framtíðarhorfur í atvinnuuppbyggingu þess landshluta. Iðnþróunaráætlun Herra forseti. Á þskjali 324 hef ég ásamt háttvirtum 9. lands- kjörnum þingmanni, Guðmundi Karlssyni, leyft mér að flytja tillögu tii þingsályktunar um efl- ingu iðnaðar á Suðurlandi. Mér leyfi forseta hljóðar hún á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að hlutast til um gerð iðnþróunaráætlunar fyrir Suður- land. Áætlunin verði stefnumótun ríkisvalds og heimamanna um framtíðarþróun atvinnulífs á Suð- urlandi. I áætlun þessari skal gerð grein fyrir þörfinni á nýjum atvinnu- tækjum á Suðurlandi næstu tíu árin og hvernig hagkvæmast er að mæta henni. Gerð skal athugun á möguleikum starfandi atvinnu- greina til vaxtar. Einnig skal athuga ný iðnaðartækifæri sem til greina koma á Suðurlandi. I áætluninni skal bent á leiðir til þess að efla iðnað. Gera skal grein fyrir því hvaða þörf er á framkvæmdum hins opinbera í stoðkerfum atvinnulífsins, svo sem orkumálum og samgöngumál- um. Byggðadeild Framkvæmda- stofnunar ríkisins verði falið að gera áætlun þessa í sem nánastri samvinnu við Sunnlendinga. Til að fylgjast með verkinu og móta það verði skipuð áætlunarnefnd full- trúum aðila vinnumarkaðarins og samtaka sveitarfélaga á Suður- landi." Eins og fram kemur í upphafi greinargerðar með þessari tillögu þá hefur Suðurland ekki haldið hlut sínum í heildarfjölda lands- manna. Um síðustu aldamót bjuggu á Suðurlandi 17% lands- manna en árið 1979 aðeins 8.6% af íbúum landsins eða 19.462. Þannig hefur þróunin orðið í blómlegustu landbúnaðarhéruðum landsins, héruðunum sem meginhluti raf- orku landsmanna er framleiddur í, héruðunum sem eiga strendur að einum auðugustu fiskimiðum ver- aldar, héruðunum sem fætt hafa og alið upp ungt fólk til þess að flytja til þeirra annarra lands- hluta sem lífvænlegri lífskjör hafa boðið. íbúafjöldi og aldursskipting Því hefur oft verið haldið fram að landbúnaðarhéraðið Suðurland haldi ekki hlut sínum hvað varðar íbúafjölda vegna breyttra búskap- arhátta og tæknivæðingar sveit- anna. Að sjálfsögðu þarf nú færri hendur til þess að sinna fram- leiðslu landþúnaðarvara en áður var. En það svar er ekki fullnægj- andi og þéttbýlisstaðir á Suður- landi hafa ekki megnað að byggja upp vinnumarkað til þess að taka við nema hluta þess unga fólks sem komið hefur inn á vinnu- markaðinn á síðustu áratugum. Eins og fram kemur í töflu í greinargerð með þeirri tillögu sem hér er flutt, þá er skipting íbúa- fjölda á Suðurlandi eftir þéttbýl- isstigi þannig: Jómfrúrræða Sigurðar Óskarssonar á Alþingi einfaldlega sú, að fólk hefur flutt á brott frá þessum landshluta margmöguleikanna vegna þess að það hefur ekki fengist að nýta þessa möguleika fyrir þá sem þar búa. Fólk flytur frá þessum lands- ir, sem sumir hafa viljað halda fram að leysti allan vanda Sunn- lendinga og því væri ástæðulaust að hafa áhyggjur af atvinnuþróun í þessum landshluta. Á árunum 1972—1977 fækkaði um 81 mann í störfum við framleiðslugreinar á Suðurlandi. Á sama tíma fjölgaði slíkum störfum um 6.600 á landinu í heild. Heildarmannafli á Suðurlandi hefur á fyrrnefndu 5 ára tímabili aðeins aukist um 2.9% en á landinu öllu um 12,3%. Aukning mannafla á Suðurlandi á þessum árum er nærri þrisvar sinnum hægari en í nokkru öðru héraði landsins (endurtek). Á þessu til- tekna árabili 1972—1977, þegar á Suðurlandi voru framkvæmdar stórfelldar virkjana- og vatns- miðlunarbyggingar, þá fluttu burtu þaðan 888 menn umfram aðflutta. Þetta er mesti byggða- flótti á þessum tíma og jafngildir hlutfallslegri fækkun íbúa um 4.4%. Atvinnuvegir og atvinnutekjur Hvað varðar tekjuþróun á Suð- urlandi, þá hefur hún verið mjög óhagstæð undanfarin ár. Á töflu sem fylgir greinargerð þessarar þingsályktunartillögu kemur að vísu fram, að Vestmannaeyjar hafa hæstu meðaltekjur, en frá 1977 hefur fastalandið á Suður- landi, Árnes- og Rangárvallasýsl- ur og V-Skaftafellssýslur verið allra landshluta verst sett hvað meðaltekjur varðar. Og þótt með- altekjur í Vestmannaeyjum hafi á þessum árum verið háar þá er ljóst að ekkert má út af bera hvað aflabrögð varðar eða markaði fyrir sjávarafurðir. Það atriði út af fyrir sig hve vinnumarkaður í Vestmannaeyjum er einhæfur og að nálega öllu leyti tengdur útgerð og aflabrögðum þarfnast sérstakr- ar athugunar. Á fimmta þingi Alþýðusam- bands Suðurlands sem haldið var á Hellu 10. og 11. febrúar 1979 var Bæir með yfir 1.000 íbúa (3 staðir) Þéttbýli með 200—1.000 íbúa (6 staðir) Þéttbýli með innan við 200 íbúa (7 staðir) Sveitabyggð Alls Hvers vegna fólksflótti? Nú hefur enginn reynt að halda því fram, a.m.k. ekki mér vitan- lega, að fólk flytji frá Suðurlandi af ævintýraþrá einni saman eða vegna þess að því líki ekki lands- lag og veðurfar. Einhver hlýtur þó ástæðan að vera. Og ástæðan er Fjöldi 9.184 3.431 641 6.026 1^462 47.2 17.6. 3.3 31.9 100.0 hluta vegna þess að það eygir annars staðar tryggari afkomu- möguleika sér og sínum til handa. Sú þróun sem ég hef hér bent á varðandi íbúafjölda á Suðurlandi hefur orðið hvað átakanlegust á síðasta áratug þrátt fyrir veru- legan vinnumarkað á hálendi Suð- urlands við virkjanaframkvæmd- samþykkt ályktun um atvinnumál, sem er dæmigerð fyrir alla um- ræðu og samþykktir á Suðurlandi varðandi atvinnumál hér síðustu ár, svo hljóðandi með leyfi forseta: „Fimmta þing Alþýðusambands Suðurlands telur, að á kerfisbund- inn hátt og með öflugri sjóða- myndun skuli unnið að eflingu atvinnurekstrar og allsherjarupp- byggingu í öllum héruðum lands- ins þar sem skilyrði eru til arðbærrar framleiðslu. Atvinnu- fyrirtækjum og sveitarfélögum sé jafnframt tryggð nauðsynleg fjár- hagsaðstoð þegar tímabundið at- vinnuleysi og efnahagsörðugleikar steðja að. Fullt tillit sé ævinlega tekið til félagslegra aðstæðna og félags'egra viðhorfa. Þingið telur, að á Suðurlandi eigi auk þess að tryggja framfarir í hinum hefðbundnu atvinnugrein- um, landbúnaði og sjávarútvegi, að leggja sérstaka áherzlu á stór- átak við uppbyggingu hvers konar iðnaðar svo sem hagnýtingu jarð- varmans í Hveragerði til sykur- hreinsunar úr melassa, jarðefna- iðnaðar á þeim svæðum austan fjalls þar sem skilyrði eru best, stórauka vinnslu úr sláturafurð- um heima í héraði og unnið verði markvisst að aukinni hagnýtingu sjávarafla með fullnýtingu alls afla sem á land berst. Þingið harmar þá þróun sem átt hefur sér stað hvað varðar fulln- aðarvinnslu landbúnaðarafurða á Suðurlandi og átelur þá forystu- menn bænda sem látið hafa ginn- ast af sjónarmiðum sem stuðla að auknu atvinnuleysi í landbúnað- arhéruðum Suðurlands og fólks- flótta til annarra landshluta. Haldið skal áfram virkjunum stórfljóta sunnlenskra héraða með byggingu orkuvera sem verði hag- kvæmur aflgjafi fjölþætts at- vinnurekstrar á Suðurlandi. Unn- ið verði markvisst að gagngerðum endurbótum á dreifikerfi raf- veitna á Suðurlandi og heimilum séð fyrir nægri raforku á sann- gjörnu verði. Tryggð sé næg raf- * „Hvað gerðu for- eldrar þínir Julius Tomin, tékkneski heim- spekingurinn, sem hefur orðið að vinna sem næturvörður í dýra- garði í Prag síðan 1968, var enn á ný tekinn fastur fyrir nokkru, þegar hann var í þann veginn að hefja fyrirlestur um Aristóteles í einni málstofunni, sem hann heldur heima hjá sér. Sex lög- regluþjónar drógu hann út í bíl, þá var hann yfirheyrður í tvær klukkustundir í aðalstöðvum lögreglunnar, þar sem sparkað var í hann, honum ýtt um gangana og loks kastað á kola- þing. Að svo búnu sneri hann aftur heim í íbúðina sína og hóf kennsluna. Tomin leitast enn við að njóta frelsis í andans efnum, þrátt fyrir handtökur, ofsóknir og tilraunir til að loka hann inni á geðveikrahæli. En það er ekki eins mikið vitað um örlög ann- arra fjölskyldumeðlima, sem fá hlutdeild í refsingunni án þess að vera endilega sammála mark- miðum hans eða jafnvel skilja þau. Tomin býr í lítilli íbúð ásamt konu og tveimur börnum. Lukasi eftir Judith Dempsey syni hans, sem er sautján ára, hefur af opinberri hálfu verið meinað að komast í háskóla — umsókn hans hefur þrisvar verið hafnað. Þá hætti hann í skóla og fór að leita sér að vinnu. Þegar honum hafði alls staðar verið vísað á bug í meira en hálft ár, fékk hann vinnu á póstdeildinni hjá rannsóknarstofnun — eitt af þessum störfum, sem krefjast engrar menntunar né ábyrgðar og standa til boða börnum þeirra, sem hafa aflað sér óvin- sælda. Þegar hann byrjaði að vinna í febrúar, gerðist eftirfar- andi, með orðum hans sjálfs: „Ég átti að vinna í dreifingar- deildinni við að setja frímerki'á umslög frá sjö á morgnana til korter fyrir fjögur. Ég kom mér fyrir á mínum stað við borðið og byrjaði að vinna þetta tiltölu- lega rólega starf. Éftir nokkrar ’68?“ klukkustundir kom yfirmaður- inn og spurði mig: „Ert þú hér af stjórnmálaástæðum ?“ „Afsakið?" sagði ég. „Starfsmannastjórinn vill hitta þig eftir þrjá daga vegna ferilskýrslu þinnar, sem þarf að fylla út betur. Þú mátt fara heim núna.“ Þremur dögum síðar kom ég aftur í fylgd vinar míns og beið eftir starfsmannastjóranum. Þegar hann sá, að ég var ekki einsamall, sagði hann: „Hvers vegna hefur þú tekið þennan mann með þér? Þetta er lokaður fundur." „Ég veit ekki til, að um neitt trúnaðarmál sé að ræða.“ „Heyrðu nú, það gengur ekki að þú hafir vin þinn með þér. Ég er ekki með ritara minn hér. Við getum ekki talað saman svona." „Hvers vegna á ég að koma hingað í dag?“ „Ferilskýrslan þín er ekki nægilega rækileg. Þú hefur ekki fyllt út, hvað foreldrar þínir voru að gera 1968,“ (þegar Kremlstjórnin bældi Dubcek- hreyfinguna niður). Lukas Tomin: atvinnulaus. „En það kemur starfi mínu ekkert við.“ „Vertu ekki með barnaskap — ferilskýrslan þín er ekki nógu ítarleg." „Ég fæ ekki séð af hverju — það kemur mér ekkert við.“ „Sjáðu nú til, foreldrar þínir eru forsenda þess, að þú fædd- ist.“ „En ...“ „Fylltu út í reitinn um það, hvað foreldrar þínir höfðust að árið 1968.“ „En hvað kemur árið 1968 starfi mínu við og því að pakka inn og setja frímerki á pakka?" „Starfsfólkið hefur heyrt um þig orðróm. Fylltu út þá þætti, sem við á, annars færð þú ekki þetta starf." „Mér þykir fyrir því, en ég ætla ekki að skrifa neitt, í mesta lagi það eitt, sem kemur sjálfum mér við.“ „Allt í lagi. Hugsaðu málið og skilaðu mér skýrslunni aftur, þegar þú ert búinn með hana.“ Seinna fór ég aftur með fer- ilskýrsluna. Starfsmannastjór- inn bað mig að fylla út þau atriði, sem vörðuðu viðhorf for- eldra minna til ársins 1968. Ég sagði: „Ég get enn ekki fallizt á þessa spurningu. Ég er að sækja um vinnu hérna. Það er ég, sem sæki um hana, en ekki foreldrar mínir." Starfsmannastjórinn leit á ferilskýrsluna og sagði: „Ég sé, að þú ert mjög þrjóskur. Það er greinilegt, að þú virðir ekki lögmál hins daglega lífs. Komdu aftur eftir þrjá daga.“ Og þar með var eyðublaðið mitt rokið út í vindinn. Lukas kom aftur eftir þrjá daga og var rekinn. Engar skýr- ingar voru gefnar. Síðan hefur hann leitað sér að atvinnu ann- ars staðar, en hann hefur litla von um árangur. Hann hefur sætt sig við að hverfa aftur að einhvers konar óæðra tækni- námi. Þegar því lýkur, er allt í óvissu. Ég spurði Julius Tomin, hvað honum fyndist um meðferðina á Lukasi. Hann svaraði: „Við vit- um, hvað við getum átt í vænd- um. Lukas er aðeins eitt af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.