Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 3

Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980 3 Ivan Rebrofí hefur sungið víða úti á landi að undanförnu, hvarvetna fyrir fullsettnum samkomuhúsum og rúmlega það. Þessi mynd tók Bæring Cecilsson í Félagsheimili Hólmara þegar söngvarinn söng þar fyrir 600 áheyrendur. Neskaupstaður: Togararnir haf a aflað mjög vel Neskaupstad, 30. apríl. MJÖG góður afli hefur verið hér að undanförnu hjá togurunum. Þeir hafa komið inn eftir sjö og átta daga með 120—130 tonna afla. Mikil vinna hefur því verið í Fryistihúsinu og saltfiskverkun og hefst varla undan að vinna aflann. Smærri bátar öfluðu vel um daginn, en nú veiða þeir lítið. Veður hefur verið mjög gott í vetur og snjór vart komið í byggð. Vorið heilsaði með sól og hita, frost er löngu farið úr jörðu og í dag er sólskin og 15 stiga hiti og menn farnir að eiga við kartöflugarða sína og einn sá ég vera að sá í dag. Ekki veit ég til þess að sáð hafi verið kartöflum svo snemma hér fyrr. — Asgeir. Kaffisala hjá Svölunum SVÖLUR, flugfreyjur núverandi og fyrrverandi, bjóða almenningi í dag að koma og drekka kaffi, freista gæfunnar i happdrætti og horfa á tizkusýningar, en ágóðan- um af þessu verður varið til hjálpar þeim sem geta ekki sjálfir borið fram kröfur um bætt lífs- kjör. Svölurnar verða með kaffisöluna í Súlnasal Hótel Sögu í dag og hefst hún klukkan 14.00. Þar verður selt kaffi og meðlæti og efnt verður til happdrættis þar sem vinningar eru meðal annars flugferðir og máls- verðir á hótelum borgarinnar. Þá munu flugfreyjur sýna tízku- fatnað frá tízkuverzlununum Urði og Lotus. Svölurnar hafa á þessu starfsári veitt þremur kennurum styrk til framhaldsnáms í kennslu þroska- heftra barna, samtals að upphæð 1200 þúsund krónur og næsta haust er ætlunin að veita 2,5 milljónir í sama skyni. Þá hafa um 2 milljónir runnið til kennslugagnamiðstöðvar Öskjuhlíðarskóla. Nýtt bíó í Reykja- vík með þremur sýningarsölum ÁRNI Samúelsson í Keflavík hefur fengið lóð í Mjóddinni í Neðra-Breiðholti fyrir kvik- myndahús, og er ætlunin að hefja byggingaframkvæmdir á næstunni, að því er Árni sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær. Árni rekur Nýja Bíó í Keflavík, og fleiri fyrir- tæki, og mun áfram reka kvik- myndahúsið þar. Árni sagði, að ekki væri búið að gera teikningar að hinu nýja bíói í Reykjavík enn sem komið væri, en hafist yrði handa um það á næstunni. Árni sagði hins vegar að ætlunin væri að húsið yrði um það bil eitt þúsund fermetrar að stærð. Sagði hann það verða staðsett í nýrri þjón- ustumiðstöð í Mjóddinni, þar sem Landsbankinn væri meðal annars að undirbúa bygginga- framkvæmdir. Árni kvað koma til greina að í húsinu yrði einnig önnur starfsemi, til dæmis á jarðhæð, en það væri þó óljóst enn sem komið væri. Kvikmyndahúsið sagði hann hins vegar verða í þremur sölum, misstórum. Stærsta salinn sagði hann væntanlega rúma 5 til 6 hundruð manns í sæti, annar salurinn rúmaði þá um tvö hundruð, og sá minnsti eitt til eitt hundrað og fimmtíu manns. Sagði hann reynsluna vera þá erlendis, að hús af þessu tagi gæfu betri raun en þau sem hefðu aðeins einn stóran sal. Væru til dæmis flest gömlu kvikmyndahúsin í Danmörku nú búin að taka þennan hátt upp. Þá væri unnt að sýna myndirnar með mun meiri hagkvæmni, sýna þær fyrst í stærsta salnum, en síðan koll af kolli niður í salina eftir því sem aðsókn minnkaði. Með þessu fengist það, að hagkvæmni yrði meiri, og eins væri unnt að láta góðar myndir ganga lengur en ella. Sýningarmaður verður aðeins einn fyrir alla salina. Kvikmyndir þær sem hann kvaðst myndu sýna í þessum tveimur kvikmyndahúsum kvaðst Árni fá víða að. Hin gömlu og grónu fyrirtæki í kvikmyndaiðnaðinum sagði hann ekki vera lengur alls ráð- andi eins og var áður fyrr, og væri því unnt að fá til sýningar góðar og þekktar myndir án þess að hafa slík umboð, sem flest eru hjá hinum eldri og grónari kvikmyndahúsum í Reykjavík. Árni sagðist ekki geta sagt nákvæmlega til um hvenær hið nýja kvikmyndahús tæki til starfa, en það yrði vonandi ekki seinna en eftir eitt og hálft ár. Samkvæmt því ættu Breiðhylt- ingar og aðrir íbúar af höfuð- borgarsvæðinu því að geta skroppið í bíó í Mjóddinni haust- ið 1981. — Ekki hefur enn verið ákveðið hvað nýja bíóið mun heita. Póstur og sími hækkar um 15% PÓST- og símamálastofnunin hef- ur fengið heimild yfirvalda til að hækka póst- og símagjöld frá og með 1. maí og er hækkunin sem næst 15%. Hækkun þessi er í samræmi við forsendur fjárlaga. Helstu breytingar á símgjöldum verða sem hér segir: Söluskattur er innifalinn: Stofngjald fyrir síma hækkar úr kr. 76,575 í kr. 88,179 en auk þess þarf að greiða fyrir talfæri og uppsetningu tækja. Gjald fyrir umframskref hækkar úr kr. 28,53 í kr. 32,85, afúotagjald af heimil- issíma á ársfjórðungi hækkar úr kr. 12,968 í kr. 14,944 og venjulegt flutningsgjald milli húsa á sama gjaldsvæði hækkar úr kr. 38,185 í kr. 44,090. Helstu breytingar á póstburð- argjöldum eru þær, að burðargjald fyrir almennt bréf, 20 gr., innan- lands og til Norðurlanda hækkar úr kr. 120 í kr. 140, til Evrópu úr kr. 140 í kr. 160 og fyrir bréf í flugpósti til landa utan Evrópu úr kr. 250. í kr. 290, gjald fyrir póstávísanir innanlands og til Norðurlanda hækkar úr kr. 280 í kr. 320. HEIMSMEIST ARI I TENNIS Björn Borg, er nú aö láta setja upp fyrir sig MARANTZ hljómtæki, Björn Borg er einn hæst launaöi íþróttamaöur veraldar og getur því valið óháö veröi. Hann valdi MARANTZ þó eru MARANTZ hljómtækin á mjögivægu veröi, sem flestir ráða viö — líka þú. Ætlar þú aö gera góö kaup eins og Björn Borg? MARANTZ frábær tæki á viöráöanlegu veröi. Veröa til afgreiöslu fljótlega í Radíóbúöinni, Skipholti 19, Reykjavík einkaumboö á íslandi fyrir MARANTZ VERSLIO í SÉRVERSLUN MEÐ LITASJÓNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.