Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 14

Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAI1980 Pétur Reimarsson, formaður SÍNE: Lánasjóður íslenskra námsmanna Lánveitingar, f jármögnun og endurgreiðslur námslána Að undanförnu hafa far- ið fram umræður um mál- efni Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) og náðu þær hámarki við af- greiðslu fjárlaga frá Al- þingi nú fyrir skömmu. f þessari umræðu hefur bor- ið nokkuð á vanþekkingu um Lánasjóðinn og hafa námsmannasamtökin sem aðild eiga að LÍN ákveðið að kynna almenningi og ráðamönnuni starfsemi sjóðsins. Áætlað er að ‘kynning þessi fari fram með nokkrum greinum sem birtar verða í blöðum nú á næstunni. f þessari grein verður fjallað um fjölda þeirra sem þiggja námslán, upp- hæðir sem veittar eru að láni, fjármögnun sjóðsins og endurgreiðslur náms- lána. Fjöldi námslána Ráðamenn hafa séð nokkrum ofsjónum yfir þeim peningum sem renna til námslánakerfisins og hefur sérstaklega verið talað um að námslánum hafi fjölgað mjög á undanförnum árum. Hér fylgir því tafla um fjölda veittra námslána frá 1974. Samkvæmt lauslegri athugun virðast námsmenn erlendis flestir stunda nám sem ekki er unnt að stunda hér heima. Er þar aðallega um að ræða framhaldsnám og sérhæft nám ýmis konar. í grein- argerð sem íslenskir námsmenn í Gautaborg sömdu árið 1976 kemur fram að ef allir íslenskir náms- menn erlendis væru við nám í Svíþjóð hefði kostnaður sænska ríkisins þá verið um 20 milljón sænskar krónur. Hér er eingöngu átt við kennslu- og stjórnunar- kostnað. Þessi upphæð miðað við gengið í dag og samtals 30% verðbólgu í Svíþjóð 1975—1979 nemur 2600 milljón íslenskum krónum. Reikna má með að heild- arkostnaður íslenska ríkisins við að koma á fót menntunaraðstöðu fyrir ailt þetta fólk sé miklu mun hærri. Athygli vekur að á tímabilinu 72—73 til 78—79 hefur heildar- fjöldi veittra námslána ekki auk- ist nema um 330 eða tæplega 12% sem er varla svo mikil fjölgun að ástæða sé til að hafa sérstakar áhyggjur af. Tölur fyrir námsárið 1979—80 liggja ekki fyrir en ljóst virðist að fjölgunin sé innan við 10% miðað við árin áður. Það er því ekki offjölgun lánþega sem skapar aukna þörf á fjármagni til LÍN en hvað er það þá? Upphæð veittra lána Hér fylgir nú tafla sem sýnir heildarupphæð veittra lána Lána- Námsár 74- 75 75- 76 76- 77 77- 78 78- 79 Fjöldi lána til náms við Ileildarf jöldi aðra innl. skóla veittra H.í. skóla erl. lána 1474 476 999 2949 1387 675 1036 3098 1048 665 1233 2947 995 580 1256 2831 1047 774 1323 3144 ekki til það lifa af. Ef gerður er tölulegur samanburður á þessu tvennu kemur eftirfarandi í Ijós. Fyrir tímabilið 1. júní 1979 til 31. maí 1980 mun eililífeyrisþegi sem er einstæður og býr sjálfstætt fá 981 þús. kr. í ellilífeyri, tekju- tryggingu og heimilisuppbót. Auk þess má hann hafa tekjur (svo sem í lífeyrissjóði eða launatekjur) upp á 455 þús. kr. Samtals eru þetta 2436 þús. kr. fyrir þessa 12 mán- uði. Framfærslukostnður LIN fyrir námsmann við þessar að- stæður er 2436 þús. kr. fyrir sama tímabil. Ef námsmaðurinn hefur 455 þús. kr. í tekjur fengi hann námslán að upphæð 1684 þús. kr. og samtals yrði ráðstöfunarfé hans 2139 þús. krónur. Þessi upphæð er um 88% af ráðstöfun- arfé ellilífeyrisþegans og er um 178 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. Með því að afla tekna getur námsmaðurinn bætt stöðu sína þannig að ef hann hefði 1200 þúsund krónur í tekjur yrði lánið 1051 þús. kr. og ráðstöfunarféð 2251 þús. kr. eða 92% af ellilaun- um. Ef hann hefði 2436 þús kr. í tekjur yrði lánið 0. Með slíkri vinnu yrði svo ekki stundað fullt nám. í töflunni hér að ofan kemur fram að heildarlánveitingar LIN hækkuðu um 728 milljón krónur á ímabilinu frá 1974—75 til 78—79 eða um 23%. Á sama tíma hefur þjóðarframleiðslan aukist um rúm 20% og hafa því námslán staðið hlutfallslega í stað miðað við þjóðarframleiðsluna. Hér má kannski minna á þá umræðu sem fram fer í nágrannalöndunum og einnig hér á landi um nauðsyn þess að efla hvers kyns tækni- þróun og nýsköpun til að viðhalda vexti þjóðarframleiðslunnar. Slík þróun getur þó tæplega átt sér stað ef ekki er haldið uppi öflugu menntakerfi. Það er alveg ljóst að þær tölur sem hér hafa verið raktar skýra ekki heldur hvers vegna talað er um að Lánasjóðurinn blási út og Eins og lesa má úr töflunni hefur veittum námslánum aðeins fjölgað um 6.6% á þessu fimm ára tímabili. Fjölgunin er svipuð til náms við skóla erlendis og aðra skóla en Háskólann hér heima eða um 300 til hvers. Á móti kemur veruleg fækkun lána til náms við Háskóla íslands eða um 400 frá 1974. Sérstaklega er áberandi fækkun lána á tímabilinu 1976— 1978 en þá voru námslánin vísi- tölutryggð í fyrsta sinn og námsmenn eðlilega mjög hræddir við slíkt fyrirkomulag. Fjölgun lána til annarra innlendra skóla en HÍ er mest vegna fjölgunar við Kennaraháskólann og einnig vegna þess að inn í lánakerfið hafa verið teknir nýir skólar eins og Myndlistaskólinn og Fóstur- skólinn. Fjölgun námsmanna er- lendis hefur verið nokkuð jöfn frá því Lánasjóðurinn var stofnaður 1967. (allar tölur í þúsund sé nú að verða einhvers konar sjóðsins krónum): bákn í bákninu. En það er rétt að Ileildarlán á Heildarlán Meðallán Námsár verðlagi hvers árs verðlag mars 80 verðlag mars 80 74-75 641.501 3.139.850 1.065 75-76 937.943 3.455.262 1.115 76-77 1.062.967 3.031.959 1.029 77-78 1.476.131 2.948.100 1.041 78-79 2.693.495 3.867.859 1.230 í þessari töflu kemur fram að meðallán hafa hækkað um rúm 10% frá 75—76 en voru lægri á tímabilinu 1976—78 en 1974—76. Til þess að gera grein fyrir hvaða upphæðir koma í hlut einstaks námsmanns skal hér gerður samanburður á námslán- um og ellilífeyri. Margir eru þeirr- ar skoðunar að námslán séu allt of há og sífellt verið að bruðla með þau í alls kyns óþarfa en hins vegar þykir sumum jafn ljóst að ellilaun séu allt of lág og hreint líta á hvernig staðið er að fjár- mögnun LIN. Fjármögnun LÍN Framlög ríkisins til Lánasjóðs- ins 1979 og 1980 voru sem hér segir: Bein framlög Lántökur Samtals 1979 2243 millj.kr. 1528 millj.kr. 3771 millj.kr. Eins og sjá má hækkar heildar- framlagið um 75% milli ára. Þessi hækkun skýrist með því að verð- lagshækkanir eru áætlaðar 45%, fjölgun námslána er áætluð 15% og auk þess er gert ráð fyrir að vaxta- og afborganagreiðslur sjóðsins nær tvöfaldist. Þetta leið- ir hugann að því hvort rétt sé að fjármagna LIN með lántökum. Skuldir sjóðsins nema nú um 3700 milljón krónum og kostnaður við þessar skuldir munu nema um 670 milljón krónum á þessu ári. Þeir sem ráðið hafa fjármálum ríkisins undanfarin ár hafa kosið að fjármagna sjóðinn að meira og minna leyti með vísitölu- eða gengistryggðum lánum. Þannig væru lántökur sjóðsins 45.5% af heildarlánveitingum ársins 1979. Þetta þýðir að staða LÍN fer versnandi ár frá ári og það er borin von að endurgreiðslur námslána geti staðið undir fjár- mögnun sjóðsins að einhverju verulegu marki. Það var þó til- gangurinn með því að verðtryggja námslánin eins og verið hefur frá 1976. Þegar Lánasjóðurinn var til umræðu á Alþingi báru menn saman bein framlög ríkisins til sjóðsins 79 og 80 en eins og kemur fram í töflunni hafa þau hækkað um 140% milli ára. Eins og kemur fram af framansögðu á slíkur samanburður þó tæpast rétt á sér heldur verður að líta á það heildarfjármagn sem sjóðurinn hefur úr að spila. Fjárveitinga- nefnd hafði fengið í hendur þær tölur sem hér hafa verið raktar um fjármögnun LÍN og alveg furðulegt að menn skuli ekki hafa reynt að gera sér grein fyrir því hvað um er að ræða áður en tillögur um stórfelldan niðurskurð á fjárveitingum til sjóðsins voru fluttar. Á þessu ári er ætlað að endurgreiðslur námslána verði að upphæð 130 milljón krónur. Þetta virðist lág tala en á sér þó eðlilegar skýringar. Endurgreiðslur námslána Fyrir 1976: Frá því Lánasjóður- inn var stofnaður 1967 giltu þær reglur að námslán báru 5% vexti sem reiknuðust þó ekki á meðan á námi stóð. Lánin skyldu greiðast á 15 árum og endurgreiðslur hefjast 5 árum eftir að námi lyki. í þessum reglíim felst að aðeins mjög takmarkaður hluti námslán- anna skilar sér aftur til sjóðsins vegna þeirrar óðaverðbólgu sem hér hefur ríkt lengi. Þess vegna var farið að tala um það á árunum 1972—73 að rétt væri að vísitölu- binda námslánin að einhverju leyti. Vorið 1976 voru því sam- þykktar breytingar á lögum um námslán. Eftir 1976: Námslánin eru nú að fullu vísitölutryggð og árlegar endurgreiðslur háðar sérstökum reglum. Þannig greiðir einstakl- ingur sem skuldar 4 námslán fasta afborgun sem nemur nú um 165 þúsund krónum á ári. Þessi upp- hæð hækkar með framfærsluvísi- tölu. Að auki ber að greiða 1% af þeim tekjum sem eru umfram ákveðnar viðmiðunartekjur og voru þær um 2 millj. kr. fyrir einstakling árið 1979. Þannig verður heildargreiðslan miðað við annars vegar 6 millj. kr. í árstekj- ur og 10 millj. hins vegar, 205 og 245 þúsund krónur. Samkvæmt þessum reglum er reiknað með að 50—60% af öllum námslánum skili sér aftur til sjóðsins. Það tekur hins vegar langan tíma fyrir þessar nýju reglur að slá í gegn svo þeirra fari að gæta að verulegu marki. En það 1980 Hækkun 5395 millj.kr. 140% 1200 millj.kr. — 6595 millj.kr. 75% virðist ljóst að tekjur LÍN af endurgreiðslum námslána munu aukast verulega á næstu árum. Af hálfu ríkisvaldsins hafa þó verið settar fram kröfur um að endur- greiðslur verði enn hertar frá því sem nú er. Nýjar endurgreiðslureglur: Á síðastliðnu vori fékk stjórn Lána- sjóðsins það hlutverk að endur- skoða lögin um námslán. Það frumvarp lagði þáverandi menntamálaráðherra fram á Al- þingi síðastliðið vor en því var vísað til nefndar og er þar enn. í sjóðsstjórninni náðist ákveðið samkomulag um nýjar endur- greiðslureglur. í því samkomulagi er gert ráð íyrir að fastar afborg- anir falli niður og að endurgreiðsl- urnar verði eingöngu háðar tekj- um. Ekki náðist þó samkomulag um þær hlutfallstölur sem miða skyldi við. Meirihluti sjóðsstjórn- ar (fulltrúar ríkisins) lögðu til að árlegar endurgreiðslur verði 5% af tekjum umfram þær viðmiðun- artekjur sem áður eru nefndar og 10% af tekjum umfram tvöfaldar viðmiðunartekjur. Námsmenn lögðu til að greidd yrðu 2.5% af tekjum umfram viðmiðunartekj- ur, 5% af tekjum umfram 1.5- sinnum viðmiðunartekjur og 10% af því sem er umfram tvöfaldar viðmiðunartekjur. Einstaklingur með 6 milljón króna árstekjur árið 1979 hefði átt að greiða 300 þúsund krónur samkvæmt tillög- um meirihlutans en 275 þúsund krónur miðað við tillögur náms- manna. Fyrir einstakling með 10 milljón króna árstekjur yrðu þess- ar tölur 700 og 675 þúsund krónur. Niðurfelling fastra afborgana er í samræmi við hugmyndir náms- manna eins og þær birtast í kröfunni: Engar endurgreiðslur á þurftarlaun. Þetta er eðlileg krafa því ef sú menntun sem menn hafa lagt í skilar sér ekki aftur í auknum tekjum að námi loknu er varla hægt að krefjast þess að námslánin séu endurgreidd. Þeir sem ekki greiða neitt af námslán- um sínum til baka yrðu þó vænt- anlega mjög fáir og aðaílega um að ræða fólk sem býr við mjög skerta tekjuöflunarmöguleika svo sem einstæða foreldra og lista- menn. Hjá þeim sem hærri hafa tekj- urnar er gert ráð fyrir verulega hertum endurgreiðslum og í heild má ætla að reglur þessar gefi mun meira af sér til LÍN en þær reglur sem nú gilda. Það gildir þó það sama um þessar reglur og reglurn- ar frá 1976 að það mun taka nokkurt árabil áður en þeirra færi að gæta í fjármögnun sjóðsins. Að undanförnu hafa þær hugmyndir komið fram að námsmönnum beri að endurgreiða námslánin að fullu og öllu. Fullar endurgreiðslur: Náms- menn munu aldrei fallast á það að allir greiði námslánin sín að fullu aftur og gilda um það þau rök sem talin eru upp í næstu málsgrein- um hér að ofan. Þeir sem lagt hafa þessar tillögur fram hafa að vísu látið sér detta í hug að þeir sem búi við lágar tekjur greiði lánin til baka á lengri tíma en aðrir. Slíkt verður þó varla gert nema með lægri árlegum afborgunum. Lokaorð Lánasjóður íslenskra náms- manna var stofnaður til að auka efnahagslegt jafnrétti til náms. Enn vantar þó verulega á að allir njóti þessa efnahagslega jafnrétt- is. Sjóðurinn lánar aðeins 85% af reiknaðri fjárþörf námsmanna. Námsmönnum er refsað fyrir að vinna, því allar tekjur þeirra dragast frá námslánum. Brýnt er að fleiri skólar verði teknir inn í lánakerfið. Það er krafa námsmanna að úr þessum atriðum verði bætt hið fyrsta og að ráðamenn standi við loforð sín gömul og ný í þessum efnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.