Morgunblaðið - 01.05.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 01.05.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980 1979 — Ráðunautur Ayatollah Khomeini myrtur í Teheran. 1978 — Kunngert að japanski landkönnuðurinn Naomi Uemura sé kominn á Norðurskautið eftir 950 km ferð í hundasleða. 1975 — SÞ viðurkenna stjórn Khmera í Kambódíu. 1970 — Bandarískt herlið sækir langt inn í Kambódíu. 1%3 — Indónesar fá yfirráð yfir Hollenzku Nýju Guineu. 1%1 — Tanganyika fær sjálf- stjórn. 1960 — Rússar skóta niður U-2 könnunarflugvél Francis Gary Power. 1945 — Rússar taka Berlín. 1942 — Japanir taka Mandalay, Burma, og Bretar hörfa til Ind-‘ lands. 1925 — Kýpur verður brezk krúnunýlenda. 1918 — Þjóðverjar taka Sevastop- ol, Krím. 1898 — Orrustan á Manilaflóa, Dewey aðmíráll eyðir flota Spán- verja. 18% — Nasir-Ud-Din Persakeis- ari ráðinn af dögum. 1865 — Argentína, Braziiía og Uruguay mynda bandalag gegn Paraguay. 1757 — Annar Versalasáttmáli Frakklands og Austurríkis um skiptingu Prúsglands sem missir Slésíu. 1707 — England og Skotland sameinast undir heitinu Stóra Bretland. 1703 — Karl XII Svíakonungur sigrar Pétur mikla við Rultusk. 1700 — Svíar gera innrás í Lífland og Norðurlandaófriðurinn mikli hefst. 1648 — Annað borgarastríð hefst í Skotlandi. 1544 — Tyrkir gera innrás í Ungverjaland, taka Wischegrad og stela ungversku krýningarsteinun- um. 1522 — Englendingar segja Frökkum og Skotum stríð á hend- ur. Afmæli. Joseph Addison, enskt skáld (1672-1719) - Arthur Well- esley, hertogi af Wellington, brezk- ur hermaður (1769—1852). Andlát. 1700 d. John Dryden skáld — 1873 d. David Livingstone, landkönnuður og trúboði — 1904 d. Antonin Dvorak, tónskáld. Innlent. 1923 Fyrsta kröfugangan — 1566 d. Páll Stígsson hirðstjóri — 1893 Tryggvi Gunnarsson skipaður bankastjóri — 1909 Al- þingi samþykkir aðflutningsbann á áfengi — 1919 Fyrsti fundur hinn- ar dansk-íslenzku ráðgjafanefndar — 1925 Barnavinafélagið Sumar- gjöf stofnað — 1928 Flugfélag Islands (hið eldra) stofnað — 1934 Þjóðernissinnar hefja blaðaútgáfu — 1965 Háttsettir varnarliðsmenn fórust í þyrluslysi — 1979 Bátur með sex mönnum fórst á Reyðar- firði — 1885 f. Jónas Jónsson frá Hriflu — 1899 f. Jón Leifs — 1919 f. Óskar Aðalsteinn. Orð dagsins. Það tekur mig venju- lega rúmlea þrjár vikur að undir- búa góða óundirbúna ræðu — Mark Twain, bandarískur rithöf- undur (1835-1910). 1%8 — Stúdentaóeirðir í París. 1%7 — Brezka stjórnin ákveður að sækja um inngöngu í EBE. 1958 — Neyðarástandi lýst yfir í Aden. 1945 — Uppgjöf Berlínar fyrir Rússum. Veður víða um heim Akureyri 12 skýjaö Amsterdam 11 skýjaó Aþena 24 skýjaó Barcalona 13 rigníng Berlín 16 heióskírt BrUsael 13 heióskírt Chicago 14 skýjaó Oenpasar 31 heióskírt Dublin 13 skýjaó Feneyjar 17 þokumóóa Frankfurt 15 rigníng Genf 15 heióskirt Helsinki 17 heióskírt Hong Kong 29 skýjaó Jerúsalem 19 heióskírt Jóhannesarborg 21 bjart Las Palmas 21 lóttskýjaó Lissabon 17 skýjaó London 12 þokumóóa Los Angeles 18 skýjaó Madrid 18 skýjaó Malaga 18 skýjaó Mallorca 13 rigning Miami 29 heióskírt Montreal 14 heióskírt Moskva 9 skýjað Ósló 17 heióskírt París 12 rigning Reykjavík 9 þokumóóa Rio de Janeiro 30 heióskírt Róm 18 skýjaó San Francisco 17 heiöskírt Stokkhólmur 15 skýjað Tel Aviv 22 heióskírt Tókýó 18 skýjaó Vancouver 13 heióskírt Vínarborg 13 skýjaö 1933 — Adolf Hitler leggur niður verkalýðsfélög. 1921 — Franskt herlið kallað út til að hernema Ruhr. 1895 — Landsvæði Brezka Suður- Afríkufélagsins sunnan Zambezi skipulagt sem Rhódesía. 1813 — Napoleon Bonaparte sigrar her Prússa og Rússa í orrustunni um Lútzen. 1734 — Spænski herinn tekur Napoli undir forystu Don Carlos. 1703 — Portúgalir semja við Breta og ganga í bandalag með þeim. 1668 — Aachen-friður Frakka og Spánverja. 1567 — María Skotadrottning flýr frá Lochleven í Skotlandi. 1565 — Möltu-riddararnir verja eyna gegn Tyrkjum. 1536 — Anna Boleyn flutt í Tower (síðan hálshöggvin). 1526 — Þýzka mótmælendabanda- lagið stofnað. 1519 — Hinrik VIII ákveður að gefa kost á sér sem páfa. Afmæli. Karl Linné, sænskur grasafræðingur (1707—1778) — Katrín mikla keisaradrottning Rússlands (1729-1796) - Manfred von Richtofen, þýskur flugkappi (1892—1918) — Bing Crosby, bandarískur dægurlaga- söngvari (1904—1977). Andlát. 1519 d. Leonardo da Vinci. Innlent. 1297 Sættargerð í Staðar- málum á Ögvaldsnesi — 1313 Réttarbót í Niðarósi — 1679 d. Jón Ólafsson Indíafari — 1835 d. Gunnlaugur Oddsson dómkirkju- prestur — 1941 Sjóklæðagerð Islands brennur — 1944 Bréf Kristjáns X um frestun sam- bandsslita — 1962 Stofnlánadeild landbúnaðarins tekur til starfa — 1970 Búrfellsvirkjun vígð — 1972 William Rogers utanríkisráðherra í heimsókn — 1899 f. Helgi Pálsson tónskáld — 1903 f. Sigurður Sig- urðsson landlæknir. Orð dagsins. Ekkert getur eigin- lega talizt vinna nema þú viljir gera eitthvað annað — James Barrie, skozkur rithöfundur (1860-1937). Firmakeppni Fáks fer fram á Víðivöllum Firmakeppni Fáks 1980 fer fram á Víðivöllum laugardaginn 3. maí. Skorað er á hestmenn að mæta. Mikill fjöldi fyrirtækja er þegar skráður. Keppnin: Keppt verður í þremur flokkum a) unglingar til 16 ára aldurs, b) konur, c)karlar. Nýjung er sér- stakur kvennaflokkur. Hver hópur keppir út af fyrir sig. a) Unglingar mæti kl. 13.00 b) Konur mæti kl. 14.00 c) Karlar mæti kl. 15.00 Forkeppnin og úrslit fara fram á stóra hringnum. Dómar hefjast strax og þeir fyrstu mæta. Verið stundvís og látum keppnina ganga sem best. Stefnt er að því að velja í úrslit um 10 hesta í hverjum flokki, en 5 fyrstu keppendur í hverjum flokki vinna til viðurkenningar. Aður en úrslit hefjast fer fram útdráttur fyrirtækja. Úrslit fara fram á beinu brautinni framan við dóm- pall. Hestar sem mæta eiga í úrslit verða tilkynntir strax að lokinni hverri keppni. Dæmt verður í 1. lagi fyrir samræmi hests og knapa og fegurð í reið, í 2. lagi fyrir takt og fjölhæfni. Dómarar frá Gusti í Kópavogi og Fák raða hestum í úrslitum. Unglingar keppa fyrstir, þá konur og síðan karlar. Þulir verða leikararnir Klemens Guðmundsson, Bessi Bjarnason og Gísli Alfreðsson. Félagshesthús Fáks við Víðivelli verða opin gestum og fulltrúum þátttökufyrirtækja frá kl. 14.00 til kl. 17.00. Lúðrasveit unglinga úr Arbæ leikur frá kl. 15.30 til 16.30. Mats Wibe Lund í nýja hluta verzlunar sinnar ásamt starfsfólki, talið frá vinstri: Valur Jóhannsson verzlunarstjóri, Lilja Bolladóttir, þá Mats og Erla Bára Jónsdóttir. Mats Wibe Lund færir út kvíarnar Ljósmyndaþjónusta Mats Wibe Lund hefur nýlega stækk- að um helming verslunina að Laugavegi 178. Hvers kyns þjónusta er þar fyrir hendi bæði hvað varðar myndatökur og verzlunarþjónustu á vörum til eigin myndatöku og stækk- ana. Mats Wibe Lund er norskur að uppruna og kom fyrst til lands- ins 17 ára að aldri. Hann hefur verið búsettur hérlendis frá ár- inu 1966 og opnaði fyrstur at- vinnuljósmyndara ljósmynda- vöruverzlun fyrir þremur árum. Ljósmyndaþjónusta Mats sér um alhliða ljósmyndaþjónustu þ.e. ljósmyndatökur, framkall- anir og stækkanir og einnig er rekin þar rammagerð, jafnt fyrir ljósmyndir sem málverk og aðr- ar veggskreytingar. Mats er einnig þekktur fyrir litloftmynd- ir frá helstu þéttbýlisstöðum landsins og á hann slíkar myndir tilbúnar innrammaðar í gjafa- pakkningum í verzluninni. Þá hefur hann gengist fyrir sérstökum námskeiðum fyrir áhugaljósmyndara, jafnt í myndatökum sem stækkunum. Framundan eru svokölluð „foto- safari" þar sem Mats og starfs- fólk hans munu fara með áhug- amenn í ljósmyndaleiðangra — fyrst um sinn hér heima á Fróni. Mats sagði í stuttu samtali við Mbl. að almennur áhugi á ljós- myndun færi vaxandi hérlendis og menn gerðu sér nú mun betur grein fyrir hve miklu máli skipti að eignast góðar myndavélar. „Filman og framköllunin kostar alveg það sama, hvort sem menn fá gallaðar myndir eða góðar — svo það er engin spurning um hvað borgar sig.“ Kiwanisklúbburinn Hekla færir Krabbameinsfélagi Islands góðar gjafir KIWANISKLÚBBURINN Hekla afhenti i fyrradag Krabbameins- félagi íslands tvær Leitz-smásjár til að nota við frumurannsóknir sem reknar eru á vegum félags- ins. Þetta er eina frumurann- sóknastofan sinnar tegundar hér á landi og þar fara fram allar frumurannsóknir sem fram- kvæmdar eru á íslandi, bæði hvað varðar krabbameinsleit á vegum krabbameinsfélaganna og þær frumurannsóknir sem gerðar eru fyrir lækna og sjúkrahús. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kiwanisklúbbarnir hlaupa undir bagga með Krabbameinsfélaginu. Arið 1966 gáfu Kiwanisklúbb- arnir Hekla og Katla tvö japönsk tæki til að ljósmynda maga, 01- ympus Gastro Camera. Þá rak Krabbameinsfélagið leit að maga- krabbameini. Var þá rannsakaður almennu krabbameinsleitarstöð 300 manna hópur sem kom í hina og reyndist vera með sýrulausan Fulltrúar úr stjórn Kiwanisklúbbsins Heklu ásamt yfirlækni frumurannsóknastofunnar og tveimur rannsóknastúlkum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.