Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
Mótmæla skattpíningar
áformum stjórnvalda
FUNDUR framkvæmdastjórnar
Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks-
ins haldinn 30. april 1980 mót-
mælir harðlega þeim óhóflegu
skattpíningaráformum, sem lýsa
sér í skattafrumvarpi núverandi
rikisstjórnar og nýsamþykktum
lögum um hækkun útsvarspró-
sentu. Verkalýðsráðið bendir á,
að beinir skattar á meðalatvinnu-
tekjur verkamanns þyngist veru-
lega.
Þá harmar Verkalýðsráð Sjálf-
stæðisflokksins þau vinnubrögð
em viðhöfð eru við gerð nýrra
kjarasamninga, þar sem forystu-
menn heildarsamtaka verkafólks
undir forystu kommúnista virðast
fremur með andvaraleysi sínu og
aðgerðarleysi reka erindi atvinnu-
rekenda og ríkisstjórnar en um-
bjóðenda sinna.
Þetta á sér stað á sama tíma og
láglaunafólki nægja ekki dag-
vinnu- og eftirvinnulaun fyrir
brýnustu lífsnauðsynjum.
Slíkt er ástandið á baráttudegi
verkalýðsins 1. maí 1980.
Kanadiski píanóleikarinn Henen Choi. Ljósm. Emilia.
Kanadískur píanóleik-
ari i Austurbæjarbíói
UNG, kanadisk stúika Helen
Choi, heldur á morgun, föstu-
dag, kl. 19 í Austurbæjarbiói
píanótónleika, en hingað kemur
hún i boði Tónlistarskólans í
Reykjavík. Kennari hennar í
Kanada, þar sem hún hefur
verið búsett siðustu árin, var
Vestur-íslendingurinn Snjólaug
Sigurdson, en hún lézt í fyrra.
— Snjólaug Sigurdson hafði
látið í ljós áhuga á því að ég
kæmist einhvern tíma til Islands
til að koma þar fram á tónleik-
um, en henni entist ekki aldur til
að hrinda því áhugamáli sínu í
framkvæmd. Engu að síður hef-
ur það nú orðið og hafði Jón
Nordal skólastjóri Tónlistar-
skólans samband við mig, en
faðir minn, sem var hér á ferð í
fyrra, hafði rætt við einhverja
menn um þetta, sagði Helen
Choi í samtali við Mbl. er hún
var trufluð litla stund síðdegis í
gær þar sem hún var við æf-
ingar.
—Einu skipulögðu tónleikarn-
ir eru á morgun, en á mánudag
verð ég í upptökum í útvarpinu.
Mér finnst mjög gaman að fá
tækifæri til að koma hinga og
spila hér og vonast til að vel
gangi.
Helen Choi er fædd í Banda-
ríkjunum en fluttist fljótlega
með foreldrum sínum til Kan-
ada, en nú býr fjölskyldan í
London og stundar hún þar nám
hjá Kendall Taylor, sem margir
íslendingar þekkja. Hún hefur
tekið þátt í samkeppnum píanó-
leikara í Kanada og verið þar
meðal hinna fremstu.
— Það er mjög mikilvægt að
fá að taka þátt í slíkum keppn-
um, og lærdómsríkt að hlusta á
aðra píanóleikara og að fá að
vita hvað gagnrýnendum og
dómurum finnst. Ég veit ekki
hvort ég hefi áhuga á að leggja
fyrir mig tónleikahald, vildi
gjarnan koma víðar við sögu í
tónlistinni, en víst er að píanó-
leikari er að æfa og læra allt
lífið hvort sem hann leggur
stund á kennslu eða tónleika-
hald, sagði Helen Choi. Á efn-
isskrá eru verk eftir Bach, Beet-
hoven, Pál ísólfsson, Prokofiev
og Chopin.
Mannslíkaminn á mál-
verkasýningu á Akranesi
FIMMTUDAGINN 1. maí kl.
14.00 opnar Guðmundur Björg-
vinsson myndlistarsýningu í
bókasafninu á Akranesi. Þar
sýnir hann rúmlega þrjátíu
pastelteikningar, flestar gerðar á
siðustu tveimur árum, og eru þær
allar til sölu. Guðmundur hefur
áður haldið fjórar einkasýningar
og tekið þátt i fjölda samsýninga.
Viðfangsefni Guðmundar er
mannslíkaminn, ýmist í heilu lagi
eða í minni einingum. Stundum
eru líkamar og líkamspartar þess-
ir allsnaktir en þess á milli
sveipaðir klæðum ýmiss konar og
dúkum. Hvergi sést bregða fyrir
landslagi, húsum, skipum, banön-
um eða öðru þvíumlíku.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14—22 og henni lýkur sunnudag-
inn 4. maí.
Tónleikar Tónmennta-
skólans á laugardag
LAUGARDAGINN 3. maí kl. 2 e.h. mun Tónmenntaskóli
Reykjavíkur halda tónleika í Austurbæjarbíói.
Á þessum tónleikum verða hópatriði úr kennslustundum yngri
barna. Auk þess verður einleikur og samspilsatriði á ýmis
hljóðfæri. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Fyrirlestur um jarðfræði
THOMAS Gold, Sc.D., F.R.S.,
forstöðumaður geimrannsókna-
stofnunar Cornell-háskóla, flytur
erindi föstudaginn 2. maí 1980 kl.
16.15 á vegum Raunvísindastofn-
unar Háskólans, í stofu 158 í húsi
Verkfræði- og raunvisindadeildar
H.í. við Hjarðarhaga, um „Tengsl
jarðskjáifta við gasútstreymi úr
iðrum jarðar“.
Dr. Thomas Gold, einn af
JESÚS Potenciano opnaði mál-
verkasýningu í Eden í Hvera-
gerði fimmtudaginn 1. maí.
Á sýningunni eru 27 olíumyndir,
sem málaðar hafa verið síðastliðin
3 ár. Meirihluti myndanna er með
fremstu stjarneðlisfræðingum
samtímans, er fæddur í Vínarborg
árið 1920. Hann fluttist ungur til
Bretlands og stundaði háskólanám
í Cambridge, en síðar rannsóknir
við konunglegu stjörnuathugun-
arstöðina í Greenwich. Hann hef-
ur verið prófessor við Cornell-
háskóla frá 1959.
Aðgangur að erindinu er ókeyp-
is og öllum heimill-
mótivum frá íslensku og spænsku
landslagi.
Jesús hefur tekið þátt í nokkr-
um samsýningum í Madríd á
Spáni, einnig hefur hann sýnt í
Mokka-kaffi í Reykjavík árið 1971.
1. maí veislu-
kaffi í Iðnó
I DAG verður eins og ár hvert
veislukaffi í Iðnó. Á boðstólum
verða gómsætar veitingar, kaffi og
hlaðborð af dýrindis meðlæti á
sanngjörnu verði. Salir hússins
verða opnaðir kl. 2.15 og hlaðin
borð til kl. 5.
Sameining 1. maí
með kröfugöngu
SAMEINING 1. maí gengst fyrir
kröfugöngu og útifundi 1. mai
nk. Safnast verður saman við
Búnaðarbankann á Hlemmi kl.
13.30. Þaðan verður gengið á
útifund á Hótel íslandsplani.
Fundarstjóri á útifundinum verð-
ur Sigurður Skúlason, leikari.
Ávörp fiytja Björn Gíslason, far-
andverkamaður, Elísabet Bjarna-
dóttir, húsmóðir, og ómar Harð-
arson, offsetprentari. Þá munu
Kristján Guðlaugsson og Þórar-
inn Hjartarson skemmta fundar-
mönnum með söng.
Sameining 1. maí gengur á 1.
maí í ár undir höfuðkjörorðunum
Sameining gegn undanslætti —
sameining til baráttu. Sameining
1. maí snýst gegn undanslætti
verkalýðsforystunnar í yfirstand-
andi kjarasamningum og leggur
áherslu á að fylkja fólki til
baráttu. Sömuleiðis leggur Sam-
eining 1. maí áherslu á kröfur um
jafnrétti kynjanna og kröfur um
að Sovétríkin hverfi með heri sína
úr Afganistan og ísland gangi úr
NATO og bandaríski herinn hverfi
af landi brott.
(Fréttatilkynning).
Dagskrá 1, maí
í Hafnarfirði
DAGSKRÁ 1. maí, baráttudags
verkalýðsins, í Hafnarfirði hefst
með því að safnast verður saman
við Fiskiðjuver Bæjarútgerðar-
innar kl. 13.30. Þaðan verður
gengið undir fánum samtakanna
um eftirtaldar götur: Reykja-
vikurveg, Hverfisgötu, Lækjar-
götu, Strandgötu að húsi Bjarna
riddara, en þar hefst útifundur
að kröfugöngu lokinni. Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar mun leika í
kröfugöngunni og á útifundin-
um.
Á útifundinum mun Björn
Þórhallsson, formaður Lands-
sambands verzlunarmanna, flytja
ræðu, en einnig munu flytja ávörp
þau Guðríður Elíasdóttir, formað-
ur Verkakvennafélagsins Fram-
tíðarinnar, og Albert J. Kristins-
son, formaður Starfsmannafélags
Hafnarfjarðar. Fundarstjóri verð-
ur Hermann Guðmundsson og
mun hann jafnframt setja fund-
inn, en Hermann er formaður
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna.
Jesús sýnir í Eden
1. maí ávarp Stjádenta-
ráðs Háskóla Islands
„I tilefni af alþjóðlegum bar-
áttudegi verkalýðsins 1. maí,
lýsir Stúdentaráð Háskóla
Islands yfir stuðningi við bar-
áttu íslenskrar verkalýðshreyf-
ingar fyrir bættum kjörum og
betri heimi.
Verkalýðshreyfingin hefur
sett fram kröfur sínar skýrt
mótaðar en fengið að venju
neikvæð viðbrögð frá atvinnu-
rekendum.
Rétt þykir þó að vara við þeim
klofningi sem upp hefur komið
milli tveggja helstu samtaka
launafólks. Því er ástæða til að
skora á forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar að standa með
almennum félagsmönnum í bar-
áttunni fyrir hvers kyns auknum
réttindum. Efling verkalýðsbar-
áttunnar og aukin virkni hennar
er eina leiðin til að knýja fram
réttlátar kröfur launafólks.
Ríkisvaldið er nú hikandi um
hvað skal til ráða og hindra
verður að það styðji við bakið á
atvinnurekendum eins og áður,
og láti launafólk þannig bera
byrðar þeirrar kreppu sem er
birtingarmynd óreiðu auðvals-
skipulagsins.
Það koma engir félagsmála-
pakkar í stað launahækkana,
það finnur fólk á eigin kroppi.
Engin þörf er að velja á milli,
því hvort tveggja er nauðsyn.
Það er verkalýðshreyfingunni
nauðsynlegt að efla vitund fé-
lagsmanna sinna um eigin hag
og brýnt að ýta undir í stað þess
að letja sjálfstæða baráttu
hinna ýmsu hópa launþega, sem
Baráttuhreyfing farandverka-
fólks er gott dæmi um. Hér eiga
námsmenn samleið með launa-
fóiki og hvetja til samstöðu
verkalýðshreyfingarinnar í kom-
andi kjarasamningum og senda
baráttukveðjur á 1. maí.“