Morgunblaðið - 01.05.1980, Page 32
3 2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
Björn Hjaltested
— Minningarorð
Fæddur 9. desember 1905
Dáinn 20. apríl 1980
Menn og maífuglar eiga eitt
sameiginlegt. Hvorttveggja eru
ómælanleg smæð í úthafi eilífðar-
innar. Annað er þeim og sameigin-
legt.
Hvorugt skilur né skynjar rök
tilverunnar, eður tilgang síns eig-
in lífs. Allt um það verða getgátur
einar. Eitt veit þó maðurinn, að
því er við fávísir hyggjum, að
flugan ekki þekki, að kærleikurinn
er eitt æðsta boðorðið til sannrar
lífshamingju.
Því eru þessi orð borin hér á
blað, að nú er til moldar hniginn
maður, sem öllum vildi gott gera,
er bágt áttu, og börn hændust að.
Hann átti kærleikann í sál sinni
og gaf öðrum óspart af þeim
gnægtabrunni. Ekkert mátti hann
aumt sjá. Svo barngóður var hann,
að fólk, nú vaxið úr grasi, hefur
ávallt minnst hans með því mál-
fari, málhljóm og tungutaki, sem
aðeins góðmennum hlotnast.
Björn Hjaltested er látinn. Vini
hans setur hljóða. Þá setur ekki
hljóða vegna þess, að það komi
þeim á óvart. Þvert á móti. En
spurningin vaknar, sú sem aldrei
verður svarað. Hvers vegna þurfti
góður maður og ástvinir hans að
líða í hálfan tug ára áður en hann
fékk að lokum hinn eilífa frið.
Himnafaðirinn einn getur svarað
því. En Björn stóð ekki einn í
lífsbaráttunni. Hann lifir hin
ágæta danskfædda eiginkona
hans, Grethe. Vinir þeirra hjóna
kalla hana nú hetjuna. Hún og
börn þeirra voru stoð hans og
styrkur. Gestrisni þeirra átti sér
engin takmörk. Nú hljómar ekki
lengur hinn glaðværi og smitandi
hlátur hans, hnyttin tilsvör,
skemmtisögur af atvikum úr lífi
hans, en þær léku honum létt á
tungu. Bersögli aflaði honum ekki
alltaf vinsælda þeirra, er fyrir
skotum hans urðu, en ávallt virð-
ingar.
Við, sem eftir lifum, og eigum
ljúfar minningar á hans vegum,
þökkum samfylgdina.
Blessun drottins fylgi honum og
ástvinum öllum.
Sveinbjörn Finnsson
Vetur var að kveðja og sumar-
koman á næsta leiti. Á þessum
tímamótum var lífshlaupi góðvin-
ar okkar, Björns Hjaltested, að
ljúka. Hvíldin hefur verið kær-
komin eftir erfiða og vonlitla
lífsbaráttu hin síðustu æviár.
Björn var fæddur í Reykjavík 9.
desember 1905, sonur hjónanna
Soffíu Finsen og Georgs Péturs
Hjaltested. Hann var vestur-
bæingur í orðsins fyllstu
merkingu, fæddur í gamla húsinu
við Suðurgötu 7, þar sem nú er
Gallerí til húsa, og að því er ég
bezt veit, bjó hann alla tíð fyrir
vestan læk.
Þegar kemur að skilnaðarstund,
streyma fram minningarnar um
þau ánægjulegu kynni, sem við
áttum af Birni, eða Bóa eins og við
vinirnir kölluðum hann ævinlega í
okkar hópi. Það eru nú liðnir um
þrír áratugir síðan leiðir okkur
lágu fyrst saman. Tilefnið var, að
nokkrir kunningjar tóku upp á því
að hittast yfir kaffibolla að
morgni dags niður í miðbæ og
rabba saman stundarkorn og
skiptast á skoðunum á hinum
margvíslegustu málefnum, og má
segja að ekkert hafi verið okkur
óviðkomandi. Bói varð snemma
leiðtogi þessa hóps eða kaffiklúbbs
og jafnan titlaður forseti okkar á
meðal. Þótt hann væri einnig
aldursforseti okkar, var ekki um
neitt kynslóðabil að ræða, þar sem
Bói var annars vegar, því hann var
alltaf síungur í anda og frá honum
streymdi alla tíð ferskur blær.
Bói hafði til að bera þá sérstöku
frásagnargleði, að komu hans í
kaffiklúbbinn var ævinlega beðið
með mikilli eftirvæntingu. Hann
átti auðvelt með að leiða fram
hinar skoplegu hliðar tilverunnar,
enda var ósjaldan hlegið dátt að
kímni Bóa, sem hreif viðstadda
með sínum sérstæða og skemmti-
lega frásagnarhætti. Við félagar
hans og vinir minnumst nú hinna
fjölmörgu samverustunda, sem við
áttum með honum í gegnum árin.
Við minnumst þeirra tíma, þegar
við gerðum okkur dagamun til að
blóta þorra og skvetta úr klaufun-
um eina kvöldstund. Þá var Bói
eins og endranær hrókur alls
fagnaðar. Þessar minningar fyrn-
ast seint úr hugum okkar, sem
kynntumst sómamanninum Bóa
Hjaltested.
Vorið 1953 átti ég því láni að
fagna að vera samferðamaður
þeirra hjónanna, frú Grethe og
Björns, í fyrstu hópferð íslendinga
til Spánar. Þetta var ógleymanleg
ferð í alla staði, og þar komu í ljós
hinir sérstöku eiginleikar Björns
sem góðs og skemmtilegs félaga.
Oft voru rifjaðar upp endurminn-
ingar frá þessari brautryðjenda-
ferð til Spánar og hlegið dátt að
ýmsu spaugilegu, sem fyrir kom á
ferðalaginu.
Björn var fasmikill í framkomu
og yfir honum bragur heimsborg-
ara. Hann var léttur í spori, jafnt
þótt árin færðust yfir hann, enda
stundaði hann mikið fjallgöngur
og útilíf á yngri árum. Ekki væri
ég hissa á því, þótt vinur minn Bói
ætti rætur að rekja til Kelta, svo
líkur virtist mér hann stundum
þessum ágæta og kjarnmikla þjóð-
flokki.
Nú, þegar vetur hefur verið
kvaddur og náttúran að vakna úr
dróma skammdegisins, stöndum
við á vegamótum og leiðir skiljast
um sinn með vini okkar, Birni
Hjaltested. Ég veit, að ég mæli
fyrir munn hinna fjölmörgu vina
Bóa úr kaffiklúbbnum, þegar hon-
um er þökkuð órofa tryggð og
ógleymanlegar samverustundir á
liðnum árum um leið og góðar
óskir fylgja honum á sumargöngu
hans til fyrirheitna landsins.
Samúðarkveðjur sendum við
börnum hans og eftirlifandi eig-
inkonu, frú Grethe, sem ætíð stóð
við hlið Björns í blíðu og stríðu.
Blessuð sé minning góðs drengs.
Njáll Símonarson.
Birting
afmælis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið
af marggefnu tilefni að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
+
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
ADAM HOFFRITZ,
Ártúni 14, Selloaai
andaöist í Landsspítalanum 29. apríl.
Fyrir hönd aöstandenda,
Sigurbjörg Hoffritz.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓN OTTÓ RÖGNVALDSSON,
blikkamiöur,
Nýlendugötu 4,
lést í Borgarspítalanum 29. aprfl.
Stefanía Siguröardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Móöir okkar
ARNHEIOUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
sem lést 25. apríl veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju laugardag-
inn 3. maí kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Fjóröungssjúkrahúsiö á
Akureyri.
Guörún Þengilsdóttir,
Ásta Þengilsdóttir.
t
Faöir minn, stjúpfaöir, tengdafaöir og afi,
ANDRÉS KARLSSON,
Strandgötu 1, Patreksfirói,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 2. maí kl. 3
e.h.
Þeir, sem vildu minnast hins látna, láti Slysavarnafélag íslands
njóta bess
Kristfn Andrósdóttir, Ingimundur Jónsson,
Daníel Jónsson, Sigríöur Vilhjálmsdóttir
og barnabörn.
t
Systir mín og mágkona
RAGNA BJARNADÓTTIR,
Mánagötu 20,
verður jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. maí kl. 3.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti
Siysavarnafélagiö njóta þess.
Anna Nordal,
Guömunda S. Kristinsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns,
KRISTJÁNS FRIÐRIKSSONAR,
iönrekanda,
Garöastræti 39,
veröur gerö frá Neskirkju mánudaginn 5. maí 1980 kl. 1.30.
Oddný Ólafsdóttir.
t
Faðir okkar, stjúpfaöir og tenpdafaöir
MAGNUS JÓNSSON,
fré Barði, Skólageröi 3,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. maí kl. 10.30
f.h.
Jarösett veröur í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Þorvaldur Magnússon, Jóhanna ívarsdóttir,
Ingibjörg Magnúsdóttir,
María Magnúsdóttir.
t
Utför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HERDÍSAR LÁRUSDÓTTUR,
fró Siglufirði,
sem andaöist 23. aprtl sl. hefur fariö fram.
Þökkum auösýnda samúö.
Anna Hallgrímsdóttir, Hreinn Sumarliöason,
Guóbjörn Hallgrímsson, Kristfn Guömundsdóttir,
Guöfinna Gunnarsdóttir, Baldvin Jónsson,
Jóhanna Viggósdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi
BJÖRN HJALTESTED,
Ásvallagötu 73,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni 2. maí kl. 13.30. Blóm
vinsamlegast afþökkuö, en þeim, er vilja minnast hans, er
vinsamlegast bent á Sundlaugarsjóö Sjálfsbjargar Hátúni 12.
Grethe Hjaltested,
Walter Hjaltested, Svandfs Guömundsdóttir,
Jytta Hjaltested, Gunnar Geirsson,
Jens P. Hjaltested, Maríanna Haraldsdóttir,
Edda Hjaltested og barnabörn.
t
Alúöar þakkir sendum viö starfsfólkl Sjúkrahúss Húsavíkur fyrlr
alla umönnun í veikindum sonar okkar og bróöur,
FRIOFINNS SIGUROSSONAR,
Rauöuskriöu.
Ennfremur öllum þeim fjölmörgu sem sendu okkur blóm og
samúöarkveöjur til minningar um hinn látna.
Guö blessi ykkur öll.
Hulda Kristjónsdóttir,
Siguröur Friöfinnsson
og systkini hins lótna.
t
Viö þökkum samúö og hluttekningu viö fráfall systur okkar og
fóstursystur
ÁSTU KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
fró Merkisteini, Vestmannaeyjum,
Blönduhlíö 29.
Ingi Sigurösson, Agnes Sigurðsson,
Rósa Siguróardóttir,
Valgeir Guömundsson, Bryndfs Jónsdóttir
og systkinabörn.
Lokað
Vegna jaröarfarar
BJÖRNS HJALTESTED,
forstjóra,
veröa skrifstofur ok^r lokaöar 2. maí frá kl. 12.00.
Heildv. Ásgeir Sigurósson hf.