Morgunblaðið - 01.05.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
33
Minning:
Ragna Sigríður
Bjarnadóttir
Fædd 8. september 1905.
Dáin 24. april 1980.
Á morgun verður til moldar
borin móðursystir mín, Ragna
Sigríður Bjarnadóttir, sem lézt á
sumardaginn fyrsta sl. eftir ianga
og erfiða sjúkdómslegu. Hún hafði
reyndar átt við langa vanheilsu að
stríða mörg undanfarin ár.
Eiginmann sinn, Gunnlaug B.
Kristinsson, frá Miðengi í
Grímsnesi, missti Ragna fyrir
nokkrum árum, en stoð hennar og
stytta hefur síðan verið mágkona
hennar, Guðmunda Kristinsdóttir,
sem sýndi henni mikla umhyggju
og alúð í veikindum hennar.
Ragna var dóttir sæmdarhjón-
anna Bjarna Árnasonar sjómanns
og Sólbjargar Jónsdóttur, sem
lengi áttu heima að Holtsgötu 9,
Reykjavík, og voru sannir vestur-
bæingar, enda átti Ragna fjölda
kunningja á þeim slóðum. Hinn
11. október 1930 giftist Ragna
Gunnlaugi B. Kristinssyni, sem
fjölmargir Reykvíkingar muna
eftir undir nafninu Billi í Ölgerð-
inni, en hann var í áratugi af-
greiðslumaður í Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni hf. Þau Ragna og
Billi eignuðust eitt barn, sem skírt
var Bjarni, en það lézt á fyrsta ári.
Markaði sá atburður mjög líf
þeirra hjóna, en þau eignuðust
ekki fleiri börn, og var það miður,
því þau voru einstaklega barngóð
og söknuðu þess mjög að hafa ekki
alið upp börn.
Sjálfur var ég á heimili þeirra
vegna skólanáms á stríðsárunum
og kunni vel að meta ást þeirra og
umhyggju. Móðir mín, Anna Nor-
dal, var hálfsystir Rögnu, en þær
ólust ekki upp saman. Eigi að
síður var mjög kært á milli þeirra
systra og náið samband. Um það
leyti, sem ég kom í þennan heim,
var Ragna á heimili foreldra
minna til aðstoðar og það var
ástæðan að ég hlaut nafn frænku
minnar.
Eins og gengur og gerist þá
vann Ragna mest húsmóðurstörf,
en hún vann einnig mjög að
félagsstörfum og þá einkum í þágu
Slysavarnasveitar kvenna í
Reykjavík. Þar munaði um fram-
lag hennar, því hún var ósérhlífin
og gjafmild.
Ragna var afar elskuleg kona,
en jafnframt hressileg og kát við
öll tækifæri. Hún átti auðvelt með
að kynnast fólki; þekkti því
marga, og átti marga og góða vini.
Samband hennar við ættmenni og
tengdafólk var náið og þá einkum
við fólkið á Kirkjubæjarklaustri,
en mágkona hennar, Soffia Krist-
insdóttir, var gift þangað Siggeiri
bónda Lárussyni. Með þeim og
Rögnu og Billa voru miklir kær-
leikar, svo og börnum þeirra og
barnabörnum.
Með Rögnu og Billa eru enn
gengnir Reykvíkingar, sem settu
svip sinn á bæinn; ósérhlífnir og
harðduglegir; löghlýðnir og ein-
staklega elskulegt fólk. Fyrir-
mynd þeirra borgara, sem frjálst
samfélag byggir á.
Samfylgd við slíkt fólk er ekki
aðeins gleðivekjandi heldur mann-
bætandi.
Að leiðarlokum er því hollt að
minnast Rögnu og Billa. Þau
höfðu góð áhrif á þá, sem þeim
kynntust, og við sem þeim voru
nákomnust, söknum góðra vina.
Móðir mín og við þrír synir
hennar, svo og makar og börn og
barnabörn, geymum því fagra
mynd af þessum ágætu hjónum.
Ragnar Ingólfsson
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hvernig get ég betur orðið að gagni á stúdentagarðin-
um, þar sem ég bý? Mig hefði langað til að varpa
„sprengju“ í andlegum skilningi í háskólanum, en ég veit
ekki, hvernig ég á að fara að því. Gætuð þér gefið mér
einhverjar leiðbeiningar?
Guði sé lof fyrir fólk eins og þig, sem sér neyðina og
möguleikana á andlegri byltingu.
Byrjaðu á því að kynna þér, hvaða æskumenn það
eru í skóla þínum, sem eiga eld í sál. Stofnaðu
Biblíulestrarhópa meðal þeirra. Samkvæmt skólalög-
um mega nemendur hafa með sér klúbba að eigin vild.
Þegar þeir eru skipulagðir á réttan hátt, mega þeir
halda fundi sína í húsakynnum skólans.
Ég veit um hóp stúdenta, sem gerði þetta á stað
einum. Þar eru yfir 1200 manns í Biblíulestrarklúbbi.
Þeir koma saman einu sinni í viku í samkomusal
skólans. Aðgangur er auðvitað frjáls. Þeir bjóða
ræðumönnum, sem flytja hvetjandi ávörp. Þeir verja
tímanum við lestur Biblíunnar, bæna og vitnisburða.
Þetta æskufólk hefur haft mikil áhrif á umhverfi
sitt. Þetta gæti orðið reyndin í öllum æðri skólum í
landi okkar, ef ungt fólk eins og þú léti hendur standa
fram úr ermum.
Það er ekki víst, að þú yrðir eins frægur og sumir
hópar, sem valda óspektum og hafa uppi alls konar
mótmæli. En áhrif ykkar til góðs yrði „sprengjan“,
sem þú vildir gjarnan sjá springa í skólanum þínum.
Möguleikarnir til þess, að raunveruleg andleg
sprenging eigi sér stað, eru fyrir hendi. Þeir eru eins
og púður — og þú ert sá, sem getur kveikt í því.
Brldge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
Reykjanesmeistara-
mót í tvímenningi
1980.
N.k. föstudagskvöld rennur út
tilkynningarfrestur í forkeppni
Reykjanesmeistaramótsins í
tvímenningi sem fram fer í
Stapa í Njarðvík miðvikudaginn
7. maí, en keppnin hefst kl. 19.30.
Tuttugu efstu pörin úr for-
keppninni keppa til úrslita í
Þinghól í Kópavogi helgina
10.—11. maí. Spilaður verður
barometer. Allir meðlimir
bridgefélaga á Reykjanesi eiga
rétt til þátttöku. Keppt verður
um glæsileg verðlaun auk silf-
urstiga.
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag var síðasta spila-
kvöld félagsins og var spilaður
tvímenningur í einum 16 para
riðli.
Úrslit:
Guðmundur Aronsson
— Jóhann Jóelsson 274
Bergur Ingimundarson
— Sigfús Skúlason 254
Sverrir Þórisson
— Haukur Margeirsson 241
Helgi Magnússon
— Sigurjón Ólafsson 234
Tómas Sigurjónsson
— Sigurður Blöndal 218
Jón Ámundason
— Erna Hrólfsdóttir 212
Meðalskor 210
Stjórn félagsins þakkar spil-
urum fyrir ánægjuleg vetrar-
kvöld og vonast til að hitta þá
hressa og káta að liðnu sumri.
Úrslitakeppni
íslandsmótsins
í gær hófst úrslitakeppni
íslandsmótsins í sveitakeppni og
er spilað á Hótel Loftleiðum.
Næstu tvær umferðir verða spil-
aðar í dag en keppninni lýkur á
sunnudag.
2. umf. fimmtud. 1. maí kl. 13.15.
3. umf. fimmtud. 1. maí kl. 20.00.
4. umf. föstud. 2. maí kl. 20.00.
5. umf. laugard. 3. maí kl. 13.15.
6. umf. laugard. 3. maí kl. 20.00.
7. umf. sunnud. 4. maí kl. 13.15.
Barðstrendinga-
félagið í
Reykjavík
Nú er lokið einmennings-
keppninni sem jafnframt var
síðasta keppnin á vetrinum. Ár-
angur efstu manna var þessi:
Stig.
Eggert Kjartansson 211
Þorsteinn Þorsteinsson 211
Gunnlaugur Þorsteinsson 203
Ragnar Björnsson 203
Helgi Einarsson 201
Þórarinn Árnason 195
Guðrún Jónsdóttir 193
Þorvaldur Lúðvíksson 190
Við óskum öllum gleðilegs
sumars og þökkum fyrir vetur-
inn og vonandi sjáumst við öll
heil í haust.
Tafl og bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 8. maí hefst
þriggja kvölda tvímenningur hjá
TBK með Michel fyrirkomulagi.
Spilað verður fimmtudagana 8.,
22. og 29. maí. Öllum er heimil
þátttaka, vegleg verðlaun, spilað
verður í Domus Medica og hefst
spilamennska kl. 19.30 stundvís-
lega.
~<c: row inV
mest selda tæki
landsins komiö
aftur
Þaö er samdóma tæknilýsing:
álit þúsunda kaup-
enda aö þetta tæki
sé bestu kaup
landsins.
Cltvarp: Langb.-, miðb.- og FM-stereo
Plötuspilari: Allar stærðir af plötum — vökvalyfta.
Segulband: Mjög fullkomið Automatiskt Crom.
Magnari: 2x15 wött = 30 wött. Nóg fyrir flesta.
Hátalarar: 2 stk. fylgja með í samræmi við magn.
HVER BYÐUR BETUR?
VERSLIÐ í
SÉRVERSLUN
MEÐ c'
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SfMI 29800
Greiðslukjör:
Ca. 150.000 - út
rest á 4 mánuðum
r