Morgunblaðið - 01.05.1980, Qupperneq 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík 30 ára:
„Hver félagi leggur
fram mörg hundruð
klukkustunda vinnu
á hverju ári“...........- —
— segir Ingvar F. Valdimarsson, formaður sveitarinnar, m.a. í
þessu samtali við Morgunblaðið
tíma og einn félagi tekur væntan-
lega þátt í árlegri samæfingu
svissnesku Alpabjörgunarsveit-
anna, sem haldin verður í júní.
Það má í raun fullyrða í sambandi
við þessar utanferðir félaganna að
þær hafa skilað sér margfalt í
mikilli þekkingu, sem síðar hefur
verið miðlað til hinna, og jafnvel
til annarra björgunarsveitar-
manna. í því sambandi hafa félag-
ar í sveitinni farið um landið og
haldið námskeið í sambandi við
snjóflóð. Þá er vert að geta þess að
væntanlega munu 9 félagar í
fallhlífarstökkflokknum fara utan
til Bandaríkjanna í haust þar sem
þeir munu fá þjálfun hjá einni
fallhlífardeild bandaríska hersins
í Fort Benning."
Tekur félaga fjöl-
mörg ár að koma
upp nauðsynlegum
búnaði vegna
kostnaðar
Er ekki sá útbúnaður sem
hverjum einstaklingi er nauðsyn-
legt að eiga ekki óheyrilega dýr
og fjölþættur? — „Jú, það er víst
alveg hægt að fullyrða það. Það
getur tekið menn fjöldamörg ár að
koma sér upp nauðsynlegum bún-
aði, en allur búnaður sem við
notum er skattlagður af ríkinu
upp í topp, sem sportbúnaður, þó
það liggi auðvitað í augum uppi að
mest af þessu er notað í almenn-
ings þágu að miklu leyti. Ef ég
ætti að nefna eitthvað af þeim
fjölþætta búnaði sem nauðsyn-
legur er, væri rétt að byrja á
fatnaðinum. Það er hverjum
björgunarsveitarmanni nauðsyn-
legt að eiga mjög góðan fatnað,
eins og fjallgönguskó, göngubux-
ur, ullarfatnað og hlífðarfatnað
ýmis konar. Þá má nefna jökla-
dúr.svefnpoka, einangrunardýnu,
bakpoka, jöklatjald, gönguskíði,
fjallaskíði, allan almennan fjall-
göngubúnað, eins og ísaxir, mann-
brodda, líflínu svo eitthvað sé
nefnt. Hver maður er svo alltaf
með litla sjúkratösku í bakpokan-
um.“
Sveitin hefur yfir
að ráða mjög
f jölþættum búnaði
Þótt hver einstaklingur sé vel
búinn þá dugir það skammt, er
ekki svo? — „Útbúnaður einstakl-
inganna er auðvitað engan veginn
nægilegur, til viðbótar kemur svo
fjölþættur búnaður sveitarinnar. I
dag á sveitin fjóra vel útbúna
fjalla- og sjúkrabíla, einn snjóbíl
og verið er að leggja síðustu hönd
á sérstakan radíóbíl, eða stjórn-
stöð á hjólum. í honum er aðstaða
fyrir 3—4 manna leitarstjórn, sá
fyrsti sinnar tegundar. Þá hefur
sveitin ákveðið að koma sér upp
vélsleðum og hefur í því sambandi
þegar keypt einn sem væntanlega
kemst í hendur okkar innan tíðar,
en það hefur staðið í stappi að
undanförnu að fá felld niður af
honum aðflutningsgjöld. Ef þau
fást felld niður munum við kaupa
annan til, en fé til þessara kaupa
fengum við að gjöf frá ónafn-
greindum velunnara sveitarinnar
nú fyrir áramótin.
Nú auk bílanna á sveitin allgóð-
an fjarskiptabúnað, miðað við
aðstæður allavega, en í þeim
efnum stendur til að gera mikið
átak á næstu árum. Það á í raun
við um alla björgunaraðila lands-
ins. Tekið verður í notkun svokall-
að VHF-kerfi, sem er mun örugg-
ara heldur en það kerfi sem nú er
í notkun, en það er eins með
fjarskiptin eins og sleðana, að
staðið hefur í stappi við stjórnvöld
með að fá niðurfelld aðflutnings-
gjöld af tækjunum, þar sem það
liggur líka á borðinu að þau verða
notuð eingöngu til ýmis konar
björgunarstarfsemi.
Þá eigum við nokkuð þokkalega
góðan sjúkrabúnað, bæði til
sjúkrahjálpar og sjúkraflutninga.
í því sambandi gaf kvennadeildin
okkur fjórar nýjar sjúkrabörur
fyrir skömmu og á síðasta ári gáfu
þær okkur sérstakan sjúkrasleða,
sem sannaði ágæti sitt mjög
áþreifanlega í þyrluslysinu á Mos-
fellsheiði fyrir jólin. Við eigum og
nokkuð af fjallgöngubúnaði og
tækjum til björgunaraðgerða í því
sambandi. Nú og fallhlífarflokk-
urinn okkar á nokkrar gamlar
fallhlífar,en þar er nú von'á
verulegri bót þar sem við höfum
pantað nokkrar sérstakar björg-
unarfallhlífar, sem eru sérhann-
aðar til björgunarstarfa."
Vinna í jöklaúlpum
við bilaviðgerðir
Hvernig er húsnæðismálum
sveitarinnar háttað? — „Það má
segja að þau séu bæði góð og vond.
Það húsnæði sem við höfum til
fundarhalda iföðrum bragganum
okkar í Nauthólsvík, er alveg
ágætt, sérstaklega eftir að miklar
endurbætur voru gerðar á því í
fyrra, en birgðageymslan og hús-
næði bílaflokksins er mjög dapurt.
Það er svo þröngt að menn geta
varla skipt um skoðun þar og til
að kóróna dapurleikann er bíla-
geymslan mjög köld, viðgerðar-
mennirnir okkar verða hreinlega
að vinna í jöklaúlpum á vetrum,
þegar þeir eru í viðgerðum.
Landssamband
flugbjörgunarsveita
Eru ekki fleiri flugbjörgunar-
sveitir heldur en hér í Reykjavík?
— „Flugbjörgunarsveitirnar eru
fimm víða um land, þ.e. við hér í
Reykjavík, á Hellu, undir Eyja-
fjöllum, á Akureyri og í Varma-
hlíð og þessar sveitir mynda svo
Landssamband Flugbjörgunar-
Nokkrir félagar i leit uppi á
Tindf jallajökli árið 1966
þegar leitað var að flugvéi-
inni.
Þverhníptur isveggur klif-
inn.
Ingvar F. Vaidimarsson núverandi formaður Flugbjörgunarsveit-
arinnar (t.h) og Sigurður M. Þorsteinsson. sem var formaður
hennar írá 1960—1975, eða lengst allra. u.»mynd Mbi. Kristján.