Morgunblaðið - 01.05.1980, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MAÍ1980
39
h
r
Haukar bikarmeistarar HSÍ1980
Sterkur lokakafli
færði þeim sigur
ÞAÐ VAR sannkölluð bikarstemmning í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi er Haukar báru sigurorð af KR í
síðari úrslitaleik liðanna í bikarkeppnis H.S.Í., 22—20, í
æsispennandi viðureign. En það var ekki fyrr en á
lokamínútum leiksins að Haukum tókst að tryggja sér
sigurinn með dyggum stuðningi áhangenda sinna á
áhorfendapöllunum sem studdu að vanda vel við bakið á
sínum mönnum. Leikurinn var allan tímann mjög jafn
og ekki mátti á milli sjá hvort liðið ætlaði að tryggja sér
sigur, en leikur Hauka var öllu yfirvegaðri í lok leiksins
og bikarinn og réttur til að keppa í Evröpukeppninni
næsta ár varð þeirra.
KR-ingar reyndu að leika mað-
ur á mann í lokin, en allt kom
fyrir ekki, Sigurgeir Óskarsson
innsiglaði sigur Hauka með góðu
Sigurgeir skorar síðasta mark marki rétt fyrir leikslok. Hauka-
leiksins og innsiglar sigurinn. sigur var í höfn.
yfirhöndinni, 8—7. A eftir fylgdi
mjög góðúr kafli hjá liðinu og þeir
breyttu stöðunni í 10—7, og allt
virtist stefna í að þeim tækist að
sigla vel fram úr Haukum. En þeir
voru ekki á þeim buxunum að gefa
sig og varnarleikurinn svo og
markvarslan lagaðist aftur og þeir
náðu að jafna metin, 11—11, áður
en flautað var til hálfleiks.
Jafnræði var svo með liðunum
allan síðari hálfleikinn og þar til
fimm mínútur voru eftir af leikn-
um. Þá tóku Haukar af skarið og
sigruðu verðskuldað.
Stórleikur
Ingimars og Árna
Þeir Ingimar Haraldsson og
Arni Hermannsson áttu báðir
varð til þess að KR-ingar misstu
leikinn út úr höndunum á sér.
Ótímabært skot og sendingar
kostuðu liðið tvö mörk. Konráð
Jónsson og Jóhannes Stefánsson
voru bestu menn KR-inga. Konráð
lék sinn besta leik með KR til
þessa og Jóhannes var sterkur
bæði í vörn og sókn. Hilmar
Björnsson, þjálfari Vals, lék með
KR að þessu sinni og stóð sig
frábærlega vel. Hann var sá eini
sem þoldi spennuna í lok leiksins
og hélt þá KR á floti með fjórum
mörkum siðustu 9 mínútur leiks-
ins. Bæðir Pétur Hjálmarsson og
Gísli Felix í markinu stóðu vel
fyrir sínu. Pétur varði stórvel
síðari hluta fyrri hálfleiksins.
Mörk KR: Konráð Jónsson 5,
Hilmar Björnsson 4 (2v), Jóhann-
es Stefánsson 4, Björn Pétursson 3
“VaCU
Bikarmeistararnir Haukar 1980.
Æsispennandi
lokamínútur
Þegar fimm mínútur voru eftir
af leik KR og Hauka var staðan
jöfn, 18—18, allt var á suðupunkti
og harkan talsverð. Þessar síðustu
fimm mínútur var það stórleikur
Ingimars Haraldssonar sem
tryggði Haukum öðru fremur sig-
ur í leiknum. Ingimar skoraði tvö
glæsileg mörk af línunni þrátt
fyrir mjög stranga gæslu og kom
Haukum tveimur mörkum yfir, án
þess að KR tækist að svara fyrir
sig.
Þegar þrjár mínútur eru eftir af
leik er tveimur Haukum vísað af
velli með skömmu millibili og þeir
urðu að leika fjórir síðustu 2
mínúturnar og 40 sekúndurnar.
Hilmari Björnssyni tókst að
minnka muninn niður í eitt mark,
20—19, en Ingimar er enn á
ferðinni og svarar fyrir Hauka
þegar mínúta er eftir. KR sækir
og Hilmar skorar 20. mark KR
þegar 24 sekúndur voru eftir.
Jafn leikur
Leikur liðanna var afar jafn
lengst af. Nokkrar sveiflur voru þó
í upphafi leiksins meðan leikmenn
voru að finna rétta taktinn í
leiknum. Haukar byrjuðu leikinn
af miklum krafti og komust í 3—1,
en KR sleppti þeim ekki langt fra
sér og seig hægt og bítandi á og á
19. mínútu tókst þeim að ná
Gleðin brýst út hjá leikmönnum Hauka, um leið og leikurinn var tiautaour at.
Andrés fyrirliði hampar bikarnum.
stórleik með liði sínu og voru
mennirnir á bak við sigurinn. Árni
hefur sjaldan leikið betur með
Haukum og Ingimar var afar
sterkur á lokakafla leiksins þegar
mest reið á. Skoraði hann fjögur
af síðustu fimm mörkum Hauka.
Stefán Jónsson kom vel frá varn-
arleiknum og þeir Ólafur Guð-
jónsson og Gunnar Einarsson
sýndu báðir góða markvörslu í
leiknum.
Lið KR varð að bíta í það súra
epli að tapa, en þrátt fyrir það lék
liðið vel og á köflum brá fyrir því
besta sem sést hefur til þessa í
vetur. Það var fyrst og fremst of
mikil taugaveiklun í lokin, sem
víti, Ólafur Lárusson 2, Haukur
Geirmundsson og Símon Unn-
dórsson eitt mark hvor.
Mörk Hauka: Árni Hermanns-
son 5, Ingimar Haraldsson 5, Árni
Sverrisson 3, Júlíus Pálsson 2,
Andrés Kristjánsson 3, Þórir
Gíslason 2.
Dómarar voru þeir Gunnlaugur
Hjálmarsson og Björn Kristjáns-
son og komust þeir vel frá leikn-
um.
Brottvísanir af leikvelli: Hörð-
ur, Stefán og Júlíus allir í Hauk-
um í 2 mín hver.
Ólafur Guðjónsson varði eitt
víti og Gísli Felix eitt.
þr.
Sagt eftir leikinn
Jóhann Ingi Gunnarsson,
þjálfari KR:
Betra liðið sigraði i þessum
leik og ég óska Iiaukum til
hamingju með sigurinn. Leikur-
inn var jafn og sigurinn getað
lent hjá báðum liðum. Leik-
menn KR fundu sig ekki nægi-
lega vel í leiknum og það reið
baggamuninn.
Viðar Simonarson,
þjálfari Hauka:
bessi Ieikur gat farið á hvorn
veginn sem var. Ég var smeyk-
ur allt þar til fjórar mínútur
voru eftir af leiknum. Ég lagði
höfuðáhersluna á varnarleikinn
og á því unnum við leikinn. Þá
áttu þeir Árni Hermannsson og
Ingimar Haraldsson báðir frá-
bæran leik.
Hilmar Björnsson, KR:
Það var fyrst og fremst
reynsiuleysi okkar manna sem
færði Haukum sigur 1 leiknum.
Þá voru við óheppnir að nýta
ekki mörg dauðafæri í leiknum.
Gunnar Einarsson,
Haukum:
Þetta var sætur sigur, loks
tókst okkur í Haukum að
krækja í einn meistaratitil inn-
anhúss.