Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980 NÚ UM þessar mundir er Bygg- ung, byggingarsamvinnufélag ungs fóíks í Kópavogi, að hefja framkvæmdir á nýju bygg- ingarsvæði í Ártúnslandi. Hef- ur félagið fengið þar úthlutað lóðum fyrir tvö 18 íbúða fjölbýl- ishús, sem vonast er til að unnt Tvö af húsum þcim er Byggung reisti við Engjahjalla í Kópavogi. Byggung í Kópavogi fær úthlutað verði að ljúka við haustið 1982. Einnig gerir Byggung sér vonir um að fá frekari lóðaúthlutun í Ástúns- og Grænuhlíðarlandi. Félagið er nú að skila af sér fjórða áfanganum við Engjahjalla en þar var því úthlutað 132 íbúðum í júlí 1975 og var áaetlaður byggingartími þeirra fimm til sjö ár. Kostnaður við 97 ferm. 3ja herb. íbúð er 18—19 milljónir en ef reiknað yrði til verðlags í dag væri það á bilinu 23—24 milljónir. Innifalið í þessu verði eru allar sameiginlegar framkvæmdir full- frágengnar, auk þess eru íbúðirn- ar afhentar fullbúnar. í viðtali við Mbl. sagði Bragi Michelsen, framkv.stj. Byggungs, að vinna hefði aldrei fallið niður þau fimm ár sem hefði tekið að reisa þessi hús. Auk þess hefðu eigendur lagt fram drjúgan skerf við fram- kvæmdirnar og nefndi sem dæmi að við fyrsta áfanga hefði vinna eigenda við íbúðir verið metin á 24 milljónir kr. I ræðu sem Bragi hélt af þessu tilefni sagði hann m.a.: Það er skoðun mín að löggjafinn og verkalýðshreyfingin eigi að sýna þessu félagsformi meiri athygli. Barátta okkar við verðbólgu, húsnæðisvanda, land- flótta og atvinnumöguleika fjöl- margra aðila í byggingariðnaði er ekki síst hlutverk ráðamanna hvort .sem er á Alþingi eða í bæjarstjórn. Samstarf þessara aðila við byggingarsamvinnufélög og verk- taka í byggingariðnaði eru leið til að útrýma félagslegum vandamál- um, húsnæðisskorti og atvinnu- leysi. Það er því rangt að mínu mati af Alþingi að setja ekki í lög um Húsnæðismálastjórn ákvæði um þessi samskipti." Hluti 3ja herb. íbúðar sem Byggung afhenti nú í mai. „Misskilningur að röntgenmynda- tækin séu úreltu — segir Þórður Þorvarðarson á Landspítalanum „ÞAÐ er mesti misskilningur að þau tæki (mammografi) sem til eru hér á landi til röntgenmynda- töku á brjóstum séu úrelt eða úr sér gengin,“ sagði Þórður Þor- varðarson deildarstjóri tækni- deildar með röntgentæki á Land- spítalanum en í Morgunblaðinu í fyrradag kom fram í viðtali að hér á landi væri aðeins eitt slíkt tæki til og úr sér gengið. „Það eru til tvö tæki af þessari gerð hér á landi, á Landspítalanum og á Akureyri," sgði Þórður, „Hér er um að ræða módel 1972 og er tækið sjálft eins og nýrri tæki, en hluti af hliðarútbúnaði hefur þróast nokkuð. Þetta tæki stendur fyllilega fyrir sínu og er notað til nákvæmrar myndatöku á útlimum. Hins vegar má geta þess að við eigum ekki hér á landi tölvustýrða sneiðmyndatöku sem þykir nauð- synleg víðast erlendis og kom á markað um 1974. Slíkt tæki kostar um 350 milljónir króna og að þessu leyti erum við á eftir en við erum mjög vel búin öllum almennum röntgenmyndatökutækjum þótt því sé ekki að neita að dýru tækin vantar." Dæmdur í örygg- isgæslu vegna manndráps í GÆR var kveðinn upp í Sakadómi Reykjavfkur dómur í máli, sem höfðað var gegn Guðbrandi Magn- ússyni. Æsufelli 4, fyrir manndráp. Niðurstaða dómsins varð sú, að Guðbrandur væri sannur að því að hafa orðið móður sinni, Elínborgu Guðbrandsdóttur. að bana á heimili þeirra hinn 3. desember 1979. Var einnig talið sannað, að Guð- brandur hefði unnið verk þetta í geðveikiskasti og hann hefði þá verið allsendis ófær um að stjórna gerðum sínum. Var hann því sýknaður af refsikröfu, en dæmdur til þess að sæta öruggri gæslu á viðeigandi stofnun. Kosningaskrifstofa Guðlaugs í Kópavogi Opnuð hcfur verið kosninga- skrifstofa stuðningsmanna Guð- laugs Þorvaldssonar í Kópavogi að Skemmuvegi 36. Kosninganefndina skipa: Eggert Steinsen, formaður, Sig- tryggur Jónsson, Fríða Einars- dóttir, Ásgeir Pétursson, Sigur- laug Zóphoníasdóttir, Gunnar Þorleifsson, Guðbjörg Sigurðar- dóttir, Halldór Halldórsson, Há- kon Sigurgrímsson, Jón H. Guð- mundsson. (Fréttatilkynning). Ákvarðanir um nýja stórvirkjun og fram- hald stóriðju verour að taka á næsta ári 575 gígawattstundir á ári. Virkjuninni gæti orðið lokið 1985—86. Það er mikilvægt, að um tiltölulega einfalda virkjun er að ræða á svæði, þar sem öll aðstaða er fyrir hendi og af þeim ástæðum yrði væntanlega unnt að ljúka virkjuninni á skemmri tíma en virkjunum annars staðar á landinu. Blönduvirkjun. Hún er stórvirkjun að meðalstærð og gæti orðið 150—180 megawött að afli og framleiðslugeta um 800 gígawattsstundir á ári. Rannsóknum við Blöndu er ekki lokið og allmikil óvissa ríkir um samninga um virkjunaraðstöðu við heimamenn. Með hliðsjón af þessu og að undirbúningur og aðstaða á virkjunarsvæði er ekki fyrir hendi myndi vafalaust taka lengri tíma að ljúka við virkjun Blöndu en virkjun við Sultartanga. Fljótsdalsvirkjun. Þessi virkjun yrði að svipaðri stærð og Búrfellsvirkjun að því er varðar orkuframleiðslu en nokkru aflmeiri eða um 300 megawött að afli og framleiðslugetan um 1500 gígawattsstundir á ári. Vegna stærðar virkjunarinnar og mikils undirbúnings, sem nauðsynlegur er á nýju virkjunarsvæði er varla talið hugsanlegt, að Fljótsdalsvirkjun geti orðið fullgerð fyrr en 1987-88. Orkuframleiðsla og stóriðja — Samkvæmt þessu þrengjast valkostir manna varðandi stóriðju mjög eftir því, hvaða virkjunarkost þeir velja? — Af þessu yfirliti virðist mega draga þá ályktun, að aukning orkufreks iðnaðar næstu 5—6 árin eða svo verði háð því, hvort aukin orka fæst frá Kröflu og/eða hvort hægt verður að auka verulega framleiðsiugetu á Þjórsár- æðinu ekki síðar en um 1986 eða svo. Um leið og ég segi jtta legg ég áherslu á fyrirvarann, sem ég nefndi í upphafi, að hugmyndir um tímasetningu og ákvarðanir kunna að breytast, þegar fyrir liggja lokaniðurstöður þeirra rannsókna, sem nú fara fram á vegum Landsvirkj- unar, Orkustofnunar og Rafmagnsveitna ríkisins. — í erindi þínu á dögunum nefndir þú fjóra kosti, þegar metnir væru næstu áfangar við uppbyggingu orkufreks iðnaðar, þar af tengdust þrír Grundartanga og Straumsvík vegna þeirrar aðstöðu, sem þegar er þar með hliðsjón af mannvirkjum og annarri grundvallaraðstöðu og fjórði kosturinn var stóriðja á Austurlandi. Hvernig tengjast þessir kostir þeim virkjunum, sem áður voru hér nefndar? — Val á virkjanaröð hefur að sjálfsögðu áhrif á það, hvernig staðið verður að framkvæmdum við orkufrekan iðnað. Orka frá Blönduvirkjun kæmi þannig inn í landskerfið, að hún gæti að verulegu leyti nýst til stækkunar verksmiðjunum við Grundartanga og Straumsvík. Fjarlægðin frá Blöndu til þessara staða er ekki mjög mikil og burðargeta dreifikerfisins nægir til slíks orkuflutnings. Á hinn bóginn er erfitt að hugsa sér stórvirkjun Jökulsár í Fljótsdal án þess að um leið verði komið upp orkufrekum iðnaði á Austurlandi, til dæmis Reyðarfirði þar sem hafnaraðstaða og ytri skilyrði eru að mörgu leyti mjög góð. Ef flytja ætti meginhluta orkunnar frá Fljótsdalsvirkjun til annarra landshluta mundi það kosta gífurlega fjárfestingu í nýjum háspennulínum auk óhjákvæmilegs orkutaps. — Hvað um sölu á raforku til Færeyja frá Fljótsdals- virkjun? — Slík orkusala kæmi ekki í stað stóriðju. Um hagkvæmni á sölu til Færeyja er lítið vitað enn sem komið er. En komi til hennar er á 10 ára bili ekki gert ráð fyrir, að nota þurfi meira afl en 60 megawött til að framleiða orku fyrir Færeyjar, svo að næg orka yrði eftir fyrir orkufrekan iðnað á Austurlandi. — Sé litið á þær hugmyndir, sem þú setur hér fram með sterkum rökum, virðist svo sem Norðurland verði sá landshlutinn, sem ekki fær orkufrekan iðnað í fyrirsjáan- legri framtíð. Er það ekki rétt? — Eins og málin standa í dag virðast mér minni líkindi til þess, að orkufrekur iðnaður verði byggður upp á Norðurlandi næsta áratuginn en reiknað var með fyrir nokkrum árum. Erfiðleikar við orkuöflun á Norðurlandi bæði við Laxá og Kröflu valda hér miklu um, en auk þess virðist nú lengra í virkjun Jökulsár á Fjöllum en áður var talið. Orkufrekur iðnaður við Eyjafjörð, þar sem skilyrði eru best til dæmis með hliðsjón af hafnaraðstöðu og vinnuafli verður því varla á næstu árum eins vel í sveit settur miðað við orkuöflun eins og áður var talið. Ef Fljótsdalsvirkjun kemur til sögunnar á næsta áratug virðist vænlegra að orkufrekur iðnaður taki sér bólfestu á Austfjörðum. — Þegarráðist hefur verið í þær virkjanir, sem þú hefur hér lýst, hvað hefur þá verið virkjað mikið af virkjanlegu vatnsafli landsins? — Með þessum virkjunum öllum verður heildarfram- leiðslugetan orðin um 7000 gígawattsstundir. Samkvæmt athugunum Landsvirkjunar nýlega á virkjanlegu vatnsafli á landinu er hagkvæmt að virkja vatnsafl, sem svarar til 30 þúsund gígawattsstunda orkuframleiðslu á ári. Þannig að þau áform, sem við höfum hér rætt nema um 23% af heildarvatnsaflinu. Þá er hins vegar eftir að taka með í reikninginn, að væntanlega er unnt að virkja mjög mikið af jarðgufu, og þá líklega ekki minna en sem nemur 20 þúsund gígawattsstundum á ári. Samkvæmt þessu ætti því að vera langt í land, áður en íslendingar þyrftu að hafa áhyggjur af orkuskorti. — Að lokum, Jóhannes, hefði verið ráðist í virkjun Þjórsár við Búrfell, ef ekki hefðu tekist samningar við Alusuisse um álverið í Straumsvík? — Nei, Búrfellsvirkjun hefði ekki orðið fyrir valinu á sínum tíma án samningsins við Alusuisse eða smíði álversins. Þegar lögin um Landsvirkjun voru sett 1965 voru það einkum þrír virkjunarkostir, sem menn veltu fyrir sér. I viðræðum um fjármögnun þessara virkjana kom skýrt í ljós, að okkur var algjörlega um megn að ráðast í fjáröflun til Búrfellsvirkjunar nema með því að selja strax verulegan hluta orkuframleiðslunnar. Án samningsins um álverið hefði því væntanlega verið ráðist í gufuvirkjun í Hvera- gerði og líklega þar á eftir í virkjun Brúarár við Efstadal. Og þannig hefði verið haldið áfram að virkja smátt og smátt fyrir innanlandsmarkað án þess að stíga skrefið til stórvirkjana. Og ég er satt að segja mjög í vafa um hvenær skilyrði hefðu orðið að nýju jafn hagstæð og þegar ráðist var í Búrfellsvirkjun. Það hefði ef til vill ekki orðið fyrr en nú, þegar svonefnd orkukreppa herjar á heimsbyggðina. Búrfellsvirkjun markaði tvímælalaust tímamót í raforku- framleiðslu hér á landi. Virkjunin hafði þrisvar sinnum meiri framleiðslugetu en öll þau orkuver samtals, sem fyrir voru í landinu. Ólíklegt er, að svo stórt stökk verði aftur tekið í virkjunarmálum í fyrirsjáanlegri framtíð. Sigöldu- virkjun eykur getu kerfisins til dæmis um þriðjung og Hrauneyjafoss annað eins og stærsta virkjunin, sem menn hafa nú á prjónunum, Fljótsdalsvirkjun, yrði að svipaðri stærð og Búrfellsvirkjun. Bj.Bj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.