Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980 31 Nokkur orð til Bridges^m bands íslands að loknu Is- landsmóti í tvímenningi íslandsmótinu í Bridge er nú lokið, með heljarstökki aítur á bak og er þá átt við þátt Bridge- sambands ísiands, undirbúning. fyrirkomulag og framkvæmd mótsins. Skal nú reynt að tína tii helstu vankantana og kannske þá helst sem snerta okkur utanbæjar- menn mest, en fyrir okkur er það töluvert mál að taka þátt i svona móti. Um það bil viku fyrir mótið, reyndum við að fá uppgefna ná- kvæma dagskrá mótsins, en þá lá hún ekki fyrir og sýnir það að eitthvað hefur undirbúningurinn verið losaralegur. Þetta upplýstist þó um síðir, en þá virtist sem stjórn B.I. hefði alveg gleymt að reikna með öðrum keppendum en frá Reykjavík og næsta nágrenni. Mótið átti semsé að hefjast fimmtudag 15. maí (uppstign.dag) kl. 13, önnur umferð sama dag kl. 20 og þriðja umferð föstudag kl. 20. Urslitakeppnin átti að byrja á laugardag kl. 13 og vera lokið kl. 19 á sunnudag. Þessi dagskrá er e.t.v. ekki svo slæm fyrir keppendur sem búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu, en lítum á þetta frá sjónarhóli okkar utanbæjarmanna og þá helst þeirra sem lengst þurfa að sækja og þá eð flugvélum eða lengri bílferðum. Flestir þurfa að leggja af stað á miðvikudegi 14. maí og margir fyrir hádegi þann dag, til að vera öruggir um að komast í tæka tíð. Þeir þurfa semsagt að taka frí frá vinnu þann dag. Á föstudegi hófst spilamennskan kl. 20. Þann dag máttum við liggja á hótelherbergjum eða hjá vensla- fólki á meðan keppendur sem bjuggu á réttum stað á landinu voru í vinnunni. Undankeppninni var lokið um miðnætti á föstudag og þá var tilkynnt að hringja mætti í ákveð- ið símanúmer eftir 10—12 klst. til að fá uppgefna stöðuna, en það er 1—3 klst. áður en úrslitakeppnin átti að hefjast. Líklegt er að u.þ.b. 30 pör hafi ekki verið viss um hvort þau kæmust í úrslit eða ekki. Landsbyggðamenn í þeim hópi hafa því ekki getað lagt snemma af stað heim þann morg- un. Nú ef þeir spila í úrslitakeppn- inni, geta þeir ekki lagt af stað fyrr en á mánudag og þá þarf að fá frí í vinnunni þann dag. Þessir menn þurfa því að taka frí í vinnu 3 daga, auk þess að greiða dýr ferðalög og búa á hóteli í 5 daga á meðan keppendur úr Reykjavík og nágrenni stunda sína vinnu, búa heima hjá sér og spila í frístundum. Ef hugsað hefði verið til okkar utanbæjarmanna, hefði dagskráin litið öðru vísi út, t.d.: 1. umf. undanúrslit miðvikudag kl. 20, 2. umf. fimmtudag kl. 13 og 3. umf. sama dag kl. 20, úrslitin síðan að liggja fyrir í símsvara um nóttina, strax að útreikningi lokn- um. Þá hefðu þeir sem vildu getað lagt af stað heim til sín á föstudagsmorgni og átt helgina með fjölskyldum sínum. Úrslita- keppnin hefði þá hafist á föstu- degi kl. 13 og verið lokið um kvöldverðarleytið á laugardegi. Þá hefðu keppendur getað farið að tygja sig heim á leið, eða lyft sér upp í borginni á laugardagskvöld- inu, en fyrst og fremst, verið mættir til vinnu á mánudags- morgni. Þá er það mótsstaðurinn: Það er nánast furðulegt að láta 128 keppendur spila í svo litlum húsakynnum. Það er kannske vegna húsnæðisins að mótið var svo illa auglýst að fréttamenn útvarps, sjónvarps og blaða virt- ust ekkert vita af því (skákmenn hefðu farið öðru vísi að). Áhorf- endur hafa sennilega aldrei verið fleiri en 20 í einu nema þá e.t.v. síðustu mínúturnar. Stjórn B.í. virðist hafa gert sér grein fyrir því að mótinu yrði að halda sem mest leyndu, því ekki væri pláss fyrir áhorfendur. Veitingaaðstaðan var ekki sæm- andi. Kaffihlé er u.þ.b. 20 mínútur og á þeim tíma eiga 128 keppendur og 10—20 áhorfendur að kaupa sér kaffi og meðlæti um lúgu sem er u.þ.b. 2 metrar á breidd. I mótsbyrjun las keppnisstjóri upp úr reglugerð um íslandsmót, en ekki urðum við varir við að nokkur af forystumönnum B.í. setti mótið. Menn verða að athuga að þetta er íslandsmót og það í þeirri grein íþrótta sem flestir Islendingar stunda, að knatt- spyrnu e.t.v. undanskilinni. Það ætti að vera svolítið virðulegri blær yfir keppninni en ekki eins og um venjulegt spilakvöld hjá einhverju félagi væri að ræða, jafnvel þó sumir keppenda virðist ekki bera virðingu fyrir íþrótt sinni, ef dæma á eftir klæðaburði þeirra. Samkvæmt reglugerð um ís- landsmót sem gilt hefur í nokkur ár skulu keppendur útfylla kerf- iskort og láta það vera á spila- borðinu, andstæðingum til glöggv- unar. Form þessara kerfiskorta hafði þróast upp í það að vera allgott. Á Islandsmótinu í sveita- keppni í apríl sl. brá hins vegar svo við að tekið var upp áður aflagt form. Það var spor aftur á bak. Á þessu tvímenningsmóti var kerfiskortið svo lélegt að fáir útfylltu það og engum þótti taka því að hafa það uppi við. Þá komum við að keppnisfyrir- komulaginu. Undanrásir voru spilaðar með svonefndu Mitchell- kerfi, en það kom nokkuð flatt upp á keppendur, sem héldu að ætti að spila barometer allt fram til þeirrar stundar að keppnisstjóri bauð til sætis. Þessu kerfi getum við ekki mælt með, af ýmsum ástæðum svo sem: 64 pör keppa, en hvert par spilar aðeins við 42 pör eða áðeins % þeirra. Þarna getur skapast misrétti. Útreikningúr liggur ekki fyrir fyrr en 5—6 klst. eftir hverja umferð og þar af leiðandi dettur niður spenna hjá keppendum og verður aldrei nein meðal áhorfenda. Einn áhorfandi sem kom til leiks, vegna þess að hann átti kunningja meðal keppenda hafði orð á því að hann hefði séð spilara gera góða hluti við spilaborðið. Galli væri hinsvegar á að hann vissi ekki hver eða hverjir ættu í hlut. Hann stakk upp á að spilarar skyldu bera merki með nafni sínu og svæðasambandi á. Komum við þessu hér með á framfæri. Ekki þótti áhorfanda þessum mikil reisn yfir B.í. með yfir 1200 meðlimi innanborðs að þurfa að fá lánuð borðspjöld og skorblöð hjá félagsskap sem telur innan við 60 meðlimi. í úrslitakeppninni var spilaður barometer. Hingað til eða a.m.k. oftast áður hafa verið fengnir unglingar til að dreyfa spilum milli keppenda. í þessu móti þurftu keppendur sjálfir eða keppnisstjóri að sjá um þetta. Svona á þetta ekki að vera, jafnvel þó yfirferð Agnars keppnisstjóra sé mikil, á hann sjálfsagt erfitt með að vera á m'örgum stöðum samtímis (þó það hafi reyndar hvarflað að mönnum). Að lokum óskum við þeim Guð- laugi og Erni til hamingju með sigurinn, sem þeir eru mjög vel að komnir, svo og þökkum við keppn- isstjóranum Ágnari Jörgensen fyrir aldeilis frábæra stjórn, hans er ekki sökin. Reyðarfirði, 23.05.80 Ásgeir Metúsalemsson Hallgrimur Hallgrimsson Kristján Kristjánsson Þorsteinn Olafsson Frá íslandsmótinu i tvímenningi. FALLEGT OG STERKT v •“iSi '-'-"Ti jjn i Fit-? r mum Þú getur valið um 11 gerðir eldhúsa frá NOREMA í mismunandi að þær þyldu miklanotkun. Við veitum þérallar ráðleggingaroggerum verðflokkum. Allar eiga þær það sameiginlegt, að vera fallegar og þér verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. sterkar. Við gerð þessara innréttinga hefur verið lögð sérstök áhersla á Hringdu eða komdu, og fáðu litprentaðan bækling frá Norema innréttingahúsiö BIIMOREMA Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344 ------------------Aug lýsing - GUDLAUGS Hvers vegna kýst þú Guðlaug? Björn Kristjánsson, fulltrúi: Ég kýs Guðlaug að feng- inni reynslu af fyrri störf- um hans og vegna þess að þau hjónin eru mjög sam- stillt til að gegna þessu starfi. Edda Birgisdóttir, húsmóðir: Ég þekki hann af góðu og treysti honum til að sinna þessu embætti jafnvel og öllum öðrum, sem hann hefur gegnt. Hilmar Viktorsson, skrifstofustjóri: Guðlaugur er samein- ingartákn þjóðarinnar og manna hæfastur á grundvelli þeirra starfa sem honum hafa verið falin og hefur leyst af mikilli prýði. Hrönn Pétursdóttir, bankastarfsmaður: Mér finnst hann hafa mest til brunns að bera af þeim sem til greina koma, hann er t.d. algjörlega ópólitízk- ur Örn Sigurbergsson, kennari: Guðlaugur er sá fram- bjóðandi, sem ég treysti bezt til að halda reisn og virðuleika forsetaembætt- isins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.