Morgunblaðið - 31.05.1980, Qupperneq 46
46
Badminton á
íþróttahátíð
ÍÞRÓTTAHÁTÍÐ Í.S.1. 1980
fer fram í Reykjavík dagana
26.-29. júní n.k. Á hátíðar-
daKskránni er m.a. fjögurra
daga mót í hadminton og
verður það haldið í hússi TBR.
Gnoðavogi 1.
Meðal þátttakenda i þessu
móti verða 4—6 Danir, sem
koma hingað í boði BSÍ og 1A.
Viljum við skora á alla bad-
mintoniðkendur að mæta til
leiks.
keppnisgjald:
einl. tvíl/tvennd
Meistaraflokki 4000 3000
A-flokki 4000 3000
B-flokki öðlingaflokki 4000 3000
(40—50 ára) Öldungaflokki (50 ára og 4000 3000
eldri) Drengir—telpur (’64—’65) Sveinar— meyjar (’66—’67) Hnokkar—tátur 4000 3000
2500 2000
2000 1500
(’68— ) 1500 1000
Þeir þátttakendur sem fædd-
ir eru árið 1964 verða að velja
hvort þeir keppa í unglinga eða
fullorðinsflokkum. í fullorðins-
flokkum hefur hver þátttak-
andi einungis rétt á að keppa í
einum flokki.
Mótið hefst með sérstakri
dagskrá strax eftir setn-
ingarathöfn Íþróttahátíðarinn-
ar, en ætlast er til að allir
þátttakendur taki þátt í henni.
Áætluð dagskrá mótsins er
sem hér segir, en hugsanlegt er
að breytinagar verði á henni:
Fimmtudagur 26. júní:
Setning og forkeppni
Föstudagur 27. júní:
Keppt í öllum greinum í ungl-
ingaflokkum.
Keppt fram í einliðaleik í
fullorðinsflokkum.
Laugardagur 28. júní:
Keppt að undanúrslitum í ein-
liðaleik.
Keppt fram að úrslitum í
tvíliða- og tvenndarleik.
Sunnudagur 29. júni:
Undanúrslit og úrslit í einliða-
leik.
Úrslit í tvíliða og tvenndarleik.
Mótsslit.
Þátttökutilkynningar skulu
berast BSÍ fyrir 10. júní.
Sund á
íþróttahátíð
í sambandi við Iþrótta-
hátíð Í.S.Í. 1980 hefur Sund-
samband íslands þegar
gengið írá sundgreinum sem
keppt verður í á hátíðinni.
Þær eru allar miðaðar við
fjöldaþátttöku utan Reykja-
víkur og í öilum aldurs-
flokkum sundsins.
Sundkeppnin fer fram tvo
daga og verður eins og hér
greinir:
Laugardaginn 28. júní kl. 18.00.
1. 200 m fjórsund karla
2. 200 m fjórsund konur
3. 100 m skriðsund pilta
4. 100 m skriðsund stúlkur
5. 100 m bringusund drengir
6. 100 m bringusund telpur
7. 50 m baksund sveinar
8. 50 m baksund meyja
9. 100 m baksund karla
10. 100 m baksund konur
11. 100 m bringusund piltar
12. 100 m bringusund stúlkur
13. 50 m skriðsund sveinar
14. 100 m skriðsund telpur
Sunnudaginn 29. júní kl. 17.00
15. 100 m bringusund karla
16. 100 m bringusund konur
17. 50 m flugsund pilta
18. 50 m flugsund stúlkur
19. 100 m skriðsund drengir
20. 50 m baksund telpur
21. 50 m bringusund sveinar
22. 50 m bringusund meyja
23. 100 m skriðsund karla
24. 100 m skriðsund konur
25. 100 m baksund pilta
26. 50 m skriðsund meyja
27. 100 m baksund stúlkur
28. 50 m baksund drengir
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980
Knattspyrna um helgina
HELGIN er hin rólegasta á knattspyrnusviðinu, aðeins tveir leikir í 2.
deild eru á dagskrá. Ármann og Völsungur leiða saman hesta sina á
Laugardalsvellinum i dag og hefst leikurinn klukkan 14.00. Á
Eskifirði leika Austri og Þór frá Akureyri. Hefst leikur þeirra
klukkan 16.00.
Fáeinir leikir eru einnig á dagskrá i 3. deild. Eru það eftirtaldar
viðureignir.
Laugardagur 31. mai.
2. deild ísafjarðarvöllur kl. 14.00 ÍBÍ—Haukar
2. deild Eskifjarðarvöllur kl. 16.00 Austri—Þór
2. deild Laugardalsvöllur kl. 14.00 Ármann —Völsungur
3. deild A Sandgerðisvöllur kl. 16.00 Reynir—Leiknir
3. deild Melavöllur kl. 14.00 Léttir—Katla
3. deild B Njarðvíkurvöllur kl. 16.00 Njarðvík—Grótta
3. deild Varmárvöllur kl. 16.00 Afturelding—Víðir
3. deild Grindavíkurvöllur kl. 16.00 Grindav.—Hverag.
3. deild C Borgarnesvöllur kl. 16.00 Skallagrímur—HÞV
3. deild Búðardalsvöllur kl. 16.00 Ólafur Pá—Víking. O
3. deild Hellissandsvöllur kl. 16.00 Reynir H—Snæfell
3. fl. C Grundarfjarðarvöllur kl. 16.00 Grundarfj.—Þór V
4. fl. C Njarðvíkurvöllur kl. 14.00 Njarðvík—ÍBÍ
5. fl. C Gróttuvöilur kl. 16.00 Grótta—Þór V
Sunnudagur 1.júní
4. fl. C Sandgerðisvöllur kl. 16.00 Reynir—ÍBÍ
5. fl. C Borgarnesvöllur kl. 16.00 Skallagrímur—ÞórV
Mánudagur 2. júni
Landsleikur laugardalsvöllur kl. 20.00 Islands—Wales.
I Skúli óskarsson verður i hópi þeirra jötna sem ráðast á lóðin á
[slandsmeistaramótinu i kraftlyftingum i dag.
Frá siglingakeppni í Nauthólsvik.
Nokkrir bátar ultu
og sum stýrin brotnuðu
LAUGARDAGINN 24. maí sl. var haldin siglingakeppni á Fossvogi á
vegum Siglingasambands íslands. Keppni þessi er liður í punkta-
keppni S.I.L. 12 hátar tóku þátt í keppninni en urðu nokkrir frá að
hverfa þar sem allhvasst var og ultu nokkrir bátar.
I upphafi keppninnar tóku forustu Páll Hreinsson og Guðmundur Jón
Björgvinsson á Fireball, en Rúnar Steinsen fyigdi fast á eftir á Laser
bát. Páll og Gunnar voru komnir með afgerandi forustu að því er virtist
þegar stýrið brotnaði hjá þeim og urðu þeir að hætta keppni. Smátt og
smátt jók Rúnar Steinsen á forskotið og kom langfyrstur í mark.
Keppnin var mjög skemmtileg og spennandi brautin var lögð af Brynjari
Valdimarssyni formanni S.Í.L. en hann var keppnisstjóri.
a Úrslit urðu þessi:
Nafn Bátur Forgj. Tími Umr. tími
1. Rúnar Steinsen, Ými Laser 114 62,54 33,11
2. Gunnar Guðmundss., Vogi Topper 138 72,52 33,85
3. Bjarni Hanness., Vogi Vayferer 116 65,52 34,07
Kjartan Mogesen, Vogi
Óskar og Skúli meóal
keppenda á kraft-
lyftingamóti íslands
10. Meistaramót íslands í
kraftlyftingum verður haldið í
Laugardalshöllinni laugardag-
inn 31. maí n.k. og hefst kl. 13.00.
27 keppendur eru skráðir til
leiks frá 4 félögum eða héraðs-
samböndum
í 60 kg flokki eru tveir Vest-
mannaeyingar skráðir og verður
að telja Kristján Kristjánsson
öruggan sigurvegara, en spurning-
in er hversu mörg met falla hjá
honum.
í 67 kg flokki mun Kári Elísson
IBA reyna að bæta íslandsmet í
bekkpressu og keppinautur hans
Daníel Olsen, sem nýlega bætti
íslandsmetið í hnébeygju mun
reyna að bæta það enn frekar. í 75
kg flokki verður hörð keppni milli
Baldurs Borgþórssonar KR og
Vestmannaeyinganna Hermanns
Haraldssonar og Snæbjörns Snæ-
björnssonar. Hugsast getur að
Akureyringur blandi sér í barátt-
una. í 82,5 kg flokki verður
sjálfsagt hámark keppninnar.
Skúli Oskarsson UÍA mun reyna
að endurheimta metið í þessum
flokki frá keppinaut sínum þar
Sverri Hjaltasyni KR. Eiga þeir
nú báðir jafngóðan árangur í
samanlögðu 742,5 kg svo sigurinn
er hvorugum vís fyrr en í síðustu
lyftu.
í 90 kg flokki eru 4 skráðir til
leiks og getur orðið um að ræða
töluverða keppni um einhver sæt-
in.
Hin gamalkunni keppnismaður
Óskar Sigurpálsson ÍBV er
skráður í 100 kg flokk að þessu
sinni. Auk þess að berjast við
Islandsmetin í flokknum fær hann
nokkra stórefnilega kraftlyft-
ingamenn til keppni við sig og
fréttst hefur að Halldór E. Sigur-
björnsson KR muni ekki ætla að
láta sig fyrr en í fulla hnefana.
I 110 kg flokk eru skráðir tveir
feðgar frá Akureyri, faðirinn
rúmlega fimmtugur. Verður gam-
an að fylgjast með viðureign
þeirra. I yfirþungavigtinni verða
þrír keppendur, allt hin mestu
tröll. Silfurverðlaunamaðurinn
frá Evrópumeistaramótinu í Sviss
Jón Páll Sigmarsson KR fær í
heimsókn „norðurhjaratröllið"
Arthúr Bogason og „heimskauta-
bangsann" Víking Traustason,
sem af norðanmönnum er talinn
hafa verið skapaður sérstaklega
til að handfjatla lyftingastöng.
Marteinn setur
landsleikjamet
— leikur sinn 46. landsleik
gegn Wales á Laugardalsvelli
LEIKI Marteinn Geirsson með islenska landsliðinu gegn Wales, eins
og gera má fastlega ráð fyrir, þá setur hann þar með nýtt
landsleikjamet. Bæði Marteinn og Matthías Ilallgrímsson hafa leiitið
45 landsleiki og leikur Marteins gegn Wales verður númcr 46. Má
fastlega gera ráð fyrir því að Marteinn bæti metið um all marga leiki,
því að hann hefur sjaldan verið sterkari en einmitt nú.
Jóhannes Eðvaldsson hefur oft-
ast verið fyrirliði íslenska lands-
liðsins.
Ekki er ólíklegt að Mar-
teinn taki við af honum, því að
Ásgeir Sigurvinsson mætir ekki
til leiks. Næstur á eftir Jóhannesi
kemur Ríkharður Jónsson, en
hann hefur 24 sinnum verið fyrir-
liði liðsins.