Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980 23 Iran: Ný skakkaföll í gísladeilunni Olíuskip undir byssukjöftum Teheran, 30. maí. AP. BANDARÍKIN urðu í dag íyrir tvíþættu áfalli í gísladeiiunni. Nýja þingið frestaði umræðum um gislana til 22. júlí og sam- kvæmt refsiaðgerðum sem Bretar gripu til í dag gegn íran verða á þeim ýmsar glufur sem gera brezkum fyrirtækjum kleift að eiga áfram ábatasöm viðskipti við landið. Líberia kall- ar heim sendiherra Monroviu, Líberíu. 30. maí. AP. LÍBERÍA kunngerði í dag. að ákveðið hefði verið að kalla heim sendiherra landsins í Nígeríu, Sierra Leone og Fílabeinsströnd- inni til skrafs og ráðagerða. Fylgir þetta í kjölfar neitunar frá forsvarsmönnum þessa landa um að Líbería fái að taka þátt i efnahagsmálaráðstefnu ríkja Vestur-Afríku sem verður í Lome í Togo. Gabriel Baccus, utanríkisráð- herra Líberíu, sagði einnig að Líberia myndi íhuga að draga til baka skuldbindingar og samn- inga við þessi ríki og fleiri í Vestur-Afríku, að minnsta kosti þar til réttlætið hefði sigrað. Yadolah Sahabi, bráðabirgða- forseti íranska þingsins, gaf þá skýringu á frestun umræðnanna að áður en gíslamálið yrði tekið fyrir yrði að ræða mörg önnur mikilvæg mál og að þær umræður yrðu tímafrekar. Margir þingmenn hafa lýst yfir stuðningi við þá yfirlýsingu náms- mannanna, sem halda gíslunum, að leiða verði gíslana fyrir rétt og refsa þeim ef fyrrverandi írans- keisari verði ekki framseldur. Samkvæmt refsiaðgerðum Breta verða allir samningar sem voru gerðir fyrir miðnætti á fimmtudag hafðir í heiðri og sala verður bönnuð á öllum vöruteg- undum nema vissum matvælum og lyfjum. Hins vegar fá brezk fyrirtæki að halda áfram viðskiptum við íran ef þau eru við sömu viðskiptavini og áður og ef um er að ræða viðskipti með svipaðar vöruteg- undir og áður. Leyft er að auka viðskipti samkvæmt gildandi samningum og gera nýja ef þeir eru á sama sviði og áður. Sérfræðingar telja að viðskipti Breta við íran, sem nema nú 1,6 milljónum dollara, minnki aðeins um 10%. Margir Bretar telja refsiaðgerðirnar aðeins táknræn- ar, fremur til þess ætlaðar að varðveita samstöðu vestrænna ríkja en beita íran þrýstingi. Veður víða um heim Akureyri 8 skýjaö Amsterdam 18 heiðskírt Aþena 28 heið8kírt Barcelona 17 léttskýjað Berlín 17 rigning BrUssel 17 skýjað Chicago 27 rigning Denpasar 31 skýjaö Dublin 14 rigning Feneyjar 19 léttskýjað Frankfurt 23 rigning Genf 11 skýjað Helainki 19 skýjað Hong Kong 27 rigning Jerúsalem 34 heiöskírt Jóhannesarborg 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 14 skýjað Lissabon 20 skýjað London 16 skýjað Las Palmas 21 léttskýjað Los Angetes 21 skýjað Madríd 20 skýjað Malaga 25 skýjaö Mallorca 22 skýjað Mexicoborg 28 heiðskírt Miami 29 skýjað Moskva 20 heiöskirt Nýja Delhi 38 heiðskírt New York 25 skýjað Ósló 13 skýjað Parfs 17 sólskin Reykjavfk 9 léttskýjaö Rio de Janeiro 31 heiðskírt Róm 15 bjart San Francisco 15 heiðskfrt Stokkhólmur 18 skýjað Tel Aviv 29 heiðskírt Tókýó 27 skýjað Vancouver 18 skýjað Vfnarborg 21 skýjað Napoli, 30. maí. AP. NÝR bandarískur flotaforingi, William J. Cowe aðmíráll. tók í dag við yfirstjórn herafla Atl- antshafsbandalagsins í Suður- Evrópu af Harold E. Shear að- mírál við hátíðlega athöfn þar sem varað var við vaxandi hern- aðarmætti Sovétríkjanna á Mið- jarðarhafi. Shear sagði í kveðjuávarpi að 1976 — Indónesar leggja undir sig Austur-Tímor. 1970 — Rúmlega 66.000 biðu bana, 20.000 týndust og 200.000 slösuðust í jarðskjálfta í Perú. 1966 — Evariste Kimba, fv. for- sætisráðherra Kongó, og þrír aðrir dæmdir í Kongó fyrir samsæri um að myrða Mobutu forseta. 1962 — Stríðsglæpamaðurinn Adolf Eichmann tekinn af lífi. 1961 — Suður-Afríka verður sjálfstætt lýðveldi utan Brezka Samveldisins. 1942 — Tékkneskir ættjarðarvinir gera árás á nazistaleiðtogann Reinhard Heydrich í Prag (lézt síðar). 1939 — Danir gera griðasamning við Þjóðverja. 1937 — Árás þýzks flota á Almer- ia, Spáni, í hefndarskyni við árásir lýðveldissinna á orrustuskipið „Deutschland“. 1926 — Gomes de Costa gerir stjórnarbyltingu í Portúgal. 1916 — Sjóorrustan við Jótland. 1910 — Sambandsríki Suður- Afríku stofnað. 1902 — Búastríðinu lýkur með friðnum í yereeniging. 1793 — Ógnarstjórnin í Frakk- landi hefst. þótt bandalagið yrði að viðhalda mætti sínum í Mið-Evrópu yrði það að einbeita sér að vörnunum á fylkingarvængjunum. Hann benti á að Evrópa fengi 60% oiíu sinnar frá Persaflóa og Norður-Afríku og sagði að umtals- verður hluti siglingaleiðar olíu- flutningaskipanna væri „bókstaf- lega undir byssukjöftum Sovét- ríkjanna." 1643 — Samsærismenn konungs- sinna teknir höndum í Lundúnum. Afmæli — Walt Whitman, banda- rískur rithöfundur (1819—1910) — Rainier fursti af Monako (1923) — Sir Francis Younghusband, brezk- ur hermaður & landkönnuður (1863-1942). Andlát — 1809 Josef Haydn, tónskáld. Innlent — 1870 Bréf Jóns Sigurðs- sonar um stofnun Þjóðvinafélags- ins — 1875 d. Jón Guðmundsson ritstjóri — 1306 d. Snorri Sturlu- son yngri — 1735 Útlægur þjófur klífur Lóndrang hinn meiri í Vest- mannaeyjum — 1860 Pétur Haf- stein amtmaður fr áminningu í kláðamálinu — 1895 Skúli Thor- oddsen leystur frá störfum — 1922 Spánarvín undanþegin aðflutn- ingsbanni á áfengi — 1941 vb. „Hólmsteinn" talinn af — 1945 Minnsta barn á íslandi fæðist; þrjár merkur — 1959 HMS „Dun- can“ hótar að skjóta ^Maríu Júlíu" — 1961 Heimsókn Ólafs V Nor- egskonungs — 1973 Heimsókn Richard Nixons og Georges Pompi- dou. Orð dagsins — Við vitum of margt og erum sannfærðir um of fátt — T.S. Eliot, enskt skáld (1888— 1965). Þetta gerðist 31. maí I dag opnar nýtt þjónustufyrirtæki Réttur dagsins Alla virka daga frá kl. 17.00—19.00 seljum við ódýran heimilisrétt. Um helgar Laugardaga og sunnu- daga bjóðum við: Grillað lambalæri Bearnaise. Heimilis- þjónusta Alla virka daga seljum við sósur, salöt og franskar kartöflur. Um helgar afgreiðum við þessa rétti úr „heimil- ishorninu“ okkar. Heimsendingarþjón- usta alla daga — síminn er 71355. í Breiðholti við Völvufell Hamborgarar eru okkar sérgrein Fyrstir á íslandi bjóðum við ekta nautahamhorgara, að amerískum hætti. eins og þeir gerast bestir. Einnig: Mínútusteik, kjúklinga og kinverskar pönnukökur Nætur- þjónusta Föstudaga og laugar- daga er næturþjónusta til kl. 06.00 að morgni. Þið hringið í síma 71355 og við sendum matinn og gosdrykki ef þið óskið. íshornið / Askborgaranum er sérstakt íshorn með mjúkum ís, ískúlum, mjólkurhristingi og úr- vali ísrétta. Ask- borgarinn er fyrsti „take away“- staðurinn á íslandi, þar sem slík þjónusta er ein- göngu innt af hendi. All- ar veitingar staðarins eru afgreiddar í hentug- um umbúðum. Engin neysla er leyfð á staðnum. LITIÐ VIÐ OG LABBIÐ ÚT MEÐ LJÚFFENGA RÉTTI ÚR ASKBORGARANUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.