Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ1980
„Tollkríf4 — greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum:
Mjög ánægður með undir-
tektir við frumvörpin
— segir Matthías Á. Mathiesen alþingismaður
„Frumvarp um tollkrít það er
frestun á greiðslu aðflutnings-
gjalda ásamt frumvarpi til breyt-
„Við vorum lengi búnir að tala
máli tollkrítarinnar fyrir daufum
eyrum, þegar Matthías Á. Math-
iesen tók loks málið upp og
skipaði í það nefnd," sagði Hjört-
ur Hjartarson, fyrrum formaður
Verzlunarráðs íslands. „Við héld-
um því alltaf fram, að tollkrítin
myndi meðal annars verða til þess
að ríkið fengi sínar greiðslur fyrr,
en lengi vel strandaði málið á því
að tollstjórinn krafðist trygginga
fyrir því að menn stæðu skil á
aðflutningsgjöldum. Við bentum á
það, að tryggingar kostuðu fé og
að ekki væri krafizt trygginga
fyrir sköttum.
Nefndin, sem Matthías setti í
málið skilaði svo ítarlegum tillög-
inga á lögunum um tollheimtu og
tolleftirlit og tollskrá hafa nú
verið flutt á Alþingi í framhaldi
um, sem eru uppistaðan í því
frumvarpi, sem nú hefur verið
lagt fram.
Ég nefni sem dæmi, að tollar og
gjöld af einföldustu hreinlætis-
tækjum eru nú 170% miðað við
fob-verð og sama gildir um flest-
alla búshluti. Það eru því ómældir
peningar sem liggja í því að menn
geta ekki tekið út vöruna nægi-
lega fljótt og held ég að það verði
öllum fyrir beztu að taka upp það
fyrirkomulag að til að fá vöruna,
þá kvitti menn fyrir móttöku
hennar og geri svo upp eftir
ákveðnum reglum við tollyfirvöld.
Þetta tíðkast víðast hvar í heim-
inum.“
af þeirri undirbúningsvinnu sem
ég beitti mér fyrir, er ég gegndi
störfum fjármálaráðherra," sagði
Matthías Á. Matthiesen, alþingis-
maður í samtali við Mbl. „Hér er
um að ræða mikið hagsmunamál
fyrir landsmenn alla og ég tel
brýnt að Alþingi taki afstöðu til
lagabreytinga sem kveða á um
almennan greiðslufrest á aðflutn-
ingsgjöldum. Þannig yrði stuðlað
að sparnaði, hagræði og lægra
vöruverði, neytendum, flutnings-
aðilum og hinu opinbera til hags-
bóta.
Nefnd sú sem ég skipaði 1977
og fékk þetta mál til skoðunar
mælti einróma með því að upp
yrði tekinn greiðslufrestur á að-
flutningsgjöldum óg gerði grein
fyrir því í ítarlegu nefndaáliti,
þar sem Rekstarstofan (J. Ingi-
mar Hansson og Gunnar H.
Guðmundsson) hafði gert yfir-
gripsmikla úttekt á tollamálum
fyrir nefndina.
Hér fór saman álit embætt-
ismanna, svo og þeirra sem að
innflutningi stóðu, en nefndina
skipuðu; ríkisendurskoðandinn
Halldór E. Sigurðsson, tollstjór-
inn í Reykjavík Björn Hermanns-
son, Júlíus S. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri, Hjalti Pálsson
framkvæmdastjóri og Ásgeir Pét-
ursson, þá sýslumaður, sem var
formaður nefndarinnar, en ritari
nefndarinnar var Þorsteinn
Geirsson, skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu.
Samtök þeirra aðila sem
stunda innflutning og farflutning
hafa sýnt þessu máli mikinn
áhuga og á árinu 1976 var mér af
Jón Magnússon:
þáverandi formanni FlS, Jóni
Magnússyni, boðið á ráðstefnu,
sem þeir héldu og síðan hefur
málið verið á dagskrá viðskipta-
þings verzlunarráðs íslands.
Ég er mjög ánægður með þær
undirtektir, sem mál þetta fékk
við fyrstu umræðu á Alþingi og
við flutningsmenn frumvarpsins
vonumst fastlega til ákvarðana-
töku í málinu á næsta þingi."
„Tollkrítin44 getur
sparað 3 milljarða
„VIÐ vonum að tollkrítin verði að
lögum í haust. Það kom fram á
sínum tínia að með þessu fyrir-
komulagi mætti spara upphæð,
sem í dag jafngildir ekki undir 3
milljörðum króna og slíkt myndi
fljótt segja til sín í lægra vöru-
verði,“ sagði Jón Magnússon, fyrr-
um formaður Félags íslenzkra
stórkaupmanna.
„Það var í nóvember 1977 að við
héldum ráðstefnu, sem að megin-
efni fjallaði um tollkrít," sagði
Jón. „Þangað buðum við þáver-
andi fjármálaráðherra, Matthíasi
Á. Mathiesen og ýmsum embætt-
ismönnum. Matthías tók vel í
málið og skipaði nefnd, sem Ás-
geir Pétursson, nú bæjarfógeti í
Kópavogi, var formaður fyrir.
Þessi nefnd skilaði svo ítarlegu
áliti, sem gefið var út í bókar-
formi, en því miður lét Matthías
af embætti fjármálaráðherra
skömmu síðar.
Það kom meðal annars fram í
nefndarálitinu, að þeir töldu
tollkrítarfyrirkomulagið geta
sparað um 1500 milljónir króna
miðað við þáverandi aðstæður og
ætla ég að samsvarandi upphæð
nú sé ekki undir 3 milljörðum
króna.
Stjórnvöld söltuðu svo máiið og
það er ekki fyrr en nú að
frumvörpin eru lögð fram á Al-
þingi að við því er hreyft að nýju.
Það hefur lengi verið okkur ofar-
lega í huga að við fengjum
svipaða meðferð á afgreiðslu
tollvöru og er á hinum Norður-
löndunum og því vonum við að
málið komizt í framkvæmd sem
fyrst.“
Hjörtur Hjartarson:
Öllum fyrir beztu að
taka upp „tollkrítina44
Iðnþróunarsjóöur tiu ara:
Veitt heildarlán
21 milljarður
Tíu ár eru liðin frá stofnun Iðn-
þróunarsjóðs, en markmið sjóðsins
er að efla útflutningsiðnað og að
auðvelda aðlögun heimamarkaðs-
iðnaðar að breyttum aðstæðum. Öll
Norðurlöndin eiga aðild að stjórn
sjóðsins og hafa tengsl Íslands við
þau leitt af sér hlutdeild landsins i
mikilvægri reynslu þessara landa á
sviði iðnaðar. Stjórn sjóðsins er
skipuð fulitrúum frá öllum stofnað-
ilum, en auk þess hefur sjóðurinn
sérstaka framkvæmdastjórn sem
skipuð er fulltrúum úr íslenska
bankakerfinu. Formaður sjóðsins er
dr. Jóhannes Nordai, Seðlabanka-
stjóri, formaður framkvæmda-
stjórnar er Pétur Sæmundssen
bankastjóri og framkvæmdastjóri
er Þorvarður Alfonsson.
Til þess að efla fjárhag sjóðsins,
svo að hann geti sinnt sívaxandi
þörfum iðnaðarins, hefur verið gerð
breyting á lögum sjóðsins þar sem
sjóðnum er bæði gert kleift að taka
lán til starfsemi sinnar og auka það
fé sem heimilt er að nota til styrkja
og sérstakra áhættulána. Þessar
breytingar munu efla mjög útlána-
getu sjóðsins og aðstöðu hans til að
styrkja mikilsverð iðnþróunarverk-
efni.
Með hliðsjón af þessum breyting-
um á starfsháttum sjóðsins var fyrir
nokkru leitað til Norræna fjárfest-
ingarbankans um fjármögnun og
samvinnu við stuðning við íslensk
iðnþróunarverkefni. Hefur nú verð
samþykkt að Iðnþróunarsjóður eigi
kost á allt að 3.000 millj. kr. lánsfé
frá Norræna fjárfestingarbankanum
á þessu og næsta ári til almennrar
iðnaðaruppbyggingar hér á landi.
Eru með því mörkuð tímamót í
starfsemi sjóðsins.
Stofnun Iðnþróunarsjóðs skapaði
ný viðhorf fyrir íslensk fyrirtæki til
að fjármagna uppbyggingu og end-
urnýjun. Áður gátu lánasjóðir og
bankar aðeins fullnægt hluta af þörf
Fjölmenni var á afmælisfundi Iðnþróunarsjóðs og sést hér hluti gestanna
Ljósm. Krislinn.
iðnfyrirtækja fyrir stofnlán. Að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum og þeim
reglum er sjóðurinn starfar eftir,
hefur hann getað fullnægt allri
lánaþörf fyrirtækja. Þetta hefur haft
verulega þýðingu fyrir fyrirtækin,
sem með þessu móti hafa getað
skipulagt fjárfestingar sínar og upp-
byggingu betur.
Á þeim tíu árum sem sjóðurinn
hefur starfað hefur hann veitt tæp-
lega 400 stofnlán að upphæð tæplega
21 milljarður króna, miðað við verð-
lag ársins 1979. Eftirstöðvar lána í
árslok 1979 námu 7.4 milljarði. Lán-
veitingar sjóðsins hafa dreifst á
flestar greinar framleiðsluiðnaðar,
en hlutfallslega mest hefur þó verið
lánað til vefjar- og fataiðnaðar, eða
rúmur fjórðungur heildarlána, en um
20% hefur runnið til málm- og
skipasmíðaiðnaðar.
Auk fjárfestingarlána hefur sjóð-
urinn veitt styrki og áhættulán til
margvíslegra verkefna í uppbygg-
ingar- og þróunarstarfsemi. Má þar
m.a. nefna ráðgjafaþjónustu í ein-
stökum iðngreinum, styrki til kynn-
ingar- og sölustarfsemi á erlendum
mörkuðum og rannsókna á nýiðnað-
artækifærum. Alls nema styrkveit-
ingar og lán með sérstökum kjörum
tæplega hálfum milljarði króna mið-
að við verðlag ársins 1979.
í tilefni tíu ára afmælisins var í
gær haldinn afmælisfundur Iðn-
þróunarsjóðs. f upphafi fundarins
hélt dr. Jóhannes Nordal ávarp, en að
því loknu talaði Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðarráðherra. Síðan
fluttu erindi þeir Gylfi Þ. Gísiason
prófessor, Erik Lundberg prófessor
og Guðmundur Magnússon háskóla-
rektor. Fundarstjóri var Pétur Sæ-
mundssen bankastjóri.
veröur á götum borgarinnar og við helztu verzlunarstaði í dag, laugardag.
Flugdrekarnir eru mjög nýstárlegir og hafa ekki sést áður á íslandi.
Þeir eru í fuglslíki, klæddir nylondúk og eru sérstaklega vandaðir.
Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála.
LIONS KLÚBBURINN M TÝR
iaai