Morgunblaðið - 31.05.1980, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1980
t
Elginkona mín, móðir okkar og systir
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
EYJABAKKA 30,
andaöist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 29. maí.
Þorsteinn Hreggviðsson
Kristbjörg Þorsteinsdóttir
Hreggviður Þorsteinsson
Sigríöur Jónsdóttir.
t
Systir okkar,
INGVELDUR SIGURÐARDÓTTIR
lóst í Borgarspítalanum 29. maí.
Theodóra, Una og Hrefna Siguröardætur.
t
GUÐFINNA HJALMARSDÓTTIR
Mánagerði 7, Grindavík
andaöist í Borgarspítalanum aðfaranótt 29. maí.
Börn hinnar látnu
t
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR F. ÓLAFSSON,
Víðimel 32,
lést að morgni 30. maí í Landakotsspítalanum.
Fyrir hönd vandamanna,
Sólveig Stefánsdóttir.
+ Faöir okkar, STEINGRÍMUR MAGNÚSSON fyrrv. fiskmatsmaöur,
andaöist í Vífilstaöaspítala 30. maí. Börnin
t
Bróðir okkar og fósturbróðir,
GEIR S. HAUKDAL,
er lést aö Elliheimilinu Grund 23. maí sl. veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 2. júní kl. 10.30.
Siguröur S. Haukdal,
Sonja B. Helgason.
Konan mín,
SVANHVÍT GUÐJÓNSDÓTTIR WRIGHT,
Faxatúni 16,
Garöabæ
lést 23. maí sl. Jaröarförin hefur fariö fram.
Einlægar þakkir til iækna og hjúkrunarfólks á Vífilstööum og
gjörgæsludeild Landspítalans.
Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, vinsamiegast láti S.Í.B.S.
njóta þess.Harold Wright.
t
Alúöar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall,
SIGRÍÐAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
frá Helluvaöi.
Fyrir hönd aöstandenda.
Árni Gíslason.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jarðarför,
ÖNNU SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
Njörvasundi 32
Guöríöur Steinsdóttir,
Árni Steinsson, Gyöa Ragnarsdóttir,
Atli Steinn Árnason, Ragnheiöur Árnadóttir,
og systkini hinnar látnu.
Steingrímur
Arnar - Minning
Fæddur 19. júlí 1930
Dáinn 20. maí 1980
Steingrímur Arnar flugvallar-
stjóri í Vestmannaeyjum andaðist
í Landspítalanum hinn 20. maí sl.
eftir langvarandi og erfiða sjúk-
dómslegu á liðnum vetri. Féll þar
traustur maður frá langt fyrir
aldur fram.
Steingrímur Arnar var fæddur
á Siglufirði 19. júlí 1930, sonur
Jóhönnu Pétursdóttur og Friðvins
Jóakimssonar. Hann dvaldi sín
bernsku- og uppvaxtarár í Siglu-
firði og í Fljótum og hóf ungur
sjómennsku frá Siglufirði, m.a. á
hinu mikla aflaskipi Dagnýju.
Arið 1949 kom Steingrímur á
vertíð til Vestmannaeyja og átti
hann þar heimili síðan. Skömmu
eftir að hann kom til Eyja kynnt-
ist hann Eygló Einarsdóttur og
gengu þau í hjónaband 10. október
1951. Það varð þeim báðum mikil
hamingja, því að þau voru sérlega
samhent í lífinu og sýndu hvort
öðru ætíð mikla ástúð og virðingu,
en best reyndist Eygló manni
sínum í bylnum stóra og miklum
og erfiðum veikindum Steingríms
undanfarna mánuði.
Steingrímur stundaði sjó-
mennsku öll sín fyrstu ár í Eyjum,
allt fram til ársins 1966 að hann
hóf störf hjá Flugmálastjórn.
Hann var oft með miklum afla-
mönnum og m.a. í mörg ár með
Helga Bergvinssyni á Stíganda.
Steingrímur Arnar var að eðlis-
fari félagslyndur maður og hafði
alla tíð mikinn og lifandi áhuga á
samtíð sinni og þjóðfélagsmálum.
Hann skipaði sér fljótlega í fylk-
ingu sjómannasamtakanna í Vest-
mannaeyjum og var valinn þar til
forystustarfa. Steingrímur var vel
gefinn, greindur og fylgdi vel eftir
þeim málstað, er hann taldi rétt-
an. Hann var þó hæglátur en
fastur fyrir; athugaði hvert mál af
kostgæfni og var sanngjarn og
hógvær í skrifum og dómum um
menn og málefni.
Steingrímur tók vélstjórapróf
árið 1951 og var formaður Vél-
stjórafélags Vestmannaeyja árin
1954 og 1958.
I vertíðarbyrjun árið 1958 lauk
hann hinu minna fiskimannaprófi
í Vestmannaeyjum, en vorið 1964
lauk hann 2. bekk með fullum
réttindum fiskimanna frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík.
Haustið 1964 var Stýrimanna-
skólinn í Vestmannaeyjum settur
á stofn og hófust þá kynni okkar
Steingríms, sem urðu að traustri
vináttu. Hann réðist kennari við
skólann þá um haustið og var
aðalkennari 1. bekkjar, sem stóð
fram í janúar. Sýndi hann nem-
endum og skólanum einstakan
áhuga og reyndist frábær kennari.
Þegar aukin störf í sambandi við
flugmálin í Eyjum hlóðust á hann
varð Steingrímur stundakennari
og kenndi alltaf stærðfræði í 1.
bekk og oft einnig í 2. bekk og
lagði góðan og traustan grunn
undir aðalfag skólans siglinga-
fræðina. Hann kenndi síðan við
Stýrimannaskólann í Eyjum hvert
ár á meðan ég stjórnaði skólanum
til ársins 1975. Þó að Steingrímur
Arnar hafi verið trúr hverju
starfi, sem honum var trúað fyrir,
þá þori ég að fullyrða, að nemend-
ur hans og skólinn gengu ætíð
fyrir og þrátt fyrir oft erilsöm
störf við flugvöllinn og opnun
flugbrauta á veturna minnist ég
ekki að kennsla hafi fallið niður
hjá honum nema í eitt skipti öll
þessi ár.
Vart get ég hugsað mér betri
samstarfsmann og bar aldrei
skugga á samstarf okkar. Mér
persónulega og Stýrimannaskól-
anum í Vestmannaeyjum var það
mikil gæfa að fá svo ágæta menn
til starfa og unnu með mér þessi
fyrstu ár skólans. Með okkur
Steingrími og Sr. Þorsteini Lúther
Jónssyni, sem andaðist sl. haust
og kenndi íslensku og dönsku tókst
góð og einlæg vinátta á þessum
árum.
Á stuttum dögum jólaföstu sát-
um við þrír oft á litlu kennara-
stofunni á Breiðabliki og röbbuð-
um saman. Bar þá margt á góma
eins og aflabrögð, þjóðmál líðandi
stundar og góðar bókmenntir, sem
Steingrímur og þeir báðir voru
mjög vel heima í. Uppáhaldshöf-
undar Steingríms voru Þórbergur
og Laxness og hafði hann þaulles-
ið þá höfunda, en Sr. Þorsteinn
var skáldmæltur og fékkst tals-
vert við ljóðagerð. Það var oft
glatt á hjalla og miðluðu þeir
miklu af þekkingu sinni. Sr. Þor-
steinn mat Steingrím allra manna
mest og segir það sína sögu, af því
að hann var lífsreyndur mann-
þekkjari.
Eftir að Steingrímur hætti
kennslu við Stýrimannaskólann í
Eyjum, að ég held fyrst og fremst
vegna mikilla anna við gerð flug-
vallar og flugstöðvar eftir gosið,
þá var hann prófdómari við skól-
ann og sýndi honum og nemendum
sama áhugann og velviljann og
fyrr.
Steingrímur átti sæti í stjórn
skipstjóra- og stýrimannafélags-
ins Verðandi og var formaður
félagsins í tvö ár frá 1964-1966.
Hin síðari ár gegndi Steingrím-
ur ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hann var um
tíma ritstjóri Fylkis og í blað-
nefnd og var ætíð góður liðsmaður
við útgáfu blaðsins. Þá var hann
eitt ár formaður fulltrúaráðs
Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og
formaður í félagi Sjálfstæð-
ismanna.
Hin síðari ár var Steingrímur
félagi í Oddfellow-stúkunni Herj-
ólfi og fann ég í veikindum hans,
að hann mat mjög mikils þann
félagsskap og félagsanda, sem þar
ríkir.
Steingrímur Arnar var prýði-
lega ritfær og vandaði vel skrif
sín. Hann hafði mikla unun af
ritstörfum og ritstýrði m.a. Sjó-
mannadagsblaði Vestmannaeyja
árin 1976 og 1977 og eru þau blöð
sérlega vönduð að efni og frá-
gangi. Á liðnum vetri snerist oft
tal okkar að gömlum og nýjum
verkefnum á þessu sviði.
I erfiðum véikindum sínum
sýndi Steingrímur fádæma þrek
og æðruleysi, kvartaði aldrei og
afsakaði stundum við okkur kunn-
ingjana þjáningar sínar.
Þau Eygló og Steingrímur eign-
uðust 4 mannvænleg börn, þrjá
syni, sem eru nú uppkomnir og
eina dóttur. Synir þeirra eru
Einar flugumferðarstjóri í Eyjum,
Pétur iðnnemi, sem kvæntur er
Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur og
eiga þau einn son, Arnar, sem var
mikill augasteinn afa síns og
nafna, Gunnar sem er landskunn-
ur íþrótta- og lyftingamaður, en
dóttirin Guðrún er enn á barns-
aldri, 10 ára gömul.
Mikill harmur er nú kveðinn að
fjölskyldu Steingríms, en hann
var sérstakur fjölskyldufaðir og
mjög barngóður.
Eygló og allri fjölskyldu þeirra
eru með þessum línum vottaðar
innilegar samúðarkveðjur. Útför
Steingríms Arnar verður gerð frá
Landakirkju í dag.
Allir þeir, sem þekktu Stein-
grím Arnar geta tekið undir
kveðjuorð Vestmannaeyjablaðsins
Fylkis, sem birtust með andláts-
frétt hans hinn 22. maí sl.:
„Steingrímur Arnar verður öll-
um þeim, sem honum kynntust
minnisstæður maður fyrir sjald-
gæfa mannkosti. Störf hans öll
voru unnin af óvenjulegri vand-
virkni. Viðhorf hans báru vitni um
mikla gerhygli og sannsýni, við-
mót hans var hlýtt og alþýðlegt.„“
Blessuð veri minning hans.
Guðjón Ármann Eyjólfsson
í dag er til moldar borinn frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
Steingrímur Arnar, flugvallar-
stjóri.
Við Steingrímur kynntumst
fyrst, er við gengum á sama tíma
til liðs við Eyverja, félag ungra
sjálfstæðismanna í Vestmanna-
eyjum, og höfðu þau kynni með
tímanum leitt til góðrar vináttu.
Steingrímur var félagshyggju-
+
Þökkum sýnda samúö og hluttekningu viö andlát og jaröarför,
JÓRUNNAR HALLDORSDÓTTUR,
fró Gullbringum,
Þökkum sérstaklega sveitungum hennar fyrir veltta aöstoö og
starfsfólki Elliheimilisins Grund fyrir umönnun og góöa hjúkrun.
Fyrir hönd ættingja,
Guörún Sigurjónsdóttir.
t
Þakka innilega auösýnda samúö viö fráfall eiginmanns míns,
FRIÐRIKS HREIÐARS HELGASONAR,
húsvaröar, Hafnarstræti 5.
Anna Gísladóttir.
+
Þökkum inniiega öllum þeim er auösýndu okkur samúö viö andlát
og útför, systur okkar og mágkonu,
ÞORBJARGAR EINARSDÓTTUR
frá Bakka á Akranesi.
Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuöust hana í veiklndum hennar
á deild 1A Landakotsspítala.
Margrát Einarsdóttir
Guórún Einarsdóttir Þorkell Halldórsson
Sigríður Einarsdóttir Hjalti Björnsson
Halldór Einarsson Steinþóra Þórisdóttir.