Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1980 13 T.A. Wilson forstjóri Boeing og Sigurður Helgason rasða saman eftir afhendingu nýju vélarinnar í Seattle. Wilson þykir hafa gert góða hluti hjá Boeingfyrirtækinu, sem nú er langstærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum. Forsíöa tímaritsins Time var helguö honum nýlega eins og hór sést. Stærsta markaðs- hlutdeild, stærsta hús veraldar, flestar farþega- þotur af einni gerð, stærsta þotan a markaðn- um, tvær nýjar gerðir í smíðum Grein og myndir: Anders Hansen ár, samkvæmt upplýsingum sem tímaritið Time hefur látið vinna. Öryggið ofar öllu Blaöamönnum var tjáö, að gífurleg áhersla væri lögð á öryggi í framleiöslu flugvéla hjá Boeing. Allir hlutir eru margyfirfarnir áður en vélin er afhent. Hver nagli er skoöaöur og festingar athugaöar, aö ekki sé talaö um hina stærri og mikilvægari hluti svo sem aflvélar, stjórntæki og lendingarbúnaö. En alls eru farþegaþotur þessar gerö- ar úr 4 til 7 milljónum hluta, þannig aö aö mörgu er aö gá. Nýja þota Flugleiða, sem afhent var á föstudaginn, haföi aöeins fariö í þrjú reynslufiug fyrir afhend- ingu, aö sögn Johns R. Wheeler blaöafulltrúa Boeingverksmiöj- anna. Þaö þýddi þaö þó ekki, sagöi hann, aö ekki væri búiö aö yfirfara alla hluti mjög vandlega. Hreyflar eru til dæmis keyröir á jöröu niðri, þrýstibúnaöur er ræki- lega kannaöur, siglingatæki eru reynd og svo mætti lengi telja. Allt sagöi hann miöa aö því aö gera vélarnar sem fullkomnastar og öruggastar, enda heföu þær reynst þaö. Sagöi blaöafulltrúinn í samtali viö blaöamann Morgunblaösins, Flugvél við flugvél í vorksmiöjunum í Seattle, en þar eru stundum afhentar 28 þotur é ménuði. aðeins tvo menn. Nú eru yfirleitt þrír menn í stjórn áhafnarinnar, flugstjóri, aöstoöarflugmaöur og flugvélstjóri. Sögöu fulltrúar Boeing blaöamönnum, aö þegar væri komin reynsla á aö meö þessu fengist aukiö öryggi fyrir farþega og áhöfn á flugi. I sumum vélanna væri þegar komin mikil reynsla á þetta fyrirkomulag, svo sem í Boeing 737, sem tekur um 100 farþega. Aö sögn Boeingmanna hafa þegar veriö pantaöar vélar meö hátt hlutfall í iönaði sem þessum, sem byggist mjög mikiö upp á undirverktökum hvers konar og hliöarfyrirtækjum. Unniö er allan sólarhringinn í verksmiöjum Boeing, fimm daga vikunnar. Á nóttunni er einkum unnið aö hreingerningu á verk- smiöjuskálum og aö því aö færa flugvélar til, frá einu vinnustæöi yfir á annaö. Á daginn er síöan haldiö áfram viö vinnuna í vélunum sjálfum. Vinnuvika starfsmanna er 40 stundir, og gera þeir yfirleitt sjá heiidarmyndina á línuritum og teikningum, og einstaka fram- leiösluhiuti í verksmiöjunum, en ekki mikið meira. Til þess er fyrirtækiö einfaldlega of stórt og of flókið, og of dreift á stórt svæði. Hjá Boeing er aö finna stærsta hús í heimi, en þar inni gat aö líta margar júmbóþotur í röö, sem smám saman nálguöust lokamark framleiöslunnar. I öörum sölum gat aö líta flugvélahluta eöa ósamsettar vélar, en hver skemma í hinum miklu verksmiðjusam- stæöum er meö meira en 100 metra breiða hurö, og hver gólf- flötur er töluvert stærri en Laugar- dalsvöllurinn í Reykjavík á stærö. Mikil áhrif Norður- _________landabúa Seattle í Washington hefur oft veriö kallaður hálf skandinavískur bær, og borgin er um margt ólík borgum á austurströndinni, svo sem New York, Boston eöa Phila- delphiu, þó þær séu raunar einnig hver annarri ólíkar. Víöa má sjá skilti sem minna á norrænan uppruna manna í borg- inni, og margar hefðir eru komnar úr Norður-Evrópu. Þarna hefur til dæmis veriö stunduö knattspyrna í aö hann vissi ekki til þess aö flugvél frá Boeing heföi farist á liönum árum vegna galla í vélunum sjálfum. Þar sem slys heföu orðiö, væri um að kenna mannlegum mistökum viö stjórn vélanna, slæmu veöri eöa bilunum í tækjum flugvalla á jöröu niöri. Sagöi hann af þessum sökum einnig vera lagöa mikla áherslu á þjálfun flugmanna og annarra áhafnameölima, en öll sú kennsla hjá fyrirtækinu sagði hann vera á ensku. Þaö væri taliö öruggast, enska væri mál, sem alls staöar væri töluö í flugi, og allar leiðbein- ingar væru á ensku. Því skipti ekki máli hvaöan flugmennirnir kæmu, þeir hlytu sína þjálfun á ensku. Upplýsti blaöafulltrúi Flugleiöa, Sveinn Sæmundsson, hiö sama, og sagöi endurþjálfun hjá fyrirtæk- inu aö verulegu leyti fara fram á því tungumáli og væri þaö taliö heppilegast. Meira en 2000 breyt- ________ingar á 727____________ Sem dæmi um þá áherslu sem lögö er á öryggi og hagkvæmni hjá Boeing, má geta þess, aö síöan Flugleiöir (þá Flugfélag íslands) fengu sína fyrstu vél, hafa verið gerðar meira en 2000 breytingar á 727, allar í átt til hagkvæmni, þæginda og aukins öryggis. Meöal þess sem nú er unnið aö hjá Boeing, er aö hannaöar hafa verið vélar meö stjórnrými fyrir tveggja manna stjórnklefa af tveimur stórum flugfélögum. Ekki vildu þeir þó upplýsa hvaöa flugfé- lög þar um ræddi, þar sem þaö hlyti aö vera í verkahring viökom- andi félaga aö segja hvernig vélar þau keyptu. Þessar upplýsingar Boeingverk- smiöjanna, ganga þvert á þaö sem flugmenn víöa um lönd hafa haldiö fram. Telja þeir öryggi vélar, áhafna og farþega veröa minna með tveggja manna áhöfn en meö þriggja, og geröi alþjóöasamband flugmanna meöal annars nýlega ályktun um þessi mál á ráöstefnu sinni í Frankfurt í Vestur-Þýska- landi. Tíminn einn mun því geta skoriö úr um hvort veröur ofan á í framtíðinni, en ekki er útlit fyrir breytingar í þessu efni átakalaust. Nærri 80 þúsund starfsmenn Sem fyrr segir eru starfsmenn Boeingverksmiöjanna nú um 78 þúsund talsins, og hefur þeim talsvert fækkaö frá því aö þeir voru flestir. Enn er þó mikilvægi fyrirtækisins í Seattle óumdeilan- legt. Þaö, aö fjöldi starfsmanna sé svona mikill, segir þó ekki alla söguna, því aöeins hluti framleiðsl- unnar er unninn á vegum fyrirtæk- isins sjálfs. Mun láta nærri, aö 55% séu unnin hjá Boeingverksmiðjunum sjálfum, en um 45% er unnið hjá öörum fyrirtækjum. Er þetta mjög samninga til þriggja ára. Einn slíkur samningur mun renna út síöar á þessu ári, svo samninga- umleitanir eru í þann mund að hefjast. Aö sögn Boeingmanna hefur jafnan verið gott samkomu- lag með stjórnendum fyrirtækisins og starfsmönnum þess, og verkföll hafa ekki bakað fyrirtækinu tjón eins og svo algengt er meðal fyrirtækja í Vestur-Evrópu og víöar. Hluti starfsmanna vinnur aö því einu að örva samstarfsmenn sína til dáöa, og margir vinna sífellt aö aukinni hagræöingu og auknum afköstum. Þá er verkamönnum sérstaklega launaö fyrir vel unnin störf og fyrir aö benda á leiðir til bættra afkasta eöa aukins öryggis í framleiöslunni. Mátti víöa sjá mundir af starfsfólki uppi á vegg, sem haföi veriö verölaunaö fyrir ýmsa hluti. Er þetta mjög frábrugðið því sem sést víöa í fyrirtækjum í Vestur-Evrópu, svo sem á Eng- landi. Þar eru starfsmenn verk- smiöja mun fleiri en í Bandaríkjun- um, en afköstin eigi aö síöur mun minni. Menn aö slóra viö vinnu sína í Boeingverksmiðjunum virt- ust hins vegar ekki vera til, eöa alla vega ekki áberandi. Þaö er hins vegar varasamt, aö ætla aö halda því fram, aö mönnum takist aö mynda sér mikla mynd af því sem fram fer í fyrirtæki sem Boeing, eftir aö hafa skoöaö þaö í tvo daga. Unnt er aö mörg ár, kirkjusókn er minni en í öörum ríkjum Bandaríkjanna, og þarna er aö finna fjölmennan kommúnistaflokk, allt kunnar staöreyndir úr þjóöfélögum Norö- urlanda. íslendingar eru þarna fjölmenn- ir, ekki síður en íbúar frá öörum Norðurlöndum, og má raunar segja aö svo sé um alla Vestur- ströndina, frá San Diego við mexi- könsku landamærin til Kanada fyrir noröan, og hafa íslendingar á þessum slóöum meö sér töluvert samband. Yfir hádegisveröi einn daginn hittu blaöamenn einn Vestur- íslending, sem starfar hjá Boeing, sem og raunar bróöir hans og sonur gera einnig. Hann heitir Lynn Ólason, og átti einmitt sex- tugsafmæli þennan dag. Hann starfar nú sem háttsettur verk- fræöingur hjá fyrirtækinu, og hefur komiö viö sögu í hönnun flugvéla fyrirtækisins. Hann er fæddur í Bandaríkjunum, en af íslenskum foreldrum. Sagöist hann ekki hafa talaö annaö tungumál en íslensku er hann hóf skólagöngu sína sex ára gamall, og enn talar hann dágóöa ísiensku. Þannig er um fjölda annarra íslendinga á þess- um slóðum, sem yfirleitt eru taldir hafa komist vel af í hinum nýju heimkynnum á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og Kanada. —AH já Boeingverksmiðjunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.