Morgunblaðið - 04.06.1980, Side 1
Miðvikudagur
4* / /
. juni
Bls. 32-72
Eyðileggingin
Mike Gawda hefur fundiö
bílflak í nágrenni fjallsins.
Bíllinn reyndist mannlaus.
Gawda var aö leita aö týnd-
um ættingjum. Vitaö er um
aö minnsta kosti þrjá tugi
manna týndum ættingjum,
sem uröu gosinu aö bráö, en
svo margra er ennþá sakn-
aö, aö menn óttast aö dán-
artalan nái hundraðinu.
Enn kann að draga til
tíðinda í eldhringnum
Norðvesturhéruðin við Kyrrahafið eru hægt og með harmkvælum að
losa sig undan nokkrum milljónum tonna af eldf jallaösku, þar er að
verki heill herskari manna sem notar jarðýtur, snjóplóga og þyrlur.
Ennþá stafar 60.000 íbúum Toutleárdalsins hætta af stíflu sem
myndaðist úr jarðefnum við hið geysiöfluga gos úr St. Helenarfjalli
þann 18. maí s.l. Það rýkur enn úr eldf jallinu mikla og hvenær sem er
gæti það þeytt mörgum tonnum af leðju ofan í lónið þannig að flóð
hlypi fram!
William Scobie
OBSERVER
Vísindamenn segja nú, að
sprengingin í St. Helenarfjalli, 65
km fyrir norðan Vancouver í
Washingtonríki, hafi verið 2.500
sinnum öflugri en sprengjan sem
varpað var á Hiroshima. Fjallið
hefur þegar spúð jafnmikilli ösku
og grjóti og Vesúvíus árið 79 f. K.
Carter forseti sem flaug yfir
eyðileggingarsvæðin frá her-
flugvelli í þessari smáborg við
Columbíaána á fimmtudaginn,
hefur lýst Washingtonríki neyð-
arsvæði. Yfirvöld telja látna 29,
sem segja að talan gæti auðveld-
lega hækkað upp í 100, svo
margra er enn saknað.
„Það er óvíst að við komumst
nokkurn tíman að því hversu
mörg lík eru þarna“, sagði björg-
unarmaður nokkur og benti í átt
til hins 400 ferkílómetra svæðis
þar sem eyðingin er alger, þar
sem gildir trjábolir liggja eins og
hráviði og hitinn rúmlega hálfum
metra undir yfirborðinu er enn
140°c. Árvatn mælist allt að 33
stiga heitt og dauðir fiskar fljóta
á yfirborðinu.
Bráðabirgðatölur um tjón eru
upp á milljarða dollara. hundruð
heimili, vegir og brýr skoluðust
burt í heitu leðjufíóði. Askan,
sem sums staðar er 18 cm djúp,
liggur yfir uppskerunni frá ald-
ingörðum Washingtonríkis til
kornekranna í Miðvesturríkjun-
um.
Smábæir 110—120 km fyrir
austan eldfjallið líta út eins og
hellt hafi verið úr risa-ryksugu-
pokum yfir þær. í Yakima (þar
búa 43.00 manns) vógu frétta-
menn rúmfet (0,09 rúmmetra) af
ösku, hún vóg 45 kg, síðan
reiknuöu þeir út að askan sem
féll á þennan eina bæ hafi vegið
um 600.000 tonn.
Utan á einni verslun var skilti
sem á stóð „Aska úr St. Helena-
fjalli til sölu“. Engir kaupendur
sýndu sig. Á ekrunum börðu
verkamenn í kirsuberja- og epla-
tré hlaðin ávöxtum, til að hrista
af þeim öskuna. „Ef skola á
öskuna af, verður hún eins og
steypa", sagði einn bóndinn.
I kæfandi hitanum, sem er nær
30 gráður á celsíus er fólk með
höfuðklúta og andlitsgrímur,
snjóplógarnir sem ýta öskunni í
hauga þyrla upp rykskýjum sem
setjast í vitin. Þar sem áður var
blómlegasta og grænasta svæði
Bandaríkjanna er nú allt grátt og
hvítt eins og svartlistarmynd.
Timburiðnaðurinn, sem undir-
stöðuatvinnuvegur, hefur orðið
fyrir miklu áfalli. Tapið er metið
á meira en 200 milljón dollara, og
það mun enn auka á samdráttinn
í efnahagslífinu hér.
Ekki var tekið vel í þá hvetj-
andi hugmynd Carters forseta að
sá tími kæmi að St. Helenarfjall
yrði „eftirsóttur ferðamanna-
staður". Embættismenn, sem
voru í för með Carter, fengu að
heyra reiðilegar kvartanir fólks
um að mistök af hálfu stjórn-
valda og hersins hefðu valdið
töfum við leitar- og björgunar-
starfið.
Fyrstu dagana misstu ýmsir
stjórn á skapi sínu. Meðan 6000
manns flýðu eða voru fluttir á
brott gagnrýndu menn aðgerðirn-
ar ákaft og sögðu þær ónógar og
ruglingslegar. Þyrlur hringsóluðu
í loftinu og náðu ekki sambandi
við menn á jörðu niðri þar sem
tíðnisvið fjarskiptatækjanna var
mismunandi. Þjóðvarðliðar og
björgunarsveitir heimamanna
komu sér ekki saman um leitar-
aðferðir.
Reiðir ættingjar þeirra sem
saknað var stofnuðu sína eigin
leitarflokka og gengu í berhögg
við bann yfirvalda gegn því að
fara til hættustaða. Tugir manna
voru ennþá tepptir við rætur
eldfjallsins seint í vikunni (þ.e. í
síðustu viku) og biðu þess að
komast á brott flugleiðis.
Þoka, lokaðir flugvellir, tepptir
vegir og 10 km hámarkshraði,
sem fyrirskipaður var til að koma
í veg fyrir að rykið þyrlaðist upp,
allt þetta hindraði umferð. Col-
umbíaáin, sem er lífæð viðskipta
í norðvesturhéruðunum, er lokað
skipum, leðja og aska hafa
grynnt djúpálinn svo hann er
aðeins 4% metri.
En hið geysistóra ösku- og
gasský frá upphafssprenging-
unni, sem reif 360 metra ofan af
3000 metra háu fjallinu, barst í
átt til Evrópu og vísindamenn
fóru að huga að afleiðingum
gossins ef litið er til lengri tíma.
Skýið er ekki lengur svo þétt að
það valdi áberandi úrfelli. Það
samanstendur aðallega af brenni-
steinsgufum sem á næstu mánuð-
um munu breiðast út yfir norður-
hveli jarðar í háloftunum í 18 til
21 km hæð.
Ymsir vísindamenn spá lítils-
háttar kólnun í gufuhvolfi jarðar.
„Krakatá áhrifum" sem menn
tóku eftir t kjölfar eldgossins
1893, og nokkrum köldum vetr-
um. Aðrir búast við aukningu á
súru regni sem er nú þegar
umhverfisvandamál í Bandaríkj-
unum. Mörg tonn af brennisteins-
gufum leystust úr læðingi. í
sólarljósi bindast þær vatnsgufu
og mynda brennisteinssúra smá-
dropa.
Jarðskjálftafræðingar segja að
eldgosið í St. Helenu sé enn ein
sönnun þess að „eldhringurinn",
eldfjallakeðjan mikla umhverfis
Kyrrahafið, sé riú á mjög virku
skeiði. Gos koma í bylgjum, segir
Dr. Reid Bryson, sérfræðingur
við Wisconsinháskóla, og er oft
samfara jarðskjálftum.
Þessi orð hafa valdið mönnum
á vesturströndinni áhyggjum, í
Kaliforníu hafa vísindamenn ný-
lega sagt frá óvenjumikilli virkni
meðfram San Andreas sprung-
unni, aukning hefur orðið á smá-
skjálftum, einkennilegar breyt-
ingar á jarðgrunni og harðara
misgengi í hinum miklu berg-
spildum meðfram sprungunni.
Enginn veit hvað þetta boðar.
Eldgosið í St. Helenu hefur
einnig vakið áhyggjur um öryggi
skíðastaða, gistihúsa og íbúðar-
húsa sem á undanförnum árum
hafa risið í hlíðum annarra eld-
fjalla í Cascadefjallgarðinum.
Þau gætu vaknað úr dvala hve-
nær sem er, eins og Lassenfjall í
Kaliforníu gerði árið 1914 eftir
jarðskjálftann í San Fransisco
árið 1906. Shasta, fjallið mikla á
mörkum Oregon og Kaliforníu,
hefur gosið 13 sinnum á síðustu
10.000 árum.
„Áhættan sem er fyrir hendi er
vissulega raunveruleg" segir
jarðfræðingurinn Donal Mullin-
eux, sem starfar fyrir bandarísku
stjórnina.
Meðan hreinsunaraðgerðum er
haldið áfram fylgjast íbúar Vest-
urríkjanna náið með St. Helenar-
fjalli og hættum þess. Dwight
Grandell, æðsti maður Jarðfræði-
stofnunar Bandaríkjanna á
staðnum, telur að hraungos gæti
orðið næst, eða að þak úr hrauni
gæti myndast í gígnum og lokað
eldfjallinu, en það gæti skapað
hættu á nýjum sprengingum eftir
nokkrar vikur eða mánuði.
Aftur heyrðust skruðningar úr
fjallinu seint í síðustu viku.
Vísindamenn sögðu að bráðið
grjót gæti enn verið komið á
hreyfingu.