Morgunblaðið - 04.06.1980, Qupperneq 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
Country tónlist
og kvikmyndir
Á undanförnum árum hafa
vinsældir country-tónlistar
aukist gífurlega um allan
heim, og þá einkum í föður-
landi hennar, Bandaríkjun-
um. Nýtur hún nú sjálfsagðr-
ar virðingar um landið allt,
en löngum einskorðaðist þessi
tónlist að miklu leyti við
Suðurríkin.
Það eru einkum listamenn-
irnir Willie Nelson, Waylon
Jennings, Dolly Parton, Kris
Kristofersson, Kenny Rodg-
ers, Don Williams, Merle Ha-
ggard og Johnny Cash, sem
aukið hafa á hróður country-
tónlistarinnar síðari árin,
auk nokkurra annarra (mér
vitanlega er ekkert almenni-
legt nafn á okkar tungu yfir
þessa stefnu, dreifbýlistónlist
kannski illskást).
Svipuð þróun hefur orðið
hérlendis sem annars staðar,
hin bandaríska dreifbýlis-
tónlist hefur unnið sér örugg-
an sess hér, það sannar mikil
plötusala með görpum eins og
Willie, Waylon, Kenny Rodg-
ers, Ann Murray o.fl. Þetta
eru nöfn sem orðin eru
títtnefnd hér í útvarpi (en
þess má til gamans geta, að
þegar undirritaður fékk
Country-bakteríuna fyrir ein-
um fimm, sex árum, mátti
telja þá menn á fingrum sér,
sem vissu t.d. hver Willie
Nelson er). Og stóran þátt í
þessum auknu vinsældum á
countryaðdáandinn Björgvin
Halldórsson og hljómsveit-
irnar Lónlí Blú Bojs og eink-
um Brimkló.
Og það hlaut að koma að
því fyrr en síðar að hún
Hollywood rynni á iyktina, og
nú hefur hún heldur betur
uppgötvað feykivinsældir
þessarar tónlistar og þeirra
stjarna sem flytja hana. Stór-
framleiðsla er nú hafin með
þeim í aðalhlutverki og tón-
listin situr að sjálfsögðu í
fyrirrúmi, efnisþráðurinn
snertir gjarnan líf og störf
flytjendanna, eða er spunn-
inn úr litríkum textum þess-
arar ágætu tónlistar.
Síðan í dag er helguð þess-
ari eftirtektarverðu nýstefnu
þar vestra og fjallað um þær
myndir sem nú eru í fram-
leiðslu og mennina að baki
þeim.
„You’ve come a long way
baby, from Arkansas to
Hollywood," syngur Loretta
Lynn, Skyndilega hefur
Country/western tónlistin,
verið uppgötvuð í Hollywood.
Undanfarna áratugi hefur
hún aðeins verið notuð í
fáeinum, ódýrum myndum,
en núna eru að spretta upp
stórmyndir, gerðar af dreifi-
risum kvikmyndaborgarinn-
THE ELECTRIC HORSE-
MAN, sem frumsýnd var
síðla ’79, með tónlist fluttri af
Willie Nelson, auk þess sem
hann kom fram í fyrsta sinn
á hvíta tjaldinu í umræddri
mynd, hóf þessa stefnu. Fyrir
skömmu hófust sýningar á
„CALMINERS DAUGHTER,
þar sem að Sissy Spacek fer
með hlutverk Lorettu Lynn,
sem hófst uppúr geysilegri
Sissy Spacek sem
hin vinsæla
countrysöngkona
Loretta Lynn í
myndinni Coalmin-
ers Daughter.
fátækt í eina frægustu dreif-
býlissöngkonu Bandaríkj-
anna. I júní verður frumsýnd
myndin URBAN COWBOY,
sem John Travolta og Waylon
Jennings, (sem hann sjálfur),
en hún fjallar um aðdáendur
countrytónlistarinnar, sem
kvöldum saman koma og
dansa eftir henni, í hinni
sögufrægu danshöll Gilley’s
Place, utan við Houston, þar
sem eingöngu er flutt c/w
tónlist. I ágúst verður frum-
sýnd fyrsta myndin með
Willie Nelson í aðalhlutverki,
HONEYSUCKLE ROSE.
Þetta er gamaldags saga um
sviknar ástir; Willie er
country-stjarna, sem heldur
fram hjá konu sinni, (Dyan
Cannon), með ungri söng-
konu, (Ami Irving): í október
lítur myndin HARD
COUNTRY, dagsins ljós, en í
henni fara með aðalhlut-
verkin Jan Michael Vincent
og söngvararnir Tanya Tuck-
er og Michael Murphy. Mynd-
in fjallar um togstreitu
tveggja kvenna, hvort þær
kjósi að lifa áfram góðu lífi í
Lubbock í Texas, eða njóta
ljúfa lífsins í Los Angeles.
í meiri fjarlægð er svo
mynd söngvarans David All-
an Coe, TAKE THIS JOB
AND SHOVE IT, sem byggð
er á vinsælu lagi sem hann
samdi, (og flutt var af Johnny
Paycheck). Coe mun fara með
hlutverk verkamanns við
færiband í bjórverksmiðju.
Bruce Dern og Ann-Margret
munu fara með aðalhlutverk í
mynd sem byggð er á hinu
vinsæla lagi Jerry Lee Lewis,
MIDDLE AGE CRAZY, og
mögulega verður kvikmynduð
ævisaga Tammy Wynette,
STAND BY YOUR MAN.
„Áhuginn fyrir c/w-tónlist-
inni, endurspeglar þjóðar-
móðinn", segir framleiðand-
inn Robert Evans, en á hans
snærum eru URBAN COW-
BOY, „en hún kynnir
country-tónlistina sem nýja,
líklega danstónlist." Kfaftur-
inn sprettur útúr henni. Þetta
er nýr taktur, líffæraleg tón-
list sem færir fólk saman.
Fólk er orðið þreytt á að
dansa undir ómelódískri tón-
list“, bætir hann við. Þar á
Evans við diskó-tónlistina, og
þá dansar þú í rauninni meira
og minna við sjálfan þig.
Undir country/western tón-
| list dansar þú aftur á móti
við einhvern, og finnur þig
| nær honum.
„Það er ný-rómantík yfir
1 þessu“, segir Evans um kú-
rekastrákana og-stelpurnar í
URBAN COWBOY, sem á
daginn lifa ósköp venjulegu
lífi en upplifa drauma sína á
dansgólfinu á nóttunni.
Sidney Pollack, sem leik-
stýrði Robert Rodford, Jane
Fonda og Willie Nelson í
THE ELECTRIC HORSE-
MAN, (og varð ein vinsælasta
mynd síðasta árs), og hjáip-
aði Willie að skapa HONEY-
SUCKUE ROSE, er þessu
sammála. „Það er tilhneyging
til dreiíbýlistónlistar og
þema“, segir hann. „Ég tel að
þetta sé hluti þess sem kalla
má varúðarfulla þjóðrækn-
isstefnu. Hún, (tónlistin), er
öll um kúrekann sem er
einmitt hinn kjarnmikli
„Ööru vísi
mór áöur
brá“... John
Travolta
sem dreif-
býlistónlist-
araödáandi
og dans-
garpur í Ur-
ban Cow-
boy.
Bandaríkjamaður. Rótin.
Endurkoma hans er hluti
nýrrar rómantíkur, bjartsýni
á Bandaríkjunum." Annar
leikstjóri bætir við, „þegar
fólk er almennt farið að
klæðast kúrekastígvélum og
Western fatnaður Ralph
Laurens fæst á Fifth Avenue,
(dýr verslunargata í New
York), þá skyldi eingan undra
afturkoma kúrekans í kvik-
myndum.
Á liðinni tíð hefur Holly-
wood haft svipað viðhorf til
dreifbýlistónlistar og Jack
Nicholson í FIVE EASY
PIECES, þegar hann hótaði
að bræða Tammy Wynette
plötur Karen Black, „niður í
hár-spray“. Það hafa reyndar
verið gerðar myndir sem
gagnrýnendur vestan hafs
hafa nefnt „country-myndir",
og hafa gjarnan fjallað um
kappakstra, haglabyssur
CB-talstöðvar, fjöleyðilegg-
ingu bifreiða, en tónlistina
hefur löngum vantað. Þær
bestu af þessari gerð eins og
THUNDER ROAD, WHITE
LIGHTNING og PAYDAY,
(enn ósýnd hérlendis), hafa
gjarnan fjallað um góða, |
hressa drengi á gamansaman
hátt, komið fótunum undir
leikara eins og Burt Reyn-
olds. En hinar nýju country-
myndir eru af allt öðru
sauðahúsi.
Alvarlegra mat og virðing
fyrir þessari tónlistargerð
hófst með NASHVILLE
(1975), meðferð Roberts Alt-
man á því sem gerist á bak
við tjöldin í háborg dreifbýl-
istónlistarinnar. Samt var
enn litið á country-tónlist
með lítilsvirðingu. Altman
fyrirskipaði leikurum sínum
að semja og syngja sín eigin
„country“-lög. Jafnvel þó að
tveir þeirra, Ronee Blakely og
Keith Carradine, hafi vcrið
atvinnutónlistarmenn, dró
I fólk þá ályktun að allir gætu
' samið þessa tónlist.
„Country er hin raunveru-
lega þjóðlagatónlist Banda-
ríkjamanna“ segir einn fram-
leiðandinn, „eins og jazzinn
og blúsinn, þá er hún innlend,
Amerísk tónlist.". Leikstjór-
inn Sidney Lumet segir:
„Country-tónlist geymir ein-
faldleika sem verður listrænn
á líkan máta og frumstæðar
teikningar".
Til viðbótar einfaldleikan-
um og hinum sívaxandi að-
dáendahóps, þá býður dreif-
býlistónlistin upp á fjölmörg
þemu sem löngum hafa verið
vinsæl í Hollywood: að fara
að heiman, að snúa til baka
heim, framhjáhald eða
tryggð, einmanaleikann sem
fylgir baráttunni fyrir vel-
gengni, einmanaleikanum
sem fylgir velgengni.
I rauninni eru hinar nýju
country-hetjur ekkert ósvip-
aðar hinum rómantísku
draumóramönnum sem
Hollywood framleiddi af
miklu kappi á fjórða og
fimmta áratugnum. Sem hinn
rafmagnaði knapi — enn ein
kúreka útgáfan — Robert
Redford leikur kúreka sem
hættur er að keppa í rodeo, og
selur sig fjölþjóðafyrirtæki,
slítur af sér fjötrana í síðasta
skiptið, og stefnir á „frelsið".
Sem Loretta Lynn, er Sissy
Spacek kát og hress stelpa,
sem berst frá fátækt kola-
námahéraðanna til frægðar,
brotnar undan spennu vel-
gengninnar og snýr baka til
dreifbýlisins og tónlistar
þess. (Atriði, er Loretta, út-
keyrð og hálfdópuð, fær
taugaáfall á sviðinu, er
greinileg endurtekning svip-
aðs atriðis í NASHVILLE)
í HARD COUNTRY, er
draumurinn jarðbundnari og
tekur aðra stefnu. Ung Texas
stúlka fer að endurskoða
þann draum sinn að verða
flugfreyja, þegar bernskuvin-
ur hennar, sem orðinn er
söngkona í Los Angeles,
heimsækir hana. Jafnvel UR-
BAN COWBOY, með sína
útbrunnu dansjaxla, fjallar
um draum að baki dansinum,
einskonar Houston útgáfa af
— að koma sér í burtu frá
Brooklyn —, hugsjóninni í
SATURDAY NIGHT FEV-
ER.
Framleiðandi HARD
COUNTRY, John Hartmann,
segir hinar nýju country-
kvikmyndir „nútíma söngva-
myndir”. „Þær eru af svipuð-
um toga og hinar stórkost-
legu músik- og söngvamyndir
fjórða áratugsins. Pollack
líkir þeim við myndir á borð
við MR SMITH GOES TO
WASHINGTON, Franks
Capra. Gamlar Hollywood
velgengnisformúlur, hafa
verið færðar í nútimabúning
og fluttar á svið country
tónlistar.
Niðurlag á næstu Kvik-
myndasfðu.