Morgunblaðið - 04.06.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980
35
Eyjólfur Guðmundsson skrifar frá Noregi:
Að rétta öðrum
þjóðum hjálparhönd
Það má segja að Norðmenn
láti sér ekki aðeins annt um
eigin þjóðarhag, heldur hafa
þeir á margan hátt veitt öðrum
þjóðum hjálparhönd. Þeir hafa
nú síðustu 10 árin tekið á móti
flóttafólki, eða fólki sem komið
hefur í atvinnuleit til lengri eða
skemmri tíma.
Ráðgert er nú að Norðmenn
taki á móti a.m.k. 3 þúsund
manns frá Víetnam, en haldgóð-
ar heimildir áætla að eftir nokk-
ur misseri verði sú tala komin
upp í 6 þúsund.
Þeir sem komið hafa hingað í
atvinnuleit eru aðallega frá
Suður-Evrópu og úr löndum Mú-
hameðstrúarmanna. Eru þar
Pakistanar og Tyrkir fjölmenn-
astir. Álitið er að þetta séu
kringum 15 þúsund manns, og
fjölgar ört þar sem lítið er
skeytt um takmarkanir á barn-
eignum.
hjálparstarfsemi í Tanzaníu í
Austur-Afríku, en það land er
tiltölulega auðugt frá náttúr-
unnar hendi. Aftur á móti skort-
ir tæknimenntaða menn, og stór
hluti landsmanna lifir ennþá á
steinaldarstigi. Er nú gert ráð
fyrir að starfsemin í Tanzaníu
muni kosta Noreg um einn
milljarð norskra króna á næstu
árum.
í nágrannaríkinu Kenýa hafa
Norðmenn kennt innfæddum
vegagerð eftir nýjustu tækni.
Samkvæmt upplýsinguin frá
verkfræðingi sem þarna starfaði
taldi hann Kenýamenn heldur
lata og voru sumir þeirra jafnvel
mótfallnir vegalögninni. Einn
þessara frumstæðu manna lét
eftirfarandi orð falla: „Götuslóð-
arnir hafa nægt mér og forfeðr-
um mínum, en þessi breiði harði
vegur er bara fyrir yfirvöldin ...
svo auðveldara verði fyrir þau að
ná til okkar, sem hafa búið í friði
úti á landsbyggðinni." Verkfræð-
ingurinn kvaðst eftir þetta hafa
þá skoðun að vafamál væri að
innreið menningarinnar í frum-
stæð lönd, hefði alltaf blessun í
för með sér.
Baráttan gegn landeyðingu er
eitt af mörgum verkefnum. í
ýmsum löndum heims er hún
mikil, einkum í þeim löndum
Afríku sem liggja næst Sahara-
eyðimörkinni. Árlega hverfur
mikið landsvæði undir eyði-
mörkina og er hún nú stærri en
nokkru sinni áður. Meðal verk-
efna norskra vísindamanna er að
gera tilraunir með vissar trjá-
tegundir, sem gróðursettar hafa
verið í sandinum. Tilraunir þess-
ar lofa góðu, og tré sem gróður-
sett voru fyrir rúmu ári hafa
vaxið um einn metra. Vonast er
til að hið greinótta rótarkerfi
þessara trjáa geti bundið sand-
fokið og fært landeyðinguna í
fjötra.
Norska ríkið og kirkjan reka
margvíslega hjálparstarfsemi í
ýmsum fátækum og vanþróuðum
löndum í Afríku, Asíu og Suður-
Ameríku. Sú starfsemi er aðal-
lega fólgin í að kenna fólki
hagnýta tækni á sviði landbún-
aðar, iðnaðar og fiskveiða, en
jafnframt er reynt að bæta
heilsufar þjóða þar sem þörfin
er brýnust.
Norðmenn hafa ennfremur
verið manna fyrstir til að hjálpa
þeim sem orðið hafa fyrir tjóni
vegna náttúruhamfara, hvort
heldur það hafa verið flóð austur
á Indlandi, eða eldgos á íslandi.
Ekki eru reyndar allir Norð-
menn hrifnir af „hjálparstarf-
seminni", og er það sérstaklega
innflutningur fólks af þeldökk-
um og lituðum þjóðum, sem
margir telja varhugaverðan.
Ljóst er að Múhameðstrúar-
menn halda fast við sín trúar-
brögð og siði, og að þeir verða
ekki hindraðir í því. Hins vegar
getur þetta orðið til þess að þeir
aðlagist ekki norsku þjóðfélagi
og geti í framtíðinni orðið þjóð-
arbrot. Slíkt getur skapað ófyr-
irsjáanleg vandamál.
Nokkur illindi hafa orðið milli
norskra unglinga og unglinga
frá Víetnam. Beittu Víetnamar
hnífum með þeim afleiðingum að
nokkrir Norðmenn særðust. Yf-
irvöld gera heldur lítið úr þessu
og telja að misskilningur vegna
lélegrar málakunnáttu sé ástæð-
an.
Verkefnin í þróunarlöndunum
eru margvísleg og ljóst að Norð-
menn geta ekki verið alls staðar
og hjálpað öllum. Þetta hefir
m.a. orðið til þess að ákveðið er
nú að einbeita sér að víðtækri
Steindu
gluggarnir
eign Kópavogs
í FRÉTT í Mbl. á laugardag varð
sá misskilningur að steindu glugg-
arnir eftir Gerði Helgadóttur, sem
komu til landsins fyrir sýninguna
á Kjarvalsstöðum, væru fengnir
að láni frá Þýzkalandi. Þeir eru
framleiddir í Þýzkalandi í verk-
stæði dr. Oidtmans, en eru í eigu
Lista- og menningarsjóðs Kópa-
vogs og eru hluti af listaverkagjöf
systkina Gerðar, og verða því í
framtíðinni hluti af verkum í
listasafni Kópavogs.
Ungt fólk
með Albert
Laugardalshöllinni miövikudag 4. júní kl. 21.30
Margir lanc rægir skemmtikraftar koma fram m.a.:
★ Brimkló ★ Start ★ Magnús & Jóhann & Co.
★ Pálmi Gunnarsson ★ Diskótekiö Dfsa ★
• Kynnar: Baldur Brjánsson og Magnús E. Kristjánsson.
Módel 79 sýna tískuna frá Quadro
HLJÓMLISTIN VERÐUR FLUTT í
NÝJU 20.000 WATTA HÁTALARA-
KERFI FRÁ STERÍÓ
Brynhildi
Allir velkomnir Ókeypis aðgangur
Sviösstjóri Gubjörn Magnússon.
Hljóöstjóri Bjarni Haröarson.
Lýsing Bjarni Þór Óskarsson.
Sviösmaöur Páll Ársælsson.
Unga
fólkið
kýs
Albert
og