Morgunblaðið - 04.06.1980, Page 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÍJNÍ1980
Landsþing J.C.
Rætt við
nokkra þing-
fulltrúa
Til
umfjöllunar
í umræðum
um frjálst
viðskiptalíf:
Ýmiss konar námskeiðahald er stór liður í starfsemi J.C. í róðstefnusal Loftleiða stóð yfir námskeið fyrir viðtakandi stjórnir aðildarfélaganna.
Námsefnið miðaöi að því að (?era þátttakendur hæfari til að stjórna félögunum á komandi starfsári.
Islands
VLlr '3 v
Vtí
Herra ríkisvald, fröken verð-
lagsnefnd og frú verðbólga
„NÆST skulum við nefna náinn vin hr. Ríkisvalds, fröken
Verðlagsnefnd. Hún telur sjálfsagt og í rauninni
bráðnauðsynlegt að útdeila alls konar álagningarprósent-
um eftir einu úreltasta verðlagskerfi sem völ er á í dag,
verðlagskerfi, sem allir aðilar viðskiptalífsins að meðtöld-
um neytendum hafa viðurkennt að er stórskaðlegt fyrir
þjóðina. Þá skulum við aðeins minnast á frú Verðbólgu
Við erum stödd á Landsþingi Junior Chamber að Hótel
Loftleiðum og sá sem þetta mælir er Gísli Blöndal
formaður Kaupmannafélags Austurlands og umræðuefn-
ið er „Frjálst viðskiptalíf, vagga velmegunar", en það var
einnig kjörorð þingsins. Gísli var einn af fimm frummæl-
endum um þennan málaflokk.
Landsþingið stóð frá 14,—17. maí, sátu það um 300
manns, og fóru þar fram stjórnarskipti, ýmis námskeið
voru haldin, gerð var úttekt á starfi sl. árs og einnig fór
fram úrslitakeppni í rökræðukeppni J.C. Island. Sigurveg-
arar urðu J. C. Húnabyggð, en þeir fóru einnig með sigur
af hólmi á síðasta ári. Þá fór fram á þinginu samkeppni
um kjörorð fyrir samtökin „Viðskipti og verzlun".
„Verzlunarfjötrar — versnandi hagur. Frjáls verzlun —
framtíð þjóðar“ var valið bezta kjörorðið og hugmyndina
átti Einar Rafn Haraldsson J.C. Héraði.
Leggja öryrkjum lið
Við tókum nokkra þingfulltrúa
tali, fyrst hittum við nýkjörinn
landsforseta Andrés B. Sigurðsson
og fráfarandi forseta Hauk
Gíslason. Andrés sagði að hann
teldi merkilegasta árangur þings-
ins ákvörðunina um landsverk-
efni, sem yrði „Leggjum öryrkjum
lið“ og að ákveðið hefði verið að
gera það að tveggja ára verkefni.
Andrés sagði ekki hyggja á neinar
róttækar breytingar á starfshátt-
um J.C. „Við stefnum að því að
stækka hreyfinguna, stofna 6 ný
aðildarfélög og fjölga félögum úr
1.200 í 1.400.“ Meginmarkmið okk-
ar verður framvegis sem hingað
til að láta verkin tala og gefa
öllum félögum J.C. tækifæri til
þroska með vinnu í J.C.
Haukur sagðist ekki sjá eftir
forsetahlutverkinu. „Síður en svo.
Þetta er bezti skóli sem ég hefi
gengið í gegnum. Þetta er eitt
tækifæri í eitt ár og ég hef reynt
að nýta það til fulls. Nú fær annar
tækifærið og svo koll af kolli“.
Hann sagðist ánægður með þann
fjölda sem sótt hefði í J.C. Við
spurðum hann, hvort ekki væri
hætta á að hreyfingin yrði of stór.
„Á meðan eru til einstaklingar
hérlendis á aldrinum 18—40 ára
sem ekki eru í J.C., þá höfum við
verk að vinna“ var svar hans.
Andrés B. Sigurðsson nýkjörinn landsforseti t.v. Haukur Gislason
fráfarandi t.h. Ljósm. Emilia B. Björnsdóttir.
Árni b. Árnason
Vinna að uppbygg-
ingu einstaklingsins
Árni Þór Árnason J.C.
Reykjavík var kjörinn varalands-
forseti á þinginu. Hann var einnig
forseti J.C. Reykjavíkur en það
félag sá um undirbúning þing-
Jón Gunnar Edvards
haldsins. Hann sagðist ánægður
með þinghaldið, allt hefði gengið
vel og mál fengið góða afgreiðslu.
Hann sagði að fólki úr viðskipta-
lífinu hefði fækkað hlutfallslega
innan J.C., nú væri þar fólk úr
öllum stéttum. Hann sagði starf-
semina hafa verið fjölbreytta á
Lárus Ragnarsson
síðasta ári og á þinginu hefði
árangur verkefna verið ræddur og
skipst á skoðunum. þingið gætu
fulltrúar frá félögum alls staðar
af landinu og gæfi það góða raun
að skiptast á hugmyndum. - En
hvert er aðalmarkmiðið? Starfið
snýst mikið um mannleg sam-