Morgunblaðið - 04.06.1980, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980
45
isbaráttu Serba. Meöal afreka
hennar á því sviöi var aö hún
haföi á eigin spýtur sprengt brú í
loft upp til aö hefta sókn Þjóö-
verja. Eins og Tító var hún af
bændafóiki komin. Eftir stríö var
hún majór í herþjónustu Títós.
Þau gengu í hjónaband 1952, er
Tító haföi fengiö skilnaö frá
annarri konu sinni. Næstu 25 árin
varö ekki annars vart en þetta
væri hiö fullkomna hjónaband.
Þá var Tító kominn á níræöis-
aldur, og vildi helzt hafa ró og
næöi eftir aö einkaritari hans fór,
sem venjulega var um sjö-leytiö.
löulega var ró hans raskaö meö
símhringingum flokksbrodda, og
Jóvanka fór aö hafa þann hátt á
aö spyrja ævinlega hvort erindiö
væri mjög áríöandi, eða hvort
þaö gæti e.t.v. beðiö til morguns.
Smám saman fór Jóvanka aö
færast í aukana, þar til hún var
farin aö segja: „Ég læt mig einu
gilda hversu mikilvægt þér teljiö
þetta vera. Ég læt ekki trufla
forsetann í kvöld." Og þar meö
lagöi hún á tóliö.
Tító fylgdist ekki meö því
hvaöa vandræöum þetta olli þar
til einn nánasti aöstoöarmaöur
hans færöi þaö í tal viö hann.
Hann sagöi þá viö Jóvönku: „í
framtíöinni læturöu mig um aö
ákveöa hverju þarf aö sinna á
stundinni og hvaö má bíöa til
morguns." Jóvanka mótmælti,
en Tító tjáöi henni þá aö héldi
hún áfram aö reyna aö einangra
hann frá flokksforystunni, þá
kæmi aö því aö hann yröi aö
flytja aö heiman.
Jóvanka lét sér ekki segjast.
Hún tók ekki í mál aö leggja
verndara-hlutverkið á hilluna, og
auövitaö fór svo aö lokum aö
mælirinn var fullur. Háttsettur
flokksleiötogi sagöi Tító aö Jó-
vanka heföi komið í veg fyrir aö
hann kæmi til forsetans orösend-
ingu varöandi mjög mikilvægt
mál. Tító haföi engar vöflur á.
Hann lét setja persónulega muni
sína niöur í töskur og fór.
Hann haföi taliö óhjákvæmi-
legt aö velja milli Jóvönku og
þjóöarinnar. Þjóöin haföi skipt
hann meira máli.
Útilokaö var aö halda þessu
ástandi leyndu. Þaö vakti strax
eftirtekt aö Jóvanka var ekki
viöstödd þar sem hún lét sig
venjulega ekki vanta, og þaö
kom af staö allskyns orörómi.
M.a. var sagt aö Tító heföi tekiö
sér ástkonu og því heföi Jóvanka
yfirgefiö hann; ennfremur aö
Jóvanka væri komin í ónáö, og
jafnvel aö húri heföi ásamt
serbneskum hershöföingja
bruggað Tító vélráö. Aldrei kom
neitt á daginn, sem benti til þess
aö slíkur orörómur ætti viö rök
aö styöjast, en Jóvanka átti sér
ýmsa óvini. Þaö var á allra vitoröi
innan flokksins aö Tító tók mikiö
mark á áliti hennar á einstökum
flokksmönnum, meö þeim afleiö-
ingum aö ýmsum var fórnaö.
Tító rétti hvaö eftir annaö fram
sáttahönd, en meö skilyröum
sem Jóvanka taldi sér ekki fært
aö ganga aö.
í lok ársins 1978 ætlaði Tító aö
efna til mikillar áramótaveizlu aö
setri sínu á eynni Brioni viö
Adriahafiö. Hann bauð Jóvönku.
Tító til hinnar mestu mæöu
hafnaöi hún boðinu. „Jafnvel mig
haföi aldrei óraö fyrir því aö hún
væri svona hörö af sér,“ sagöi
Tító. Samkvæminu var aflýst.
Síðla árs 1979 hélt Tító full-
trúum erlendra ríkja árlegt hóf í
veiöihúsi í nágrenni Belgrad.
Hann lék á als oddi og fagnaði
hverjum gesti af mikilli hlýju.
Hann lét þaö berast út aö í ár
yröi haldin áramótaveizla á
Brioni, og aö Jóvanka yrði viö
hiiö hans aö þessu sinni.
Innan tveggja vikna kom reið-
arslagiö. Blóötappi varö til þess
aö óhjákvæmilegt var aö taka af
honum fótinn, og sjúkdómurinn
dró hann loks til dauöa. Ára-
mótaveizlan var ekki haldin og
Tító átti ekki afturkvæmt á heim-
íli sitt í Uzice-stræti þar til hann
var borinn þangaö liöiö lík.
Fremst syrgjenda var Jóvanka.
Sveinn Guðmundsson, Miðhúsum:
Engra hagsmuna hef ég sjálfur
að gæta í vali vegarstæðis til
Vestfjarða, því að þjónustuleiðir
liggja til suðurs héðan og eigum
við frá þeim bæjardyrum séð
meiri samleið með Vesturlandi en
Vestfjörðum. En við tilheyrum
Vestfjarðakjördæmi og höfum
reynt að fylgja þeirri reglu að
treysta innviði kjördæmisins og
höfum talið að til þess að það sé
hægt þurfi samgöngur að vera
sem bestar.
Ég hygg að ekki þurfi nema
meðalgreindan mann til þess að
sjá að rökstutt val Vegagerðarinn-
ar yfir Kollafjarðarheiði var sá
þessa bréfs og það er staða okkar
Barðstrendinga gagnvart ykkur,
sem eigið að heita þingmenn
okkar, og þeim flokkum sem á bak
við ykkur standa.
í dag eigum við Barðstrend-
ingar engan þingmann og hversu
gott þingmannsefni sem þeir
kynnu að eiga, ættu þeir ekki kost
að koma honum á þing. Sá
skrípaleikur er liðinn að setja þá í
5. sæti á framboðslistum. Þessir
menn áttu sjaldnast þess kost að
tjá skoðanir sínar í sölum Alþing-
is.
Hins vegar geta Barðstrend-
ingar þó fámennir séu ráðið því ef
út á landsbyggðina svona óréttur.
Er það ekki líka misbeiting á valdi
eða brot á nútíma mannréttindum
að við skulum ekki ná út úr héraði
hvað sem liggur á utan lögboðins
símatíma, nema fyrir fórnfýsi og
velvilja starfsfólks símastöðvar
okkar. Við gætum staðið varnar-
lausir ef slys eða eldsvoða bæri að.
Annars held ég, að þó kjarninn
sé mikilvægur þá séu rafeindirnar
sem á brautunum eru ekki síður
mikilvægar. Ég efast ekki um
mikilvægi þéttbýlisstaða, en þeir
sem fjær búa eru útverðir þéttbýl-
isins og eiga að njóta sömu
réttinda og bera sömu skyldur.
Þeir verða því
að njóta jafnréttis
Metorðin hafa
margan blindað
kostur er skástur var. Það má
aldrei blanda saman óskhyggju
og staðreyndum.
Ég dáist að starfsmönnum
Vegagerðarinnar fyrir að hafa
manndóm til þess að taka ákvarð-
anir byggðar á þekkingu og hlut-
lægu mati og láta utanaðkomandi
þrýsting lönd og leiðir.
Ég dáist líka að verkfræðingi
Vegagerðarinnar á Vestfjörðum.
Hann hafði þann manndóm til
þess að bera að fara eftir sannfær-
ingu sinni. Persónunag tilheyrir
alltaf vanheilu fólki og lendir að
lokum hjá þeim er iðjuna stunda.
Þá er ég kominn að aðalkjarna
AÐALFUNDUR Blaða-
mannafélags íslands var
haldinn síðastliðinn laugar-
dag. Á fundinum var sam-
þykkt ályktun vegna styr ■
sem staðið hefur u
fréttastofu hljóðvarps. Þar
stendur, „Blaðamannafélag
íslands varar af gefnu til-
efni við tilhneigingum út-
varpsráðsmanna og ann-
arra til þess að hefta frelsi
fréttamanna útvarpsins.
Fréttamönnum ríkisút-
varpsins ber að hlíta ströng-
um hlutleysisreglum, en BÍ
leggur áherzlu á að innan
þess ramma á þeim að vera
frjálst að taka til fréttameð-
ferðar hvaðeina, sem til
tiðinda telst. Aðalfundurinn
fagnar því að yfirmenn
fréttastofu útvarpsins hafa
staðið fast á rétti frétta-
manna í yfirstandandi deil-
um og vekur athygli á nauð-
syn stéttarlegrar samstöðu í
faglegum efnum.“
Kosið var í Menningarsjóð
félagsins og hlutu eftirfar-
andi kosningu: Helgi H.
MYNDAMÓT HF.
PRKNTMYNOAOKRÐ
AÐALSTRÆTI • - SlMAR: 17152-17355
þeir vilja hvort flokkarnir fái
einum kjördæmakosnum þing-
manni fleira eða þá færra ef við
viljum orða það svo.
Éinhvers staðar sá ég það að þið
hefðuð höggvið á hnút með því að
velja Steingrímsfjarðarheiðina. Á
hvaða hnút var höggvið? Ég sé
ekki betur en nú hafi þetta mál
verið sett í alvarlega flækju og það
svo alvarlega að vart mun finnast
nothæfur endi.
Mér sýnist að hrikt gæti í
undirstöðum Fjórðungssambands
Vestfirðinga. Ekki trúi ég því að
fulltrúar Barðstrendinga láti ekki
í sér heyra á þeim vettvangi, enda
Jónsson, útvarpinu, Magnús
Finnsson, Mbl., og Fríða
Björnsdóttir, Tímanum. Kos-
io var í siðareglunefnd fé-
lagsins og voru þeir Gísli J.
Ástþórsson, séra Bjarni Sig-
urðsson og Vilhelm G. Krist-
insen kosnir. Stjórn Blaða-
mannafélags íslands skipa
nú: Kári Jónasson, formaður,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Mbl., Fríða Björnsdóttir,
Tímanum, Einar Örn Stef-
ánsson, Þjóðviljanum, Bragi
Guðmundsson, Vísi, Ómar
Valdimarsson, DB og Helgi
Már Arthúrsson, Alþýðu-
blaðinu.
vafasamt hversu mikla áherslu
eigi að leggja á það samstarf eins
og búið er að klúðra málum að
óþörfu.
Ekki spurðu þið, þingmenn,
Austur-Barðstrendinga ráða þeg-
ar þið fluttuð heilbrigðisþjónustu
okkar með lögum norður til
Hólmavíkur. Ekki hef ég heyrt
þess getið að um neinn vilja frá
ykkar hendi til þess að fram-
kvæma þessi lög, eða þá að bæta
vegasambandið á milli Stranda-
sýslu og Austur-Barðastranda-
sýslu, sem vonandi hefði verið
skoðun ykkar.
Það er liðin tíð að háttvirtir
kjósendur á minnihlutasvæðum
láti draga sig endalaust og það
tekur enginn venjulegur Barð-
strendingur lengur mark á hjali
ykkar fyrir kosningar.
í mínúm huga er Steingríms-
fjarðaraxarskaftið ekki nema kór-
óna á misrétti það sem minnhluta-
hópar í Vestfjarðarkjördæmi
verða að þola. Við þurfum að
breyta því kerfi sem bíður upp á
svona misnotkun á valdi.
Mín skoðun er sú að landið allt
sé byggt, enda held ég að hún
brjóti ekki í bága við skoðanir
ykkar. Öll þjónusta sem ríkið
veitir eða ekki í bága við skoðanir
ykkar. Öll þjónusta sem ríkið
veitir eða fyrirtæki þess á því að
vera á sama verði hvar sem er á
landinu. Ríkisvaldið hefur mis-
beitt þessu valdi og „Hvað höfð-
ingjarnir hafast að hinir meina
sér leyfist það“. — Það er ykkar
afsökun.
Það er til dæmis mismunun að
við hér þurfum að borga margfalt
meira fyrir að tala við opinbera
stofnun í Reykjavík en fyrir þá
sem á Reykjavíkursvæðinu búa.
Er ekki söluskatturinn á flutningi
Ekki trúi ég því í alvöru að þið
séuð fylgjendur að „smækka"
landið. Eg veit að öll þjóðin
kæmist fyrir í Reykjavík og á
Suðurlandsundirlendinu. Það er
skrítin stefna að flytja út fólk og
draga byggðina saman.
Ég hef bæði átt heima í þéttbýli
og dreifbýli og finn ekki þann
geigvænlega menningarmismun,
sem talað er um. Ég hef kynnst
æskunni á báðum svæðum og finn
þar ekki mun á. Mannsefni eru á
báðum svæðum, en tækifæri til að
þroska hæfileika sína eru mun
lakari í dreifbýli. Það er ykkar að
bæta úr því.
Ég hef beint skeytum mínum til
ykkar, Vestfjarða-þingmenn, en
það eru fleiri sem þurfa að segja
sína skoðun og þar á ég við
Alþýðubandalagið og Samtökin.
Þeir verða að njóta sannmælis.
Að lokum langar mig að segja
ykkur hálfrar aldar vegagerðar-
sögu:
Austur á landi vildu kjósendur
ákveðins valdaflokks fá veg í sitt
byggðarlag, sem var miklu dýrari,
en þann sem framsýnni menn
töldu að vegur framtíðarinnar
hlyti að koma. Fólkinu sýndist að
langi og dýri vegurinn yrði miklu
betri.
Það var unnið og unnið fyrir
ótaldar krónur, en þegar vega-
gerðin var hálfnuð snerist kjós-
endum hugur og hin leiðin valin.
Þessi vegur er nú fallið minnis-
merki og kemur hér upp í hugann
vegna þess að sagan gæti endur-
tekið sig hér.
Annars getið þið bjargað heiðri
ykkar ennþá, þingmenn góðir.
Gerið góðan veg yfir Kollafjarð-
arheiði sem yrði fær flesta daga
ársins. Sumarveg yfir Steingríms-
fjarðarheiði og góðan veg á milli
Strandasýslu og Austur-Barða-
strandarsýslu. Já, í öllu óðagotinu
gleymdist ykkur Þorgeirsdalur-
inn. Hann er þó talinn valkostur.
Ég held að hann sé þó skárri
kostur en Steingrimsfjarðarheið-
in, en gildir færri atkvæði.
Vestfjarða þingmenn. Ég vona
að þið viljið vera þingmenn alls
kjördæmisins. Það er mannlegt að
skjátlast, en það þarf kjark að
skipta um skoðun.
Sveinn Guðmundsson
BYLTINGIHARTOPPUM
Sérfræðingur frá hinu
heimsþekkta fyrirtæki
Trendman kynnir al-
gera nýjung í hártopp-
um á rakarastofu
minni, laugard. 7.,
sunnud. 8. og mánud.
9. júní.
Verið ungir og glæsi-
legir eins lengi og
hægt er.
PANTIÐ TÍMA
í SÍMA 21575
EÐA 42415
VILLI RAKARI, miklubraut es.
Blaðamenn gera
ályktun vegna deilu
um fréttaflutning