Morgunblaðið - 04.06.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
51
Borgarafundur um
frjálst útvarp og
sjónvarpskerfi í
fjölbýlishúsum
UNDIRBÚNINGSNEFND að
stofnun félags um frjálsan út-
varpsrekstur efndi til almenns
borgarafundar i framhaldi af
rannsóknum yfirvalda á sjón-
varpskerfum i fjölbýlishúsum
laugardaginn 31. april sl. Fund-
arstjóri var dr. Jónas Bjarnason.
Fundinn setti Guðmundur H.
Garðarsson og skýrði hann m.a.
Jón Skúlason póst- og simamála-
stjóri.
frá því á hvaða stigi undirbún-
ingsstarfið væri fyrir stofnun
samtaka um frjálsan útvarps-
rekstur. Kom þar fram að þrjár
vinnunefndir væru starfandi. Ein
sem fjallar um fjármál, önnur um
tæknilegu hliðina og sú þriðja um
dagskrárgerð. Athuganir hafa
verið gerðar á uppsetningu sjón-
varps- og útvarpsstöðva af nokkr-
um mismunandi gerðum og stærð-
um. Var það verk unnið af Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni lögfræð-
ingi. Kristinn Andersen verkfræð-
inemi hefur aflað upplýsinga um
tækjaútbúnað o.fl. Framsögu-
ræður fluttu þeir Sigurður G.
Ólafsson útvarpsvirki og Markús
Örn Antonsson ritstj. í ræðum
þeirra kom m.a. fram að miklar
nýjungar og geysihröð tækniþróun
hefur átt sér stað í þessum efnum,
og ekki síst varðandi lokuð sjón-
varpskerfi ekki ósvipuð þeim sem í
notkun eru hérlendis í nokkrum
fjölbýlishúsum og mikið hafa ver-
ið til umræðu undanfarið.
Þá kom fram á fundinum i
ræðum manna að búið er að
tengja lokuð sjónvarpskerfi í
nokkrum nýjum fjölbýlishúsum,
m.a. á Reykjanesi og víðar. Fannst
mönnum það skjóta nokkuð
skökku að hið opinbera leyfði
innflutning á efnum og tækjum og
heimti af þeim töluverða skatta og
tolla en síðan væri bannað að nota
þessi tæki.
Meðal fundarmanna var Jón
Skúlason póst- og símamálastjóri.
Útskýrði hann m.a. fjarskiptalög-
in fyrir fundarmönnum og sagði
einnig að meðal forráðamanna
Pósts og síma væri fullur áhugi á
að mæta tækninýjungum á þessu
sviði með jákvæðum hætti, en að
sjálfsögðu þyrfti löggjafinn að
afnema þau höft sem í lögum
væru sem hindruðu slíkan rekstur.
Var gerður góður rómur að máli
hans og hversu jákvæður hann
hefði verið.
Á fundinum var eftirfarandi
tillaga samþykkt samhljóða:
„Borgarafundur haldinn að
Hótel Borg laugardaginn 31. maí
1980 mótmælir því að yfirvöld
seilist inn á friðhelgi heimilanna
með því að ætla að stöðva notkun
myndsegulbandskerfa í fjölbýlis-
húsum.
Fundurinn bendir á að sjón-
varpskerfi þessi eru fyrst og
fremst sett upp vegna mikillar
hagkvæmni, og ná ekki út fyrir
veggi heimilanna.
Fundurinn telur að uppsetning
sjónvarpskerfa þessara sé einung-
is eðlileg viðbrögð fólks sem ekki
unir lengur ríkiseinokun á útvarpi
og sjónvarpi.
Fundurinn skorar á stjórnvöld
að koma því til leiðar að útvarps-
rekstur verði gefinn frjáls."
Leiguvél Arnarflugs við komuna til Keflavikur á laugardag. Magnús Gunnarsson. framkvæmdastjóri
Arnarflugs, annar frá vinstri á myndinni. tekur á móti áhöfn vélarinnar við komuna. Ljósm. Mbl. ÓI.
K. Magn.
Arnarflug tekur á leigu
Boeing 707320C vegna
leiguflugs í Jórdaníu
Á LAUGARDAG kom til lands-
ins fiugvéi af gerðinni Boeing
707-320C, sem Arnarflug hefur
tekið á leigu vegna leiguflugs á
vegum félagsins i Jórdaniu. Að
sögn Magnúsar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Arnarflugs,
er vélin tekin á leigu til 5
mánaða og er þar um að ræða
leigusamning með mögulegum
kaupum á vélinni á föstu verð-
lagi innan leigutimans.
Að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar hefur Arnarflug tekið að
sér leiguflug fyrir jórdanska
ríkisflugfélagið Alia og mun
vélin fljúga í áætlunarleiðum
Alia í Mið-Austurlöndum. Þegar
liggur fyrir samningur um slíkt
leiguflug á 3 mánuði og er
jafnframt gert ráð fyrir að
framhald geti orðið á þessu
verkefni. Yfir 30 manns fara
héðan á vegum Arnarflugs til að
sinna þessu verkefni en Magnús
sagði að samningurinn við Alia
hljóðaði upp á 800 milljónir
íslenskra króna.
Flugvélin, sem Arnarflug tók
á leigu vegna þessa verkefnis, er
10 ára gömul og tekur 189
farþega en í áhöfn eru 8.
Véiin er einnig útbúin með
vöruflutningadyrum og getur
hún sem vöruflutningavél flutt
40 tonn. Vélin er vel búin
tækjum og er með breiðþotuinn-
réttingu. Vélin verður máluð hér
heima í litum Arnarflugs og að
hluta í litum leigutakans, Alia,
en á miðvikudag verður henni
flogið áleiðis til Jórdaníu.
Nær 800 komu á „dag hestsins“
HAGSMUNAFÉLAG hrossa-
bænda og Félag tamningamanna
efndu siðast liðinn laugardag til
dagskrár undir heitinu „dagur
hestsins“ á Melavellinum i
Reykjavik. Fjólbreytt sýningar-
atriði voru á dagskrá en óhag-
stætt veður spillti nokkuð fyrir.
Alls komu nær 800 manns á
Melavöllinn til að sjá sýninguna.
Meðal atriða á degi hestsins var
sýning á 14 stóðhestum, sem
sýndir voru sem einstaklingar og
einnig voru sýndir 6 afkvæmahóp-
ar stóðhesta og stofnræktarfélaga.
Þá sýndu unglingar úr Hesta-
mannafélaginu Fáki í Reykjavík
ýmis sýningaratriði og sýnd var
notkun hestsins fyrr á tímum.
Einnig komu fram ýmsir frum-
herjar hestamennskunnar hér-
lendis eins og hún er nú iðkuð.
Félagar í Félagi tamningamanna
sýndu einnig ýmsa af snjöllustu
gæðingum landsins.
Unglingar úr Fáki sýndu ýmis sýningaratriði á degi hestsins. Ljósm. ÓI.K.Magn.
I
I
Þau tóku sig vel út þessi en ekki vitum við hvort förinni var heitið til
kirkju eða i kaupstað. Meðal þess, sem sýnt var á degi hestsins var
notkun hestsins fyrr á árum hérlendis.