Morgunblaðið - 04.06.1980, Page 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980
Minntu á sorgardag
Upphaf hvalveiðanna
Á sunnudag sigldu hvalveiði-
bátarnir úr höfn til að hefja
hvalavertíð. Eftir hádegi gengu
þessi ungmenni úr félagi
áhugamanna um hvalavernd,
Skuld, fylktu liði með likkist-
una þá arna frá Ásmundarsal,
þar sem hvalasýningu Green-
peaee manna var að Ijúka og
niður á Austurvöll.
Á Austurvelli var leikinn
sorgarmars á selló. Þá hélt Jón
Baldur Hlíðberg (líkkistuberinn
í miðið) tölu og minnti á það að á
svo fallegum degi listahátíðar og
sjómanna, væri líka sorgardag-
ur, þar sem nú væri að hefjast
blóðbað og dráp hvalanna. Fleiri
tóku til máls og kynntu málefni.
Ljósm.: Kristinn.
Grindavík:
Minnisvarði um
drukknaða sjó-
menn afhjúpaður
Samráðsfundur kennarasamtaka á Norðurlöndum:
Undirbúningur að stofnun
norrænna kennarasamtaka
ferðarþróunar, sem síðan hefur
átt sér stað. Formaður Hins
íslenska kennarafélags er Jón
Hnefill Aðalsteinsson.
Sjö sækja
um embætti
bæjarfógeta
á Akureyri
RUNNINN er út umsóknarfrest-
ur um embætti bæjarfógeta á
Akureyri, Dalvik og sýslumanns
Eyjafjarðarsýslu. Sjö umsóknir
bárust og eru umsækjendur þess-
ir:
Andrés Valdimarsson, sýslu-
maður í Stykkishólmi, Elías Elí-
asson, bæjarfógeti á Siglufirði,
Freyr Ófeigsson, héraðsdómari á
Akureyri, Gunnar Sólnes hæsta-
réttarlögmaður, Akureyri, Jó-
hannes Árnason, sýslumaður á
Patreksfirði, Sigurberg Guðjóns-
son, fulitrúi í Kópavogi og Sigurð-
ur Gizurarson, sýslumaður á
Húsavík.
Þrjár sölur
erlendis
ÞRJÚ fiskiskip lönduðu afla
sínum erlendis í gær og á næst-
unni landa allmörg skip ytra. í
gær landaði Hringur GK 47,7
tonnum í Hull og fékk 25,7 millj-
ónir fyrir aflann, meðalverð 539
krónur. Gullberg seldi í Grimsby
72,9 tonn fyrir 36 milljónir, meðal-
verð 494 krónur. Olafur Frið-
bertsson seldi 84,5 tonn í Cux-
haven fyrir 33,6 milljónir, meðal-
verð 397 krónur, en uppistaðan í
afla togarans var gráiúða.
Grindavik. 2. júní 1980.
Á SJÓMANNADAGINN var af-
hjúpaður i Grindavík minnis-
varði um drukknaða sjómenn frá
Grindavík. Kristín Þorvaldsdótt-
ir, dóttir eins drukknaðs sjó-
manns, afhjúpaði minnisvarðann
sem ber nafnið Vonin. Minnis-
varðinn er frábært handverk
listamannsins, Ragnars Kjart-
anssonar steypt í brons.
Listaverkið túlkar hryggð sjó-
mannsfjölskyldunnar sem horfir
út á hafið og vonar að fjölskyldu-
faðirinn komist heill í höfn.
Drengurinn er farinn að skilja
alvöru lífsins og styður hönd á kné
móður sinnar, tilbúinn að halda
starfinu áfram þó að illa fari.
Björgunarhringurinn er tákn von-
arinnar.
Kvenfélgaskonur í Grindavík
eru hvatamenn að þessu framtaki.
Til var minningarsjóður um
drukknaða menn í Grindavík og
hafa konurnar nú eflt þann sjóð af
miklum dugnaði studdar af bæjar-
búum.
— Fréttaritari.
LÖGREGLUMAÐUR slasaðist
illa á auga, þegar hann og
starfsfélagar hans ætluðu að
handtaka ungan mann í Naut-
hólsvík á sjómannadaginn. Lög-
reglan var að ryðja bryggjuna í
Nauthólsvik þegar ungur maður
neitaði að yfirgefa bryggjuna.
Þegar lögreglumenn ætluðu að
handtaka manninn réðst hópur
fólks að þeim og þurfti lögreglan
að kalla til liðsauka. Til nokk-
urra átaka kom milli lögreglu-
mannanna og fólksins og var
lögreglumönnum hrint í götuna
og föt þeirra rifin.
Guðmundur Hermannsson yfir-
lögregluþjónn sagði að tildrög
þessara átaka hefðu verið þau, að
forráðamenn sjómannadagsins
hefðu óskað eftir því að bryggjan í
Nauthólsvík yrði rýmd vegna
koddaslags, er þar átti að fara
fram og verðlaunaafhendingar.
Gekk vel að ryðja bryggjuna utan
það að einn drukkinn og uppi-
vöðslusamur ungur maður vildi fá
að taka þátt í koddaslagnum og
neitaði að fara af bryggjunni.
Þurftu lögreglumenn að taka hann
með valdi og ætluðu að setja hann
í handjárn. Vegna óláta í mannin-
um og árása nærstaddra slapp
maðurinn. Lögreglan náði mann-
inum þó fljótlega eftir að hann
hafði hlaupið að bíl kunningja
sinna. Þar réðst enn hópur fólks
að lögreglumönnunum og þar var
meðal annars sparkað í andlit
lögreglumannsins, sem slasaðist á
auga og áður segir frá.
Alls voru 4 handteknir vegna
þessa atburðar og var tveimur
þeirra haldið þar til í gærmorgun,
er Rannsóknarlögregla ríkisins
hóf rannsókn málsins. Lögreglan
hefur kært viðkomandi fyrir brot
á 106. grein almennra hegningar-
laga en hún fjallar um refsingar
við því að hindra opinberan
starfsmann við störf sín.
Vandað sjómannadagsblað
Vestmannaeyja 1980
SJÓMANNADAGSRÁÐ Vest-
mannaeyja hefur að vanda sent
frá sér vandað sjómannadagsblað
eða öllu heldur ætti að tala um
sjómannadagsbók, en ritið er
talsvert á annað hundrað blaðsið-
ur að stærð og hið aðgengilegasta
á allan hátt. í þvi er að finna
margar greinar um hin ýmsu
verkefni, sem sjómenn í Eyjum
glíma við. Nú eru 30 ár liðin frá
því að Sjómannadagsráðið i Vest-
mannaeyjum réðst fyrst í það
verk að gefa út slíkt blað, en
síðan 1951 hefur blaðið verið
árvisst.
í blaðinu er ítarleg grein um
upphaf humarveiða hér við land
eftir Guðmund Vigfússon, Guðjón
Ármann Eyjólfsson skrifar um
síldveiðar fyrir 40 árum, viðtal við
Óskar Matthíasson skipstjóra, lát-
inna sjómanna er minnst, breyt-
ingum á flota Eyjamanna eru gerð
skil og meðal annarra höfunda
efnis í fjölbreyttu blaði má nefna
Þorstein Þorsteinsson og Sigur-
geir Jónsson ritstjóra blaðsins.
Sjómannadagsblað Vestmanna-
eyja er selt í Sjóbúðinni á Granda-
garði, Bæjarnesti við Miklubraut
og í Blaðsölunni hjá Eymundssyni.
DAGANA 30.—31. mai fór fram i
Reykjavík samráðsfundur kenn-
arasamtaka á Norðurlöndum i
boði Hins islenska kennarafé-
lags, sem er sameinað félag úr
Félagi háskólamenntaðra kenn-
ara á grunnskólastigi og Félagi
menntaskólakennara. Hafa sam-
ráðsfundir þessir verið haldnir
árvisst hin síðari ár, og er nú í
fyrsta skipti haldinn á íslandi.
Fram að þessu hefur eingöngu
verið um óformlegt samband að
ræða milli íslenskra kennara og
starfsbræðra þeirra á hinum
Norðurlöndunum, en með þessum
fundi var stigið lokaskrefið til
undirbúnings formlegri stofnun
norrænna kennarasamtaka á
þessu framhaldsskólastigi.
Er ætlunin að stofnunin verði í
ársbyrjun 1981. Megintilgangur-
inn með stofnun þessara samtaka
er að sögn forráðamanna þeirra
sá, að vinna að sameiginlegum
áhugamálum, skiptast á upplýs-
ingum og skoðunum, og menn bera
saman bækur sínar um hin ýmsu
hagsmunamál í einstökum lönd-
um. Það kom fram á blaðamanna-
fundi sem forsvarsmenn samtak-
anna boðuðu til, að fundir sem
þessir væru oftast haldnir í kjöl-
far aðalfunda kennarafélaga í því
landi sem boðar til samráðsfund-
anna.
í ályktun sem samþykkt var
í lok fundarins hér, segir m.a. að
kennarasamtökin lýsa áhyggjum
sínum yfir því að hrakandi efna-
hagsástand á Norðurlöndum hafi
leitt til þess að kröfur hafi verið
gerðar um minnkandi fjárframlög
til opinberra málefna, þ.á.m. til
skólamála. Ennfremur benda
samtökin á að það sé skammsýni
hjá stjórnvöldum að skera niður
framlög til menntamála, þar sem
það sé viðurkennd staðreynd að
hinar auknu kröfur sem gerðar
hafa verið í menntakerfi Norður-
landa eftir síðari heimsstyrjöldina
séu forsenda hinnar miklu vel-
Ráðist að lögreglu-
mönnum í Nauthólsvík