Morgunblaðið - 04.06.1980, Page 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÍTNÍ1980
Frá
þing-
slitum
Hvað segja þingflokksformenn?:
Liðið þing frá ólík-
um sjónarhólum
Ólafur
G. Einarsson:
„Undir-
mál sem
iðkuð
voru“
• 1. Ekki er auðvelt að benda á
mál, sem mikil reisn er yfir. En
mikilvæg mál eru auðvitað lögin
um jöfnun og lækkun hitunar-
kostnaðar, um aðbúnað og öryggi
á vinnustöðum og um Húsnæð-
isstofnun ríkisins. Því fer þó
fjarri að ég sé sáttur við öll
ákvæði þessara laga.
• 2. Starfstími þingsins var
annar en venjulega þar sem það
hófst ekki fyrr en 10. des. í stað
10. okt. Það varð til þess, að
fjárlög urðu ekki afgreidd fyrr en
í mars.
• 3. Þá sat hér starfsstjórn til
8. febrúar. Því var enginn ákveð-
inn meiri hluti í þinginu til þess
tíma, sem hafði svo í för með sér
óvissu um framgang mála, og að
sjálfsögðu einnig tafir.
En það sem skilur þingið mest
frá öðrum þingum, sem ég hef
setið, eru þau undirmál, sem
iðkuð voru við stjórnarmyndun.
Afleiðingarnar sjáum við ekki
enn að fullu, en víst er að þær
eru ekki og verða ekki til heilla.
Þótt það orð fari af stjórn-
málamönnum að þeir stundi ein-
kum fláttskap og annað ljótt, þá
er drengskapurinn mest metinn í
röðum þeirra. í stjórnmálastarfi
skiiar okkur því aðeins nokkuð á
leið, að við getum átt gagn-
kvæmu trausti að fagna. Við
atburði vetrarins hafa samskipti
manna færst mörg ár aftur í
tímann.
• 4. Þetta venjulega óðagot í
þinglok, þótt það sé raunar
minna nú en stundum áður,
vegna þess að þing stendur 10
dögum lengur en ríkisstjórnin
ætlaði.
Aðfinnsluvert er einnig, hve
seint á þingi mál voru lögð fram,
einkum hin stærri mál. Síðan er
ætlast til afgreiðslu á fáum
dögum og kallað málþóf ef eðli-
legar umræður eiga sér stað, eða
tafir á þingstörfum. Á þessum
síðustu dögum hafa þó stjórnar-
liðar notað meiri tíma til ræðu-
halda en sjálfstæðismenn. Þar er
ljósasta dæmið húsnæðisfrum-
varpið, sem fór umræðuleust til
1. umræðu og var ekki tafið á
nokkurn hátt af sjálfstæðis-
mönnum.
Þá hlýt ég að nefna að að-
finnsluvert er þegar ríkisstjórnin
brýtur lög með því að standa að
framlagningu og afgreiðslu láns-
fjáráætlunar sem hún gerði.
Ólafur
Ragnar
Grímsson:
„Þetta
þing
skipar
virðingar-
sess“
• 1. Síðan ríkisstjórnin var
mynduð hefur Alþingi afgreitt
mörg stórmál á óvenjulega stutt-
um tíma. Fjárlög, lánsfjáráætl-
un, skattamál og fleiri mál sem
yfirleitt eru á dagskrá nokkra
mánuði voru nú afgreidd á fáein-
um vikum. Styrk stjórn ríkis-
stjórnarflokkanna á þinghaldinu
og málefnaleg vinnubrögð gerðu
þetta kleift.
Auk þessara veigamiklu mála
hafa stuðningsmenn ríkisstjórn-
arinnar komið í gegn tveimur
tímamótamarkandi lagabálkum
á sviði félagslegra réttinda: Lög-
um um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustað og nýjum
lögum um húsnæðismál. Þessi
lög færa launafólki veigamikil
réttindi og betri lífskjör. Þau
veita samtökum launafólks lag-
abundið vald til að stjórna
þessum málaflokkum launafólki
í hag. Samkvæmt þessum lögum
fá ASÍ og BSRB ný verkefni og
mikilvægar áhrifastöður sem
geta skipt sköpum fyrir alþýðu
landsins. Aðbúnaður á vinnustað
og húsnæði heimilanna eru
grundvallarþættir í lífi launa-
fólks. Samkvæmt þessum nýju
lögum fá ASÍ og BSRB lög-
verndað forystuhlutverk á þessu
sviði. Slík breyting er veigamikið
skref í áttina að auknum alþýðu-
völdum og víðtækara lýðræði í
landinu. I sögu verkalýðssam-
takanna mun þetta þing því
skipa virðingarsess.
• 2. Við þinglok hefur ríkis-
stjórnin komið í höfn öllum þeim
málum sem hún vildi fá afgreidd.
Og reyndar gott betur, því að auk
þeirra 37 frumvarpa sem ríkis-
stjórnin vildi fá sem lög, bættust
nokkur ný í hópinn. Það er
einsdæmi í þingsögunni, að
stuðningsmenn ríkisstjórnar
standi svo vel að verki, að þeir fái
afgreidd öll frumvörp á lista
ríkisstjórnar.
Á sama tíma og þessi mynd-
arskapur stuðningsliðs ríkis-
stjórnarinnar hefur sett jákvæð-
an svip á þingið, hafa viðbrögð
Geirsarmsins við klofningnum í
Sjálfstæðisflokknum verið til
trafala við eðlileg þingstörf og
sett, sérstaklega síðustu vikurn-
ar, mjög neikvæðan blæ á þing-
störfin. Þessi ergelsiskenndu við-
brögð Geirsarmsins við ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsen hafa
gert þinghaldið nokkuð sérstakt.
• 3. Fyrrgreind viðbrögð
Geirsarmsins og ofsafengin upp-
hlaup hans hafa að mínum dómi
verið það helsta sem telja má
aðfinnsluvert í störfum þingsins.
Geirsarmurinn hefur reynst
bæði rótlaus í stefnumótun og
ístöðulítill í afstöðu til starfs-
hátta. Þegar svo illa er komið
fyrir stærsta þingflokknum, ger-
ir það okkur hinum óneitanlega
erfitt fyrir í störfum. Þau verða
bæði stappkennd og tímafrek.
Stefnuleysi Geirsarmsins hefur
birst í Jan Mayen-málinu, í
málefnum sveitarfélaga og i
efnahagsmálum og fleiri mála-
flokkum. ístöðuleysið kom svo
skýrt í ljós í vonlausum upp-
hlaupum gegn húsnæðismála-
frumvarpinu og almennum pirr-
ingi þeirra út af því að ríkis-
stjórn Gunnars Thoroddsen
skyldi takast að fá öll sín mál
afgreidd. Það tókst ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar aldrei.
Myndin sýnir þingflokksformennina: ólafur G. Einarsson (Sjálfstæðisflokkur), Páll Pétursson (Framsóknarflokkur), ólafur Ragnar Grímsson
(Alþýðubandalag) og Sighvatur Björgvinsson (Alþýðuflokkur).