Morgunblaðið - 04.06.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
67
Rætt um heimspeki-
kenningu Sartre
SUNNUDAGINN 18. maí sl.
hélt Páll Skúlason prófessor
fyrirlestur í Háskóla lslands í
minningu hins heimskunna
heimspekings Jean Paul Sartre,
sem er nýlátinn. Nefndi hann
fyrirlesturinn „Bylting og
bræðralag“, og var hann haid-
inn i boði Félags áhugamanna
um heimspeki.
í upphafi andmælti Páll þeim
orðum helzta frjálshyggjuhugs-
uðar Frakka, stjórnfræðingsins
Raymond Aron, að sum ummæli
Sartre hefðu sómt sér vel í
sýnisbók fasisma. Páll sagði að
Sartre hefði stundum mælt fyrir
ofbeldi, vegna þess að hann
hefði verið prédikari siðferðis
eða „móralisti", en ekki þrátt
fyrir það.
Páll sagði, að viðfangsefni
Sartre sem heimspekings, hefði
verið staða mannsins í heimin-
um. Hann hefði í skáldsögum
sínum, einkum skáldsögunni
Ógleði, lýst vel þeirri reynslu,
þegar menn teldu sér ofaukið í
heiminum, þegar þeim fyndist
heimurinn vera tilgangslaus
óskapnaður. En í heimspekirit-
um sínum hefði hann notað
aðferð, sem kenna mætti við
fyrirbærafræði (fenómenólógíu)
og verufræði (ontólógíu), og
hann hefði m.a. sótt til þýzku
heimspekinganna Husserl og
Heidegger.
Aðalrit Sartre um stjórnmál
væri Critique de la raison dia-
lectique. Þar reyndi hann að
leggja grundvöll að heimspeki
sögunnar með greiningu félags-
legrar reynslu einstaklingsins:
Maðurinn gæti skilið söguna
með því að skilja eigin reynslu.
Hann hefði sett fram „krítíska
díalektík" og gagnrýnt „dogma-
tíska díalektík" marxista, þótt
hann aðhylltist marxisma í viss-
um skilningi.
Eitt frumhugtak Sartre í
þessu stjórnspekiriti hefði verið
þörfin. Hún knýr menn til að
vinna, þannig að þeir skapa
afurðir, en um leið hafa afurð-
irnar áhrif á þá, því að þeir
sækjast eftir þeim, og því mætti
líta á þá sem afurðir eigin
afurða. Þörfin hlutgerir þannig
mennina.
Annað frumhugtak Sartre
hefði verið skorturinn. Skortur-
inn leiddi til baráttu, „barátt-
unnar um brauðið", og þannig til
ofbeldis.
Sartre hefði tekið dæmi af
biðröð til að lýsa samskiptum
manna í nútímaþjóðfélagi:
mennirnir væru eins og tölur í
röð, þeir réðu ekki sjálfir örlög-
um sínum, veruleikinn væri
„biðraðaveruleiki". Andstæðan
við að lifa í biðröð væri að lifa
með öðrum mönnum í hópum,
þannig að sameinazt væri um
eitthvert markmið og bræðralag
yrði til. Byltingarhópurinn væri
ip
í*
slíkur hópur, en honum hætti til
að viðhalda sjálfum sér, eftir að
markmiðinu eða byltingunni
væri náð. Þess vegna þyrfti að
gera sífellda byltingu.
Sartre hefði verið bölsýnn, því
að honum hefði fundizt óheilind-
in einkenna mennina. Helzta
vonin væri að sögn hans fólgin í
því að gagnrýna óheilindin og
gera þannig bræðralagið að
veruleika.
Nokkrar umræður urðu um
kenningu Sartre að fyrirlestri
Páls loknum. Hannes H. Gissur-
arson sagnfræðingur gagnrýndi
tvö stjórnmálahugtök Sartre,
skort og bræðralag. Hann benti
á, að skortur hlyti ekki af neinni
röknauðsyn að leiða til ofbeldis,
því að menn gætu fullnægt
þörfum sínum með því að skipta
hver við annan á frjálsum mark-
aði, eins og heimspekingurinn
Adam Smith hefði þegar sýnt á
átjándu öld. Hannes sagði einn-
ig, að bræðralagshugsjónin væri
óraunhæf á okkar dögum, því að
ekki væri hægt að hnýta þau
bræðralagsbönd, sem Sartre
ætti við, og fá ólíka menn til að
sameinast um eitt markmið.’
Skilyrðið fyrir slíkum böndum á
milli manna, þ.e. fyrir bræðra-
lagsandanum eða samkomulagi
um markmið, væri þekking
manna á aðstæðum hvers annars
og skilningur á markmiðum
hvers annars, en þessu væri ekki
til að dreifa í hinu sérhæfða,
verkskipta og óraflókna millj-
ónaþjóðfélagi nútímans, sem
væri „abstract" eða sértækt, en
ekki „face-to-face“ eða nálægð-
arþjóðfélag, eins og ættasamfé-
lagið til forna.
Meðal þeirra, sem tóku til
máls, voru dr. Arnór Hanni-
balsson lektor, Andri Isaksson
prófessor og Esra Pétursson
læknir. Að sögn dr. Michaels
Marlies lektors, formanns Fé-
lags ahugamanna um heimspeki,
verður næsti fyrirlestur félags-
ins sennilega fluttur af hinum
víðkunna bandariska rökfræð-
ingi Willard V.O. Quine í júní-
mánuði. Fyrirlestrar félagsins
eru öllum opnir.
Ályktun Alþingis:
Endurskoð-
un samvinnu-
löggjafar
ALÞINGI ályktaði á síðasta
starfsdegi sínum að „fela ríkis-
stjórninni að láta í samráði við
samvinnuhreyfinguna hefja und-
irbúning nýrrar löggjafar um
samvinnufélög og samvinnusam-
bönd“. Tillaga þessi var flutt af
Eyjólfi Konráði Jónssyni (S) og
allsherjarnefnd Sameinaðs þings
mælti með samþykkt hennar, lítið
eitt breyttri. Þannig breytt var
hún samþykkt með 40 samhljóða
atkvæðum.
Þingsályktun:
Ríkisstjórnin
meti bætur til
Skúla Pálssonar
Á SÍÐASTA degi þings var sam-
þykkt svohljóðandi þingsályktun
varðandi mál Skúla Pálssonar á
Laxalóni:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að meta fyrir 1. október
1980, hvort og þá hversu miklar
bætur skuli greiða Skúla Pálssyni
á Laxalóni í framhaldi af ályktun
Alþingis 23. maí 1979 um aðgerðir
vegna fiskeldis að Laxalóni og með
hliðsjón af áliti þingkjörinnar
nefndar frá 30. apríl 1980.
AIGLYSWGASIMINN
SIMINN ER: iA
22410 ‘vjÍJ
Rannsóknabor leigður
til Færeyinga í haust
ALLAR líkur eru á að
Jarðboranir ríkisins leigi
Færeyingum í haust rann-
sóknabor til að bora rann-
sóknarholu við Vestmanna
á Straumey. Bor þessi get--'
ur borað niður á 600 metra
dýpi og fara menn frá
Orkustofnun til Færeyja í
dag til að ganga frá samn-
ingum um þessi mál, en
Færeyingar hafa fengið
fjárveitingu til þessa verk-
efnis. Færeyingar hafa
áhuga á að fleiri verkefni
verði unnin á næsta ári, en
það hefur aðeins verið rætt
en ekki ráðið eins og Þor-
gils Jónasson settur for-
stöðumaður Jarðborana
sagði í gær.
IJI ÚTBOÐ
Tilboö óskast í aö byggja II. áfanga bæklstöövar Rafmagnsveitu Reykjavíkur
á lóöinni Suöurlandsbraut 34, Reykjavík. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu
vorri aö Fríklrkjuvegi 3, Reykjavík gegn 300.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboöin verða opnuð á sama staö þriöjudaginn 1. júní n.k. kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN REVKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
Vestmannaeyingar og aðrir
velunnarar kaupstaöarins!
BLIK,
ársrit Vestmannaeyja er komiö út. Vinsamleg-
ast greiðið senda gíró-seðla eða pantiö ritið í
síma 5-34-31.
Útgefandinn.
EFÞAÐERFRÉTT- 9) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU
Vandaðai
innrélfingar
Norema innréttingar hafa nokkra kosti umfram aðrar tegundir eldhúsinnréttinga.
1. Mjög sterkt efni, vandaður frágangur.
2. Allar hurðir opnast 170°, ekki bara 90°.
3. Stærri og rúmmeiri skápar, allt að 40% meira pláss.
Nú getið þér valið um 11 gerðir eldhúsinnréttinga og skoðað flestar
þeirra í rúmgóðum sýningarsal okkar að Háteigsvegi 3. Við veitum yður
allar ráðleggingar varðandi innréttingar, og gerum yður tilboð að
kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringið eða skrifið og
fáið heimsendan bækling.
STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI, 1 Vz-2 mánuðir.
innréttlngahúsið
Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344