Morgunblaðið - 04.06.1980, Qupperneq 36
68
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1980
Já. þér komið frá sumarvinnu-
ráðninKarstofunni. Forstjórinn
á von á yður.
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Fáir vita betur en bridgespilar-
ar hve erfitt er að komast hjá
mistökum. Og þeir vita líka, að
aðrir við borðið eru oft tilbúnir að
láta vita af og skýra það, sem
betur má fara.
Gjafari norður, allir á hættu.
Norður
S. 94
H. Á10763
T. 106
L. Á874
Vestur Austur
S. 873 S. Á
H. 2 H. DG984
T. K872 T. Á54
L. DG652 L. K1093
Suður
S. KDG10652
H. K5
T. DG93
L. -
COSPER
Hvernig komumst við niður á gólfið, úr því
rafmagnsstiginn bilaði?
Látum verkin tala
Mig langar til að biðja þig,
Velvakandi, að birta fyrir mig
eftirfarandi bréf. Ég hef aldrei
skrifað í lesendadálka dagblaða
fyrr en get ekki lengur orða
bundist.
Nú undanfarna daga er varla
hægt að segja að annað hafi birst
í lesendadálkum, sérstaklega
síðdegisblaðanna, en lofræður um
einstaka forsetaframbjóðendur.
Gengur lofræðan oft það langt að
þessir ágætu menn eru nánast
komnir í guðatölu. Ekkert hafa
þeir slæmt gert og ekkert munu
þeir slæmt gera og allir eru þeir
hæfustu menn til að gegna störf-
um forseta íslands.
Ég er alls enginn áróðursmeist-
ari en ég fæ ekki betur séð en að
allar þessar lofræður virki ekki á
lesendur eins og þeim er vafalaust
ætlað að virka. Þær koma áreiðan-
lega ekki til með að breyta skoð-
unum kjósenda hætishót. Það er
hlegið að þessu pári og það alls
ekki tekið alvarlega. Meira að
segja hef ég heyrt fjölda fólks
vorkenna þeim heiðursmönnum
sem í framboði eru fyrir að þurfa
að koma auga á þessar ritsmíðar.
Látum verk og fortíð frambjóð-
endanna tala um ágæti þeirra en
sleppum því að „gylla" þá með
hlægilegu pári.
Kjósandi.
• Talnakúnstir
Sölvi Helgason reiknaði barn
úr konu sem kölski hafði í hana
reiknað. Gísli Sveinsson sendi-
Austur opnaði á einu hjarta og
suður stökk þá beint í lokasögn-
ina, fjóra spaða. Út kom einspilið í
hjartanu. Suður tók slaginn heima
og spilaði trompdrottningu. Hug-
myndin var að hræða vestur ef
hann ætti ásinn. Hann gæti gefið
fyrsta trompslaginn af ótta við, að
austur ætti kónginn einspil.
Hugmyndin var út af fyrir sig
ágæt en kom ekki að gagni í þessu
tilfelli. Austur tók slaginn og lét
makker sinn trompa hjarta.
Seinna fengu varnarspilararnir
tvo slagi á tígul og sagnhafi tapaði
öllu nema verðlaununum fyrir
honorana í trompinu.
Suður tók eftir augnaráði
makkers síns og sagði í afsökun-
arskyni: „Þú áttir ekki réttan ás
fyrir mig. Laufásinn var gagns-
laus.“
„Ekki næstum eins gagnslaus og
sumir makkerar", svaraði norður.
„En ég nefni þó engin nöfn“.
Auðvitað getur þú giskað á
hvern hann hafði í huga. En sérð
þú hvers vegna norður var svo
gramur?
Sagnhafi kom ekki auga á ör-
ugga vinningsleið. Hann gat tekið
fyrsta slaginn í blindum. Og þá
hefði verið hægt að taka á laufás-
inn til að losna við hjartakónginn
af hendinni. Að því loknu yrði
óhætt að spila trompi. Og vörnin
fengi ekki slag á smáspil í tromp-
inu og aðeins þrjá í allt.
RÁÐSTEFNA Landssambands bæjarstarfsmannafélaga í BSRB hófst í húsakynnum BSRB í gær. Sækir hana fjöldi fulltrúa
utan af landi. Ráðstefnunni verður haldið áfram í dag. Formaður sambandsins er Þórhallur Halldórsson. Myndin er tekin á
ráðstefnunni í gær.