Morgunblaðið - 04.06.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1980
69
herra taldi tölur — sérstaklega
háar tölur — hrein töfraorð á
framboðsfundum, sagði Hermann
Jónasson meistara í þeirri íþrótt.
Hann lá líka í því hann Kristinn
Andrésson að sleppa þeim í Bárð-
ardal að ráði frambjóðanda síns,
Jónasar Jónssonar. Á leið þeirra
upp í Bárðardal sagði Jónas obboð
sakleysislega. „Kristinn, slepptu
þessum háu tölum frá Rússlandi,
mér leiðast þær og bændur skilja
þær ekki.“ Kristinn var hrekklaus
og fór að ráðum Jónasar. I ræðu-
stól sagði hann: „Ég er með tölur
frá Rússlandi, en þar sem bændur
skilja ekki svo háar tölur sleppi ég
þeim.“ í svarræðu sinni taldi
Jónas gáfnafar kjósenda reynast
léttvægt á metaskálum Kristins,
enda fór svo að þessi eini kjósandi
sem talinn hafði fylgja Kristni
hallaði sér að Jónasi á kjördegi.
Enn eru töiur í hávegum hafðar.
Menn skrifa að eitt eða annað
lækki (þó ekki verðlag) fjórum
sinnum og sinnum í merkingu
margföldunartöflu. Prósentur
njóta þó sérstakrar hylli. Sverrir
Hermannsson alþingismaður
skrifar í Mbl. 31. maí um kosti
vega með bundnu slitlagi: „Slit
ökutækjanna um 70—80% minna
og einstakra hluta s.s. hjólbarða
um 170—180% minna.“
Hér hefur opnast leið að gera
aflóga hjólbarða nothæfa að nýju,
aka á þeim fram og aftur austur á
Hellu, þá ganga þeir í endurnýjun
lífdagana líkt og aldinn skokkari
öðlast fyrri lífsþrótt með tölti sínu
yfir stokka og steina. Loksins kom
ofjarl Sölva Helgasonar fram á
sjónarsviðið. Palmam qui meruit
ferat.
Jón Á. Gissurarson.
• Leitar uppruna
ættar sinnar
Velvakanda hefur borist bréf
frá Emmonton í Alberta í Kanada
skrifað af Carl Baldvinsson. Segir
hann ömmu sína og afa vera fædd
á íslandi og að hann sé að grafast
fyrir um ætt sína. Leitar hann
sérstaklega upplýsinga um eftir-
talið fólk en segir ekki hvort eða
hvernig það tengist honum: Frið-
björn Jósefsson frá Akureyri og
konu hans Halldóru Guðmunds-
dóttur frá Breiðabóli á Sval-
barðsströnd. Faðir Friðbjörns var
Jósef Þórarinsson en kona hans
hét Helga Sæmundsdóttir. Vantar
Carl upplýsingar um þetta fólk og
biður þá sem geta aðstoðað hann
að hafa við sig samband. Heimilis-
fang Carls er: 32 McLeod Place,
Edmonton, Alberta Kanada.
Þessir hringdu . .
• Um yfirvinnu-
bann flug-
umferðarstjóra
Stefán Sæmundsson hringdi:
„í gærkvöldi neitaði flugum-
ferðarstjóri einkaflugvél minni
um flugheiminn frá Reykjavík á
þeirri forsendu að slíkt gæti gefið
fordæmi ef undanþága væri veitt
frá tveggja daga gamalli tilkynn-
ingu flugmálastjóra um takmark-
anir flugs vegna yfirvinnubanns.
Umferðin gæti leitt til yfirálags
hjá flugumferðarstjórum sem þá
gæti stofnað öllu flugi í hættu.
Við nánari eftirgrenslan kom í
ljós að með þessum aðgerðum eru
flugumferðarstjórar að fylgja eft-
ir kröfum um að sömu laun séu
greidd fyrir venjulegar vaktir
flugumferðarstjóra úti á landi
eins og fyrir afleysingavaktir hér í
Reykjavík.
Hliðstætt væri ef lögregluvarð-
stjórar bönnuðu alla umferð
einkabíla frá Reykjavík eftir kl.
19.30 á kvöldin vegna þeirrar
hættu sem gæti skapast á yfir-
álagi á lögreglustöðina sem væri
fáliðuð á kvöldin.
SKAK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Búda-
pest í Ungverjalandi kom þessi
staða upp í skák heimamannanna
J. Kovacz og Dr. Eperjesi, sem
hafði svart og átti leik.
32. - Hxh4! (Ef nú 33. gxh4? þá
Hg6+ og mátar í næsta leik) 33. f3
- Hgfi (En ekki 33. - Dxf3? 34.
gxh4 - Hg6+ 35. Hg2) 34. Kg2 -
Hhg4, 35. Dxf5 — Hxg3+ 36. Kh2
— Hxf3 og hvítur gafst upp.
Hvorugt finnst mér til þess
fallið að auka samúð almennings
með launabaráttu og spurningin
hvort ekki ætti frekar að hætta
sérgreiðslum fyrir afleysinga-
vinnu flugumferðarstjóra hér í
Reykjavík og ná þannig samræmi.
Hitt er svo annað mál hvort
landslög leyfa ríkisstarfsmönnum
að neita yfirvinnu."
HÖGNI HREKKVÍSI
ee mep ^óóatomnu.."
S2P SIGGA V/öGA £ ‘ÚLVEfcAN
Alkali og
Frostskemmdir
Fundur veröur haldinn miðvikudaginn 4. júní n.k. kl.
16.00 aö Hallveigarstíg í húsakynnum Byggingaþjónust-
unnar — ráðstefnusal.
Og eru verkfræöingar, arkitektar, tæknifræðingar,
byggingaverktakar og byggingarmenn sérstaklega
boönir á fundinn.
Fundarefni:
Alkali og frostskemmdavandamálið og glíma THORO
verksmiöjanna viö þaö. Aöalefnafræöingur verksmiðj-
anna, Mr. M. Kalandiak skýrir frá tilraunum sínum og
svarar sþurningum fundarmanna. Tekiö skal fram aö_
THORO verksmiöjurnar hafa gert ísland aö tilraunasvæöi
fyrir sig.
Svæðisstjóri Evrópu frá THORO verksmiöjunum í Belgíu,
Mr. G. Van Der Borgh, ftytur erindi og sýnir litskyggnur,
einnig svarar hann spurningum fundarmanna.
STANDARD DRY
WALL PR0DUCTS
Sl steinprýði
Alúöarþakkir sendi ég öllum þeim, sem á einn eöa
annan hátt, glöddu mig á sextugsafmæli mínu, þann
26. maí sl.
Einar A. Jónsson.
Sérverslun
við Laugaveg
til sölu. Velseljanlegur lager. Tilþoö merkt: „Sérversl-
un — 6054“ skilist til Mbl. fyrir 10. júní nk.
29. JUNI
Pétur J. Thorsteinsson
Aöalskrifstofa stuöningsfólks Péturs J. Thorsteinssonar
í Reykjavík er á Vesturgötu 17, símar:
28170 — 28518
★ Utankjörstaðaskrifstofa símar 28171 — 29873.
★ Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
★ Skráning sjálfboöaliða.
★ Tekið á móti framlögum í kosningasjóð.
Nú fylkir fólkið sór um Pétur Thorsteinsson.
Stuðningsfólk Péturs.
0A
'&KrotoH