Morgunblaðið - 21.06.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.06.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1980 19 Nemendur hafa virkileKa fundið sig i iðkun ýmis konar iþróttagreina. hér ma sjá „startið“ í einu boðhiaupanna. óli og Reynir keppa. Aðrir á myndinni eru, talið frá vinstri: Edda starfsstúlka, Kristján kemur hiaupandi að, þá Sirrý, á bak við Óla er Auður, þá Ármann, síðan Ómar og lengst til hægri Henný. Heimilisfólkið i Sveinalundi. Jón Þór lengst til vinstri þá Tommi, standandi Heiðrún starfs- maður, sitjandi við hlið hennar Lalli, þá Sisi, við hiið hennar Bjðrk starfsmaður og iengst til hægri Þórný með Bibí sina i höndunum, en Bibi var vakin af eftirmiðdagsblundinum til að hún gæti verið með á myndinni. Saman sitja og prjóna og útkoman verður dúkkur, sem einnig verða til sölu á morgun. frá vinstri Baddý, Solla og Erla. Dagbjört, Guðmundur garðyrkjumaður og Aðalheiður sýnir okkur uppskeruna. Hér er unnið af þolinmæði. Á borðinu má sjá nokkra smfðisgripi, sem verða til sðlu á morgun, taiið frá vinstri: Ásta, þá Haukur, síðan Gulla og Eiríka lengst tii hægri. Edda G. var að búa til púða á vefstólnum en gaf sér þó tima til að brosa til ijósmyndarans. Óli var að búa til gólfmottu. Hann sagði uppáhaldslitinn vera gulan og mest gaman værí að vinna með gula efnið. Sannur íþróttaandi Klukkan var farin að halla i tvö og við gengum út í góða veðrið í fylgd Valgeirs og Katrínar. Á flöt skammt frá aðalbyggingunni voru nokkrir nemendur við íþróttaæfingar. Á leið þangað hittum við einn nemandann, Kristján, sem vann við að taka til í kringum litla tjörn og átti í nokkru basli með gæsapar vegna þess að gæsamamma gætti örlítils afkomanda sem sjáaldurs auga síns. Kristján sagði okkur, að það væri ekki skrítið, því gæsamamma hefði átt fleiri unga, en „árans flækingskötturinn át þá frá henni“ sagði hann. Við heilsuðum síðan upp á íþróttafólkið, sem æfði stíft langstökk, hlaup og boltaköst, en nokkrir nemenda Sólheima eru á leið í æfingabúðir að Varmá og síðan í keppnisferð til Reykjavíkur, helgina 26.—29. júní. Tilþrif voru mikil og allir lögðu sig fram. Það var einnig áberandi hversu samstilltur hópurinn var, hvatningarhróp hljómuðu og í einu sprett- hlaupanna, sem háð var í tveggja manna riðlum, hafði stúlkan sem leiddi hlaupið nærri tapað fyrsta sætinu vegna einlægra hvatningarhrópa til mótherjans. Við kvöddum íþróttahópinn eftir nokkra viðdvöl og látum hér fylgja með svar Ármanns, sem tekur þátt í keppninni í ívéykjavík, er biaöamaður spurði hvort hann ætlaði ekki að vinna sigur í einhverri sinna greina á mótinu. „Ég ætla að vera með og keppa." Sérstæð keríagerð Þá litum við inn á vinnustofurnar, fyrst trésmíðaverk- stæðið, þá vefstofuna, kertagerðina ög dúkgerðina. Á öllum þessum stöðum voru iðnar hendur við störf sín og áhugi og gleði skein úr andlitum nemendanna. Kertagerðin er sérstæð að því leyti, að þar eru unnin kerti úr býflugnavaxi á vandaðan máta. Vaxið er flutt inn sérstaklega fyrir Sólheima en kertin hafa mjög langan brennslutíma og hunangsilm leggur af þeim. Hverju kerti er dýft upp undir hundrað sinnum ofan í vaxið og þarf sérstaka þolinmaeði til að sinna verkinu. Verkstjórum Sólheima kom saman um, að nemendur þar hefðu til að bera þolinmæði umfram það sem gengur og gerist og leyndi sér ekki á handavinnu þeirra, hvort sem smíðisgripir, vefnaður, kerti eða dúkkur áttu í hlut, að á bak við liggur þolinmæði og vandvirkni, því sum hver eiga við hreyfiörðugleika að etja. Það má taka hér fram, að á Opna deginum á morgun, sem hefst kl. 14 verður handavinna nemenda til sölu og nemendur verða við vinnu á vinnustofum. Skemmtileg og lærdómsrík fjölskylduferð Þá sagði Katrín, að öllum yrði boðið upp á kaffi. Grænmeti, tómatar og agúrkur verða einnig til sölu og tók hún sérstaklega fram, að allir væru velkomir og gæti slík férö orðið skemmtileg og lærdómsrík helgarferð fyrir fjölskyiduná. Við litum við á einu heimilanna. Heimilið ber nafnið Fagrabrekka og ber nafn sitt vel, staðsett í fallegri brekku. Húsmóðir í Fögrubrekku er Kristín Eggertsdóttir og húsfaðirinn og einnig leiðbeinandi á trésmíðaverkstæðinu Jósúa Steinar Óskarsson en þau eru frá Vestmannaeyjum og komu til starfa á Sólheima nú í vor ásamt tveimur börnum sínum, Steinunni Ástu 8 ára og Óskari 2 ára. Kristín sagði starfið skemmtilegt og forvitnilegt „Þó það sé krefjandi og viðbrigði að vera allt í einu með ellefu manna fjölskyldu í stað fjögurra, þá er þetta mjög þroskandi og hefur kennt okkur að meta virkilega það sem við eigum.“ Eiginmaður hennar tók undir orð hennar og sagði nemendurna góða í sambúð og að þeir væru mjög góðir við börnin. Aðspurð sögðust þau ekki vita hversu lengi þau yrðu á Sólheimum en þessi stutti tími hefði gefið þeim mikið. Katrín forstöðukona skaut því að, að starf þetta virtist vinsælt, því síðast þegar auglýst hefði verið eftir ungum hjónum til starfans hefðu borist 14 umsóknir. í lok heimsóknarinnar litum við inn í gróðurhúsið, en þar voru að störfum Guðmundur Benediktsson garðyrkjumaður og Aðalheiður, sem er nemandi. Guðmundur sagðist vera með tómata, agúrkur og papriku í gróðurhúsunum og ræktunin færi fram án alls aðkeypts tilbúins áburðar og hefði gefist vel. Á Sólheimum er hver og vatnið frá honum nýtt sem neyzluvatn, til upphitunar og ylræktar, einnig til kertaframleiðslunnar. Valgeir tjáði okkur að til umræðu væri að nýta meira af orku hversins og stæðu yfir viðræður við Grímsneshrepp þar að lútandi. Hæfileikar sem öllum eru ekki geínir Við kvöddum nemendur og starfsfólk Sólheima að afloknum kaffitíma og viðstaddir nemendur í hlaði vinkuðu brosmildir í kveðjuskyni og varð ekki komist hjá þeirri hugsun, að þótt misskipt sé gáfum og þroska til mannanna, þá sé ætíð eitthvað gefið, sem á móti vegur. Hæfileikinn að una glaður við sitt og geta sýnt einlæga gleði yfir litlu er ekki öllum gefinn — en virtist einkennandi í fasi og viðmóti nemenda Sólheima.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.