Morgunblaðið - 21.06.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1980
23
Einkaklúbburinn, (til ha'tfri á myndinni), sem farþeKum var satft. að yrði bústaður þeirra.
Rimini-málið:
Lögfræðingur farþega í samninga-
viðræðum við Samvinnuferðir
Hreinlega ömurleg ferð
- segir Þorsteinn Aðalsteinsson
EINS OG fram hefur komið í fréttum kom upp mikil óánættja
meðal farþetca með Samvinnuferðum — Landsýn til Rimini á Ítalíu
þann 21. maí síðastliðinn. Töldu farþe«ar að þeir hefðu verið
sviknir af hálfu ferðaskrifstofunnar og hún ekki staðið við
skuldhindintcar sinar. Aðalástæðan mun vera sú að ferðamanna-
tíminn var alls ekki hafinn á Ítalíu otc því aliar aðstæður í lakara
lagi. Ferðahópurinn hefur fenKÍð Jón Maícnússon, löKfræðinjc. til
liðs við sig og standa nú yfir samningaviðræður milli hans og
Samvinnuferða. Ferðaskrifstofan hefur viðurkennt að eitthvað
hafi verið í ólagi að sögn Eysteins Ilelgasonar. framkvæmdastjóra.
þvi þeim sé kunnugt um að viss vandamál hafi komið upp í
samhandi við ferðina ok séu Samvinnuferðir reiðubúnar til að bæta
þeim sem urðu fyrir skakkaföllum skaðann.
„Ég vil undirstrika það, að hér
er um vissa byrjunarörðugleika
að ræða, sem aðallega stafa af
því, að veður hefur verið kalt á
Italíu undanfarið og þeim hefur
því ekki þótt taka því að undir-
búa ferðamannatímann. Nú er
hins vegar allt komið í lag og
farþegar okkar í Rimini ánægðir
með allan aðbúnað," sagði Ey-
steinn Helgason.
Til að fá nánari upplýsingar
um ferðina sneri Mbl. sér til
Þorsteins Aðalsteinssonar á
Dalvík og hafði hann þetta um
málið að segja:
„Mér finnst ekki rétt að vera
að blása þetta mikið út í blöðum,
þetta mál er á viðkvæmu stigi og
við stöndum í samningum við
ferðaskrifstofuna. Mér finnst þó
rétt að almenningur fái eitthvað
um þetta að vita, því mér finnst
ekki rétt að fleiri lendi í svona
löguðu. Það, sem í raun og veru
var að, er, að ferðamannatíminn
var alls ekki byrjaður er við
komum út. Við bjuggum í Porto
Verde sem er skammt frá Rimini
og þar var verið að undirbúa
ferðamannatímann. Þar var
enginn banki, diskótek eða kvik-
myndahús, það varð allt að
sækja til Rimini, en sá galli var
á gjöf Njarðað að strætisvagnar
höfðu ekki enn hafið ferðir
þangað, svo erfitt var og kostn-
aðarsamt að komast á milli.
Ferðirnar hófust ekki fyrr en við
höfðum verið þarna í hálfan
mánuð. Það helsta sem við
gátum gert var að fylgjast með
undirbúningi ferðamannatímans
í Porto Verde. Verið var að vinna
með jarðýtur á svæðinu, mála
hús og opna búðir og í síðustu
vikunni var byrjað að láta renna
vatn í sundlaugarnar. Húsnæðið
var svo einnig kapítuli út af fyrir
sig. Okkur hafði verið selt inni í
íbúðablokk sem reyndist, þegar
til kom, vera einkaklúbbur
skútueigenda og var algjörlega
lokuð öðrum en þeim. Okkur var
því dreift um einhverjar blokkir,
sem voru á svæðinu og virtist
okkur helst að yfirleitt væru
ekki fleiri en tvær fjölskyldur í
hverri blokkinni og sem dæmi
má nefna að ein fjölskyldan
virtist vera ein í þrettán hæða
blokk. Einu sinni í viku var svo
komið og strokið yfir gólfin hjá
okkur með rökum klút og vask-
urinn þveginn. Við urðum svo
sjálf að sjá um að skipta á
rúmunum hjá okkur, taka það
óhreina og fara með það út á
skrifstofu til að fá hreint.
Þetta var hreinlega ömurlegt
og mér er óskiljanlegt að ferða-
skrifstofunni skuli detta svona
lagað í hug.“.
Réttarsaga Maurers á
bókauppboði Klausturhóla
KLAUSTURHÓLAR efna í dag,
Iaugardag, klukkan 14 til
bókauppboðs að Laugavegi 71.
Alls verða á uppboðinu seldir 200
titlar og eru meðal þeirra ýmsar
merkar og fágætar bækur.
Meðal einstakra bóka, sem at-
hygli vekja eru: Udsigt over de
nordgermaniske Retskilders Hist-
orie, Oslo, 1978, fágætt verk eftir
Konrad Maurer, Doktorsritgerð
Kristjáns Eldjárns: Kuml og haug-
fé, Hvalasaga Jóhannesar Kjarvals
frá 1897, sérstaklega áritað frá
höfundi, Æskuljóð Jóhannesar úr
Kötlum: Ég læt sem ég sofi,
Orðabók Sigfúsar Blöndals, Nokkr-
ar Árnesingaættir eftir Sigurð
Hlíðar, Ódáðahraun 1—3 eftir Ólaf
Jónsson, Beschyrving van Ysland,
Groenland en de Straat Davis eftir
Johann Anderson, Amsterdam
1756, Ferðabók E. Hendersons I—
II, Edinburgh 1818, Bókin um
Alþingishátíðina 1930 eftir Magnús
dósent, Árbækur Reykjavíkur eftir
Jón Helgason biskup, Sagnaþættir
Þjóðólfs 1898-1875, Árbók Há-
skólans með öllum fylgiritum,
Tímarit hins íslenzka Bókmennta-
félags 1.—25. árg. og tímaritið
Verðandi, sem þeir stóðu að, þá
ungir menn og lítt þekktir, Einar
Hjörleifsson (síðar Kvaran), Bertel
Þorleifsson, sem ungur fórst í
Kaupmannahöfn, Gestur skáld
Pálsson og Hannes Hafstein ráð-
herra.
Laugardagsvinna
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Baldur á
ísafirði ákvað fyrir nokkru að
banna alla vinnu á laugardögum.
Þessu hafa vinnuveitendur á ísa-
firði mótmælt og t.d. í frystihús-
unum vilja þeir hafa möguleika á
að bjarga verðmætum ef þannig
stendur á. Segja þeir að ekki sé
bönnuð á ísafirði
unnið í frystihúsunum á laugar-
dögum nema brýna nauðsyn beri
til og því þurfi ekki þessa tilskipan
um bann við vinnu á laugardögum.
Einnig er það skoðun vinnuveit-
enda á Isafirði, að verkalýðsfélag-
ið hafi ekki heimild til slíkra
fyrirmæla.
Færeyingum gert að
hætta rækjuveiðum
við Austur-Grænland
GRÆNLENDINGAR hafa nú
krafizt þess. að Fa*reyingar hætti
þegar rækjuveiðum við Austur-
Grænland. Gramlandsmálaráð-
herrann Jörgen Peder Ilansen
tilkynnti þeim Atla Dam. lög-
manni í Færeyjum. og Iledin
Klein. fiskimálaráðherra. þessa
ákvörðun Grænlendinga á fundi i
Kaupmannahöfn fyrir nokkru.
Ástæðan fyrir því að veiðarnar
eru stöðvaðar nú er sú. að Færey-
ingar eru búnir að veiða meira en
2500 tonn. sem var hámarksafli
þeirra á þessum tilraunaveiðum.
Talið er að Fa-reyingar muni í
stað rækjuveiðanna snúa sér að
öðrum veiðum við A-Grænland.
Eins og komið hefur fram í
fréttum hafa Færeyingar og skip
fleiri þjóða verið á rækjuveiðum
vestan miðlínu milli Íslands og
Grænlands. en Dalborg frá Dalvík
var fyrst til að reyna rækjuveiðar
á þessum slóðum á sinum tíma.
Aðalskipulag Garðabæjar
^ Sýning
Tillaga aö skipulagi Garöabæjar er til kynningar í
Garðaskóla, stofu 101 daglega frá kl. 16—19 til
miövikudags 26. júní. Höfundar skipulagsins svara
fyrirspurnum kl. 18—19 sömu daga.
Bæjarstjóri.
----------------FARIÐ Á------;----------\
NORRÆNAN LÝÐHÁSKÓLA
í DANMÖRKU
6. mán. 1/11—30/4 og 4. mán. 3/1—30/4. Lágmarksaldur 18
ára. Norrœnir kennarar.
Skrifió eftir stundatöflu og nánari upplýsingum.
UGE FOLKEHOJSKOLE,
DK - 6360, Tinglev, sími 643000.
29.JUNI
Pétur J. Thorsteinsson
Aðalskrifstofa stuðningsfólks Péturs J. Thor-
steinssonar í Reykjavík er á Vesturgötu 17,
símar:
28170 — 28518
★ Utankjörstaöaskrifstofa símar 28171 — 29873.
★ Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
★ Skráning sjálfboöaliöa.
★ Tekið á móti framlögum í kosningasjóð.
Nú fylkir fólkið sér um Pétur Thorsteinsson.
Hverfaskrifstofur
stuöningsmanna
Péturs J. Thorsteinssonar
Nes- og Melahverfi Vesturgötu 3.
Vestur- og Miðbæjarhverfi Símar 28630 - 29872.
Austurbæjar- og Opið 17.00-22.00
Norðurmýrahverfi
Hlíða- og Holtahverfi
Laugarneshverfi
Langholtshverfi
Háaleitishverfi
Bústaða-, Smáíbúða- og
Fossvogshverfi.
Skóga- og Seljahverfi Fremristekkur 1.
Árbæjar- og Seláshverfi Sími 77000.
Bakka- og Stekkjahverfi Opið 17.00—22.00.
Fella- og Hólahverfi
Stuðningsfólk Péturs.
Grensásveg 11.
Símar 36944 -37378 - 37379
Opið 17.00-22.00