Morgunblaðið - 30.08.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1980
23
JMtognstlilftfetbí
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250
kr. eintakiö.
Ekki horfzt í augu
við staðreyndirnar
Við íslendingar erum svo háðir utanríkisviðskiptum,
að þaö hefur afgerandi áhrif á afkomuna, við hvaða
viðskiptakjör við búum á hverjum tíma. Meðal annars af
þessum sökum er það svo, að til lengdar getur engin
ríkisstjórn haldið hér velli, nema hún skilji það
grundvallaratriði, að velgengni útflutningsatvinnu-
veganna er lykillinn að farsælli stjórn efnahagsmála og
um leið forsenda bættra lífskjara. Hingað til hefur það
verið svo, að kommúnistum hefur reynzt erfitt að skilja
þetta eins og hitt, að 50 til 70% verðbólga langtímum
saman nær engri átt og bitnar að sjálfsögðu fyrst og
fremst á þeim, sem lægstu launin og minnstu þurðina
hafa í þjóðfélaginu.
Menn hafa tekið eftir því, að Hrunadans ríkisstjórnar-
innar er að hefjast. Og það vekur síður en svo furðu, að
það skuli vera afstaðan til útflutningsatvinnuveganna,
sem ágreiningnum veldur. Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra hefur tekið af skarið um það, að
hann ætli ekki að horfa á það þegjandi, að þeir verði
lagðir í rúst. Hér er ekki aðeins um sjávarútveginn að
tefla. Staðan er miklu viðkvæmari í öðrum útflutnings-
greinum eins og ullar- og skinnaiðnaðinum. Og þegar
málin eru skoðuð ofan í kjölinn, kemur í ljós, að það eru
árin 1979 og 1980, sem ógæfunni valda. Reynslan á svo
eftir að sýna, hvort Steingrímur Hermannsson er maður
fyrir sínum orðum eða hvort ummæli hans eiga eftir að
verða enn eitt dæmið um ístöðuleysi íslenzkra
stjórnmálamanna, þegar á reynir.
Guðfinnur Einarsson forstjóri í Bolungarvík flutti
yfirgripsmikið erindi um afkomu sjávarútvegsins á
fjórðungsþingi Vestfirðinga og birtist það hér í Morgun-
blaðinu sl. laugardag og sunnudag. Af því er ljóst eins og
Guðfinnur Einarsson undirstrikar, að „framleiðni í
fiskvinnslu og fiskveiðum er án efa sú bezta, sem þekkist
meðal íslenzkra atvinnuvega í dag“. Fyrir því eru
margvíslegar ástæður, annars vegar varðandi betri
meðhöndlun og nýtingu hráefnisins ásamt aukinni
hagræðingu í rekstri, hins vegar hefur verið haldið svo á
markaðsmálunum, eins og í Bandaríkjunum, að eftirtekt
hefur vakið meðal annarra þjóða, enda lætur árangurinn
ekki á sér standa. Miðað við að einhver skikkur væri á
rekstri þjóðfélagsins í heild lægi það á borðinu að staða
fiskveiðanna og fiskvinnslunnar stæði með blóma. En það
er nú eitthvað annað, eða svo að vitnað sé til Guðfinns
Einarssonar: „Frá því í upphafi árs 1979 til ársloka sama
árs, hækkuðu laun í fiskvinnslu um 51,6%. Hráefnis-
kostnaður jókst sömuleiðis um 59,7%. Þá hækkuðu ýmsir
aðrir rekstrarliðir, svo sem vextir, vélar og tæki
sambærilega eða jafnvel meira. Stærsti hluti tekna
hraðfrystiiðnaðarins er vegna útflutnings, sem greitt er
fyrir í Bandaríkjadölum. Verð helztu tegunda var svo til
óbreytt í erlendri mynt. Á sama tíma hækkaði verð á
dollar um einungis 24,2%. Og þrátt fyrir nokkra
framleiðniaukningu, meiri framleiðslu og aukinn útflutn-
ing, dugði það ekki til að brúa það bil tekna og
tilkostnaðar, sem hér hefur verið greint frá. Nú geta
menn séð, af hverju hraðfrystiiðnaðurinn er í vanda."
Við þessi ummæli Guðfinns Einarssonar er í rauninni
litlu að bæta. Margan verðbólgubraskarann hefur dreymt
ljúfa verðbólgudrauma á liðnum árum og veröldin hefur
brosað sælast við þeim í tíð vinstri stjórna, — nú er þessi
sæludraumur verðbólgubraskarans að snúast upp í
martröð fyrir þjóðina alla. Sú stund nálgast óðfluga, að
stjórnleysið hér innanlands leggi útflutningsatvinnuveg-
ina að velli og þá verður fátt til bjargar, — nema
sterklega verði tekið í taum. En er nokkur sú hönd í
þessari ríkisstjórn, að hún hafi pólitískan þroska og kjark
til að gera það? Því miður getur svarið við þessari
spurningu ekki orðið uppörvandi.
Leikarar og starlsíólk Þjóðleiktiussms. iviynain var teain pegar sainasi var saman við upphaf leikársins.
Vetrardagskrá Þjóöleikhússins:
Kjeld Olesen, utanríkisráðherra Danmerkur:
Kasparov
heimsmeist-
ari unglinga
í skák
SOVÉTMAÐURINN Kasparov
tryKkði sér í K*r heimsmeistara-
titil unglinga i skák, er hann
samdi um jafntefii við Morovic frá
Chile eftir aðeins 5 leiki. Kasp-
arov hefur nú 10 vinninga og er
tveimur vinningum á undan
næstu mönnum. en aðeins ein
umferð cr eftir. Na>stir koma
Morovic og Neguleschu frá Rúm-
eníu með 8 vinninga og Short frá
Englandi átti hiðskák í gærkvöldi.
en sigur i henni kæmi honum
hálfum vinningi yfir þá háða. Jón
L. Árnason gerði jafntefli i 38
leikjum við Morales frá Mexikó og
i fyrradag gerði hann einnig
jafntefli við Bischoss frá
V —býzkalandi. Jón er þá með 7
vinninga.
„ÞAÐ koma svona tímabil, þegar
allt gengur á afturfótunum hjá
manni og það er eins og það sé
ekkert annað að gera en þola þetta
og bíða betri tíma,“ sagði Jón L.
Árnason í samtali við Mbl. eftir
jafnteflið við Bischoss og sagði Jón
þá skák enn eitt dæmið um óheppni
sína á mótinu, þar sem hann hefði
misst af öruggri vinningsleið áður
en skákin fór í bið.
Jón sagði, að af þeim fréttum að
dæma, sem hann hefði af skákmót-
inu í Sovétríkjunum, sem hann
tekur þátt í að loknu heimsmeist-
aramótinu, verði um mjög sterkt
mót að ræða. Kvaðst Jón hafa rætt
við aðstoðarmann Kasparovs um
mótið og hann nefnt til menn eins
og Petrosjan og Smyslov í hópi
keppenda.
Iljalti (ieir Kristjánsson (lengst
til vinstri). Eino Helle, forstjóri
Iittala. og Eino Koskinen hönn-
uður. Ljósm. Kristján.
ari aðferð, sérstæðir og engir
tveir hlutir eins. Arkipelago-
tegundin hefur verið sýnd í
New York, Kaupmannahöfn,
Stokkhólmi og nú í Reykjavík.
Sarpaneva, sem er grafík-
hönnuður, hefur í yfir 30 ár
hannað fatnað, vefnað, eld-
húsmuni, byggingarefni,
postulín og lampa auk glervar-
anna, en auk hans hafa ýmsir
þekktir hönnuðir starfað fyrir
Iittala, m.a. Alvar Aalto. Iitt-
ala verksmiðjan, sem stofnuð
var árið 1881 af sænskum
glerblásara, framleiðir eink-
um ýmsar glervörur til heimil-
isnotkunar. Einn fimmti hluti
framleiðslunnar er glervara
til lýsingar og fer um helming-
ur framleiðslunnar til útflutn-
ings. Velta verksmiðjunnar
var á síðasta ári um 9 millj-
Iittala-sýning hjá
Kristjáni Siggeirssyni
IITTALA glerverksmiðjan
finnska sýnir um þessar
mundir nýjustu framleiðslu
sína hjá umboði sínu á ís-
landi, Kristjáni Siggeirssyni
hf. Er þar um að ræða
framleiðslu eftir nýrri aðíerð
sem til varð við samvinnu
hönnuðar og glerblásara og
hefur verið kölluð Arkipe-
lago, eftir finnska skerja-
garðinum.
Hönnuðurinn Timo Sarpan-
eva hefur hannað þessar nýju
vörur og eru allir hlutirnir,
sem framleiddir eru með þess-
arðar ísl. króna og eru starfs-
menn um 640.
Sem fyrr segir er það hjá
Kristjáni Siggeirssyni hf., sem
verið hefur umboðsaðili Iittala
í yfir aldarfjórðung, sem sýn-
ingin fer fram og stendur hún
fram í miðjan september.
íslendingar fái veiði-
heimild innan fiskveiði-
lögsögu Grænlands
EINS og kunnugt er af fréttum
hefur danski utanríkisráðherr-
ann, Kjeld Olesen, verið hér á
landi i opinberri heimsókn. Hann
hefur undanfarin ár verið einn af
valdamestu flokksmönnum sósí-
aldemókrata og hefur verið vara-
formaður flokksins síðan 1973.
Ilann hefur verið ráðherra i
þremur ríkisstjórnum, fyrst í
þriðja ráðuneyti Jens Otto Krag
og síðan tvívegis í stjórn Ankers
Jörgensen. Kjeld Olesen er nú af
mörgum talinn væntanlegur eft-
irmaður Ankers Jörgcnsen.
I tilefni af heimsókn sinni
boðaði danski utanríkisráðherr-
ann til blaðamannafundar til að
gera grein fyrir viðræðum sínum
við íslenzka ráðamenn, aðallega
Ólaf Jóhannesson utanríkisráð-
herra.
í spjalli Kjelds Olesen kom
meðal annars fram, að það sem
aðallega var rætt um, voru
alþjóðamálin. Rætt var um stöð-
una í Afganistan og það, sem af
þeim málum hefur hlotizt og
hvernig væri á skynsamlegan
máta hægt að leggja fram sameig-
inleg mótmæli sem flestra vest-
rænna ríkja á fundi í Madrid í
nóvember, en þar mun verða rætt
um framkvæmd Helsinki-sáttmál-
ans. Ráðherrarnir voru sammála
um að stjórnmála- og samskipta-
rof séu ekki leiðin til að ná
samningum eða leysa nokkurn
vanda og töldu því, að Helmuth
Schmidt hefði gert rétt í því að
falla ekki frá heimsókn sinni til
Moskvu í sumar.
Einnig var rætt um stöðuna í
Austurlöndum nær og sagði ráð-
herrann að fyrirhugaðir væru
bandalagins, sem haldinn verður í
Ósló nú í september, styðja óskir
Islendinga um veiðiheimildir inn-
an fiskveiðilögsögu Grænlands,
svo lengi sem þær rækjust ekki á
hagsmuni okkar.
Þá sagði hann að rætt hefði
verið um sölu íslenzks kindakjöts
til Efnahagsbandalagslandanna
og sagði að Danir myndu styðja
Islendinga í því máli.
Þegar ráðherrann var spurður
að því, hvort þetta væri aðeins
„kurteisisheimsókn“, eða hvort
hann hefði komið hingað vegna
einhvers ákveðins máls, sagði
hann að hér væri fremur um
„kurteisisheimsókn" að ræða. Það
mætti þó ekki líta svo á að enginn
sérstakur tilgangur hefði verið
með henni. „Við viljum með þess-
ari heimsókn fyrst og fremst
undirstrika einlægan vilja okkar
til norrænnar samvinnu, þó við
séum eitt Norðurlandanna í Efna-
hagsbandalaginu. Við höfum oft
orðið varir við það, að okkur sé
borið á brýn, að þar sem við séum
í því höfum við mjög takmarkaðan
áhuga á norrænni samvinnu, en
það er alls ekki rétt. Ég vil einnig
benda á það, að menn þurfa ekki
endilega að hittast til að leysa
einhver vandamál. Menn geta
hitzt til að ræða stöðuna í ýmsum
málum og jafnvel til þess að koma
í veg fyrir vandamál, og því eru
heimsóknir sem þessi ekki síður
mikilvægar en aðrar,“ sagði Kjeld
Olesen.
Þá kom það fram á fundinum að
Kjeld Olesen hefur boðið Ólafi
Jóhannessyni, utanríkisráðherra,
og konu hans í opinbera heimsókn
til Danmerkur.
Kjeld Olesen, utanrikisráðherra
Dana. I.jósmynd Mbl. RAX
fundir hjá Efnahagsbandalaginu
vegna þeirra mála. Um Pól-
landsmálin voru ráðherrarnir
einnig sammála og vonuðust til að
á þeim fyndist viðunandi lausn án
afskipta annarra ríkja.
Kjeld Olesen sagði að ekki væri
ágreiningur milli Islendinga og
Dana um fiskveiðimál og sagði að
Danir myndu á fundi Efnahags-
við tónlist
sgeirssonar
frumfluttur á jólum
tvö ný, íslensk
Ballet
Jóns
verk verða
sýnd í vetur
VERKEFNAVAL Þjóðleik-
hússins verður með íjöl-
breyttasta móti í vetur. Tekin
verða til sýningar tvö ný
íslensk verk, leikritið Snjór
eftir Kjartan Ragnarsson,
sem flutt verður á Stóra
sviðinu, og á Litla sviðinu
verður kynntur nýr íslenskur
höfundur, Valgarður Egils-
son. sem hefur skrifað sér-
kennilegt leikrit, sem hann
nefnir Dagshríðarspor. Þá
má það til tíðinda telja, að
jólaverkefni leikhússins verð-
ur heilskvöldshallett við tón-
list eftir Jón Ásgeirsson.
Þetta kom m.a. fram á blaða-
mannafundi með Sveini Ein-
arssyni þjóðleikhússtjóra í
Ka*r.
Leikritið Snjór eftir Kjart-
an Ragnarsson verður frum-
sýnt 12. september nk. Það
fjallar um héraðslækni í kaup-
túni austur á landi og þær
spurningar, sem leita á hug
hvers manns, eins og um
afstöðuna til lífs og dauða. 17.
okt. hefjast sýningar á Könnu-
steypinum pólitíska eftir Hol-
berg og er hér á ferðinni einn
hans vinsælasti gamanleikur.
Hér á árum áður var Holberg
hvað fyrirferðarmestur í ís-
lenskum leikhúsum en þessi
merki höfundur hefur ekki átt
upp á pallborðið hjá þeim um
alllangt skeið. Er hér ráðin
nokkur bót á.
Sá nútímahöfundur breskur,
sem hvað mesta athygli hefur
vakið að undanförnu, er Tom
Stoppard. Hans nýjasta verk,
Nótt og dagur, sem fjallar um
fólk í blaðamannaheiminum í
nýfrjálsum ríkjum Afríku,
verður frumsýnt 7. nóvember.
Rétt er að geta þess, að svo
kann að fara að nafni leikrits-
ins verði nokkuð hnikað til en
það er þó ekki afráðið. Jóla-
verkefni leikhússins verður
eins og fyrr segir ballett við
tónlist eftir Jón Ásgeirsson.
Dansinn hafa samið Jochen
Ulrich, kunnur þýskur dansa-
smiður, og Sveinbjörg Alex-
anders. Ballettinum hefur enn
ekki verið gefið nafn en hann
verður frumsýndur á annan í
jólum. I byrjun febrúar verður
sýnt eitt þekktasta verk í
leikbókmenntum aldarinnar,
Sölumaður deyr, eftir Arthur
Miller. Það var sýnt hér á
fyrsta leikári Þjóðleikhússins
en hefur ekki verið sýnt síðan.
Það verður nú flutt í nýrri
þýðingu dr. Jónasar Krist-
jánssonar.
Þjóðleikhúsið hefur lagt
drög að því að sýna þá tvo
söngleiki, sem mesta athygli
vöktu í New York í fyrra,
Strider (Skjóna), eftir sögu
Tolstojs, og Evítu, sem er
byggður á ævi Evu Perón.
Óvíst er hvor verður fyrr fyrir
valinu en frumsýning verður í
mars. Síðasta verkefni leikárs-
ins verður óperan La Bohéme
eftir Puccini og verður hún
frumsýnd í maí. Hún hefur
ekki fyrr verið sýnd í Þjóðleik-
húsinu.
Á þær sýningar, sem hér
hafa verið nefndar, gilda
áskriftarkort og er rétt að
vekja athygli á því, að sala
áskriftarkorta hefst í dag og
stendur aðeins fram að fyrsta
frumsýningardegi, sem er 12.
september.
Eins og venja hefur verið til
verða barna- og fjölskyldusýn-
ingar á Stóra sviðinu og nú
hefur orðið fyrir valinu al-
þekkt saga, Oliver Twist, eftir
Charles Dickens í leikgerð
Árna Ibsens. Á Litla sviðinu
verður eins og fyrr greinir
sýnt leikritið Dagshríðarspor
eftir nýjan, íslenskan höfund,
Valgarð Egilsson lækni, og
ennfremur Bodies eftir James
Saunders, breskt kammerleik-
rit eins og þau gerast best.
Loks verða sýndir á Litla
sviðinu tveir einþáttungar,
Mótmæli eftir Vaclav Havel
og Vottorð eftir Pavel Kohout,
en báðir eru þeir kunnir sem
ötulir baráttumenn fyrir
auknum mannréttindum í
Tékkóslóvakíu.
Þess má að lokum geta, að
Þjóðleikhúsið er nú að fara í
leikför með Stundarfrið Guð-
mundar Steinssonar á Bitef-
leiklistarhátíðina í Júgóslavíu
og síðan til Norðurlanda og er
þetta viðamesta leikferðin frá
upphafi. Litlar breytingar
verða nú á hópi leikara við
Þjóðleikhúsið, þær að Ævar
Kvaran lætur af starfi sem
fastráðinn leikari en hann
hefur verið við leikhúsið frá
upphafi. Edda Þórarinsdóttir
leikkona mun nú fylla flokk
fastráðinna við leikhúsið.
aflað sér verkfallsheimildár eða
ekki.
„Það var í raun búizt við því í
dag,“ sagði Ásmundur, „að eitthvað
jákvætt kæmi frá Vinnuveitenda-
sambandinu, en það gerðist ekki.
Það eina, sem gerðist, var að þeir
buðu ákveðna hækkun á taxtavið-
miðunina, sem notuð hefur verið,
sem í fljótu bragði gæti virzt
hugsuð í stað „gólfsins", en það var
þó ekki, því að hækkunin reyndist
síðan eiga að vera heildarhækkun-
in í samningunum. Þarf ekki neina
sérstaka tilfinningu fyrir tölum til
þess að sjá í hversu litlu samhengi
það er við þær aðstæður, sem við
búum við í dag, t.d. í samanburði
við samninga opinberra starfs-
Ásmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri ASÍ:
Tilboð VSÍ færði
okkur ekki nær
lausn málsins
„ÞAU viðbrögð, sem við höfum
fengið frá Vinnuveitendasam-
bandinu í þessum viðræðum, eru
ekki til þess fallin að stefna okkur
i lausn málsins og teljum við þvi
ekki ástæðu til áframhaldandi
viðraxlna að óbreyttrj afstöðu
vinnuveitenda.“ sagði Ásmundur
Stefánsson, framkvæmdastjóri AI-
þýðusambands Islands í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Morgunblaðið spurði Asmund,
hvað þá tæki við í stöðunni. Hann
kvað viðræðunefnd ASÍ myndu
koma saman á mánudagsmorgun
og myndi hún skoða málið og
ákveða þá, hvert yrði næsta skref
ASÍ. Ásmundur kvað mjög mis-
jafnt, hvort aðildarfélög ASI hefðu
manna, sem bæði gefa „gólf“ og 14
þúsund króna kauphækkun ásamt
tilfærslum, sem þar eru.“
Ásmundur kvað það rétt, að
einstök störf gætu hækkað meira
vegna röðunar starfa í flokka. Þar
væri um að ræða í fyrsta lagi, að
kaup væri fært til samræmis hjá
sumum hópum innan mismunandi
stéttarfélaga. í öðru lagi gætu
breytingar á launakerfi orðið til
hækkunar, þótt um hið gagnstæða
gæti einnig verið að ræða. í heild
kvað hann erfitt að meta þetta, þar
sem í sumum tilfellum væri verið
að færa taxta í átt til raunverulegs
kaups. Kvað hann langan veg frá
því að samkomulag hafi náðst í
þessum efnum og væru því þau mál
í raun einnig óleyst.
en ríkinu. Þetta var lokasvar af
okkar hálfu. Það er fráleitt að við
getum gengið lengra. Vinnuveit-
endasambandið telur að þessi
launaútgjaldaaukning sé með öllu
óraunhæf og snúist eingöngu um
verðbólgu og gengislækkun, en ekki
kjarabætur. Samt er nauðsynlegt að
stíga þetta skref til þess að launþeg-
ar á almennum vinnumarkaði drag-
ist ekki aftur úr í samanburði við
launþega hjá rikinu."
Þorsteinn kvað í mörgum tilfell-
um um að ræða meiri launahækkan-
ir hjá einstökum starfshópum innan
ASI en ríkisstarfsmenn hefðu feng-
ið. Hann nefndi dæmi: lægsti verka-
mannataxti hækkaði samkvæmt til-
boðinu um 10 þúsund krónur, fisk-
vinna hækkaði um rúmar 11 þúsund
krónur, almenn verksmiðjustörf á
Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ:
ASÍ átti kost á betri
samningum en BSRB
„Vinnuveitendasamhandið lagði
fram nýja launatöflu í dag. þar
sem fram kom verulcg hakkun á
launatölum i neðstu launaflokkun-
um, 3,6% hækkun. sem fór siðan
stiglækkandi niður i 0,06% i efsta
flokknum. Var þetta gert til þess
að koma til móts við þau sjónarmið
Alþýðusambandins að ha'kka mest
lægstu launin. Til viðhótar þessum
tölum, þá liggja fyrir í þeim
grundvelli, sem við lögðum fram.
verulegar tilfærslur í töxtum. sem
þýða hækkun á kaupi." sagði
Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasamhands ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið í
ga>r.
„Niðurstaðan er sú,“ sagði Þor-
steinn, „að um er að ræða aukinn
launakostnað upp á um 6%, sem er
þannig um l‘A% meira heldur en
aukinn launakostnaður ríkisins var
í þeirra samningum. Ástæður fyrir
þessum mun er, að fleiri eru í lægri
launaflokkunum á almennum
vinnumarkaði en hjá ríkinu, þannig
að sambærilegar hækkanir gagn-
vart lægstu laununum vega meir og
eru dýrari almennum vinnumarkaði
vegum Iðju hækkuðu um 23 þúsund
krónur, almenn skreiðarvinna
hækkaði um rúmlega 18 þúsund
krónur, stjórnun lyftara hækkaði
um 29 þúsund krónur, laun pakk-
húsmanna hjá öðrum en skipafélög-
unum hækkuðu um 28 þúsund krón-
ur, aðstoðarmenn í fagvinnu i
óþægilegri eða óþrifalegri vinnu
hefðu hækkað um 31 þúsund krónur,
þannig að þarna væri í mjög
mörgum tilfellum um allverulegar
kauphækkanir að ræða. „Við teljum
að það sé fjarstæða að ræða um
meiri launabre.vtingu á þessu stigi
og að ASI hafi þarna átt kost á betri
samningum en BSRB,“ sagði Þor-
steinn.
Að lokum sagði Þorsteinn, að
staðan í efnahagsmálunum nú væri
svo þröng, þótt hér sé ekki um að
ræða jafnháar kauphækkunartölur
og oft áður, að miðað við að á þessu
ári myndu þjóðartekjur minnka,
væri hér.um að ræða óraunhæfari
kauphækkanir en 1977 frá efna-
hagslegu sjónarmiði. Þá var 7 til 8%
hagvöxtur. Því gæti nú hver maður
séð að ekki yrði gengið skrefi lengra
nú.