Morgunblaðið - 06.12.1980, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
22
/
„Fólk er hér yfirkomið af
sorg vegna þessa hræðilega
slyss ok hugur manna ekki við
annað hundinn" sagði Kirsten
ThorberK Sa Machado í Lissa-
hon í simtali við Mbl. í dag,
föstudag. „Öllum ber ásamt um,
að Sa Carneiro hafi verið mesti
stjórnmáiamaður sem við höf-
um átt, og hans er minnzt fyrir
það og fyrir hversu einlægur
lýðræðissinni hann var. Þann
skamma tíma. sem hann var i
fyrirsvari í þjóðlífi okkar, batn-
aði efnahags- og atvinnuástand
mjög, fólk var farið að finna tii
meira öryggis og stöðugleika og
það voru miklar vonir bundnar
við áframhaldandi stjórn hans.
Þetta er óskaplegt tap fyrir
portúgölsku þjóðina og hættu-
legt fyrir pólitískt jafnvægi í
landinu. Ég held að allir geri
sér grein fyrir því."
Kirsten sagði, að skömmu eftir
að útsendingar útvarps og sjón-
varps voru rofnar til að skýra frá
slysinu, hafi Freitos do Amaral,
aðstoðarforsætisráðherra og utan-
Frá blaðamannafundi sem Sa
Carneiro forsætisráðherra, So-
ares Carneiro forsetaframbjóð-
andi og Freitos do Amaral
aðstoðarforsætisráðherra héldu
síðla fimmtudags. Þar gagn-
rýndu þeir Eanes forseta mjög
harðlega og sögðu m.a. að sú
ákvörðun frambjóðanda komm-
únista að draga sig i hlé og
hvetja stuðningsmenn sina til
að kjósa Eanes sýndi ótvírætt
hver væri stjórnmálalitur Ean-
esar. Skömmu síðar hélt Sa
Carneiro áleiðis til Lissabon-
flugvallar.
sveit ungra manna, aðallega lög-
fræðinga, sem vildu beita sér fyrir
að lýðræði yrði komið á í landinu.
Hann gat sér orðstír fyrir fjöl-
margar skeleggar greinar um
þessi efni, sem prentaðar voru á
laun og mikið lesnar.
Eftir byltinguna 1974 fagnaði
hann ákaft og þóttist sjá fram á
bjartari tíð. Fljótlega kom í ljós að
Hvað verður
Francisco Sa
nú í Portúgal að
Carneiro látnum?
ríkisráðherra komið fram í sjón-
varpi og talað um hina látnu, sem
báðir voru persónulegir vinir
hans, auk þess að vera sam-
starfsmenn. Hefði hann minnzt
þeirra fallega. „Eanes forseti var
meðal þeirra sem fyrstir komu á
slysstaðinn. Um eitt leytið sl. nótt
flutti Eanes síðan ávarp í sjón-
varpinu þar sem hann sagði að
forsetakosningarnar á sunnudag
myndu fara fram eins og áformað
hafði verið. Hann fór fallegum og
smekklegum orðum um hina látnu
og hefur komið ákaflega vel fram
á erfiðri stundu."
Þá hefur Mario Soares, sem er
staddur í París minnzt Sa Carn-
eiros og Amaro da Costas varnar-
málaráðherra og farið um þá
lofsamlegum orðum. Hann sagði
að með fráfalli Sa Carneiros hefðu
Portúgalar misst mikilhæfan
stjórnmálamann, sem hann hefði
metið, þótt þá hefði greint á í
pólitísku tilliti. Soares sagði af sér
formennsku í Sósíalistaflokknum
fram yfir forsetakosningar vegna
andstöðu við Eanes, en hann hefur
þó ekki lýst fylgi við Soares
Carneiro og ekki búizt við að hann
geri það.
„Það var ákaflega mikils vænzt af
þessum tveimur mönnum" hélt
Kirsten áfram.“ En þess má geta
að Amaro da Costa varnarmála-
ráðherra, do Amaral og Victor Sa
Machado eiginmaður Kristenar
voru frumkvöðlar að stofnun Mið-
demókrataflokksins eftir bylting-
una 1974 og þrír af örfáum
þingmönnum sem náðu kjöri á
stjórnlagaþingið 1975, þegar
flokkurinn var nánast skorinn
niður við trog í ofsóknum komm-
únista. Da Costa var 37 ára
gamall. Kona hans Manuela fórst
einnig í slysinu. Þau höfðu verið
gift í rúmt ár.
Aðspurð um flugufréttir um
skemmdarverk sagði Kirsten að
talsmaður Sósialdemókrataflokks-
ins hefði tilkynnt að það væri
útilokað. Hér virtust vera á ferð-
inni mannleg mistök flugmanns-
ins, en fyrstu fréttum hafði ekki
borið saman um hvort vélin hefði
sprungið í loft upp eða kviknað í
henni, þegar hún skall niður í
íbúðarhverfinu.
I ljós hefur komið að forsætis-
ráðherrann hafði pantað far með
áætlunarflugvélinni til Oporto
sem fór um svipað leyti, en vegna
þess að ekki voru næg sæti í henni
fyrir fylgdarfólk hans ákvað hann
að slást í hóp þeirra í leiguvélinni.
Kirsten sagði, að það væri
ógerningur að gera sér grein fyrir
hvaða áhrif þessi atburður hefði á
forsetakosningarnar á sunnudag-
inn en þær fara fram eins og ætlað
var. Eins og alkunna er hefur
aðalglíman staðið milli Eanes for-
seta og Soares Carneiro sem
studdur var af bandalagi forsætis-
ráðherrans, Alianca Democratica.
Hún sagði að Soares Carneiro
hefði sótt mjög í sig veðrið í
baráttunni og fylgi hans aukizt
eftir því sem hann hefði oftar
komið fram. Menn teldu þó að
Eanes kynni að hafa forskot sem
ríkjandi forseti sem fólk þekkti.
Aftur á móti væri talið svo mjótt á
munum að enginn treysti sér til að
spá um úrslitin. Forseti verður að
fá 51% greiddra atkvæða en deild-
ar meiningar eru um hvort Eanes
eða Soares Carneiro ná því. Ef
ekki, verður önnur umferð kosn-
inganna þann 28. desember.
Því má vélta fyrir sér nú þegar
portúgölsku þjóðinni finnst sem
hún hafi hálfvegis misst fótfest-
una vegna fráfalls forsætisráð-
herra síns, hvort hún muni líta á
Eanes sem einn af fáum föstum
púnktum og kýs hann ellegar
virðir vilja hins látna forsætisráð-
herra og veitir Soares Carneiro
brautargengi. Kirsten sagði að-
spurð að hún myndi ekki eftir
neinum kosningum í landinu síð-
ustu sex árin — og þær eru nú
orðnar margar — þar sem úrslit
væru jafn óviss og nú og hefðu
raunar einnig verið það fyrir
slysið.
Freitos do Amaral, sem hefur
tekið við forsætisráðherradómi til
bráðabirgða, hafði eins og Sa
Carneiro hótað að segja af sér, ef
Eanes yrði endurkjörinn. Hann
hefur ekki gefið neina yfirlýsingu
um breytta afstöðu. Margir velta
því fyrir sér hvort honum muni
takast verkefni sitt, ekki sízt í
ljósi þess að hann kemur úr mun
minni flokki en Sa Carneiro. Do
Amaral hefur þó þótt snjall
stjórnmálamaður, stórgáfaður og
útsjónasamur. Hann hefur einnig
sér við hlið vinsælan fjármálaráð-
herra, Da Silva, sem þykir hafa
unnið þrekvirki í efnahagsmálum
Portúgals þann tíma sem hann
hefur farið með fjármál ríkisins.
En fyrst og fremst syrgja
Portúgalar forsætisráðherra sinn,
sem var að allra dómi vaxandi
pólitíkus. Hann þótti ekki alþýð-
Íegur maður, en tamdi sér þó
smátt og smátt hlýlegra viðmót,
var á stundum nokkuð hvassyrtur
og skapmikill. Metnaðargjarn og
mælskumaður og sérstaklega
snarpur í rökræðum. Veizluhöld
þau sem fylgdu embættinu voru
honum lítið að skapi. Hann vakti
athygli fyrir að búa opinberlega
með Snu Abercassis, danskri
konu, sem hafði verið gift í
Portúgal og var reynt að nota það
gegn honum í kosningabaráttunni,
þar sem Sa Carneiro og Isabel
kona hans voru ekki Jögskilin, þótt
þau hefðu slitið samvistum fyrir
mörgum árum. Sa Carneiro kærði
sig kollóttan um skrafið, hafði að
sögn lúmskt gaman af og hlaut
fyrir aðdáun landa sinna þótt
kaþólskir séu.
Francisco Sa Carneiro var
fæddur í Oporto í Norður Portúgal
19. júlí 1934. Hann nam lögfræði
við háskólann í Lissabon og tók
síðan doktorsgráðu í grein sinni.
Um hríð starfrækti hann lög-
fræðiskrifstofu í Oporto. Árið 1969
var hann kjörinn á það sem kallað
var þjóðþingið, valdalaus stofnun,
en ætlað að draga úr einræðissvip-
móti Portúgals út á við. Sa
Carneiro sagði af sér fjórum árum
síðar, gramur og sár yfir því
hversu merkingarlaust þing þetta
var. Hann skipaði sér í forystu-
kommúnistar voru að ná undirtök-
unum í landinu og Sa Carneiro
beitti sér af alefli gegn vaxandi
áhrifum þeirra, gagnrýndi harka-
lega þjónýtingu og eignaupptöku
stefnu þeirra. Þetta sama ár
veiktist hann alvarlega og hafði
ekki afskipti af stjórnmálum í
drjúgan tíma. Hann hafði stofnað
Alþýðudemókrataflokkinn rétt
eftir byltinguna, en síðar var
flokkuripn skírður upp og nefndur
Sósialdemókrataflokkur. Eftir að
Sa Carneiro náði bata á ný þurfti
hann síðan að heyja nokkra bar-
áttu innan flokks síns, þar sem
menn voru ekki á einu máli um
stefnu flokksins. Eftir að sam-
steypustjórn Mario Soaresar féll
sumarið 1978 greip Sa Carneiro til
pólitískrar kúvendingar, sem vakti
mikla athygli. Hann hafði verið
orðaður við vinstristefnu, þótt
hann væri andsnúinn sósialistum
og kommúnistum. En nú tók hann
að breyta stefnunni, svo að hann
færðist hægt og sígandi að miðj-
unni og þar með nálgaðist PSD
einnig Miðdemókrataflokk Freitos
do Amaral.
Upp frá því var hafinn undir-
búningur að samstarfi flokkanna
með þeim ágæta árangri, að Sa
Carneiro varð í febrúar fyrsti
forsætisráðherra meirihluta-
stjórnar í Portúgal og enn styrkti
hann stöðu sína í kosningum á
haustnóttum.
Eins og margir muna studdu
flokkarnir þrír, PS,CDS og PSD
Eanes til forsetakjörs árið 1976,
en hann var þá lítt þekktur, en var
þakkað að hafa komið upp um
samsæri kommúnista í nóvember
1975, en þar með urðu straum-
hvörf í landinu í pólitísku tilliti.
Síðan hefur Eanes forseti verið að
færast ótvírætt til vinstri, Sa
Carneiro til mikillar reiði. Sam-
starf mannanna tveggja, síðan Sa
Carneiro varð forsætisráðherra,
var- að vísu kurteist en ekki rétt
meira en svo og flestir telja
einsýnt að Sa Carneiro hefði
staðið við þá hótun að segja af sér
ef Eanes næði kjöri.
Á þessu stigi verður engu spáð
um hver verður framvinda mála í
Portúgal. Þar virtist loks vera
kominn á nokkur pólitískur friður,
sem að vísu var ekki öruggur, en
gaf fyrirheit um betri tíð. Nú er
allt með öðrum brag. Framtíðin
hefur ekki um langar tíðir verið
jafn óviss Portúgölum og nú þessa
desemberdaga.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Frá slysstaðnum. Lögregla reynir að halda vegfarendum frá. Deilt var um hvort kviknað hafi i vélinni
í loftinu eða þegar hún skall niður í íbúðarhverfi við flugvöllinn.
„Hans er minnzt sem einlægs lýðræðissinna og mesta stjórnmála-
manns Portúgala“ sagði Kirsten Th. Sa Machado í símtali við Mbl.