Morgunblaðið - 06.12.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
41
í fótspor
Ronalds
Reagans
+ Þetta er einn kunnasti gamanleikari
Frakka, Michel Golucci, sem leikur undir
listamannsnafninu Coluche. Leikarinn
virðist ætla að reyna að feta í fótspor
kollega síns í Ameríku, fyrrum leikara,
Reagans, og vinda sér yfir í pólitíkina.
hann hefur nefnilega ákveðið að fara í
framboð til forsetakosninganna í Frakk-
landi á næsta ári. Myndin af Coluche er
tekin er hann skýrði blaðamönnum í
París frá ákvörðun sinni um forstita-
framboð sitt.
Heiðurs-
doktor
í lögum
+ Margrét Danadrottning hefur verið
útnefnd heiðursdoktor í lögum við Lund-
únaháskóla og hafði sú athöfn farið fram
á þriðjudaginn þar í borg. Drottn-
ingarmóðir Elísabet framkvæmdi at-
höfnina. Margrét drottning var þar í
hópi 6 heiðursdoktora og var hún eina
konan íhópnum.
Styttan af blaðburðarbörnun-
um í Tokyo.
Yaldimar er vel búinn. þegar
hann legKur upp með blöðin
SÍn. I.josm. E.B.B.
Þau færa okkur
fréttir dagsins
+ Þau koma með fréttirnar. en eru sjaldan í fréttunum. blaðhurðar-
börnin. scm koma með bioðin að húsadyrunum til okkar. I>au eru
vissulega hetjur daí?sins. Ok í Tokyo eru þau svo mikils metin. að
reist hefur verið líkncski þeim til heiðurs fyrir framan blaðið Seikyo
Shimbun. Ein af þessum unjcu ótrauðu hlaðburðarhetjum. sem við
hittum i Breiðholtinu, er hann Valdimar BirKÍsson, 10 ára Kamall.
sem á hverjum moricni vaknar klukkan hálf sjö, til þess að vera
búinn að bera MorKunblöðin sín 65 í Austurbergið o|{ Keilufellið
áður en hann fer í skólann. Þangað á hann að vera kominn klukkan
átta, oftast hefur hann tíma til að koma við heima og fá sér eitthvað
í svanginn hjá mömmu sinni, sem ekki fer i vinnuna fyrr en seinna.
— Jú, það var dálítið erfitt að vakna fyrst, meðan maður var að
venjast því, en úr því að ég er hvort sem er að fara snemma í skólann
gerir það ekkert til, segir hann. Verst á sunnudögum, þegar eru tvö
blöð, því þau eru svo þung. Þá hafa eldri bræður mínir hjálpað mér —
jafnvel farið einir með blöðin fyrir mig, þegar mamma segir að ég sé
þreytulegur.
Valdimar segir að það sé dálítið kalt og dimmt svona snemma á
morgnana en hann kveðst vera vel búinn, hafði einmitt fengið þessi
nýju góðu stígvél sem hann var í, svo honum yrði ekki kalt við
blaðburðinn. Fátt fólk er á ferli, nema hvað nokkrir menn bíða eftir
rútubíl í Austurberginu, sem ekur þeim í vinnuna og þeir tala oft við
hann. Klukkan átta fer hann í skólann og er þar oftast til kl. 1 og
tvisvar í viku fer hann aftur í aukatíma. Þetta er því drjúgur
vinnutími. Og þá er ótalinn tíminn sem fer í að rukka.
En Valdimar segist ætla að safna peningunum, sem hann fær fyrir
blaðburðinn. — Kannski getum við farið í sumarfrí út í lönd, segir
hann. Það er þó ekki víst. Og ef ég eyði engu, þá get ég lagt mitt til.
Með blómsveig á höfði
Ávísunin útfyllt
+ Þetta er ekki þjónn aö störfum við mathorð verðandi forseta
Bandarikjanna, Ronald Reagans. Hér er söngvarinn frægi, Frank
Sinatra, að útfylla 2.500 dollara ávisun i Mdegigverði, sem haldinn var
til stuðnings Eisenhower-heilsugæslustöðinni i Kaliforniubeenum
Ranco.
+ Sem kunnugt er af fréttum héldu forsætisráðherr-
ar Norðurlanda nýlega fund sinn i Kaupmannahöfn.
Eitt helsta málið á dagskrá var samvinna landanna á
sviði orkumála. Ekki mun það samstarf hafa leitt til
teljandi árangurs, enn sem komið er a.m.k. En á
þessari mynd eru forsætisráðherrarnir með blóm-
sveig á höfði. við veitingastaðinn Peder Oxe i
Kaupmannahöfn. Þangað bauð gestgjafinn, Anker
Jörgensen. kollegum sínum til hádegisverðar einn
daginn. — Ráðherrarnir eru, talið frá vinstri Mauno
Koivisto frá Finnlandi. Odvar Nordli, Noregi,
Thorbjörn Falldin, Sviþjóð, Gunnar Thoroddsen,
íslandi, loks sjálfur Anker, forsætisráðherra Dana.
— Siðan starfsstúlkur Peder Oxe veitingahússins.