Morgunblaðið - 10.11.1981, Page 10

Morgunblaðið - 10.11.1981, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 Alvarlegt ef ríkið lætur prenta erlendis - segir í frétt frá Félagi bókagerðarmanna KKLAG bókagerðarmanna hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem því er mótmælt, að lelagið hafi ckki lagt kröfugerð sína fram fyrr en 2. nóv- ember. Segir í fréttinni, að það hafi verið gert með bréfi dagsettu 28. október. í fréttatilkynningunni er einnig fjallað um þá þróun að prentverk sé að flytjast úr landinu. Í fréttinni segir orðrétt: „Því hefur verið haldið fram að AI) IMATI Vinnuvcitendasam- bands Islands nema kröfur Fé- lags bókagerðarmanna um dS% hækkun í heild. prentverk sé að færast úr landinu í vaxandi mæli og það jafnframt gefið í skyn, að bókagerðarmenn séu ábyrgir fyrir því. - Vissulega er það t hæsta máta óheppilegt að prentverk sé flutt úr landinu, en á það skal þó bent, að það hefur ekki aukist svo mjög, eins og látið er í skína. Auk þess má benda á, að allnokkuð er prentað af erlendum prentgripum hér. í þessu sambandi skal jafnframt bent á að orsakir í 65% og væri það vægt reikn- að. þess að íslenskir prentgripir eru unnir erlendis eru margar, en stærst vegur þó hið frjálsa mark- aðskerfi sem atvinnurekendavaldið í landinu rómar svo mjög. Alvar- legast er þó að ríkið skuli láta prenta fyrir sig erlendis og um leið hafa af sjálfu sér stórfé bæði beint og óbeint, augljóst er að einhver matar krókinn. Þá er það með ólíkindum, ef satt reynist, að íslensk iðnfyrirtæki, sem ausið hafa fé í að segja landan- um að nota innlendar vörur, skuli láta prenta fyrir sig erlendis á vægast sagt vafasömum reiknis- legum forsendum. Er ekki í þessum tilvikum verið að fiska eftir er- lendu umboðslaununum skattfríu? Athyglisvert er jafnframt, að það prentverk sem farið hefur er- lendis hefur að stærstum hluta far- ið til landa þar sem laun og launa- kjör eru mun hærri en hér og óró- leiki á vinnumarkaði er miklu tíð- ari en hjá okkur." Kröfur bókagerðar- manna um 65% í heild sinni að mati VSÍ Unnið að bókhandi. Utflutningur prentverka gæti haft veruleg áhrif á okkar starfsgrein - segir Magnús E. Sigurðsson hjá Félagi bókagerðarmanna Morgunblaðið fékk þessar upplýsingar hjá Þórarni Þór- arinssyni, hagfræðingi VSÍ, og sagði hann þetta vera lauslegt, en varlegt mat á kröfunum. Að hans sögn eru aðeins kröf- ur Sambands byggingamanna hærri. Þórarinn sagði að þeir reiknuðu meðaltalshækkun grunnlauna á tæp 25%, stytt- ingu vinnutíma miðað við sömu vinnuviku á tæp 28%, kröfur um orlof og tengda liði á 4—5%. Síðan kröfur vegna breytinga á samningum, við samruna þriggja félaga í eitt, á nokkur prósentustig þannig að í heildina væri krafan hátt „VIÐ OG Kélag íslenska prentiðnað- arins höfum rætt þessi mál töluvert og leiðir til að sporna við fótum í þessari þróun. Ilins vegar er ákaf- lega óhægt um vik,“ sagði Magnús E. Sigurðsson, formaður Félags bókagerðarmanna, í samtali við \1bl., er hann var inntur eftir þeirri þróun að prentverk væri að flytjast í auknum mæli út fyrir landsteinana. Sagði Magnús það vera stað- reynd að í Danmörku og á ýmsum Norðurlöndum greiddi ríkið niður prentunarkostnað og styddi við bakið á prentiðnaðinum þannig að þau væru samkeppnisfærari held- ur en fyrirtæki á Islandi. Sagði Magnús að „háværar sögusagnir væru um það að ýmis iðnaðarfyrirtæki íslensk væru að fara út með sitt prentverk, fyrir- tæki sem hafa staðið í því árum saman að predika fyrir Islending- um að þeir keyptu íslenskt. „Og þetta stingur nokkuð í augun þeg- ar slík fyrirtæki fara út með sitt prentverk," sagði Magnús. Hanr. sagði að ekkert lægi á borðinu með hvernig þeir hjá Félagi bókagerð- armanna ætluðu að svara þessari þróun. Ekki vissi Magnús hve víð- tækur þessi „útfkrtningur" væri orðinn en sagði það alvarlegt þeg- ar stór verkefni færu út því það gæti haft veruieg áhrif á þeirra starfsgrein. ViA látum efnisgæðiog vinnuvönduxt shja í lyrímMnú! Húseiningar h/f á Siglufírði er ekki venjulegt trésmiðaverkstæði, heldur fullkomin verk- smiðja, sem framleiðir staðlaðar húseiningar, sem geta stytt byggingartímann verulega. Siglufjarðarhúsin hafa verið reist við mjög mismunandi aðstæður um allt land. Sérstök framleiðslutækni Bygging einingahúss sparar ekkert í efnis- kostnaði. Þvert á móti. Húseiningar h/f leggja ríka áherslu á sérlega vandað efni, trausta samsetningarhluta og góðan frágang. Sparnaðurínn felst í notkun nýtisku fram- leiðslutækni, sem lækkar byggingarkostnað- inn á öllum stigum byggingarinnar. Ræðum saman. Bygging einbýlishúss frá Húseiningum h/f er ekki bundin víð fáeinar staðlaðar teikning- ar. Þess vegna er best að bera saman teikning- ar okkar og hugmyndir ykkar - og ræða svo saman um óteljandi möguleika, sem koma til greina, - án nokkurra skuldbindinga. Sölu- skrifstofa okkar er í Skipholti 19, Reykjavík, sími: 1 59 45 Ókeypis kynningarbók Hringið - og við sendum ykkur ókeypis teikningabók með rúmlega 30 spennandi ein- býlishúsateikningum, m.a. teikningum af nýju tvílyftu húsunum, sem vakið hafa svo mikla athygli. HÚSEININGAR HF - Nýtt hús á nokkrum dögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.