Morgunblaðið - 10.11.1981, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.11.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 15 Steinunn Jóhannesdóttir DANSÁ 1\ÓSUM f é- (Xi 4ry y „Dans á rósum“ Leikrit Steinunnar Jóhannesdóttur, komið út IDU.NN hefur gefid út leikritið I)ANS Á RÓSllM eftir Steinunni Jó- hannesdóttur sem Þjódleikhúsið sýn- ir um þessar mundir. Þetta er fyrsta leikrit Steinunnar sem er löngu kunn leikkona. Dans á rósum er samtímaleikrit og gerist á Akureyri. Þangað kem- ur Asta Harðardóttir, kona um þrí- tugt, sálfræðingur að starfi, til for- eldrahúsa að halda upp á tíu ára stúdentsafmæli sitt. Gerist leikrit- ið eina viku í miðjum júní og fjall- ar um samband Ástu við fjölskyldu sína, foreldra og dóttur sem alist hefur upp hjá afa sínum og ömmu. Fleira fólk kemur við sögu, Valur Sigurgeirsson, ungur læknir, Arn- aldur sem verið hefur vistmaður á Kleppi í tíð Ástu þar, og Sigga Dóra, gömul vinkona Ástu. Dans á rósum er í ellefu atriðum. Leikritið er 101 blaðsíða. Prentrún prentaði. Anders Hansen blaðamaður: Lengd símtala og Alþýðubandalagið Skammt gerist nú stóra högga á milli í opinberun forystumanna Alþýðubandalagsins á stefnu flokks þeirra. Enn er fólki í fersku minni, er leiðtogi Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík, Sigur- jón Pétursson forseti borgar- stjórnar, kvað upp úr með það, að húsnæði fjölda Reykvíkinga væri allt of stórt, og því væri rétt að taka það leigunámi. Mörg fleiri dæmi um hið mikla dálæti Al- þýðubandalagsins á forsjá hins opinbera mætti nefna, þar sem komið er við flesta þætti daglegs lífs þjóðarinnar. Nú síðast kveður Guðrún Helgadóttir borgar- fulltrúi og Alþingismaður upp úr með Það, að Reykvíkingar tali allt of mikið og lengi í síma, og því sé sjálfsagt að skattleggja þá iðju þeirra! Hvað eftir annað kemur hið rétta eðli Alþýðubandalagsins í ljós, er forystumenn þess opin- bera skoðanir sínar, sem þeir hafa þó reynt að sveipa mildara yfirbragði lýðræðis og umhyggju fyrir þeim er minna mega sín hin síðari ár. Þessi breytta framkoma alþýðubandalagsmanna vekur vissulega upp ýmsar spurningar, sem rétt er að hver og einn ís- lendingur spyrji sjálfan sig: Get- ur verið, að forystumenn Alþýðu- bandalagsins telji stöðu sína í ríkisstjórn og þorgarstjórn nú svo sterka, að ekki sé lengur ástæða til að fela hið rétta andlit flokksins, heldur megi það nú birtast alþjóð grímulaust? — Getur verið, að ef landsmenn halda ekki vöku sinni, að einn morguninn vakni fólk við það að Alþýðubandalagið setji fólki lífs- reglurnar í smáu sem stóru? — Er það þjóðfélag Alþýðubanda- lagsins, sem íslendingar æskja helst að hér verði stofnsett, eða vilja þeir áfram lifa í lýðfrjálsu landi eins og ísland er, þrátt fyrir alla þess galla. Svari hver fyrir sig, en ótrúlegt er annað en flest- ir hafni Alþýðubandalaginu eins og 80% þjóðarinnar hefur hingað til gert. Alþýðubandalagið er andvígt frjálsum rekstri útvarps og sjón- varps. Sumir áhrifamanna flokksins voru á móti því að hér yrði komið upp litasjónvarpi á sínum tíma. Sigurjón Pétursson telur hið opinbera eiga að segja til um hve stórt íbúðarhúsnæði fólks á að vera. Boðberar Alþýðu- bandalagsins eru í tengslum við erlendar „friðarhreyfingar", sem sannast hefur að tekið hafa við fé frá Sovétríkjunum, gullrúblum. Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins segir fólki ekki koma það við, hvernig hátti bif- Anders Hansen reiðakaupum hans örfáum dögum fyrir gengisfellingu er ríkisstjórn sú er hann situr í ákvað. Þessi sami Svavar hefur leyft sér að halda því fram að fólk muni gleðjast yfir auknum skattaálög- um er hann boðaði. Þannig mætti lengi telja, og nú síðast lýsir þingmaður og borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins því yfir, að fólk tali of lengi í síma, og því sé rétt að skattleggja ósómann. Alþýðubandalagið telur sig nú vera nægilega sterkt til að opin- bera stefnu sína með þessum hætti. Einn þingmanna flokksins hefur lýst því yfir að núverandi ríkisstjórn sé „meiri vinstri stjórn en ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar" og þótti þó flestum nóg um. Viðurkennt er að stefna Alþýðubandalagsins er alls ráð- andi í mikilvægum málaflokkum eins og orku- og iðnaðarmálum. Alþýðubandalagið hefur neitun- arvald í utanríkisstefnu ríkis- stjórnarinnar. Þó er fylgi flokks- ' ins með þjóðinni aðeins um 20% þegar best lætur, samkvæmt úr- slitum kosninga. Ekki er laust við að frjálslyndu borgaralegu fólki verði hugsað til þess með óhugnaði, hvað hér gæti gerst ef áhrif þessa flokks, „hrokagikkja valdsins" — svo notuð séu orð flokksformannsins — aukast frá því sem nú er. Gæti þá ekki svo farið að Þjóðviljinn fengi þá sérstöðu, sem Alþýðu- bandalagið vill nú að ríkisfjöl- miðlarnir njóti? Gæti þá ekki svo farið að talið verði æskilegt að allir landsmenn aki um á ákveð- inni stærð bifreiða — til dæmis frá Austur-Þýskalandi? Gæti þá ekki svo farið, að ekki verði látið nægja að leggja skatt á ferða- menn og gjaldeyri, heldur þurfi fólk sérstakt leyfi til að fara til útlanda? — Spurningar í þessum dúr heyrast nú manna á meðal þegar Alþýðubandalagið er nefnt, flokkur sem opinberlega talar um „of stórt íbúðarhúsnæði" og „of löng símtöl“. Hætt verði við skrefatalningu þar til niðurstöður könnunar liggja fyrin Símanotkun í borginni óhóflega mikil, fólk talar of mikið f sfma - sagði Guðrún Helgadóttir við umræður í borgarstjórn í gærkveldi Viö bjóöum upp á fjölbreytt úrval af heimilistækjum frá hinum viöurkenndu THERMOR verksmiöjum í Frakklandi. Um gæöi þeirra þarf ekki aö efast og verö þeirra er meöal þess hagstæðasta sem býöst í dag. Einnig ísskápar, gufu- gleypar, uppþvottavélar, þvottavélar í miklu úrvali. Verö 2.11. '81 m. söluskatti 4ra hellna eldavélar frá kr. 3.380.00 3ja hellna eldavélar frá kr. 2.780.00 4ra hellna eldavélahellur frá kr. 1.395.00 Bökunarofnar frá kr. 2.395.00 Kjölur sf., Borgartúni 33, Reykjavík. Sími: 21490, 21846. Keflavík: Víkurbraut 13, sími: 2121.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.