Morgunblaðið - 10.11.1981, Side 42

Morgunblaðið - 10.11.1981, Side 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 Holland: Ajax vann 4-1 ÚRSLIT leikja í 1. deildinni í Hol- landi um síðustu helgi urðu þessi: Feyenoord — Nijmegen Willem II — Haarlem PEC Zwolle — AZ ’67 Twente — Roda JC Ile Graafsrhap — Utrecht Ajax — Go Ahead Den Haag — PSV Eindhoven Groningen — NAC Brede Maastricht — Sparta 2—2 2—2 0—0 1— 3 0—3 4—1 0—0 1 — 1 2— 1 Staða efstu liða: PSV Eindh. 12 9 1 2 32—14 19 Sparta R. 12 7 3 2 28—15 17 Ajax A.qb.12 7 2 3 43—19 16 AZ ’67 Alkmaarl2 6 3 3 27—15 15 NAC Breda 12 6 3 3 25—13 15 AS Roma efst á Ítalíu • Morten Frost einn af snjöllustu badmintonleikurum Dana keppir ÚRSLIT leikja á Ítalíu urðu sem hér segir: Allir sterkustu badminton- leikararnir mæta á Norðurlandamótið -keppnin fer fram í Laugardalshöllinni 21. og 22. nóv. NORDURLANDAMÓT í badminton verður haldið í l.augardalshöllinni 21.—22. nóv. nk. Þetta er í annað skiptið sem mótið er haldið hér á landi, hið fyrra var 1976. Norðurlandamótsnefnd er skipuð eftirtöldum mönnum: Friðleifi Stef- ánssyni móLsstjóra, Braga Jakobs- syni, Daníel Stefánssyni, Hæng Þorsteinssyni, Jóhanni Hálfdanar syni, Jóhanni Möller og Sigfúsi Ægi Arnasyni. Á Norðurlandamóti er keppt i öllum greinum. Keppni mun hefj- ast kl. 10.00 á laugardagsmorgun, 21. nóv. Keppt verður fram að undanúrslitum í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik. Undanúrslit hefj- ast á sunnudagsmorgni, 22. nóv. kl. 10.00, en úrslitin byrja kl. 14.00 sama dag. Nú er ljóst hverjir keppa á mót- inu. Allir sterkustu menn Norður- landa í íþróttinni munu mæta. Frá Danmörku koma m.a. Lene Köpp- en, Morten Frost, Flemming Delfs, Steen Skovgaard, Pia Niel- sen og Steen Fladberg, en þau voru öll hér fyrir fimm árum, og eru nú meðal bestu leikmanna heimsins. Lene, Flemming og Steen hafa orðið heimsmeistarar í badminton, og Lene Köppen hefur unnið fleiri titla í íþróttinni á undanförnum árum, en tölu verð- ur á komið. Sviar mæta með sitt sterkasta badmintonlið, og skal fyrsta nefna Thomas Kihlström og Stefan Karlsson, en þeir eru í fremstu röð í heiminum. Stefan er núverandi Evrópumeistari í tvíliðaleik, en Thomas er fyrrum heimsmeistari og margfaldur All England- meistari í tvíliðaleik. Má búast við harðri keppni milli Dana og Svía um efstu sætin á mótinu. Norðmenn senda sitt besta lið, en það eru þau Petter Thoresen, Else Thoresen, 0vind Berntsen og Hilde Anfindsen. Norðmenn standa nokkuð að baki Svíum og Dönum, en styrkur þeirra hefur þó aukist á síðustu árum. Þá ber að nefna frændur okkar, Finna. Frá þeim koma þau Jaana Elilá, Tony Tuominen, Pekka Sar- asjárvi og Sara Ussher. Þetta eru allt ungir leikmenn, og vænta Finnar mikils af þeim. Grænlendingar keppa nú í fyrsta sinn á Norðurlandamóti í badminton. Þeir senda hingað tvo keppendur, þá Albrecht Dam- gaard og Lennart Hansen. Þessir leikmenn eru okkur að góðu kunn- ir, og má geta þess, að Albrecht heimsótti okkur nú í haust ásamt fleiri Grænlendingum. Loks ber að nefna íslensku keppendurna á mótinu. Þeir eru: Broddi Kristjánsson, Jóhann Kjartansson, Guðmundur Adolfsson, Víðir Bragason, Sigfús Ægir Árnason, Þorsteinn Páll Hængsson, Hörður Ragnarsson, Jóhannes Guðjónsson, Sigurður Kolbeinsson, Kristín Magnúsdótt- ir, Kristín Berglind, Ragnheiður Jónasdóttir, Elísabet Þórðardótt- ir, Sif Friðleifsdóttir. Norðurlandamót í badminton er ólíkt öðrum Norðurlandamótum að því leyti, að þar gefst tækifæri til að sjá heimsins bestu menn í íþróttum. Badminton er „topp- íþrótt" hjá Dönum og Svíum og sjálfsagt standa þeir sig einna best í þessari grein. íslendingar fá því gott tækifæri til að sjá íþrótt á heimsmælikvarða, ef þeir leggja leið sína í Laugardalshöllina dag- ana 21.—22. nóv. nk. Avellina — Ascoli 1—0 Cagliari — Catanzaro 2—1 Cesena — Fiorentina 2—1 Genoa — Juventus 2—1 AC Milano — Como 1 — 1 AS Roma — Bologna 3—1 Torino — Napoli 0—0 lldinense — Inter Milano 1 — 1 Staða efstu liða: AS Roma 8 5 3 0 12—5 13 Juventus 8 6 0 2 14—5 12 Inter Milano 8 3 5 0 7—4 11 Fiorentina 8 4 2 2 7—5 10 Napoli 8 2 5 1 7—4 9 KnattsDvrna Arsþing FSÍ ÁKVEDIÐ hefur verið ad halda árs- þing FSÍ laugardaginn 21. nóv. 1981 kl. 13.00 í Hreyfilshúsinu við Grens- ásveg, Reykjavík. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu virkra iðkenda fimleika, þannig að fyrir allt að 25 menn koma 2 fulltrúar og síðan 1 fyrir hverja 25 eða brot úr 25 upp í allt að 100 ið- kendur og þá 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 50 iðkendur þar fram yfir. Málefni, sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þing- inu, skulu tilkynnt stjórn FSÍ minnst 15 dögum fyrir þingið. 24 tóku þátt í haustmótinu HAUSTMÓT JSÍ fór fram í íþrótta- húsi Kennaraháskólans 8. nóvember • Iæna Köppen hefur unnið til fleiri titla í badmintoníþróttinni en tölu verður á komið. ÍSI veitir Selfossbæ viðurkenningu Arsþing LSÍ ÁRSÞING LSÍ verður haldið í Leifsbúð hótels Loftleiða sunnudag- inn 22. nóvember næstkomandi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfund- arstörf og lagabreytingar. FIMMTUDAGINN 15. október af henti Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, Selfossbæ viðurkenningarskjal frá íþróttasamhandi íslands vegna upp- hyggingar íþróttamannvirkja. Var þetta gert í samsæti sem bæjarstjórn Selfoss hélt fram- kvæmdastjórn ÍSÍ, sem komin var til Selfoss þeirra erinda að af- henda heiðursskjalið. Sveinn Björnsson flutti ræðu, þar sem hann gat hins mikla þátt- ar Sigurðar Greipssonar í íþrótta- starfinu í Héraðssambandinu Skarphéðni og rakti hina íþrótta- legu uppbyggingu á Selfossi, og að það heiðursskjal er ÍSÍ veitti nú Selfossbæ væri viðurkenning fyrir þá miklu og stórglæsilegu íþrótta- mannvirkjagerð sem bæjarstjórn Selfoss hefði skapað æsku þess bæjar. Áð máli Sveins loknu flutti for- seti bæjarstjórnar, Ingvi Eben- hardsson, ræðu og þakkaði viður- kenninguna. Auk þess tóku til mals bæjarfuiltrúarnir Hafsteinn Þorvaldsson og Óli Þ. Guðmunds- son og fluttu ÍSÍ þakkir fyrir hönd íbúa á Selfossi. 1981. Keppendur voru 24 og var þeim skipt í fjóra þyngdarflokka. Fjöldi ungra og efnilegra judomanna tóku þátt í keppninni og veittu hin- um eldri harða keppni. Úrslit urðu þessi: + 60 kg 1. Þorsteinn Jóhanness., Ármanni. 2. Rögnvaldur Guðmundss., Gerplu. 3. Ágúst Egilsson, Gerplu. Gunnar Jónsson, Gerplu. + 65 kg 1. Jóhannes Haraldsson, UMFG. 2. Magnús Jónsson, Ármanni. 3. Karl Erlingsson, Ármanni. Ólafur Ásmundsson, Ármanni. + 78 kg 1. Ómar Sigurðsson, UMFK. 2. Hilmar Jónsson, Ármanni. 3. Magnús Hauksson, UMFK. Gísli Wíum, Ármanni. • Sigurvegarinn í 86 kg flokki, Bjarni Friðriksson Ármanni. + 86 kg 1. Bjarni Friðriksson, Ármanni. 2. Sigurður Hauksson, UMFK. 3. Kristján Valdimarsson, Ármanni. VI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.