Morgunblaðið - 10.11.1981, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
wiiám
Einar Grétar Björnsson
aö blaðra um þá á opinberum vett-
vangi.
Hvað sem öllu þessu líður held ég
að það sé einsdæmi um sjómanna-
stéttina, að hún skuli þurfa að
borga stóran hluta af þeim tækni-
nýjungum sem koma um borð í sum
skipin. Eg man þá tíð, þegar ég fór
til sjós fyrir 30 árum, að þá var
skiptaprósentan 42%, en er nú
þetta frá 27,5—30,5%. Það sem tap-
ast hefur, var tekið á þeim forsend-
um, að vinnan væri orðin betri
vegna tækninýjunganna.
Svei og skömm. Hvað segði fólk í
landi, þar á meðal Kristján Ragn-
arsson, ef laun þess væru lækkuð
um 15%—20%, af því að það væri
búið að tölvuvæða vinnustaði þess?
Ég spyr: Af hverju er alltaf ráðist á
sjómannastéttina eina, ef einhverj-
ar nýjungar koma til skjalanna; við
einir verðum að borga fyrir það, en
annað fólk ekki, þótt það fái
hverskyns tækni- og tölvuvæðingu
til að létta sér störfin og stytta
vinnutímann? Skyldi ástæðan ver
sú, að litið sé á okkur sjómenn sem
galeiðuþræla tækniþjóðfélagsins?"
Hvaða hæli og hótel
hafa verið reist?
Pálína Kjartansdóttir skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég get ekki orða bundist eftir að
hafa lesið bréf Árna Helgasonar
góðtemplara, í Mbl. í dag (4. nóv).
Árni kvartar yfir því að með-
aumkun þjóðarinnar sé orðin of
mikil í hjálp við drykkjusjúka og
segir orðrétt: „Öll reynsla stað-
festir að áfengisneysla sem veldur
síðan þjóðarböli er ekki veiki,
heldur sjálfskaparvíti sem hverj-
um er í lófa lagið að hætta við ef
þeir bara vilja, og það á seinni tím-
inn eftir að sanna enn betur, um
leið og menn hætta að reisa hæli
og hótel fyrir þá sem þykir sæmra
að evða atorku sinni í aumingja-
skap en heilbrigða uppbyggingu
varanlegs þjóðfélags."
Ég er ein þeirra sem var í 900
manna stofnfundi SÁÁ fyrir 4 ár-
um í þeirri trú að vinna að heil-
brigðri uppbyggingu varanlegs
þjóðfélags. Þar voru margir mætir
menn sem tóku til máls og þ.á.m.
Indriði Indriðason stórtemplari
sem drap á að það starf sem SÁÁ
myndi inna af hendi, myndi kosta
fjármuni og þó umfram allt skiln-
ing á málefninu og sagði að Góð-
templarareglan fagnaði starfi
SÁÁ og AÁ — bæði fyrir fyrir-
byRRjandi og hjálparstarfinu við
hina sjúku.
Á framhaldsfundi stofnfundar
SÁÁ, er haldinn var skömmu síð-
ar tók Árni Helgason til máls og
var fullur áhuga á framtíðarstarfi
þessa félagsskapar. Vonbrigði
Árna hljóta því að vera mikil
varðandi starfsemi SÁÁ og þeim
árangri sem þar hefur náðst, þar
sem hann stingur niður penna til
að minna þjóðina á að hætta að
reisa hótel og hæli í þágu hinna
drykkjusjúku. Hvaða hæli og hótel
hafa verið reist, Árni Helgason?
Og hvers vegna ertu svona reiður
yfir endurhæfingarstöðvum fyrir
drykkjusjúka? Hvað er það sem
veldur reiði þinni varðandi hjálp-
arstarfsemi við drykkjusjúka?
[ntefnaneytendun .
urfa allt annað til að t
. v:a en vorkunnsem
ig r,i —*
varanlegs
lT * ■ noo bm.birtistí
immtudapnn22Þ^ ver6
akaöda W?u Björnsdóttur
1 eftir Arnyj , k^a. Þessi
mig'angartdaóþa^
n hefif ^ff . t umhana
°^g ^tkvmmum og á
„rmó^umhenrhúnhaftver..
áhr’f b~—
brigöa uppbygvmgn
þjóöfélags-
ishO'ÍÖ — "
Sýnikennsla í
matargerðarlist
Nú er tækifærið til að læra réttu tökin
við matargerðina.
Matreiðslumenn Hótels Loftleiða
sjá um sýnikennslu í matreiðslu
í Leifsbúð kl. 17.00 í dag.
Þátttökugjald er kr. 30.
VERIÐ VELKOMIN.
- Meðan húsrúm leyfir.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR *
Texas Instruments
tölvutæki
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ARMU LA 38.105 REYKJAVÍK.
SiMI 85455. RO. BOX 272.
Kona verði borg
arstjóraefni
Sverrir Þórðarson skrifar:
„Nú þegar verður maður var
við það, að farið er að ræða
borgarstjórnarkosningar á
næsta sumri. Ljóst er að
takmarkið er, að Sjálfstæðis-
flokkurinn vinni aftur meiri-
hlutann í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Mörg ljón eru þá á vegi
flokksins að því takmarki og
eitt hið erfiðasta er kvenna-
framboð, sem liggur í loftinu í
Reykjavík, enda beinast augu
fólks æ meir að kvenfólki til
að axla hin margvíslegu störf
á æðstu stöðum í þjóðfélaginu.
Vitað er að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir nokkurt for-
skot á aðra flokka í borgar-
málum Reykjavíkur um
kvennaval, því auk þess sem
margar prýðiskonur hafa
starfað að borgarmálum fyrir
hans hönd, þá var Auður Auð-
uns, lögfræðingur, forseti
borgarstjórnar, auk þess sem
hún var borgarstjóri í Reykja-
vík á sínum tíma og gegndi því
starfi með prýði.
Ég tel mig sjá sterkan mót-
leik Sjálfstæðisflokksins gegn
hugsanlegu kvennaframboði í
höfuðborginni, en það er að
tefla fram konu gæddri góðum
hæfileikum sem borgarstjóra-
efni í borgarstjórnarkosning-
unum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
nokkrar vel hæfar konur á sín-
um borgarstjórnarflokki.
Þeirra á meðal er Sigríður
Ásgeirsdóttir, lögfræðingur,
sem starfað hefir að borgar-
málum síðustu átta ár.
Sigríður hefir í senn góða
menntun og næga reynslu til
þess að axla þetta embætti,
sem er eitt hið vandasamasta í
þjóðfélaginu, og er auk þess
verðugur fulltrúi þess fólks í
Sjálfstæðisflokknum, sem hef-
ir unnið mikið og gott starf.
Auk trúnaðarstarfa að mál-
efnum borgarinnar hefir Sig-
ríður látið til sín taka á sviði
réttindamála þeirra, sem
minna mega sín í bænum.
Sigríður Ásgeirsdóttir, hefir
verið um árabil lögfræðingur
Mæðrastyrksnefndar og lög-
fræðilegur ráðunautur Félags
einstæðra foreldra og í þeim
störfum hefir hún kynnst
mjög náið aðstæðum á hundr-
uðum heimila í bænum. Hér
veit ég að um mjög vandasamt
starf er að ræða, en það hefir
Sigríður rækt, eins og önnur
störf, af einstakri nærfærni og
Sigríður \sgt'irsdó11ir
trúmennsku.
Þá ættu og flestum að vera
kunnug störf hennar að mál-
efnum dýra og kippir henni
þar í kynið, en ömmubróðir
hennar, Tryggvi Gunnarsson,
var stofnandi Dýraverndunar-
félags íslands. Af störfum
hennar á því sviði þer að
sjálfstögðu hæst starfsemi
Dýraspítalans í Víðidal, sem
m.a. fyrir ötula baráttu Sig-
ríðar tók til starfa í sumar er
leið.
Er ekki athugandi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, að það
liggi fyrir í upphafi barátt-
unnar, sem nú hefst senn, að
borgarstjóraefni flokksins sé
kona, — sem allir, sem til
þekkja, eru sammála um, að sé
góðum mannkostum búin?“
Góö matarkaup
Kjúklingar 10 stk. í kassa
Unghænur 10 stk. í kassa
Folaldahakk
Lambakarbonaði
Nautahamborgari
Orvals kjötbúðingur
Nautahakk 10 kg
Reykt folaldakjöt
Saltað folaldakjöt
52 kr. kg
29,50 kr. kg
33 kr. kg
52 kr. kg
5,85 stk.
39 kr. kg
58 kr. kg
29,50 kr. kg
25 kr. kg