Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
„Steindór“ skipti um eigendur um áramótin;
Innkallar sam-
gönguráduneytið
öll stöðvarleyfin?
EIGENDASKIPTI urðu ad Bifrciða-
-slöd Steindórs sf. nú um áramót. 35
bifreidastjórar, sem vinna eða hafa
unnió á stöðinni, keyptu stöðina af
erfinjrjum Steindórs heitins Einars-
sonar, sem slofnaði hana árið 1914 o>>
Vélstjórar
neita fleiri
undanþágum
VÉLSTJOKAK hafa ákveðið að veita
engar undanþágur frá verkfalli sínu
meðan vinnuveitendur aflétta ekki
verkhanni, sem sett var á vélstjóra frá
og með 30. desember. l‘ar með fellur
niður véla- eða öryggisgæzla um borð í
skipum, en vélstjórar hafa séð um að
halda skipum „frostklárum", án þess
þó að standa vaktir um borð í skipun-
um.
Vélstjórafélag íslands, Vélstjóra-
félag Suðurnesja og vélstjórar í
Grindavík standa að þessari ákvörð-
un, sem kom til framkvæmda á mið-
nætti síðastliðnu. Þessi ákvörðun
kann að hafa mikla erfiðleika í för
með sér fyrir útgerðir.
Undanfarna daga hafa Sjómanna-
sambandið og vélstjórar gefið nokkr-
ar undanþágur til að flytja skip á
milli staða vegna viðgerða og breyt-
inga. Meðal annars fékk eitt skip
undanþágu til að fara til Færeyja,
þar sem skipið er í slipp.
rak hana síðan til dauðadags. Brynj-
ólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri í
samgönguráðuneytinu sagði í gær í
samtali við Morgunblaðið, að óheimilt
væri að selja atvinnuleyfin, sem fylgt
hefðu stöðinni. Kvað hann ráðuncytið
ekki myndu geta setið aðgcrðarlaust í
málinu.
I samtali við fulltrúa eigenda
stöðvarinnar, fyrrverandi og núver-
andi, lögfræðingana Hafstein Sig-
urðsson og Þorstein Júlíusson, kom
fram að þeir líta svo á að öðru vísi
beri að fara með stöðvarleyfi
Steindórs en almenn atvinnuleyfi
til Ieigubifreiðaaksturs. Þessi leyfi
séu gefin út 25. maí 1956 á Bifreiða-
stöðina Steindór sf., en ekki á nafn
Steindórs Einarssonar heitins eða
erfingja hans. Tala leyfanna er 45.
Þau séu eign stöðvarinnar og síðan
sé hún seld i einu lagi. Leyfin hafi
verið veitt á sínum tíma án um-
sóknar. Á árinu 1972 hafi verið
samin sérstök reglugerð um Bif-
reiðastöðina Steindór þar sem leyfi
voru gefin út á nöfn erfingja Stein-
dórs, en þau séu öll ómarktæk, þar
sem reglugerðin, sem þau byggist á,
hafi aldrei verið birt og hafi af
þeim sökum ekki nðlazt lagagildi.
Brynjólfur Ingólfsson ráðuneyt-
isstjóri sagði i gær að til álita
kæmu nokkrar leiðir til aðgerða af
hálfu ráðuneytisins. í fyrsta lagi
væri það lögbann af hálfu ráðu-
neytisins, en í annan stað kvað
hann einnig koma til greina að leyf-
in yrðu innkölluð. Taldi hann þá
leið heppilegri.
Heitavatnsleiðsla undir göngugötunni í Austurstræti sprakk fyrir nokkru og leggur mikla gufu upp af henni.
Samkvæmt upplýsingum Mbl. verður unnið að viðgerð leiðslunnar á næstu dögum. Ljósmynd Mbi.
Ráðning fulltrúa á húsnæðisdeild Félagsstofnunar:
Málsmeðferð kærð
til jaftiréttisráðs
Mikill ágreiningur um hliðarráðstafanir:
Alþýðubandalagiö fund-
ar á fimmtudaginn,
Framsókn á fóstudag
ÞINGFLOKKUR Alþýðubandalags-
ins kemur saman til fundar á
fimmtudag og ræðir stöðu efna-
hagsmála, en þingflokkur og fram-
kvæmdastjórn Framsóknarflokksins
á lostudag í sama tilgangi.
Mikill ágreiningur er milli ríkis-
stjórnarflokkanna um hvernig
standa skuli að hliðarráðstöfunum
þeim í efnahagsmálum, sem boð-
verðshækkunar og gengisfell-
ingar.
Alþýðubandalagsmenn hafa
viljað beita einhvers konar milli-
færsluleiðum en framsóknar-
menn, a.m.k. margir hverjir, verið
því mjög andvígir. Þingmennirnir
Halldór Ásgrímsson og Guðmund-
ur G. Þórarinsson hafa staðið
hvað harðast gegn þessum hug-
myndum alþýðubandalagsmanna,
samkvæmt heimildum Mbl.
BIRNA Þórðardóttir, Guðrún Helga-
dóttir, borgarfulltrúi, og Þorbjörn
Broddason, fulltrúi í félagsmálaráði,
hafa farið þess á leit við jafnréttis-
ráð að það kanni hvort lög um jafn-
rétti kvenna og karla hafi verið brot-
in við ráðningu í starf fulltrúa í hús-
næðisdeild Félagsmálastofnunar
Keykjavíkur. Bæði Birna og þau
Guðrún og Þorbjörn vísa í þessu til-
felli til ummæla borgarfulltrúa við
ráðningu í starfið. Birna var eini
kvenmaðurinn, sem um starfið sótti,
en það var veitt karlmanni.
Þau Guðrún og Þorbjörn telja,
að með því að ráða ekki Birnu,
sem þau töldu hæfasta til starfs-
ins, væru jafnréttislögin brotin,
en telja einnig að í ræðum sumra
borgarfulltrúa hafi verið að finna
yfirlýsingar, sem beinlínis stang-
ist á við lögin. Þá nefna þau ræðu
Gerðar Steinþórsdóttur og segja
Guðrún Helga-
dóttir og Þor-
björn Broddason
veitast að Gerði
Steinþórsdóttur
að í henni hafi komið fram starfs-
lýsing, sem hafi verið í iitlu sam-
ræmi við auglýsingu um starfið.
Jafnréttisráði hafa borizt bæði
þessi erindi og hefur vegna þess
óskað starfslýsingar varðandi um-
rætt starf og bókuðum umræðum
um þetta mál.
í tilefni þessa hafði Morgun-
blaðið samband við Gerði Stein-
þórsdóttur og sagði hún, að hún
hefði á umræddum fundi verið
með starfslýsingu frá Félagsmála-
stofnun. Umrædd auglýsing hefði
verið samin af Þorbirni Brodda-
syni, varaformanni félagsmála-
ráðs, í fjarveru hennar og virtist
hún fremur í ósamræmi við starf-
ið en hitt. Það virðist sem verið
væri að reyna að breyta eðli
starfsins án þess að nokkuð hefði
verið rætt um það fyrir fram.
Starfið væri einkum fólgið í að-
stoð við húsnæðisfulltrúa og í að
halda fundi með húsvörðum, gefa
út beiðnir um vara- og viðhalds-
hluti fyrir íbúðir borgarinnar, og
sjá um búferlaflutninga á vegum
borgarinnar. Þetta starf þarfnað-
ist því fremur iðnmenntaðs manns
með þekkingu á viðhaldi húsa, en
háskólamenntaðs manns enda
væru launin samkvæmt 12. launa-
flokki og því hefði húsvörður og
iðnlærður maður verið ráðinn í
starfið, sem húsnæðisfulltrúi
hefði mælt með. í sambandi við
endurskipulagningu stofnunarinn-
ar hefði verið talað um að hús-
næðisdeildin sæi aðeins um rekst-
ur íbúða, en hinn mannlegi þáttur
færðist inn á svið fjölskyldudeild-
ar og því væri það ekki í samræmi
við þessar breytingar, að ráða há-
skólamenntaðan mann að hús-
næðisdeildinni.
Ráðist á
stúlku
RÁÐIST var á stúlku á mótum
Klapparstígs og Njálsgötu þegar hún
var á leið til vinnu sinnar um níu-
leytið á sunnudagsmorgun.
Maður réðst að henni og reyndi
að draga hana inn í húsasund.
Stúlkan veitti mótspyrnu og þegar
maðurinn heyrði í bifreið skammt
frá lagði hann á flótta. Stúlkan
slapp ómeidd.
Stúlkan kærði árásina til lög-
reglunnar og gat gefið svo góða
lýsingu á manninum, að hann náð-
ist fljótlega.
aðar hafa verið í kjölfar fisk-
Er Framsóknarflokkurinn klofinn um flugstöðina?
Ágreiningur vex milli Ólafs Jóhannes-
sonar og Steingríms Hermannssonar
„EDI.ILEGAST væri, að Bandaríkja-
menn greiddu að öllu leyti kostnað
við byggingu flugstöðvarinnar, enda
er það nauðsynlegur þáttur í aðskiln
aði hers og þjóðar, sem ákveðinn var
og líta má á, sem skilyrði við endur-
nýjun herstöðvarsamningsins 1974."
Þannig komst Steingrímur Her
mannsson, formaður Framsóknar
flokksins og samgönguráðherra, að
orði í Morgunblaðinu 31. desemlær
s.l., þegar hann svaraði spurningu
blaðsins um það, hvort enn eigi að
fresta ákvörðun um að hefja fram-
kvæmdir við smíði nýrrar flugstöðv-
ar á Keflavíkurflugvelli.
í Morgunblaðinu 14. október var
það haft eftir Steingrími Her-
mannssyni, að hann hallaðist
meira og meira að því, að Banda-
ríkjamenn ættu að kosta byggingu
flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
að öllu leyti. Sagði hann þetta sína
persónulegu skoðun, en hún væri
ekki ný í Framsóknarflokknum,
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, hefði áður lýst þessari skoð-
Af þessu tilefni sneri Morgun-
blaðið sér til Ólafs Jóhannessonar,
fyrrverandi formanns Framsókn-
arflokksins og utanríkisráðherra,
sem fer með flugstöðvarmálið í
ríkisstjórninni. Birtust viðhorf
utanríkisráðherra hér í blaðinu 15.
október. Sagðist Ólafur Jóhann-
esson ekki vera sammála skoðun
formanns Framsóknarflokksins,
Steingríms Hermannssonar og
bætti við: „Ég tel eðlilegt að Is-
lendingar greiði sinn hluta af
framkvæmdunum." Taldi Ólafur
heppilegast, að kostnaðarskipting
yröi til helminga, eins og um hefði
verið rætt, þó þannig að Banda-
ríkjamenn greiddu aldrei meira en
20 milljónir dollara.
Þegar þessi mál voru til um-
ræðu um miðjan október sagði
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, hér í blaðinu,
að það væri fráleitt að ætla
Bandaríkjamönnum að fjármagna
flugstöð á Keflavíkurflugvelli.
Andstaða Alþýðubandalagsins við
það, að Bandaríkjamenn leggi fé í
Olafur Jóhannemon ulanríkwráóherra:
Ekki sammála Stein-
grími og Tómasi
- umað Bandaríkjamenn jfreiði nugstödvarbygginguna ad fullu
I m f)árligmtrumvirpiiu (Jl lénafjár
nrnrnn pái flrnmtáinn ná
. •* rkkt ny i PrunuAánar
ánum Ttnii Arnnmn kafi áá
Frétt Morgunblaðsins frá 15. október, þegar Olafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra, lýsti sig úsammála þeim Steingrími llermannssyni og Tómasi
Árnasyni, þrátt fyrir þá yfirlýsingu utanríkisráðherra um mál, sem undir
hann heyrir, hefur Steingrímur Hermannsson gengið feti framar í andstöðu
við forvera sinn í formannsstól Framsóknarflokksins.
flugstöðvarbygginguna, veldur
því, að málið veltist ákvörðunar-
laust á milli manna í ríkisstjórn-
inni eða nefnda á hennar vegum.
Með yfirlýsingu sinni á gamla-
ársdag gengur Steingrímur Her-
mannsson þvert á sjónarmið
tveggja utanríkisráðherra úr
Framsóknarflokknum, þeirra Ein-
ars Agústssonar, sem gegndi emb-
ætti utanríkisráðherra, þegar
samið var um fyrirkomulagsbreyt-
ingar á Keflavíkurflugvelli 1974 og
hratt í framkvæmd stefnunni um
kostnaðarskiptinguna, og Ólafs
Jóhannessonar, sem fylgir sömu
stefnu nú og hann gerði um miðj-
an október.